Hver er þjónninn sem Jesaja 53 talar um?

Í umræðunni við greinina Er vitnisburður Nýja Testamentisins trúverðugur? þá kom upp umræða hver væri þessi þjónn sem Jesaja talar um í 53. kafla bókar sinnar.  Það sem gerir þetta mjög merkilegt er að Jesaja er 800 árum fyrir Krist að lýsa mjög sérstökum einstaklingi sem ég tel aðeins geta verið Jesú sjálfan.  Mig langar aðeins að fara betur yfir það svo fyrst versin sem um ræðir:

Jesaja 53
prophet-isaiah-3443-mid1Hver trúði því sem oss var boðað
og hverjum opinberaðist armleggur Drottins?
2Hann óx upp eins og viðarteinungur fyrir augliti Drottins,
eins og rótarkvistur úr þurri jörð.
Hann var hvorki fagur né glæsilegur ásýndum
né álitlegur svo að oss fyndist til um hann.
3Hann var fyrirlitinn og menn forðuðust hann,
harmkvælamaður og kunnugur þjáningum,
líkur manni sem menn byrgja augu sín fyrir, 
fyrirlitinn og vér mátum hann einskis.
4En vorar þjáningar voru það sem hann bar
og vor harmkvæli er hann á sig lagði.
Vér álitum honum refsað,
hann sleginn og niðurlægðan af Guði.
5En hann var særður vegna vorra synda,
kraminn vegna vorra misgjörða.
Honum var refsað svo að vér fengjum frið
og fyrir benjar hans urðum vér heilbrigðir.
6Vér fórum allir villir vegar sem sauðir,
héldum hver sína leið
en Drottinn lét synd vor allra
koma niður á honum.
7Hann var hart leikinn og þjáður
en lauk eigi upp munni sínum
fremur en lamb sem leitt er til slátrunar
eða sauður sem þegir fyrir þeim er rýja hann,
hann lauk eigi upp munni sínum.
8Hann var fjötraður, dæmdur og leiddur burt
en hver hugsaði um afdrif hans
þegar hann var hrifinn burt af landi lifenda?
Vegna syndar míns lýðs var honum refsað.
9Menn bjuggu honum gröf meðal guðlausra,
legstað meðal ríkra
þótt hann hefði ekki framið ranglæti
og svik væru ekki í munni hans.
10En Drottni þóknaðist að kremja hann og þjaka.
Þar sem hann færði líf sitt að sektarfórn
fær hann að sjá niðja sína og lifa langa ævi
og vegna hans nær vilji Drottins fram að ganga.
11Að þjáningum sínum loknum mun hann sjá ljós
og seðjast af þekkingu sinni.
Þjónn minn mun réttlæta marga
því að hann bar syndir þeirra.
12Þess vegna fæ ég honum hlutdeild með stórmennum
og hann mun skipta feng með voldugum
vegna þess að hann gaf líf sitt í dauðann
og var talinn með illræðismönnum.
En hann bar synd margra
og bað fyrir illræðismönnum

Hérna sjáum við eftirfarandi lýsingu á þessum þjóni:

  • Þjóninn mun þjást vegna synda annarra.
  • Vegna hans þjáninga og dauða þá fengum "við" frið og urðum heilbrigð.
  • Þjónninn lauk ekki upp munni sínum þegar átti að refsa honum ( Jóhannes 19: 8)
  • Hann var drepinn eða eins og versið segir "hrifinn burt af landi lifenda".
  • Hann var syndlaus eða eins og versið segir " hann hafði ekki framið ranglæti".
  • Hann fékk gröf meðal ríkra ( Matteus 27:56-60 )
  • Þjóninn mun lifna við og sjá þá sem hann dó fyrir lifa langa æfi.
  • Þjónninn mun verða voldugur.

Sumir reyna að láta sem þessi vers eigi við Ísrael en augljóslega þá var Ísrael ekki syndlaust. Af sögu spámananna af þessari þjóð þá var hún sífellt að brjóta af sér svo að Guð þurfti aftur og aftur að senda spámenn til að setja hana aftur á réttan veg. Þjóðin var heldur ekki tekin af landi hinni lifenda og fengið gröf meðal ríkra manna.  Nei, hérna sjáum við merkilegan spádóm um Krist sem hefur ræst sem betur fer því það þýðir að mannkynið hefur von gagnvart dauðanum og dómi Guðs.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Rósant

Þessi spádómur er álitinn af SDAðventistum og fleiri trúuðum um Jesúm. Segjum nú að svo sé.

Þá er að líta á persónulýsingu þá sem gefin er upp:  "Hann var hvorki fagur né glæsilegur ásýndum né álitlegur svo að oss fyndist til um hann. Hann var fyrirlitinn og menn forðuðust hann, harmkvælamaður og kunnugur þjáningum, líkur manni sem menn byrgja augu sín fyrir, fyrirlitinn og vér mátum hann einskis."

Þessi lýsing passar ekki við þær myndir sem við höfum í kolli okkar um útlit Jesú. Hann er þvert á móti fagur og glæsilegur ásýndum og öllum finnst mikið til hans koma sem fyrirmynd. Honum er líka lýst þannig í N.T. að allir litu upp til hans og margir virtu hann og vildu fylgja honum. Hvergi er minnst á að hann hafi verið fyrirlitinn.

Þá sjáum við Mofi að þessi spádómur rættist ekki 100%.

Sigurður Rósant, 11.11.2008 kl. 16:45

2 identicon

Tjah, hann er hrakinn úr heimabæ sínum til að nefna dæmi.

Það eru margvíslegar skýrar heimildir fyrir því að hann hafi verið fyrirlitinn af hinum ýmsu hópum. Þannig að það eitt og sér er nú ekki alveg rétt Sigurður. Restina læt ég vera.

Jakob (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 17:12

3 Smámynd: Mofi

Rósant, eins og Jakob bendir á þá fyrirlitu margir Jesú. Sömuleiðis þá er hvergi neitt fjallað um hvernig Hann leit út svo hérna sé ég aðeins að textinn er að segja að þessi þjónn leit ekki út fyrir að vera frelsari heimsins; ekki að hann hafi verið eitthvað ljótur.  Hvernig hinir og þessir kristnir hafa teiknað myndir af Kristi hefur lítið vægi í þannig umræðu.

Takk fyrir góða athugasemd Jakob.

Mofi, 11.11.2008 kl. 17:47

4 Smámynd: Sigurður Rósant

Svo segir Jesaja um eftirfarandi efnisatriði: "Menn bjuggu honum gröf meðal guðlausra, legstað meðal ríkra..."

Þetta passar ekki við frásögn í Lúk 23:50-52  "Maður er nefndur Jósef. Hann var ráðsherra, góður maður og réttvís og hafði ekki samþykkt ráð þeirra né athæfi. Hann var frá Arímaþeu, borg í Júdeu, og vænti Guðs ríkis. Hann gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú,"

Hvernig kemur það nú heim og saman að guðleysingi eigi jafnframt von í Guðs ríki?

Svona er hægt að benda á ótal atriði sem standast ekki þegar vel er að gáð.

Sigurður Rósant, 11.11.2008 kl. 18:39

5 identicon

Ég er sammála Sigurði að Jesú frásögnin checkar ekki út í alla kassa í spádómum Jesaja og annarra, en þar gengur hann jú út frá að það sem við höfum í höndunum séu tæmandi heimildir um lífsferil Jesú. Ef um hreinan uppspuna væri að ræða þá gæti þetta samfélag falsara svo auðveldlega látið frásögnina smella mun betur við hvern einasta spádóm GT. frá upphafi. Enda virtist Jesú ekki vera sá maður sem beðið var eftir, enda kom auðmjúk frásögn hans gyðingum mörgum í algerlega opna skjöldu. Það er mín tilfining að engin ritara nema Jóhannes hafi fullan skilning á því hvað hann er að rita niður. Enda er hann predikari/túlkari mun frekar en ritari á borð við hina 3.

Þó var Jósef ekki guðleysingi, heldur lærisveinn á laun. Má færa þau rök fyrir því að nálægar ríkra manna grafir hafa verið "grafir guðlausra" í NT´legum skilningi.

Annars er þetta ekki punktur sem ég ætla að verja ýtarlega, þar sem margt kemur mér sjálfum spánskt fyrir sjónir í sambandi Gamla testamentisins og því nýja. 

Jakob (IP-tala skráð) 11.11.2008 kl. 18:55

6 Smámynd: Mofi

Rósant, eins og svo oft þá er íslenska þýðingin léleg svo vægt sé til orða tekið.  Hebreska orðið þarna er "raw-shaw" sem þýðir "sekur". Réttari þýðing væri þessi hérna:

Jesaja 53:9 
And he made his grave with the wicked, and with the rich in his death; because he had done no violence, neither was any deceit in his mouth.

Jesú dó meðal glæpamanna en síðan var grafinn meðal ríkra eins og þú bentir á sem við finnum í Lúkasarguðspjalli 23:50-52.

Mofi, 11.11.2008 kl. 19:14

7 Smámynd: Sigurður Rósant

Jesaja heldur áfram og fullyrðir: "En Drottni þóknaðist að kremja hann og þjaka."

Það kemur hvergi fram í N.T. að Drottinn hafi kramið og þjakað meintan son sinn. Jesaja er þarna að bera ljúgvitni gegn Guði sínum, sýnist mér. Er það ekki talið guðlast að kenna Guði um pyntingar þó sjálfskipaðir þjónar hans hafi staðið fyrir neglingu 'sonarins' með aðstoð rómverskra hermanna setuliðsins?

Var það þá andstætt vilja þessa Drottins að þeim Jósefi guðleysingja og Nikódemusi jurtalækni tækist að fá hann niður af krossinum og hjúkra honum til endurlífgunar?

Eru þessi orð Jóhannesar benda til að andstæðingar Drottins hafi hlúð að syninum svo vel að hann lifði krossfestinguna af: "Jósef frá Arímaþeu, sem var lærisveinn Jesú, en á laun af ótta við Gyðinga, bað síðan Pílatus að mega taka ofan líkama Jesú. Pílatus leyfði það. Hann kom þá og tók ofan líkama hans. Þar kom líka Nikódemus, er fyrrum hafði komið til hans um nótt, og hafði með sér blöndu af myrru og alóe, nær hundrað pundum. Þeir tóku nú líkama Jesú og sveipuðu hann línblæjum með ilmjurtunum, eins og Gyðingar búa lík til greftrunar."

Hér er tvívegis talað um líkama en aðeins að þeir hafi meðhöndlað líkamann sem lík. Jóhannes segir hér í raun og veru að Jesús dó ekki heldur missti meðvitund og lifnaði við aftur á gjörgæsludeild Jósefs og Nikódemusar.

Svo enn og aftur gengur þessi umræddi spádómur ekki upp.

Sigurður Rósant, 11.11.2008 kl. 20:49

8 Smámynd: Mofi

Rósant
Er það ekki talið guðlast að kenna Guði um pyntingar þó sjálfskipaðir þjónar hans hafi staðið fyrir neglingu 'sonarins' með aðstoð rómverskra hermanna setuliðsins?

Jesús gefur svipað til kynna þegar Hann segir að enginn tekur lífið af Honum heldur lætur Hann það af hendi. Ekki beint að Guð sjálfur pyntaði en óbeint með því að leyfa að það mætti gerast.

Rósant
Var það þá andstætt vilja þessa Drottins að þeim Jósefi guðleysingja og Nikódemusi jurtalækni tækist að fá hann niður af krossinum og hjúkra honum til endurlífgunar?

Skiptir ekki máli þar sem við höfum enga ástæðu til að ætla að einhver hafi hjúkrað Jesú til heilsu.

Rósant
Hér er tvívegis talað um líkama en aðeins að þeir hafi meðhöndlað líkamann sem lík. Jóhannes segir hér í raun og veru að Jesús dó ekki heldur missti meðvitund og lifnaði við aftur á gjörgæsludeild Jósefs og Nikódemusar.

Bjuggu um líkamann sem lík og settu í gröf sem var síðan lokuð í nokkra daga.  Það er marg oft sagt að Jesú hafi dáið en menn geta auðvitað trúað því sem þeir vilja en ég sé ekki góð rök fyrir þinni afstöðu.

Mofi, 12.11.2008 kl. 10:20

9 Smámynd: Sigurður Rósant

Já, samferðamenn Jesú héldu stundum að fólk væri dáið, en Jesús vissi stundum betur eins og kemur fram í Matt. 9:24 "Farið burt! Stúlkan er ekki dáin, hún sefur." En þeir hlógu að honum.

Hví skyldi það ekki hafa verið möguleiki? Það er hægt að tína til margvísleg rök þessari skoðun til stuðnings, en læt það liggja milli hluta að sinni.

Jósef þessi frá Arímaþeu var með gröf á sinni einkalóð, var vinur Jesú og þótti meðferðin á honum ósanngjörn. Hann ásamt Nikódemusi hafa greinilega fengist við einhvers konar lækningar og ekkert ólíklegt að Jesú hafi rankað við sér þegar líkami hans var smurður myrru og alóu. Enda ýmislegt sem bendir til þess að hann hafi ekki lengi verið á krossinum. Myrkur skall á skv. frásögn sumra o.s.frv.

Kvenfólkinu og nánustu lærisveinunum var hins vegar haldið frá þessari meðferð á líkama Jesú á einkalóð Jósefs. Enda flestir talið hann látinn.

Svo spádómurinn reynist vera um einhvern annan en þennan Jesúm sem skrifað er um í N.T.

Sigurður Rósant, 12.11.2008 kl. 11:59

10 Smámynd: Mofi

Rósant
Já, samferðamenn Jesú héldu stundum að fólk væri dáið, en Jesús vissi stundum betur eins og kemur fram í Matt. 9:24 "Farið burt! Stúlkan er ekki dáin, hún sefur." En þeir hlógu að honum.

Þú hlýtur að vita betur en ert að... bara veit ekki.  Biblían marg oft lýsir dauðanum sem svefni og það var það sem um var að ræða þarna.

Rósant
Hví skyldi það ekki hafa verið möguleiki? Það er hægt að tína til margvísleg rök þessari skoðun til stuðnings, en læt það liggja milli hluta að sinni.

Jú, eins og ég sagði, maður getur trúað eins og maður vill. Fyrir mitt leiti þá gengur það á vitnisburð alls Nýja Testamentisins þar sem rauði þráðurinn í því er að Kristur dó.  Þannig að spádómurinn rættist ekki af því að þú trúir því að Kristur dó ekki jafnvel þótt það gangi þvert á vitnisburðinn sem við höfum?  Þetta hlýtur að verðskulda að vera kallað hundalógík :)

Mofi, 12.11.2008 kl. 13:55

11 Smámynd: Sigurður Rósant

Þannig að spádómurinn rættist ekki af því að þú trúir því að Kristur dó ekki jafnvel þótt það gangi þvert á vitnisburðinn sem við höfum?

Nei, Mofi ekki einungis vegna þess að Kristur dó ekki á krossinum, heldur líka vegna þess að spádómurinn er í raun ekki það ljós að eitthvað sérstakt verði ráðið af honum. Jesaja 53 virkar á mig sem örvæntingarfullt prósa sem er hvorki fugl né fiskur.

Sigurður Rósant, 12.11.2008 kl. 21:04

12 Smámynd: Mofi

Rósant, en þau atriði sem ég listaði upp sem þjónninn átti að gera og það sem átti að gerast fyrir þjóninn?  Koma þau ekki út frá versunum í kaflanum?

Mofi, 13.11.2008 kl. 09:58

13 Smámynd: Sigurður Rósant

Ef þú vilt, get ég svo sem farið í gegnum þennan lista:

  •  Þjóninn mun þjást vegna synda annarra.

Það getur enginn einn maður þjáðst fyrir syndir eða mistök allra annarra. Þetta er bara óskhyggja eða útópía sem er merkingarlaus.

  •  Vegna hans þjáninga og dauða þá fengum "við" frið og urðum heilbrigð.

Ég hef nú ekki orðið var við það að einhver hópur sem kallar sig "við" hafi öðlast einhvern sérstakan frið, hvað þá orðið heilbrigð.

  •  Þjónninn lauk ekki upp munni sínum þegar átti að refsa honum ( Jóhannes 19: 8)

Þessi hegðun er ekkert óeðlileg þegar afbrotamenn eru handteknir. Þeir þegja oft þunnu hljóði og drjúpa höfði.

  • Hann var drepinn eða eins og versið segir "hrifinn burt af landi lifenda".

Þetta passar nú ekki alveg um þann Jesúm sem guðspjöllin greina frá eins og ég hef komið að áður.

  • Hann var syndlaus eða eins og versið segir " hann hafði ekki framið ranglæti".

Þessi Jesús hafði brotið lög Gyðingasamfélagsins og hagað sér ósæmilega innan um fræðimenn Gyðinga, svo þetta passar ekki heldur.

  • Hann fékk gröf meðal ríkra ( Matteus 27:56-60 )
  • Þjóninn mun lifna við og sjá þá sem hann dó fyrir lifa langa æfi.

 Þetta tvennt passar við Jesúm er hann lá á gjörgæsludeild Jósefs hins ríka og komst til meðvitundar er hann var nuddaður með myrru og alóa. En hversu lengi hann lifði eftir það fer engum sögum af.

  •  Þjónninn mun verða voldugur.

Jesús varð alveg valdalaus eftir að hann rankaði við sér og fór að öllum líkindum huldu höfði og hafði hægt um sig meðal einhverra vina sinna.

Þannig að þú sérð Mofi hversu sundurlaus og merkingarlaus þessi 'spádómur' er.

Sigurður Rósant, 13.11.2008 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 802784

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband