En það er í lagi að myrða, við erum ekki lengur undir lögmáli!

guns4_080421_ssh.jpgMér þótti það athyglisvert að Gerald Gallant fékk morð beiðnirnar í kirkju; spurning hvort að einhverjir meðlima þeirra kirkju voru á þessari skoðun að það væri í lagi að myrða fyrst að við erum ekki lengur undir lögmáli.

Þegar umræða meðal kristna kemur að boðorðinu um að halda sjöunda daginn heilagan sem hvíldardag þá koma þessi rök að kristnir þurfa ekki að halda hvíldardaginn af því að við erum undir náð en ekki lögmáli.  Svo auðvitað vaknar þá sú spurning, ef það er í lagi að brjóta hvíldardags boðorðið af því að við erum undir náð, er þá ekki líka í lagi að brjóta hin níu?

Svarið ætti að vera "auðvitað ekki". Auðvitað vilja kristnir ekki stela, ekki ljúga, ekki myrða og svo framvegis.  Ég trúi að þeir ættu líka vilja að fara eftir boðorðinu sem segir eftirfarandi: Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan. Þú skalt vinna sex daga og sinna öllum verkum þínum. En sjöundi dagurinn er hvíldardagur Drottins - 2. Mósebók 20:8-10

 

Í gegnum söguna þá hafa sumir "kristnir" komist að þeirri niðurstöðu að það væri í lagi að drepa þá sem predikuðu að halda sjöunda daginn heilagan, sjá:

Þegar við skoðum spádóma í Opinberunarbókinni þá talar hún oft um merki dýrsins og að þeir sem munu neita að taka við því munu verða ofsóttir.  Það eina sem einstaklingur þarf að gera til að fá þetta merki ekki á sig er að halda boðorð Guðs.  Ég trúi því að atriðið sem valda þessum ágreiningi og láta svo kallaða kristna aftur ofsækja þá sem eiga að vera trú systkini sín vera hvíldardags boðorðið.

Ég trúi því ekki að þeir sem halda sunnudaginn í dag eru með merki dýrsins eru með merki dýrsins; reyna að hafa það alveg á hreinu.   Þetta merki er merki sem veraldlegt vald mun setja á fólk og ef fólk hlýðir ekki þá mun það ekki geta selt eða keypt og mun vera jafnvel drepið. Þegar það gerist þá verður þetta að þessu merki.  Ef ég skil spádóma Biblíunnar um þetta atriði rétt þá verður hvíldardagurinn það sem þessar ofsóknir munu snúast um.


mbl.is Leigumorðingi játar 28 morð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Jón

Var ég ekki búinn að banna þér að nota þennan strámann í öðrum bloggfærslum?

Einar Jón, 1.4.2009 kl. 12:27

2 identicon

Spurningin til Mófa og annara trúaðra: Myndirðu drepa ef það væri ekki bannað í boðorðunum 10?

Það er náttúrulega ákveðin sjúkleiki að taka lög úr einhverri +2000 ára gamalli sögu fram yfir td. landslög og náttúrulega mannréttindi annara til að lifa.

Arnar (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 12:50

3 Smámynd: Mofi

Einar, ég verð víst að iðrast í sand og ösku, sorry fyrir það :)

Arnar, nei, það myndi brjóta gegn þá samvisku minni.  Hvernig síðan sérðu fyrir þér að taka boðorðin tíu fram yfir náttúruleg mannréttindi?  Þetta er fyrir kristna, aðrir ættu bara að láta svona umræðu fram hjá sér fara.

Mofi, 1.4.2009 kl. 12:54

4 identicon

Sæll elsku Helgi,

ef svo er að sjöundi dagurinn tilheyrði gamla sáttmálanum eins og fórnarkerfið, hvers vegna er hann þá staðsettur mitt í boðorðunum tíu? Finnst þér ekki órökrétt af Guði að setja eina úreldanlega reglu mitt inn í níu aðrar eilífar óumbreytanlegar reglur?

Halldór birti stutta grein sem hét Opið bréf til Gunnars í Krossinum. Ég beini spurningunum tveim sem þar eru settar fram til þín.

Vinarkveðja,

Jón Hjörleifur.

P.s. ég held þú vitir að Kaþólska kirkjan sjálf staðhæfir að hún hafi breytt helgi hvíldardagsins frá laugardegi til sunnudags, og hefur sjálf í góðum greinum hrakið ,,upprisurökin" fyrir sunnudagshelgi.

Jón Hjörleifur (IP-tala skráð) 1.4.2009 kl. 23:41

5 identicon

Hvernig síðan sérðu fyrir þér að taka boðorðin tíu fram yfir náttúruleg mannréttindi?

Eh.. ég sé það ekki fyrir mér :) 

Mér finnst það bara við hæfi í sambandi við þessa umræðu, ef guðinn þinn hefði ekki bannað hitt og þetta (td. þjófnað, morð etc.) með td. boðorðunum tíu, þætti trúuðum þá bara fínt að gera það.

Pointið er að þú td. trúir að siðferði þitt sé komið beint frá guðinum þínum.  Hvernig getur þér þá fundist eitthvað siðferðislega rangt sem guðinn þinn hefur ekki bannað?

Þetta er fyrir kristna, aðrir ættu bara að láta svona umræðu fram hjá sér fara.

Well, það kom hvergi fram hjá þér.

Arnar (IP-tala skráð) 2.4.2009 kl. 00:00

6 Smámynd: Mofi

Helgi
Hinsvegar lifum við í öðrum sáttmála, sjöundi dagurinn, ásamt umskurn og helgisiðalögmálinu (logmál um hreinsanir og matarræði oþh.) voru ákveðin sáttmálatákn, einkenni á lýð Guðs.

Sjöundi dagurinn tilheyrir ekki öðrum sáttmála, hann var gerður heilagur löngu fyrir tíma Móse og Móse fékk gyðinga til að halda hvíldardaginn löngu áður en hann fékk boðorðin tíu.  Hvar síðan stendur að við höfum núna önnur boðorð en boðorðin tíu?  Jakobsbréfið vísar t.d. beint í boðorðin tíu og segja að ef þú brýtur eitt þeirra þá brýtur þú þau öll, svo af hverju ætti einhver sem er kristinn að hafa ekki einu sinni vilja til að halda öll tíu?

Hvíldardagurinn verður síðan haldinn á himni, svo þetta er ekki einkenni gyðinga enda búin til, löngu áður en gyðingar verða til. 

Helgi
skv. Hebreabréfinu er umbreytingin við hin nýja sáttmála svo mikil að hún krefst nýs prestskapar.

Gamli sáttmálinn var með mannlega presta sem störfuðu í helgi dómi Salómons og færðu fórnir þar sem dýr þurftu að deyja og táknuðu Krist. Nýji sáttmálinn er að núna höfum við ekki musteri Salómons heldur er okkar æðsti prestur Kristur sjálfur. En helgidóms þjónustan útskýrði að Kristur þurfti að deyja fyrir brot á boðorðunum tíu. Aðeins einu sinni á ári þá fór æðsti presturinn inn með fórn og setti blóð á náðarsætið sem var fyrir ofan boðorðin tíu sem táknmynd um fórn Krists til að borga fyrir brot á þessum lögum Guðs.  Nýji sáttmálinn er með Jesú sem æðsta prest og samkvæmt Hebreabréfinu þá þjónar Hann í himneskum helgidómi sem hinn jarðneski var aðeins eftirmynd af.  Það sem hefur ekki breyst eru boðorðin tíu, þau voru í þeim gamla og eru núna í þeim nýja á himnum.

Eða heldur þú að það eru aðrar steintöflur með einhverjum öðrum boðorðum í helgidómnum á himnum?  

Helgi
Í sama bréfi er einnig talað um hvernig okkur býðst að ganga inn til "sabbatshvíldar Drottins" með því að taka við Jesú Kristi og lífinu í honum.

Það eru já mjög áhugaverð vers í Hebreabréfinu sem fjalla um sabbathshvíld og tala um sjöunda daginn og að við ættum að keppast til að ganga til þeirrar hvíldar svo við föllum ekki vegna óhlýðni.

Hebreabréfið 4
4Því að einhvers staðar er svo að orði kveðið um hinn sjöunda dag: „Og Guð hvíldist hinn sjöunda dag eftir öll verk sín.“ 5Og aftur á þessum stað: „Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.“ 6Enn stendur því til boða að nokkrir gangi inn til hvíldar Guðs. Þeir sem áður fengu fagnaðarerindið gengu ekki inn sakir óhlýðni. 7Því ákveður Guð aftur dag einn er hann segir löngu síðar fyrir munn Davíðs: „Í dag.“ Eins og fyrr hefur sagt verið: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar.“
8Hefði Jósúa leitt þá til hvíldar þá hefði Guð ekki síðar meir talað um annan dag. 9Enn stendur þá til boða sabbatshvíld fyrir lýð Guðs. 10Því að sá sem gengur inn til hvíldar hans fær hvíld frá verkum sínum eins og Guð hvíldist eftir sín verk. 11Kostum því kapps um að ganga inn til þessarar hvíldar til þess að enginn óhlýðnist eins og þeir og falli. 

Taktu eftir að það er verið að tala um hinn sjöunda dag og að við eigum að fara eftir fordæmi Guðs og hvíla okkur hinn sjöunda dag eins og Guð gerði og að gera þetta ekki veldur því að menn óhlýðnast og falla.

Helgi
Sá sem leitast við að fylgja Jesú Kristi í einlægni er bróðir minn og systir, við verðum aldrei alveg sammála, en við tilheyrum sama Guði.

Ég er sammála að það er þörf á því að muna að elska trú systkini sín og að vera alveg sammála í öllu er líklegast mjög hæpið. Samt hlýðni við boðorðin tíu ætti ekki að vera eitthvað sem sundrar en ég sé það sundra og menn velja hefðir manna og samfélög manna frekar en hlýðni við boðorðin tíu og það finnst mér sorglegt.

Helgi
Ég held að merki lambsins í opinberunarbókinni sé innsigli Heilags Anda sem er á hinum trúuðu, skv. þeirri bók er bara pláss fyrir eitt innsigli á lífum fólks, og því geta þeir sem tilheyra Kristi ekki borið merki dýrsins.

Það sem einkennir þá sem fá ekki merki dýrsins er að þeir halda boðorð Guðs, sjá:

Opinberunarbókin 14
12Hér reynir á þolgæði hinna heilögu, þeirra er varðveita boð Guðs og trúna á Jesú.

Það er einnig áhugavert að þeir sem fá merki dýrsins þeir fá enga hvíld; kannski af því að þeir eru ekki að halda hvíldardaginn?

Opinberunarbókin 14
11Og reykurinn frá kvalastað þeirra stígur upp um aldir alda, og eigi hafa þeir hvíld dag eða nótt, þeir sem dýrið tilbiðja og líkneski þess, hver sá sem ber merki nafns þess."

Vonandi gaf ég þér eitthvað til að hugsa um. Það á að vera hægt að rökræða þessi mál á málefnalegum og vingjarnlegum nótum ef allir eru með sama markmið í huga sem er að fylgja Guði eins vel og þeir geta.

Kveðja,
Halldór

Mofi, 2.4.2009 kl. 00:48

7 Smámynd: Mofi

Arnar, ég held að mitt siðferði og þitt siðferði kemur frá Guði en síðan hafa menn boðorðin tíu og t.d. orð Krists til að leiðbeina sér enn frekar. Þetta voru alveg gildir punktar hjá þér og bara áhugavert innlegg.

Mofi, 2.4.2009 kl. 00:51

8 Smámynd: Mofi

Helgi
Hinsvegar kemst ég ekki hjá því að finnast það sterkustu rökin fyrir því að heiðingjum sé ekki ætlað að halda hvíldardaginn þau að hvergi í bréfunum er þeim uppálagt að gera það.

Prófaðu að hugsa þann punkt aðeins öðru vísi.  Hvíldardags boðorðið mótaði samfélag gyðinga meira en flest annað. Það var miklu meira mótandi á þeirra samfélag en t.d. að keyra á hægri helminga vegarins hefur á okkar samfélag.  Ef að alþingi ætlaði að breyta á hvaða vegar helmingi við ættum að keyra, heldur þú að það væri fjallað um það ýtarlega og vel auglýst?

Það er einmitt þögnin um breytingu á hvíldardeginum sem styður það mjög skýrt að þetta boðorð er enn bindandi fyrir kristna. Það var breyting á t.d. umskurn og það fékk mjög ýtarlega umfjöllun þó að umskurn tilheyrir ekki boðorðunum tíu.

En það síðan ekki alveg þögn um það því að Hebreabréfið 4 talar skýrt um sjöunda daginn og að við eigum að halda það til að falla ekki í óhlýðni.

Helgi
Þegar postulafundurinn var haldin í Jerúsalem og átektarefnið var umskurn komust postularnir að þessari niðurstöðu "

En mundu að Jesú sagði að við ættum að gera lærisveina og kenna þeim allt sem Hann hafði kennt þeim. Ég myndi ætla að boðorðin tíu væru þar á meðal.  Þegar við síðan sjáum Pál boða trú þá skipti það hann gífurlega miklu máli að menn færu ekki að tilbiðja þá því að það er brot á boðorðinu, þú skalt aðeins tilbiðja Guð.  Ekki heldur þú að postularnir þarna hafi verið að segja að hin níu boðorð skiptu ekki neinu máli fyrir þá sem gerast kristnir?

Helgi
Í þessu samhengi virðist mér að það hafi líka verið skilningur frumkirkjunnar að hvíldardagurinn væri hluti af sáttmálanum við Ísrael, en ekki ætlaður heiðingjum

Endilega kíktu á þessa síðu hérna sem fjallar um viðhorf manna á mismunandi tímum gagnvart hvíldardeginum, sjá: The Sabbath Through History - 1st Century

Taktu líka eftir því að Biblían talar um að við munum halda hvíldardaginn á himnum ( Jesaja 66:22-23 )

Helgi
Þeir sem gætu "óhlýðnast eins og þeir" eru þeir gyðingar sem ekki vilja "ganga inn í fyrirheitna landið," samfélag við Guð gegnum Krist, með því að treysta ekki á fórnardauða Jesú eru þeir að smána blóð hans og krossfesta hann að nýju.

Ég á erfitt með að sjá hvernig maður getur ekki gengið til hvíldar og óhlýðnast nema með því að brjóta boðorðið sem segir manni að hvílast. Það er ekki hið sama og að halda að maður réttlætist af því að halda hvíldardaginn, ekki frekar en þú telur þig réttlætast með því að ekki myrða.

Helgi
Fyrst þú skilur þessi vers sem svo að þau undirstriki hvíldardaginn hvernig skilur þú þá vers 8. þar sem talað er um "annan dag" ... hvaða dagur skyldi það vera?

Ég get ekki neitað því að ég skil ekki alveg vers átta. En taktu eftir versum 9-11

Hebreabréfið 4
 9Enn stendur þá til boða sabbatshvíld fyrir lýð Guðs. 10Því að sá sem gengur inn til hvíldar hans fær hvíld frá verkum sínum eins og Guð hvíldist eftir sín verk. 11Kostum því kapps um að ganga inn til þessarar hvíldar til þess að enginn óhlýðnist eins og þeir og falli.

Það er enn sabbatshvíld fyrir okkur eins og þegar Guð hvíldist frá Hans verkum, bein tilvísun í sjöunda daginn í sköpunarsögunni og síðan beiðni um að keppast til að ganga til þeirrar hvíldar svo við óhlýðnumst ekki. Óhlýðni er að brjóta af sér og eina boðorðið sem talar um hvíld er hvíldardags boðorðið.

Vinar kveðjur,
Halldór

Mofi, 2.4.2009 kl. 13:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (11.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 802861

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband