Richard Dawkins berst á móti því að það megi gagnrýna Darwin

dawkins_richardAthyglisvert að sjá Dawkins senda út hjálparbeiðni að menn þurfi að taka höndum saman og berjast á móti því að í Bandaríkjunum ( gaurinn er frá Bretlandi ) í einu fylki þar á að leyfa kennurum að kenna þróun á gagnrýninn hátt.

Ég fyrir mitt leiti fullyrði að þeir sem eru á móti því að þeirra trúarlegu hugmyndir séu gagnrýndar hafa ekki mikið traust á þeim. Sömuleiðis eru þeir ekki mjög vísindalega þekkjandi þar sem þeir eru á móti gagnrýnni hugsun.

 http://richarddawkins.net/forum/viewtopic.php?f=14&t=48331 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mofi allir heilvita menn sjá að biblíusögur er ekki gagnrýni á Darwin.. þetta er einfaldlega heimska sem mun bara skemma menntun.
En ég þakka þér fyrir að sýna fólki hversu mannskemmandi kristni er .. takk takk

Og þú verður líklega glaður að sjá að næstum allir íslendingar trúa ekki biblíusögum um sköpun
http://doctore.blog.is/blog/doctore/entry/575044/

DoctorE (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 20:07

2 Smámynd: Zaraþústra

Það stendur ekkert um að það megi ekki gagnrýna þróunarkenninguna í þessum texta.  Fyrirsögnin hjá þér er vitlaus.

Zaraþústra, 23.6.2008 kl. 21:44

3 identicon

Það stendur ekkert um að það megi ekki gagnrýna þróunarkenninguna í þessum texta.  Fyrirsögnin hjá þér er vitlaus.

Og Halldór verður enn eina ferðina uppvís að því að ljúga.

Sveinn (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 22:44

4 identicon

"Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum."

Taktu þetta til athugunar Halldór...

Svo mæli ég með því að menn sleppi því að commenta á svona fíflalega pósta

Sigmar (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 00:58

5 identicon

Jæja ætlaru ekki að koma með eitthvað juicy næst? þetta er hálflélegt

Mu (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 02:19

6 Smámynd: Mofi

ZaraÞústra
Það stendur ekkert um að það megi ekki gagnrýna þróunarkenninguna í þessum texta.  Fyrirsögnin hjá þér er vitlaus.

Þeir eru að reyna að fá stuðning til að lögin sem ég fjallaði um hérna: Louisiana samþykkir lög sem leyfa gagnrýni á Darwin 

Meira hérna: Policy to US States? Barbara Forrest Apparently Thinks So

Mofi, 24.6.2008 kl. 09:23

7 identicon

Var gagnrýni einhvern tíman bönnuð?

Það er hinsvegar bannað að kenna að yfirnáttúruleg hjátrú sé sannleikur í skólum í bna og þessi lög breyta engu um það.

Svo er þessi 'hjálpar beiðni' ekki kominn frá Dawkins sjálfum heldur "Louisiana Coalition for Science".  Tilgangurinn er ekki að banna gagnrýna kennslu á þróunarkenningunni heldur að það megi kenna 'guð gerði það' sem útskýringu á öllu í skólum.  Ef það er eitthvað sem þolir ekki gagnrýna hugsun þá eru það trúarbrögð.

Ríkislög eru hinsvegar ekki yfir stjórnarskránni og þetta mun bara leiða til fleirri réttarhalda þar sem ID verður hafnað sem vísindum.

Ríkisstjórinn þarna vill verða varaforseti og styður ID til að fá atkvæði ofurkrissa.

Arnar (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 10:25

8 Smámynd: Mofi

Arnar, greinilega var gagnrýni bönnuð; annars væri engin þörf á þessum lögum.  Hjálparbeiðnin er á síðu Dawkins svo hún kemur þaðan þótt það sé óbeint.  Þú síðan lýgur með tilganginn en það verður þú að eiga við þína samvisku. Staðan er síðan að það má alveg gagnrýna trúarbrögð en það má ekki gagnrýna Darwin, annars áttu hættu á því að vera rekinn. Svo eins og staðan er í dag þá er það þróunarkenningin sem þolir ekki gagnrýna hugsun. Svo þú ættir að styðja þessi lög heilshugar til að forða þróunarkenningunni frá þessari aumkunarverðu stöðu að vera vernduð frá gagnrýni eins og um væri að ræða flata jörð eða álfatrú.

Mofi, 25.6.2008 kl. 00:01

9 identicon

Staðan er síðan að það má alveg gagnrýna trúarbrögð en það má ekki gagnrýna Darwin, annars áttu hættu á því að vera rekinn.

Lygi, þér verður eytt á dómsdegi.

Svo eins og staðan er í dag þá er það þróunarkenningin sem þolir ekki gagnrýna hugsun.

Lygi, þér verður eytt á dómsdegi.

Svo þú ættir að styðja þessi lög heilshugar til að forða þróunarkenningunni frá þessari aumkunarverðu stöðu að vera vernduð frá gagnrýni eins og um væri að ræða flata jörð eða álfatrú.

Lygi, þér verður eytt á dómsdegi.

Sveinn (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 00:27

10 identicon

Gerirðu þér einhverja grein fyrir því hversu frægur vísindamaður yrði sem tækist að afsanna þróunarkenninguna, einhverja best studdu vísindakenningu heims?

Það væri þó smámunir í samanburði við vísindamanninn sem tækist að sýna fram á tilvist gvuðs!!

Sveinn (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 00:28

11 identicon

Arnar, greinilega var gagnrýni bönnuð; annars væri engin þörf á þessum lögum.

Það eru nú margir sem vilja meina það.. að lögin séu óþörf.  Og svo er það málið með þessa gagnrýni.. það er bannað að kenna 'guð gerði það' í skólum í BNA.  Þessi lög breyta engu um það.

Hjálparbeiðnin er á síðu Dawkins svo hún kemur þaðan þótt það sé óbeint.

Hún er ekki upprunin þaðan og Dawkins setur hana ekki fram sjálfur.  Þetta kemur líka fram á mörgum öðrum síðum sem tengjast Dawkins ekki neitt.  Hér lýgur þú og þarft að eiga það við þína samvisku :)

Þú síðan lýgur með tilganginn en það verður þú að eiga við þína samvisku.

Hverju lýg ég?  Komast menn sem saka aðra um lygar að ósekju inn í ímyndaða himnaríkið þitt?  Ef þú ætlar að kalla mig lygara þá skaltu sýna fram á að ég fari með rangt mál.

ID cultið í BNA er aðal drifkrafturinn á bakvið þessi lög og hefur reynt að koma þeim að víða annarstaðar og á eina staðnum þar sem þeim hefur verið ágengt vill svo skemmtilega til að ríkistjórinn er líklegt varaforsetaefni sem hefur lýst yfir opinberum stuðningi við ID.

Þar af leiðandi er augljóst að þessi lög eiga að opna dyrnar fyrir ID inn í skólakerfið í BNA.

Staðan er síðan að það má alveg gagnrýna trúarbrögð en það má ekki gagnrýna Darwin, annars áttu hættu á því að vera rekinn.

Heldurðu virkilega að ég fengi vinnu við guðfræðideild HÍ?  Eða guðlausi guðfræðingurinn Teitur? .. I don't think so.

Heldurðu að ég.. Matti formaður Vantrúar.. eða jafnvel DoctorE.. fengi að koma í pontu í einhverri kirkju á messutíma til útskýra fyrir söfnuðinum að ekki aðeins væri guðinn þeirra dauður heldur að hann hefði aldrei verið til og að hommar væru bara alveg ágætasta fólk.

Hræddur um að sannkristilegt siðgæði og umburðarlyndi myndi birtast í formi líkamlegs ofbeldis við þær aðstæður..

Svo eins og staðan er í dag þá er það þróunarkenningin sem þolir ekki gagnrýna hugsun.

Mófi, þér hefur margsinnis verið bennt á það að ef einhver gæti 'afsannað' þróunarkenninguna þá yrði sá sami samstundis heimsfrægur.  Ef það er svona mikið af augljósum staðreyndum sem vinna gegn þróunarkenningunni.. akkuru stígur engin fram?

Heldurðu virkilega að allir þróunarlíffræðingar í heiminum séu svona miklir vinir að þeir hjálpist að við að hylma yfir?  Það þyrfti ekki nema einn sem væri uppfullur af öfund og afbrigðiseimi út í alla hina..

Það þarf ekki nema einn.

Það má gera ráð fyrir að hluti þróunarlíffræðinga séu kristnir, og einhver hluti af þeim trúir virkilega á biblíulega sköpun.

Samt stígur engin fram.  Engin kemur til að svipta hulunni af samsærinu.

Svo þú ættir að styðja þessi lög heilshugar til að forða þróunarkenningunni frá þessari aumkunarverðu stöðu að vera vernduð frá gagnrýni eins og um væri að ræða flata jörð eða álfatrú.

Vandamálið er að þessi lög eru til þess gerð að opna fyrir álfatrú í skólakerfinu mófi.  Nú er ekkert sem stoppar jarðfræði kennara í að kenna að jörðin sé flöt sem 'gagnrýna hugsun' á almennt viðurkenndar staðreyndir.

Arnar (IP-tala skráð) 25.6.2008 kl. 10:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband