Ég hef ekki næga trú til að vera Guðs afneitari

poster-jesus-resurrection-16Loksins er ég búinn að gera röð af greinum sem eru unnar út frá bókinni "I don't have enough faith to be an atheist".  Mæli með henni fyrir hvern þann sem vill kynna sér trúmál og þá sérstaklega hina kristnu trú. 

Það eru atriði í þessum heimi sem við einfaldlega vitum og þarf enga trú til.  Í fyrsta lagi vitum við að við munum deyja. Fyrir sum okkar þá hefur dauðinn tekið frá okkur ástvini en fyrir hvern þann sem getur lesið þetta þá veit hann fyrir víst að hann mun deyja. Í öðru lagi þá vitum við að við erum sek samkvæmt þessari innri rödd sem við öll höfum og flestir kalla samvisku. Þarf enga trú til því að samviskan segir við okkur að það er rangt að stela, ljúga, hata, myrða og svo framvegis.

Þáttur trúarinnar kemur í formi spurningarinnar "er einhver von í þessu myrkri?".  Hin kristna trú segir já, það er von og þessar greinar hérna fyrir neðan gefa ástæður fyrir því að þessi von sé raunveruleg.   Megi Guð blessa þá sem lesa þetta með opnum huga. 

Pússluspil lífsins - trú og leitin að sannleikanum

Ræður þú við sannleikann?

Sannleikurinn og umburðarlyndi

Á maður að efast um efasemdir David Humes? 

Sönnun fyrir tilvist Guðs: alheimurinn hafði upphaf

Sönnun fyrir tilvist Guðs - uppruni lífs

Guðleysis efnishyggja er óvinur vísinda og skynsemi

Siðferðislögmálið og tilvist Guðs

Ástæður til að treysta Nýja Testamentinu

Handrit Nýja Testamentisins

Er vitnisburður Nýja Testamentisins trúverðugur?

Hver er þjónninn sem Jesaja 53 talar um?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert alveg einstaklega duglegur þjónn Guðs Mofi . Ég ætla að tilnefna þig til gullkrossins 2009 !

conwoy (IP-tala skráð) 1.12.2008 kl. 18:20

2 Smámynd: Mofi

Ég hef nú örugglega ekki gott af svona hrósi :)    Hvað er þessi gullkross?

Mofi, 2.12.2008 kl. 11:34

3 identicon

Gullkrossinn er veittur þeim sem standa sig vel framsetningu og túlkun á Guðlegum málefnum . Reyndar er ekki byrjað á þessari gullkrossaveitingu enn sem komið er, en þess er ekki langt að bíða .

conwoy (IP-tala skráð) 2.12.2008 kl. 19:57

4 Smámynd: Mofi

Áhugavert :)

Mofi, 3.12.2008 kl. 10:25

5 Smámynd: Mofi

Haukur, ef svo er þá hefur ekkert við það sem Kristur bíður þér.  Myndi samt hugsa aðeins betur út í þetta ef ég væri þú.

Ein spurning handa þér, værir þú til í að selja bæði augun þín fyrir 20 miljónir? 

Mofi, 3.12.2008 kl. 13:19

6 identicon

Veistu Mofi þegar þú setur trúnna svona fram þá missir maður allan áhuga á því ap trúa...

Guðmundur Steinbach (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 18:42

7 Smámynd: Birgirsm

Sæll Mofi

Ég er sammála conwoy, þú ert einstaklega öflugur og sannur þjónn Guðs og þú ferð rétt með boðskap og kenningar Biblíunnar, og finnst mér það virðingarvert að þú ert aldrei með neina vinsældarlistaguðfræði

Kveðja  

Birgirsm, 3.12.2008 kl. 20:41

8 Smámynd: Mofi

Guðmundur
Veistu Mofi þegar þú setur trúnna svona fram þá missir maður allan áhuga á því ap trúa...

Endilega útskýrðu.

Birgirsm
Ég er sammála conwoy, þú ert einstaklega öflugur og sannur þjónn Guðs og þú ferð rétt með boðskap og kenningar Biblíunnar, og finnst mér það virðingarvert að þú ert aldrei með neina vinsældarlistaguðfræði

Takk fyrir það Birgir :)     Verst að ég var kosinn vinsælasti kristni bloggarinn

Þið conwoy eruð góðir varðmenn um trúnna og ánægjulegt að eiga ykkur að sem blogg vini.

Mofi, 3.12.2008 kl. 20:49

9 identicon

Vinsældarlista-guðfræði er kannski orð yfir þjóðkirkjutrúnna ? he, he . Eða theologiuna hjá Hirti Magna ?

conwoy (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 20:55

10 Smámynd: Birgirsm

Mofi þú fékkst kostninguna fyrst og fremst vegna framkomu þinnar og endalausrar þolinmæði við það að svara spurningum frá allskonar fólki með allskonar hugmyndir.  GÓÐUR

Birgirsm, 3.12.2008 kl. 21:19

11 identicon

Það var aðallega þetta sem ég hnaut við:

" Í öðru lagi þá vitum við að við erum sek samkvæmt þessari innri rödd sem við öll höfum og flestir kalla samvisku."

Þetta finnst mér hljóma eins og innbyggt þunglyndi inn í trúnna. Ekki vænlegt til vinnings.

Guðmundur Steinbach (IP-tala skráð) 3.12.2008 kl. 21:28

12 Smámynd: Mofi

conwoy
Vinsældarlista-guðfræði er kannski orð yfir þjóðkirkjutrúnna ? he, he . Eða theologiuna hjá Hirti Magna ?

Þeir rembast við að reyna vera með vinsældar guðfræði þó ég veit ekki hvort það er eitthvað að virka. Fyrir utan að þó það virki á menn þýðir ekki að Guð er ánægður.

Birgirsm
Mofi þú fékkst kostninguna fyrst og fremst vegna framkomu þinnar og endalausrar þolinmæði við það að svara spurningum frá allskonar fólki með allskonar hugmyndir.  GÓÐUR

Vonandi :)

Guðmundur
Þetta finnst mér hljóma eins og innbyggt þunglyndi inn í trúnna. Ekki vænlegt til vinnings.

Biblían segir að samviskan tala til okkar og er í rauninni heilagur Andi að tala til okkar.  Ef Guð er yfirhöfuð til þá er rökrétt að Hann sé höfundur þessarar samvisku og ég tel rökrétt að Guð sé ekki sama hvernig við förum með hvort annað.  Er möguleiki að þínu mati að Guð tali óbeint til þín í gegnum samviskuna?  Þú telur þig vera með samvisku, er það ekki?

Mofi, 4.12.2008 kl. 11:15

13 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Ég skrifaði nú aðeins um þennan Frank Turek rugludall um daginn:

http://andmenning.blog.is/blog/andmenning/entry/682845/

Mér virðist þetta vera hraðsoðin stappa af rökleysu hjá karli, sem einungis blinduðu trúfólki geti þótt eitthvað varið í. Svo kom í ljós að a.m.k. einum trúmanni hér á blogginu þótti hún jafn léleg og mér.

Þú lifir og hrærist í sápukúlu Mofi minn, megi hún aldrei springa.

:)

Kristinn Theódórsson, 4.12.2008 kl. 20:08

14 Smámynd: Mofi

Kristinn
Ég skrifaði nú aðeins um þennan Frank Turek rugludall um daginn:

Já, ég sá það :)

Kristinn
Mér virðist þetta vera hraðsoðin stappa af rökleysu hjá karli, sem einungis blinduðu trúfólki geti þótt eitthvað varið í. Svo kom í ljós að a.m.k. einum trúmanni hér á blogginu þótti hún jafn léleg og mér.

Ég er forvitinn að vita hvaða trúmaður það var.  Bókin er pottþétt ekki galla laus en mér fannst margt gott í henni.  Væri gaman að sjá þig koma með dæmi af mótrökum við bókina sem eru að finna í þessari grein sem þú bentir á.

Kristinn
Þú lifir og hrærist í sápukúlu Mofi minn, megi hún aldrei springa.

Vel orðað :)    Þú lifir aftur á móti á grafarbakka, megir þú sjá gröfina og hætta við að hoppa ofan í.

Mofi, 5.12.2008 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband