Námskeið í spádómum Biblíunnar

Jesus Lighthouse

Námskeið- Spádómar Biblíunnar í Suðurhlíðarstofu, Suðurhlíð 36 kl. 20

Langar að benda á námskeið sem byrjar í dag klukkan átta og heldur áfram næstu sjö kvöld.    Fjallað verður um hvort að spádómarnir eru skiljanlegir og hvaða þýðingu þeir hafa fyrir okkur í dag. Fjallað verður um þá spádóma sem sýna fram á að Jesús sé sá frelsari sem gyðingar biðu eftir. Fjallað um deiluna milli góðs og ills og hvernig skilningur á henni hjálpar okkur að skilja afhverju vondir hlutir gerast í okkar heimi. Hérna verður farið í mörg áhugaverð efni og vona að áhugasamir munu mæta og kynna sér þetta.


 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fjallað verður um þá spádóma sem sýna fram á að Jesús sé sá frelsari sem gyðingar biðu eftir.

Hvernig stendur á því að allir nema gyðingar vita það.. þekkja þeir ekki sinn eigin frelsara?

Arnar (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 11:12

2 Smámynd: Mofi

Arnar, kannski einhverjir gyðingar mæta og þeir geta útskýrt hvernig þeir sjá þetta.  Þeir sannarlega hefðu átt að þekkja Hann og ættu að gera það í dag líka.

Mofi, 21.5.2008 kl. 11:14

3 Smámynd: Sigurður Rósant

Já, svona stiklað á stóru og smáu, sitt á hvað. Hverjir verða fyrirlesarar?

Sigurður Rósant, 21.5.2008 kl. 11:24

4 identicon

Þeir sannarlega hefðu átt að þekkja Hann og ættu að gera það í dag líka.

Af því má draga þá ályktun að:

  1. Gyðingar eru vitlausir?
  2. Jesú var ekki frelsarinn þeirra í raun og veru?

Arnar (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 12:10

5 Smámynd: Mofi

Að ég best veit þá er bara einn fyrirlesari og hann heitir Birgir Óskarsson.

Arnar, sumir afneituðu Kristi jafnvel þótt þeir sáu Hann og allt sem Hann gerði. Sumir einfaldlega velja að hafna og það er þeirra val.

Mofi, 21.5.2008 kl. 12:50

6 identicon

Mófi, hefurðu kynnt þér :

http://www.jesuspuzzle.org/

Ágætis rök þar, að mínu áliti, fyrir því að jesú, eins og kristnir þekkja hann, hafi aldrei verið til.

Arnar (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 14:00

7 Smámynd: Mofi

Nei Arnar... Finnst þér þetta vera það merkilegt að ég ætti að reyna að taka þetta fyrir?

Mofi, 21.5.2008 kl. 14:18

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég tók námskeið í Opinberunarbókinni fyrir meira en tuttugu árum í gegnum bréfaskrif hjá Aðventistasöfnuðinum. Það var mjög upplýsandi og gott, gaf mér heilmikla blessun.

Theódór Norðkvist, 21.5.2008 kl. 20:19

9 Smámynd: Mofi

Gaman að heyra Theódór. Ég er forvitinn, hver var með þannig námskeið fyrir tuttugu árum síðan?

Mofi, 22.5.2008 kl. 10:00

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég man það ekki. Ég var eitthvað í sambandi við Eric, forstöðumanninn á þeim tíma. Er hann ekki ennþá forstöðumaður? Fínn kall.

Theódór Norðkvist, 22.5.2008 kl. 10:21

11 Smámynd: Mofi

Eric er formaður safnaðarins í dag, mjög fínn já  :)

Mofi, 22.5.2008 kl. 10:23

12 identicon

Námskeið í hoppi & skoppi ... sheesh

DoctorE (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 13:05

13 Smámynd: Mofi

Námskeið í því sem þú ert að fjalla um daginn út og inn; því miður af fáfræði af því að þú virðist aldrei hafa kynnt þér þessi mál ýtarlega með opnum huga.

Mofi, 22.5.2008 kl. 13:07

14 identicon

Finnst þér þetta vera það merkilegt að ég ætti að reyna að taka þetta fyrir?

Sure, ef þú hefur ekkert betra að gera.

Arnar (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 13:15

15 Smámynd: Mofi

Set þetta á "listann", það hlýtur að koma að því að ég hafi ekkert betra að gera :)

Mofi, 22.5.2008 kl. 14:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 802866

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband