Syndin er sæt en aðeins í stuttan tíma

Road_to_heavenAldrei hefði ég getað notið þess að lifa í lystisemdum vitandi að það myndi kosta mig langa fangelsins dvöl. Ætli parið hafi verið alveg sannfært að þetta myndi ekki komast upp eða að áhættan væri þess virði?  Það hlýtur að vera hræðilegt fyrir tuttugu og tveggja ára stúlku að sjá að hennar bestu ár verða bakvið lás og slá!  En svona fara svo mörg líf, svo margir hafa klúðrað sínu lífi og horfa upp á að eiga ekki eftir að sjá drauma sína rætast eða fá að upplifa góða daga framar.

Það er í rauninni kjarninn í kristninni, að við erum í vonlausri stöðu. Samviska okkar segir að við erum sek og skynsemin segir að ekkert bíði okkar nema dauðinn en að það er von.  Til að fá hlutdeild í þessari von þá skipar Guð sérhverjum manni að iðrast og leita fyrirgefningar við kross Krists á Golgata þar sem gjaldið fyrir glæpina, illskuna og sjálfs elskuna var borgað svo að dyrnar til lífsins mættu vera opnar þeim sem þangað sækja.

Hérna útskýri ég þetta betur, sjá: Leiðin til lífs

 


mbl.is Fóru í heimsreisur á kostnað nágrannanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mofi

Hver eiginlega sagði að tilgangur lífsins væri að deyja með þokkalega góða samvisku?  Forvitinn að hitta þann aðila og spyrja hann afhverju hann heldur að það sé tilgangur lífins...

Mofi, 16.7.2008 kl. 17:07

2 identicon

Þú ert með guð Mofi, bara vegna þess að þú sérð ekki tilgang með lífinu þínu.
Eini tilgangur lífsins er að lifa því, ekki sóa því í að bíða eftir því næsta.
Ég, þú, dýrin og allt líf hefur bara þann tilgang að lifa og viðhalda sjálfu sér.. thats it.
Trúarbrögðin eru bara að spila með þig og þessar hugsanir þínar.

DoctorE (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 19:37

3 identicon

Mofi! Mofi! Séra Mofi þó!

ÉG er Drottinn Guð þinn. Þú skalt ekki aðra guði hafa.

Ég er kominn með grænar bólur af þessu sykurklístraða fyrirgefningarkjaftæði. Manstu ekki neitt af því sem þú last í skóla? Ef hægri hönd þín hneykslar þig, þá sníð hana af... Eða hélstu máske að þetta ætti aðeins við um þína eigin hægri hönd? Nei góðurinn minn, og þökk sé internetinu, þá get ég nú leiðrétt þá mistúlkun hér og nú. Þetta ákvæði lögmálsins á sumsé við um allar hægri hendur og þar sem ég sé nú ekki betur en að þú sért töluvert hneykslaður á þessum syndaselum þá skipa ég þér hérmeð að verða þér úti um góða sveðju, leggja land undir fót og höggva af þeim krumlurnar.

Gangi þér vel að uppfylla þessa lítilmótlegu ósk mína,

með bestu kveðju,

Guð.

Guð (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 21:02

4 identicon

Mofi! Mofi! Séra Mofi þó!

ÉG er Drottinn Guð þinn. Þú skalt ekki aðra guði hafa.

Ég er kominn með grænar bólur af þessu sykurklístraða fyrirgefningarkjaftæði. Manstu ekki neitt af því sem þú last í skóla? Ef hægri hönd þín hneykslar þig, þá sníð hana af... Eða hélstu máske að þetta ætti aðeins við um þína eigin hægri hönd? Nei góðurinn minn, og þökk sé internetinu, þá get ég nú leiðrétt þá mistúlkun hér og nú. Þetta ákvæði lögmálsins á sumsé við um allar hægri hendur og þar sem ég sé nú ekki betur en að þú sért töluvert hneykslaður á þessum syndaselum þá skipa ég þér hérmeð að verða þér úti um góða sveðju, leggja land undir fót og höggva af þeim krumlurnar.

Gangi þér vel að uppfylla þessa lítilmótlegu ósk mína,

með bestu kveðju,

Guð.

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 21:18

5 identicon

Ég skil ekki hvernig það getur verið svartsýni að sjá eftir því sem maður hefur gert rangt. Boðskapurinn er sá að í Kristi er von, von sem við vinnum okkur ekki inn sjálf heldur von sem við fáum ókeypis.  Persólnulega hefði ég ekki blandað samviskunni þarna inn því í rauninni hefur þetta ekkert með hana að gera. Yfirleitt eru menn dæmdir eftir verkum en ekki eftir því sem þeir hafa á samviskunni en Guð dæmir okkur eftir verkum Krists og því uppskerum við það sem Hann sem var fullkominn á skilið en ekki það sem við eigum skilið því að Hann skipti í raun við okkur. Það er engin svartsýni í þessu.

Axel (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 22:35

6 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Talandi um synd, þá er ein frá stjórnvöldum sem mætti mótmæla. Ég veit að þú fyrirgefur Dóri að ég setji inn smá auglýsingu:

Ég var að setja saman undirskriftarlista til stuðnings Ásmundar Jóhannssonar, sem ég mun svo afhenda stjórnvöldum þegar að því kemur.

Hann er að finna hér http://www.petitiononline.com/mod_perl/signed.cgi?asmundur 

Fyrirgefðu að þetta kemur greininni einni ekkert við, en ég veit að þú tekur vel í þetta.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 16.7.2008 kl. 22:52

7 identicon

Held að það sé betra að sjá eftir því sem maður hefur gert, en því sem maður hefur ekki gert.

Nenni ekki að vera gamall við "The sitting window" á elliheimilinu þunglyndur yfir þeim ævintýrum sem ég sleppti og syndum sem ég ekki drýgði.

Vill eins og áður sagði njóta miniga um upplifuð ævintýri og forboðna ávexti sem ég naut og vera brosandi á efri árum.

Friðbjörn B. Möller (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 23:45

8 Smámynd: Mofi

Andrés
Hvers vegna ætti Kristið fólk að sóa lífi sínu í að bíða eftir því næsta? Við getum átt líf í fullri gnægð í þessu lífi og í því næsta. Guð mun ekki verðlauna okkur eftir því hversu leiðinlegu lífi við lifum.

Ég þekki engann kristinn einstakling sem líður eins og hann er að sóa lífi sínu vegna þess að hann trúir. Miklu frekar að orð Krists reyndust mjög svo sönn þegar Hann talaði um að fylgja Honum þá fengju hinir kristnu líf í fullri gnægð og von um betra líf á eftir þessu.  

Mitt líf væri sannarlega margfalt verra ef ég hefði ekki mína trú. 

Eva
Gangi þér vel að uppfylla þessa lítilmótlegu ósk mína,

með bestu kveðju,

Þú vonandi fyrirgefur Eva að ég skil ekki þennan húmor :/

Haukur
Mikið ertu svartsýnn, ég veit ekki með þig en samviska mín er í fínu standi og ég sé ekki eftir neinu. Ég skil vel að maður með svona slæmt álit á sér og öðru fólki lýti til "einhvers annars" eftir fyrirgefningu.

Hefurðu aldrei stolið, aldrei logið, aldrei reiðst eða hatað eða öfunda?  Hvað segir samviska þín?

Axel
Persólnulega hefði ég ekki blandað samviskunni þarna inn því í rauninni hefur þetta ekkert með hana að gera.

Samviskan er Guð að láta þig vita hvað er rétt og hvað er rangt; samviskan segir þér að það er rangt að stela ekki satt?

Axel
Yfirleitt eru menn dæmdir eftir verkum en ekki eftir því sem þeir hafa á samviskunni en Guð dæmir okkur eftir verkum Krists

Hárrétt en samviskan lætur okkur vita að við þurfum fyrirgefningu svo við viljum dæmast eftir verkum Krists en ekki okkar eigin verkum.

Sammála þér, það er engin svartsýni í þessu heldur stórkostleg von! Takk fyrir heimsóknina Axel.

Haukur
Fyrirgefðu að þetta kemur greininni einni ekkert við, en ég veit að þú tekur vel í þetta.

Þetta er um "synd" og réttlæti svo þetta smell passar alveg :)

Mofi, 17.7.2008 kl. 10:12

9 Smámynd: Mofi

Haukur, þá að minnsta kosti talar hún til þín og segir þér að þessi hluti fagnaðarerindisins er réttur. Hinn hlutinn er að þú munt deyja og sá hluti er mjög áreiðanlegur.  Síðasta hlutinn er að það er von og það er þitt að velja hvort sú von sé þess virði að treysta.

Sigmar, ekki ég heldur 

Mofi, 18.7.2008 kl. 10:48

10 Smámynd: Pétur Eyþórsson

Heirðu Mófi ég er með eina spurningu handa þér, ekkert tengda þessu.

Hvernig ferðu að því að setja in myndir í athugasemdir. Ég hef séð þig gera þetta t.d. hjá Kristni, ég er búin að prófa html, en það virðist ekki ganga. 

Pétur Eyþórsson, 18.7.2008 kl. 16:54

11 Smámynd: Mofi

Takk Sigmar :)

Haukur, þetta snýst sannarlega um hvort það er einhver von um að dauðinn er ekki endirinn eins og Bob Dyltan "Death is not the end

Mofi, 18.7.2008 kl. 17:11

12 Smámynd: Pétur Eyþórsson

Takk Sigmar

Pétur Eyþórsson, 18.7.2008 kl. 17:28

13 Smámynd: Mofi

Ef svo er þá þarftu ekki að athuga hvort það er einhver von.

Mofi, 18.7.2008 kl. 23:01

14 identicon

Ja, hérna hér!!!  

Auður (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 00:53

15 identicon

Það er bara eitt líf. Eins gott að njóta þess.

Óli (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 08:19

16 identicon

Voðalega er Kristin trú niðurdrepandi. Maður þarf alltaf að vera að iðrast. Nei takk, ekki fyrir mig.

Ragnar (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 11:55

17 Smámynd: Mofi

Ragnar
Voðalega er Kristin trú niðurdrepandi. Maður þarf alltaf að vera að iðrast. Nei takk, ekki fyrir mig.
Sá sem er alltaf að iðrast iðraðist aldrei. Að iðrast er ekki bara að sjá eftir því sem maður gerði heldur að snúa við blaðinu. Kristin trú er upplífgandi því hún snýst um hvort það er von í þessu dapurlega lífi okkar og ég segi að það er áreiðanleg von. 

Mofi, 21.7.2008 kl. 14:09

18 Smámynd: Mofi

Nei Haukur... alls ekki rétt hjá þér.  Því meiri ánægju sem þú hefur af lífinu því meira viltu að lífið endi ekki.  Kristni gefur núinu tilgang því að þetta er aðeins hluti af stærri heild. Guðleysi tekur tilganginn burt með því að segja að þetta sem þú hefur núna er það eina sem þú hefur.  Ef þú deyrð þá er spilið búið svo eina leiðin til að gefa tilverunni tilgang er að þú búir hann til sjálfur, ef þér dettur eitthvað í hug.  Ef kristni er sönn þá skiptir gífurlega miklu máli hver þú ert í dag því það mótar hver þú verður að eilífu.

Mofi, 21.7.2008 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 802793

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband