Fíllinn hans Behe

elephant-in-the-roomÍ bókinni Darwin's Black Box þá skrifaði Michael Behe þetta:

Darwin’s Black Box, Michael Behe
Imagine a room in which a body lies crushed, flat as a pancake. A dozen detectives crawl around, examining the floor with magnifying glasses for any clue to the identity of the perpetrator. In the middle of the room, next to the body, stands a large, gray elephant. The detectives carefully avoid bumping into the pachyderm’s legs as they crawl, and never even glance at it. Over time the detectives get frustrated with their lack of progress but resolutely press on, looking even more closely at the floor. You see, textbooks say detectives must “get their man,” so they never even consider elephants.

There is an elephant in the roomful of scientists who are trying to explain the development of life. The elephant is labeled “intelligent design.” To a person who does not feel obliged to restrict his search to unintelligent causes, the straightforward conclusion is that many biochemical systems were designed.

Þetta finnst mér vera sannarlega staðan eins og hún er í dag, í staðinn fyrir hið rökrétta og augljósa þá herðir fólk sig í afstöðu sem er algjörlega glórulaus og órökrétt aðeins vegna þeirra trúarskoðana og algengasta trúar skoðunin sem veldur þessari blindu er guðleysi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas

Nema hvað það hefur enginn séð fílinn, og það er ekkert sem bendir til þess að hann sé í herberginu :)

Tómas, 9.4.2013 kl. 12:48

2 Smámynd: Mofi

Ef þú ert að vísa til Guðs þá er ekki að vísa til Guðs heldur hönnunar. Allir þekkja hönnun og vita hvað þarf til að hanna mjög flókin tæki sem búin eru til úr mörgum flóknum litlum hlutum.  Síðan kemur liðið sem er í afneitun vegna... já, þau tengja allt við Guð og hafa eitthvað svo mikið á móti Guði að það neitar hinu augljósa.

Mofi, 9.4.2013 kl. 12:56

3 Smámynd: Tómas

Hönnun - eins og við þekkjum hana - hönnun bíla, úra etc., er, eftir því sem ég get best séð, handahófskennt en leiðbeint ferli. Leiðbeint á þann hátt að það fylgir náttúrulögmálum.

Ég skil ekki afneitunarfólkið. Sjálfur hef ég ekkert á móti Guði, þar sem ég trúi ekki að hann sé til.

Ég hef bara eitthvað á móti hugmyndinni að yfirnáttúruleg útskýring sé betri en náttúruleg útskýring.

Tómas, 9.4.2013 kl. 13:14

4 Smámynd: Mofi

Tómas
Ég hef bara eitthvað á móti hugmyndinni að yfirnáttúruleg útskýring sé betri en náttúruleg útskýring.

Hönnun er ekki yfirnáttúruleg útskýring.

Mofi, 9.4.2013 kl. 13:32

5 Smámynd: Tómas

Sure...

"Hönnun" eins og ég skil þarf ekki á "intellgent design" að halda. Heldur geta náttúruöflin séð um það af sjálfu sér.

Ég held við séum ekki sammála um það.

Tómas, 9.4.2013 kl. 13:36

6 Smámynd: Mofi

Intelligent design er heldur ekki yfirnáttúruleg útskýring.

Mofi, 9.4.2013 kl. 13:52

7 Smámynd: Mofi

Ertu með einhver dæmi þar sem þú gast séð náttúruöflin hanna eitthvað?

Ég er auðvitað að tala um eitthvað af viti, einhvers konar vísi að vél eða eitthvað af því sem við erum að reyna að útskýra.

Mofi, 9.4.2013 kl. 13:53

8 Smámynd: Tómas

Við mennirnir orkum eftir náttúrulögmálum. Það er ekkert merkilegra við það sem gerist í heilanum okkar en það sem gerist, t.d. í iðrum sólar. Sömu náttúrulögmál.

Samt hönnuðum við þessa tölvu sem ég rita á.

Held við séum dálítið ósammála um hvað hönnun sé.

Tómas, 9.4.2013 kl. 15:13

9 Smámynd: Mofi

Þetta er svo geðveikt að ég á ekki til orð.  Hefur þú hannað eitthvað einhvern tíman?  Sérðu engan mun á náttúrulegum ferlum og síðan þegar vitsmuna vera mótar eitthvað?  Enginn munur á fjöllum og síðan höggmyndum?  Þetta er svo klikkað að ég veit ekki hvort ég get tekið þig alvarlega. 

Mofi, 9.4.2013 kl. 15:29

10 Smámynd: Tómas

Það er enginn munur á ferlunum sjálfum. Þetta eru allt saman grundvallarkraftar Maxwells.

En auðvitað er munur á fjöllum og höggmyndum.

Sko.. ef við förum aðeins til baka. Hver eru einkenni vitsmuna? Heili, meðal annars. Hvaða heili stingur þú upp á að sé á bak við hönnun lífs?

Tómas, 9.4.2013 kl. 15:46

11 Smámynd: Mofi

Sérðu engan mun á vitsmunum og síðan skorti á vitsmunum?

Það þarf ekkert að vera líffærið heili sem er bakvið vitsmuni, vitsmunir eru fyrirbæri út af fyrir sig þrátt fyrir að okkar reynsla er að stundum leynast vitsmunir í ákveðnum heilum.

Mofi, 9.4.2013 kl. 15:49

12 Smámynd: Tómas

Við höfum einungis séð vitsmuni í kerfum sem við flokkum sem lífverur sem hafa einhvers konar miðtaugakerfi.

Mér finnst það persónulega vera ódýr leið að útskýra vitsmuni og flókin kerfi með öðrum vitsmunum og flóknum kerfum.

Það er engin útskýring í sjálfu sér. Þar fyrir utan þarfnast sjálfkviknun lífs og þróunarkenningin einskis nema tíma og heppni. Sem er akkúrat það sem aldur alheims og stærð hans veita okkur.

Ég amk. hafna tilgátunni um ID, enn sem komið er.

Tómas, 9.4.2013 kl. 15:58

13 Smámynd: Mofi

Vitsmunir eru auðvitað mjög flókið fyrirbæri, svipað eins og meðvitund. Ég er einfaldlega að vísa til þeirra því að allir ættu að vita hvernig þeir virka svona almennt séð og hvað vitsmuna verur geta gert, eins og hanna flókna hluti.

Tökum t.d. Morse kóðan, sérðu hvernig maður notaði sína vitsmuni til að setja saman þetta kerfi?

Mofi, 9.4.2013 kl. 16:14

14 identicon

Er "Intelligent design" ekki að Guð hafi skapað heiminn?

www.sbs.is (IP-tala skráð) 10.4.2013 kl. 12:22

15 Smámynd: Mofi

Nei, aðeins sú ályktun að sumt í náttúrunni er betur útskýrt með vitrænni hönnun frekar en náttúrulegum ferlum.  Náttúrulega, þar sem sirka 90% af mannkyninu trúir á tilvist Guðs og nokkurn veginn 100% af mannkyninu í gegnum söguna hafa trúað á tilvist Guðs þá álykta flestir að hönnuðurinn hlýtur að vera Guð. Þeir sem trúa að hönnuðurinn er einhvers konar geimvera geta bent á sömu gögn og beitt sömu röksemdarfærslu til að færa rök fyrir þeirri trú.

Mofi, 10.4.2013 kl. 12:29

16 identicon

Já, okay. Þannig að við getum verið sammála um að vitræn hönnun er oftast nær yfirnáttúruleg skýring á tilvist okkar. Þ.e. að yfirnáttúruleg vera sé hönnuðurinn.

www.sbs.is (IP-tala skráð) 10.4.2013 kl. 13:52

17 Smámynd: Mofi

Það er ályktunin sem flestir komast að eins og t.d. fyrrverandi guðleysinginn Anthony Flew en þegar hann ályktaði að besta útskýringin á uppruna lífs væri hönnun að þá hlyti Guð að vera til.

Mofi, 10.4.2013 kl. 14:15

18 identicon

Gott, hafði áhyggjur þegar þú sagði "Intelligent design er heldur ekki yfirnáttúruleg útskýring." að þú tryðir því í alvöru en gott að við erum sammála um að "intelligent design" sé yfirnáttúruleg útskýring.

www.sbs.is (IP-tala skráð) 10.4.2013 kl. 14:17

19 Smámynd: Mofi

Intelligent design er ekki yfirnáttúruleg útskýring, það er einfaldlega sannleikurinn.  Menn draga ályktanir út frá hönnun en hún þarf ekkert að vera yfirnáttúruleg.

Mofi, 10.4.2013 kl. 14:21

20 identicon

Þannig að þú telur ekki að Guð sé hönnuðurinn?

www.sbs.is (IP-tala skráð) 10.4.2013 kl. 14:24

21 Smámynd: Mofi

Jú, auðvitað.

Mofi, 10.4.2013 kl. 14:31

22 identicon

Okay, þannig að við getum allaveganna verið sammála um að sú útgáfa af intelligent design sem þú trúir á, er yfirnáttúruleg útskýring.

www.sbs.is (IP-tala skráð) 10.4.2013 kl. 14:32

23 Smámynd: Mofi

Ég trúi að út frá því að álykta að náttúran var hönnuð er góð ástæða til að trúa að Guð er til.

Mofi, 10.4.2013 kl. 14:36

24 identicon

Já, margir trúa á yfirnáttúrulega hluti, drauga, álfa og svona. Breytir litlu fyrir mér þó að þú trúir á yfirnáttúrulega útskýringu á tilvist okkar.

www.sbs.is (IP-tala skráð) 10.4.2013 kl. 14:37

25 Smámynd: Mofi

Það er gott, ég vil að fólk meti gögnin sjálf og rökin og taki sína eigin sjálfstæðu afstöðu og pæli sem minnst í því hver mín trú er.

Mofi, 10.4.2013 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 802887

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband