Trúir þá Cherie ekki að páfinn sé óskeikull?

pope-cp-3238216Hennar gjörðir segja svo sem allt sem segja þarf.  En hvernig er það, trúir hinn venjulegi kaþólikki því að páfinn sé óskeikull?  Hérna fjallar kirkjan sjálf um þetta efni: Explanation of papal infallibility

Hið fyndna er að þeir nefna Pétur postula sem þann sem gaf kirkjunni þetta "vald". Ástæðan fyrir því að það er dáldið skondið er að Páll þurfti að andmæla Pétri varðandi umskurn. Við lesum um það í Galatabréfinu 2. kafla. 

Það er engin spurning í mínum huga að það er ekkert að getnaðarvörnum og engir menn hafa neitt með því að segja hver vilji Guðs er í þeim efnum; Biblían segir þetta ekki að minnsta kosti.  Þeir láta eins og það má ekki koma í veg fyrir að einhver fæðist en þá má taka þá afstöðu aðeins lengra og segja að maður á alltaf að hafa kynlíf ef löngunin kemur yfir mann, annars væri maður að koma í veg fyrir að barn fæðist.  Hið sorlega er að hérna er kirkjan í andstöðu við sig sjálfa með því að neita prestum um eðlileg sambönd við konur sem hlýtur að koma í veg fyrir fæðingu margra barna; fyrir utan hve óheilbrigt það er fyrir þá sem gerast prestar.

Hérna er síðan grein frá Kaþólsku kirkjunni þar sem hún útskýrir sína afstöðu um fóstureyðingar, sjá: http://www.catholic.com/library/Birth_Control.asp

 

 


mbl.is Cherie Blair útskýrir óvænta þungun sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það er þó sanngirni hjá þér, Mofi, að benda á þessa vefsíðu um kaþólska afstöðu til takmörkunar barneigna. Ég fæ ekki betur séð en þú gætir eitthvað af henni lært.

Svo ertu að agnúast út í, að páfinn geti í opinberri yfirlýsingu sinni um trúar- og siðferðismál verið óskeikull. Kirkjan sjálf getur verið óskeikul, sérðu það ekki í þinni Biblíu? Óskeikulleiki kirkjuþinga og páfans, leiðtoga þeirrar sömu kirkju (og 51% allra kristinna manna nú) eru eðlilegur hluti af því. Fari menn að kynna sér þessa kaþólsku kennisetningu, sjá þeir, hversu hógvær hún er í raun. Síðast var gripið til slíks óskeikulleika-úrskurðar 1950 og þar á undan á 19. öldinni.

Jón Valur Jensson, 20.5.2008 kl. 20:13

2 Smámynd: Mofi

Jón Valur
Það er þó sanngirni hjá þér, Mofi, að benda á þessa vefsíðu um kaþólska afstöðu til takmörkunar barneigna. Ég fæ ekki betur séð en þú gætir eitthvað af henni lært.

Maður getur alltaf lært eitthvað, jafnvel af einhverju sem er ekki rétt. Þú gætir örugglega lært eitthvað af því að útskýra fyrir mér hver þín afstaða er og afhverju þú hefur hana. Myndir þú hafa hana ef þú hefðir ekki kirkjuna og kirkjusöguna?

Jón Valur
Svo ertu að agnúast út í, að páfinn geti í opinberri yfirlýsingu sinni um trúar- og siðferðismál verið óskeikull. Kirkjan sjálf getur verið óskeikul, sérðu það ekki í þinni Biblíu?

Þeir sem endurfæðast af anda Guðs geta fengið leiðbeiningar frá Guði og þær leiðbeiningar geta verið réttar ef þær stangast ekki á við það sem Guð var þegar búinn að opinbera í Biblíunni. Kirkjan er aðeins fólk Guðs og maður getur ekki samþykkt hvaða fólk sem er sem fólk Guðs. Fyrir mig er lykilatriði að það fylgi Biblíunni frekar en mannasetningum en þar kemur Kaþólska kirkjan illa út svo ekki sé meira sagt.

Jón Valur
Óskeikulleiki kirkjuþinga og páfans, leiðtoga þeirrar sömu kirkju (og 51% allra kristinna manna nú) eru eðlilegur hluti af því.

Gætu þeir ákveðið eitthvað sem er andstætt því sem er í Biblíunni?  Eru þeir ofar Biblíunni sjálfri? 

Mofi, 20.5.2008 kl. 20:29

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Nei, þeir ákveða ekkert, sem er andstætt Nýja testamentinu. –Ciao!

Jón Valur Jensson, 21.5.2008 kl. 01:36

4 identicon

Er eitthvað í henni biblíu sem mælir á móti fóstureyðingum eða getnaðarvörnum?  Spyr sá sem ekki veit.

Ellinn (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 07:45

5 Smámynd: Mofi

Jón Valur
Nei, þeir ákveða ekkert, sem er andstætt Nýja testamentinu. –Ciao!

Þetta hljómar eins og efni í heila grein... :)

Ellinn, það sem ég held að kristnir trúa að mæli á móti fóstureyðingum er boðorðið sem segir "þú skalt ekki myrða". Það er að minnsta kosti fyrir mig aðal ástæðan fyrir því að ég er á móti fóstureyðingum. Varðandi getnaðarvarnirnar þá veit ég ekki um neitt í Biblíunni sem segir að þær séu slæmar.

Mofi, 21.5.2008 kl. 09:05

6 Smámynd: Sigurður Rósant

Mofi, rennur ekki kalt vatn milli skinns og hörunds hjá þér, þegar þú hugsar til tíma endalokanna, sem verða innan skamms eins og þú trúir, að Jón Valur verður kannski sá sem uppfyllir þennan spádóm gagnvart þér .....  "Þá munu menn framselja yður til pyndinga og taka af lífi, og allar þjóðir munu hata yður vegna nafns míns."

Eða hvað?

Sigurður Rósant, 21.5.2008 kl. 09:51

7 Smámynd: Mofi

Rósant, ef maður lendi í ofsóknum þá er það auðvitað skuggalegt.  Þótt maður trúir að Guð sé með manni þá er maður samt mannlegur og hefur engann áhuga á dauða og þjáningum. Ég trúi nú því að Jón Valur er bara blindur á þá stofnun sem hann tilheyrir og ef við sjáum hana hegða sér á hræðilegann hátt þá er Jón einn af þeim sem mun yfirgefa hana; jafnvel fyrr.

Mofi, 21.5.2008 kl. 10:10

8 Smámynd: Sigurður Rósant

"Páll þurfti að andmæla Pétri varðandi umskurn."

Pétur var ofstækisfullur, ofbeldisfullur peningaplokkari og jafnvel morðingi. Kaþólska kirkjan er byggð á hans aðferðum sem við lesum um í NT.

Með samúð

Sigurður Rósant, 21.5.2008 kl. 10:19

9 Smámynd: Sigurður Rósant

En er nú ekki kominn tími til, Mofi og Jón Valur, að þið kastið þessari trú ykkar á haugana og gerist skynsemissinnar eins og meiri hluti Vesturlandabúa er orðinn?

Sigurður Rósant, 21.5.2008 kl. 10:37

10 Smámynd: Mofi

Sigurður, þetta á nú frekar við Pál en umbreytingar máttur Guðs er akkurat það sem við sjáum í lífi þessara manna. Finnst að vísu þú vera allt of fullyrðingadjarfur varðandi Pétur.

Hvaða afstöðu er það sem þú mælir með Rósant? 

Mofi, 21.5.2008 kl. 10:46

11 identicon

Ég trúi nú því að Jón Valur er bara blindur á þá stofnun sem hann tilheyrir og ef við sjáum hana hegða sér á hræðilegann hátt þá er Jón einn af þeim sem mun yfirgefa hana; jafnvel fyrr.

Og hvernig er þín stofnun betri en hans?

Arnar (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 11:14

12 Smámynd: Sigurður Rósant

Mofi - Mér virðist þú allt of fastur í þessu hugarfari þínu, að rit NT séu að boða þér einhvern sannleik um Guð. Það er enginn sannleikur til um Guð, nema sá að við vitum ekkert um það sem ekki tjáir sig. Guð þessi tjáir sig ekki. Menn sem trúa því að hann hafi tjáði sig í gegnum "spámenn" eða "sendiboða", eru á villigötum, því sá boðskapur er ekki sjálfum sér samkvæmur.

Þess vegna mæli ég með að menn lesi svokölluð "helgirit" með gagnrýnu hugarfari og skoði þau með því hugarfari að hér sé um samsafn sagna af eins konar "draugatrú", eins og við þekkjum svo vel hér á Íslandi.

Sigurður Rósant, 21.5.2008 kl. 11:16

13 Smámynd: Mofi

Afhverju tjáir Guð sig ekki í gegnum sköpunina, samviskuna og jafnvel einhverja menn sem Hann velur að hafa samband við? 

Mofi, 21.5.2008 kl. 11:35

14 Smámynd: Sigurður Rósant

Ef Guð er til og vill tjá sig eins og þú trúir, Mofi, af hverju ætti hann að vera með einhvern feluleik, dulúð eða fara einhverjar leiðir sem aðeins einhverjir "útvaldir" kynnast?

Ef við komum okkur saman um að hann tjái sig eingöngu í gegnum "allt sem til er" eða sköpunina eins og þú kallar það, hvað er hann þá að segja?

Ef við komum okkur saman um að hann tjái sig í gegnum samviskuna, hvað er hann þá að segja?

Ef við erum sammála um að hann tjái sig í gegnum menn sem Hann velur, hvaða menn hefur hann þá valið?

Svona hættu nú að trúa og gerstu skynsemishyggjumaður. Það fer þér miklu betur, svona þrasgjörnum manni.

Sigurður Rósant, 21.5.2008 kl. 12:21

15 Smámynd: Mofi

Rósant
Ef Guð er til og vill tjá sig eins og þú trúir, Mofi, af hverju ætti hann að vera með einhvern feluleik, dulúð eða fara einhverjar leiðir sem aðeins einhverjir "útvaldir" kynnast?

Ég sé ekki feluleik, ég sé stórkostlega sköpun, samvisku sem segir þér hvað er rétt og hvað er rangt og síðan Biblíuna sem sannar gildi sitt á margvígslegann hátt.  Eg trúi því að Guð vill að við veljum að fylgja því sem gott er og Hans reglum og fyrir þeim sem gera það, þá opinberar Hann sig þeim. Ef Guð myndi birtast öllum heimnum, þá er spurning hvort að fólk hefði í rauninni val til að fylgja og trúa...  góðar spurnin samt og ég þarf að íhuga hana.

Rósant
Ef við komum okkur saman um að hann tjái sig eingöngu í gegnum "allt sem til er" eða sköpunina eins og þú kallar það, hvað er hann þá að segja?

Að Hann er til og að Hann er gífurlega magnaður. Maður sér það sérstaklega þegar maður skoðar geiminn, hve svakalega stór hann er og fjöldi sólkerfa og stjarna.  Þegar maður skoðar lögmálin sem alheimurinn stjórnast af þá segir það mér að Guð hefur vitsmuni fram yfir það sem menn geta ímyndað sér. Þegar ég skoða jörðina þá sé ég umhyggju í annars óhugnanlegum geimi.


Rósant
Ef við komum okkur saman um að hann tjái sig í gegnum samviskuna, hvað er hann þá að segja?

Mér finnst greinin "Afhverju kristni" útskýra það. 

Rósant
Svona hættu nú að trúa og gerstu skynsemishyggjumaður. Það fer þér miklu betur, svona þrasgjörnum manni.

Hmm  :)     þekkir þú einhvern sem telur sig ekki vera skynsemishyggju mann?  

Fyrir mig þá er það augljóst að Guð er til og af þeim opinberunum sem mannkynið hefur fengið þá er Biblían lang trúverðugust. 

Mofi, 21.5.2008 kl. 12:46

16 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sigurður Rósant, ég sé nú ekki mikla skynsemi í því, sem þú skrifar hér, t.d. í þessum innleggjum þínum kl. 9:51 og 10:37. Og Biblíuþekkingu þinni er í meira lagi ábótavant, þótt þú getir á öðrum slóðum tjáð þig á stundum bara nokkuð vel.

Jón Valur Jensson, 22.5.2008 kl. 02:32

17 Smámynd: Sigurður Rósant

Jón Valur, Biblíuþekkingu minni er örugglega ábótavant, en ekki varðandi túlkun S.D.Aðventista á því sem ég nefndi.

Margsinnis hef ég farið í gegnum þessa túlkun Aðventista á hlutverki Kaþólsku kirkjunnar "á tímum endalokanna". Má vera að þeir hafi þær vel geymdar og ekki sýndar hverjum sem er eins og algengt er um aðferðir trúsöfnuða af hvaða toga sem er, sbr. Bahæja.

Einnig tel ég nokkuð öruggt að meirihluti  Vesturlandabúa hallist frekar að skynseminni í afstöðu sinni til trúar á Jesú, páfann eða líf eftir dauðann. Skoðanakannanir er hins vegar erfitt að framkvæma um þessa hluti því siðir og venjur móta enn sterkt "meinta afstöðu" fólks.

Með trúfrjálsri kveðju

Sigurður Rósant, 25.5.2008 kl. 10:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband