Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012

Greining á höfundum heilsubóka og hvort þeirra eigin ráð virka

Horfði á skemmtilegt myndband þar sem farið er yfir heilsubækur og höfunda þeirra og hvort að þeirra ráð virka. Dáldið fast skotið en vanalega er sannleikurinn beittur.

 


mbl.is Kynþokkafyllsta grænmetisætan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning 14 fyrir þróunarsinna - Vísindi sem snúast um fortíðina

Vandamálið við sköpun þróun er að enginn sá þegar Guð skapaði heiminn og enginn sá líf kvikna og þróast í miljarða ára.  Þegar fólk hugsar um vísindi þá vanalega er það að hugsa um tilraunir sem er hægt að endurtaka og þannig erum við að öðlast nákvæma þekkingu á því hvernig heimurinn virkar. Sköpun þróun er af öðrum toga, þá erum við eins og rannsóknarlögreglumaður að koma á vettvang glæps og hann reynir að púsla saman sögu varðandi hvað gerðist út frá mjög takmörkuðum gögnum. Einhver sem hefur horft á CSI veit að bara þótt þú finnir morðvopnið og það eru fingraför á því þá þýðir það ekki að sá sem á fingraförin er hinn seki því það er svo margt sem þarf að taka tillit til, til að komast sem næst sannleikanum.

Öll vísindi sem reyna að finna út hvað gerðist í fortíðinni eru í rauninni trúarlegs eðlis.


Spurning 13 til þróunarsinna - Hvað hefur þróunarkenningin lagt að mörkum til vísindanna?

Dr Marc Kirschner, deildarstjóri í "Systems Biology" í Harvard sagði þetta um framlag þróunarkenningarinnar til vísinda:

Dr Marc Kirschner - Boston Globe, 23 October 2005.
In fact, over the last 100 years, almost all of biology has proceeded independent of evolution, except evolutionary biology itself. Molecular biology, biochemistry, physiology, have not taken evolution into account at all.

Sem sagt, öll líffræðin hefur vaxið óháð þróunarkenningunni, allt nema þróunarlíffræðin sjálf. Allar aðrar greinar líffræðinnar hafa ekkert haft neitt að gera við þróunarkenninguna. Enn fremur sagði Dr Skell eftirfarandi:

Skell, P.S., The Dangers Of Overselling Evolution - Forbes magazine, 23 Feb 2009
It is our knowledge of how these organisms actually operate, not speculations about how they may have arisen millions of years ago, that is essential to doctors, veterinarians, farmers … .”

Miklu frekar þá hindrar þróunarkenningin alvöru vísindi og framfarir, sjá hérna grein um það: Railroad wants monkey off its back

Af hverju eru skólar að sóa dýrmætum tíma og peningum sem hefði verið hægt að setja í alvöru vísindi þar sem náttúruan er bara rannsökuð, vísindi sem við vitum að hafa bætt þekkingu og líf fólks í kenningu sem hefur ekki lagt neitt alvöru að mörkum til vísinda?


Er það sport að rífa hausinn af skjaldböku?

Ég get ekki annað en brosað þegar ég sé mynd af svona kríli eins og "Einmana-Georg". Það er eitthvað krúttlegt og sætt við skjaldbökur. 

Fyrir nokkrum dögu rakst ég á myndband og ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég sá hvað fólkið var að gera. Fullorðið fólk að gera það að sporti að rífa hausinn af lifandi skjaldbökum!  Þetta var flokkað sem sport í Indiana í Bandaríkjunum þar sem fólk kom til að fylgjast með þessu. Að fólk skuli geta verið svona djöfulegt er alveg ótrúlegt.

Ellen White sagði mjög áhugavert varðandi það fólk sem kemur illa fram við dýr:

Ellen White, Patriarchs and Prophets, p. 443
He who will abuse animals because he has them in his power is both a coward and a tyrant. A disposition to cause pain, whether to our fellow men or to the brute creation, is satanic. Many do not realize that their cruelty will ever be known, because the poor dumb animals cannot reveal it. But could the eyes of these men be opened, as were those of Balaam, they would see an angel of God standing as a witness, to testify against them in the courts above. A record goes up to heaven, and a day is coming when judgment will be pronounced against those who abuse God's creatures 

 Og á öðrum stað segir hún þetta:

Ellen White - The Signs of the Times Nov. 25, 1880.
A man who is harsh, severe and domineering toward the lower animals, because he has them in his power, is both a coward and a tyrant. And he will, if opportunity offers, manifest the same cruel, overbearing spirit toward his wife and children

Það fólk sem fer illa með dýr myndi ef að tækifæri gæfist koma fram með sams konar grimmum hætti við eiginkonu og börn. 

Hérna er myndbandið: http://www.youtube.com/watch?v=MK--Y3KH29I&feature=plcp

Hérna er áskrifarsöfnun þar sem er verið að benda á þennan viðbjóðslega atburð, sjá: http://www.change.org/petitions/stop-snapperfest


mbl.is Einmana-George dauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning 12 til þróunarsinna - af hverju eru "just so" sögur samþykttar sem vísindi?

Þróunarsinna nota oft sveigjanlegan skáldskap til að útskýra gögn sem passa ekki við þróunarkenninguna. NAS(USA) meðlimur Dr Philip Skell skrifaði:

Dr Philip Skell
Darwinian explanations for such things are often too supple: Natural selection makes humans self-centered and aggressive—except when it makes them altruistic and peaceable. Or natural selection produces virile men who eagerly spread their seed—except when it prefers men who are faithful protectors and providers. When an explanation is so supple that it can explain any behavior, it is difficult to test it experimentally, much less use it as a catalyst for scientific discovery

Endilega horfið á myndbandið því þar er farið yfir margar af svona sögum, jafnvel harðir þróunarsinnar hljóta að geta séð að það er eitthvað fyndið við þetta. Eitt gott dæmi er kamakasí fisk eðlan, sjá: http://creation.com/kamikaze-ichthyosaur


Spádómur Biblíunnar um Rómarveldi

Í kringum 500 fyrir Krist þá var Hebrea að nafni Daníel sem bjó í Babelón.  Guð ákvað að upplýsa mannkynið um framtíð stórvelda þess tíma alveg fram á okkar daga svo að við gætum verið viss um að síðasti parturinn af þessum spádómi mun líka rætast en það er að Guð setur á stofn sitt eigið ríki sem mun vara að eilífu.

Í Daníel 2 lesum við að Nebúkadnesar, konungur Babílónar dreymdi draum sem hann gat ekki munað en hann var alveg viss um það að draumurinn hafi verið mjög mikilvægur.  Í gegnum röð atburða þá var það maður að nafni Daníel sem með hjálp Guðs gat sagt konginum hver draumurinn var og hvað draumurinn þýddi.

Við finnum þessa sögu í Daníels bók í Gamla Testamentinu og hérna eru versin sem lýsa draumnum og þýðing Daníels á draumnum:

nr3-dream Daníel 2
24Daníel fór þessu næst til Arjóks, sem konungur hafði sett til að taka vitringana í Babýlon af lífi, og sagði við hann: „Þú skalt ekki taka vitringana í Babýlon af lífi. Farðu með mig til konungs og ég mun ráða drauminn fyrir hann.“
25Og Arjók leiddi Daníel tafarlaust fyrir konung og sagði: „Ég fann mann meðal herleiddu mannanna frá Júda, sem getur sagt konungi merkingu draumsins.“
26Konungur sagði við Daníel sem kallaður var Beltsasar: „Getur þú sagt mér hver sá draumur var sem mig dreymdi og hvað hann merkir?“
27Daníel svaraði konungi: „Það er ofviða öllum vitringum, særingamönnum, galdramönnum og spásagnamönnum að opinbera konungi leyndardóm þann sem hann spyr um. 28En á himnum er sá Guð sem opinberar leynda hluti og hann hefur nú boðað þér, Nebúkadnesar konungur, hvað verða muni á hinum síðustu dögum. Þetta er draumurinn og sýnirnar sem komu þér í hug í rekkju þinni:
29Konungur, þegar þú hvíldir í rekkjunni hvarflaði hugur þinn að því hversu fara mundi á ókomnum tíma. Og hann, sem opinberar leynda hluti, sýndi þér hvað í vændum er. 30En um mig er það að segja að ekki er það vegna neinnar visku sem mér er gefin fram yfir aðra þá menn sem nú lifa að mér hefur opinberast þessi leyndardómur, heldur skyldi ráðning draumsins gefin þér, konungur, svo að þér yrðu hugsanir hjarta þíns ljósar.
31Þú horfðir fram fyrir þig, konungur, og við þér blasti risastórt líkneski. Líkneskið var feikistórt og stafaði af því skærum bjarma. Það var ógurlegt ásýndum þar sem það stóð frammi fyrir þér. 32Höfuð líkneskisins var úr skíragulli, brjóst og armleggir úr silfri en kviður og lendar úr eir, 33fótleggirnir úr járni en fæturnir að hluta úr járni og að hluta úr leir.
34Meðan þú horfðir á losnaði steinn nokkur án þess að mannshönd kæmi þar nærri. Hann lenti á fótum líkneskisins, gerðum úr járni og leir, og mölvaði þá. 35Þá molnaði niður allt í senn, járn, leir, eir, silfur og gull og fór sem hismi á þreskivelli um sumar. Vindurinn feykti því burt svo að þess sá ekki framar stað. Steinninn, sem lenti á líkneskinu, varð hins vegar að stóru fjalli sem þakti alla jörðina.
36Þetta var draumurinn. Nú segi ég þér merkingu hans, konungur.
37Þú, konungur, ert konungur konunganna og þér hefur Guð himnanna veitt konungdóm, vald, mátt og tign. 38Þér hefur hann selt mennina á vald hvar sem þeir búa, dýr merkurinnar og fugla himinsins og látið þig drottna yfir þessu öllu. Þú ert gullhöfuðið. 39En eftir þinn dag mun hefjast upp annað konungsríki, valdaminna en þitt og á eftir því þriðja ríkið, eirríkið sem mun drottna yfir veröldinni allri. 40Þá mun magnast upp fjórða ríkið, sterkt sem járn. Járn sneiðir sundur og brytjar alla aðra hluti og eins og járnið sneiðir sundur, eins mun þetta ríki brytja og sundurlima öll hin ríkin. 41Fætur sástu og tær sem voru að hluta úr efni leirkerasmiðs en að hluta úr járni. Það boðar að ríkið mun klofna. Það mun þó varðveita að nokkru styrk járnsins því að þú sást að leirinn var blandinn járni. 42Tærnar á fótunum voru að hluta úr járni og að hluta úr leir og eftir því verður það ríki öflugt að nokkru en máttlítið að nokkru. 43Þú sást að járni var blandað í leirinn. Það merkir að giftingar leiða til samrunans en ekki til samlögunar fremur en að járn og leir blandist saman.
44Á dögum þessara konunga mun Guð himnanna magna upp ríki sem aldrei mun hrynja og ekki verða selt annarri þjóð í hendur. Það mun eyða öllum þessum ríkjum og gera þau að engu en standa sjálft að eilífu. 45Það er steinninn sem þú sást losna úr fjallinu, án þess að nokkur mannshönd kæmi nærri, og mölvaði jafnt járn sem eir, leir, silfur og gull. Mikill er sá Guð sem nú hefur birt konungi það sem í vændum er. Draumurinn er sannur og ráðning hans ótvíræð.“
46Nebúkadnesar konungur féll þá fram á ásjónu sína, laut Daníel og bauð að fórna honum matfórn og reykjarfórn. 47Og konungur sagði við Daníel: „Vissulega er Guð ykkar guð guðanna og konungur konunganna. Og leynda hluti opinberar hann fyrst þér tókst að ráða þennan leyndardóm.“ 

Það sem við fáum að sjá þarna er stytta sem er skipt upp í mismunandi hluta. Hver hluti er úr sérstökum málmi sem táknar mismunandi stórveldi á jörðinni.  Daníel tekur fram að Babílón er fyrsta ríkið en eftir það kæmi annað sem er táknað með handleggjum og brjósti úr silfri. Við vitum út frá mannkynssögunni að ríkið sem sigraði Babelón voru Medar og Persar. Eftir það kæmi annað ríki sem táknað er með lendum úr eir ( brons ) og við vitum að Grikkland sigraði Meda og Persa. Síðasta ríkið er táknað með járn leggjum en við vitum að Rómarveldi sigraði Grikkland og tók við sem heimsveldi sem teygði sig að því við vitum núna, allt til Japans.

Núna kemur það sem er virkilega áhugavert en það er að spádómurinn segir að Rómarveldi yrði ekki sigrað af öðru ríki heldur myndi það skiptast upp í smærri ríki og það er táknað með fótum þar sem járn er blandað með leir.  Þetta rættist þegar Rómarveldi sundraðist og varð að því sem við köllum í dag Evrópu.   Spádómurinn tekur sérstaklega fram að menn munu reyna að nota giftingar til að sameina þetta veldi en það myndi aldrei takast. Við vitum frá mannkynssögunni að kongar Evrópu reyndu hvað þeir gátu að sameina Evrópa með t.d. giftingum en það gékk ekki.  Menn síðan eins og Napóleon og Hitler reyndu að sameina Evrópu en þeim tókst það ekki.

Síðan segir spádómurinn að á tímum Evrópu mun Guð setja á stofn sitt eigið ríki sem verður eilíft ríki.

Í áttunda kafla Daníels bókar er fjallað um aðra sýn sem Daníel fékk og þar eru tvö af þessum ríkjum nefnd á nafn, Medar og Persar og síðan Grikkland. Með því að bera saman lýsingarnar milli annars kafla Daníels, sjöunda og áttunda er hægt að tengja þetta auðveldlega saman.

Hérna er fyrirlestur um þetta sama efni en farið miklu ýtarlegra í það.

 


mbl.is Rómverskar minjar finnast í Japan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara að borða banana

Það er mjög áhugavert að ef að fólk breytir mataræðinu og skiptir yfir í grænmeti og ávexti að þá fjúka kílóin af.  Það virðist vera fljótandi þarna úti sú hugmynd að ávextir gerir fólk feitt. Að sykurinn í þeim breytist í fitu eða eitthvað þannig.  Málið er það að líkaminn leikur sér að því að melta ávexti og getur auðveldlega nýtt þá í orku. Maður þarf samt að forðast fitu mikla ávexti og hnetur ef að málið er að grennast.  Ein góð leið er að hama í sig banana, hellings orka í þeim og næringarefni og þeir fita ekki.

Þeir sem eru ávaxtaætur þeir borða alveg óheyrilega mikið af ávöxtum og þeirra aðal vandamál er að borða nógu mikið til að fá nógu mikla orku. Hérna eru nokkur myndbönd sem fjalla um þetta:


mbl.is Gengur hræðilega illa að léttast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veistu sannleikann um mjólkina?

Fyrir þá sem vilja vita um heilsufarsleg áhrif mjólkurafurða langar mig að benda á þessa mynd hérna: http://www.milkdocumentary.com/

Ég var búinn að benda á þennan fyrirlestur áður en læt mig hafa það, hann er vel þess virði.


mbl.is Mjólkin hækkar um 4% í verði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spurning 11 til þróunarsinna - Hvernig fór blind efnafræði að búa til kærleika?

Þetta er aðalega áskorun til þeirra sem telja að kærleikur og réttlæti eru eitthvað raunverulegt og skiptir máli að hafna þróunarkenningunni því að samkvæmt henni eru þetta bara efnafræðilegar tálsýnir.


Biblían með lausnina á skuldavandanum

Vandamál heimsins er skuldavandamál en Biblían er með efnahagsmódel sem snýst um velferð fólk, sjá: http://en.wikipedia.org/wiki/Jubilee_%28biblical%29


mbl.is Vandi alls heimsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband