Er tungutal biblíulegt?

St_PaulÍ stuttu máli, nei!  Til að vera á sömu blaðsíðu þá er best að skilgreina hvað ég á við með "tungutal". Tungutalið sem ég er að tala um er þegar fólk bablar eitthvað sem enginn skilur, það er ekki eitthvað þekkt tungumál hérna á jörðinni. 

Við sjáum hvergi í Biblíunni fólk tala tungum sem babl sem enginn skilur; nema kannski einhverjir útvaldir og ég spyr sjálfan mig hvort að það fólk sem segist vera að skilja þetta babl sé ekki hreinlega að ljúga.  Það tungutal sem við sjáum í Biblíunni er þegar fólk getur komið mikilvægum upplýsingum á framfæri við fólk sem varðar þeirra sáluhjálp þrátt fyrir að tala ekki þeirra tungumál. Besta dæmið um slíkt er að finna í Postulasögunni öðrum kafla þar sem postularnir tala tungum og fólk hvaðan af gat skilið þá. Kraftaverk sem byggði upp trú og þekkingu á vilja Guðs en ekki eitthvað babl sem bara lætur fólk líta út fyrir að vera kjána. Hérna er myndband sem fer ýtarlega í biblíuversin sem fjalla um þetta.


mbl.is Losaði sig við Marilyn og talaði tungum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

1.Kor.14.2Því að sá sem talar tungum talar ekki við menn heldur við Guð. Enginn skilur hann, í anda talar hann leyndardóma

6. Hvað mundi ég gagna ykkur, systkin,[1]Orðrétt: bræður. ef ég nú kæmi til ykkar og talaði tungum en flytti ykkur ekki opinberun eða þekkingu eða spádóm eða kenningu

11Ef ég nú skil ekki merkingu málsins verð ég sem útlendingur fyrir þeim sem talar og hann útlendingur fyrir mér.

12Eins er um ykkur. Fyrst þið sækist eftir gáfum andans kappkostið þá að eiga sem mest af þeim til þess að geta eflt söfnuðinn. 13Sá sem talar tungum biðji því um að geta útskýrt það sem hann segir.

23Ef nú allur söfnuðurinn kæmi saman og allir töluðu tungum og inn kæmu menn utan safnaðar eða vantrúaðir, mundu þeir þá ekki segja: „Þið eruð vitstola“?

39Sækist þess vegna, systkin,[4]Orðrétt: bræður. eftir spámannlegri gáfu og bannið engum að tala tungum. 40En allt fari sómasamlega fram og með reglu.

Kristinn Ásgrímsson, 24.1.2013 kl. 17:57

2 Smámynd: Mofi

Ég skil þessi orð Páls á þann hátt að hann er að tala á móti að fólk sé að tala tungumál sem aðrir skilja ekki.  Ég held að við höfum enda ástæðu til að halda að "tala tungum" sé eitthvað eins og það sem við sjáum hjá sumum kristnum þar sem fólk er að bulla eitthvað óskiljanlegt rugl. Miklu frekar að um er að ræða tungumál enda talar Páll á móti því að aðrir eru ekki að skilja það aðrir eru að segja.

Ég er nokkuð viss um að ef að Páll sæi hvað fer fram á samkomum margra söfnuða þar sem fólk er að bulla eitthvað tungutal þá myndi hann segja "þið eruð vitstola".

Mofi, 24.1.2013 kl. 18:20

3 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Ef þú rannsakar 1 kor 14 þá sérð þú að Páll talar þar um 3 tegundir tungutals.

1. Til uppbyggingar 1.kor 14.4.

2. Tungutal og útlegging 1.kor 14.13

3. Tungutal sem tákn 1.kor 14.22 og Post 2.4-11

1.Kor 14.39.... aftrið því ekki, að talað sé tungum.

Kristinn Ásgrímsson, 25.1.2013 kl. 07:25

4 Smámynd: Mofi

Og einhver dæmi í Biblíunni að tungutal er svona: http://www.youtube.com/watch?v=AgoHEFUGEpU

Þegar Postularnir töluðu tungum þá skildu aðrir þá þannig að með kraftaverki þá gátu Postularnir predikað fagnaðarerindið til þeirra sem skildu ekki hebresku.

Málið er að þarna er djöfullinn eða...einhver, búin að plata suma kristna til að gera eitthvað sem var þekkt meðal heiðingja, sjá: http://amazingdiscoveries.org/S-deception-speaking-in-tongues_history_practice   Líklegast til að gefa þeim sem eru ekki kristnum ástæðu til að forðast kristni og gera grín að þeim.

Mofi, 25.1.2013 kl. 08:30

5 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Sæll Halldór, síðasta innlegg þitt er það sem ég kalla góð skilgreining á orðinu "Fordómar" Þú rannsakar ekki ritningarnar.

1.kor 14.18. Ég þakka Guði, að ég tala tungum öllum yður fremur,en á safnaðarsamkomu vil ég heldur tala fimm orð með skilningi mínum, ....en tíu þúsund orð með tungum.

Það er greinilegt að Páll er hér að tala um tungutal sem aðrir ekki skildu.

Be blessed my friend og taktu á móti gjöf Heilags anda

Kristinn Ásgrímsson, 25.1.2013 kl. 19:39

6 Smámynd: Mofi

Af hverju er Páll þarna ekki bara að segja að hann talar mörg tungumál?  Hvað í ritningunum ætti að fá mig til að halda að heiðið babl sé komið frá Guði?

Eru einhver dæmi í Biblíunni um svona hegðun? http://www.youtube.com/watch?v=AgoHEFUGEpU

Mofi, 25.1.2013 kl. 20:06

7 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

17En þessi tákn munu fylgja þeim, er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum,

Halldór:

Málið er að þarna er djöfullinn eða...einhver, búin að plata suma kristna

Hefur þá djöfulinn líka platað Jesú, eða ert þú kannski á villigötum ?

Kristinn Ásgrímsson, 28.1.2013 kl. 23:25

8 Smámynd: Mofi

Af hverju ætti ég að halda að þegar Jesú segir þarna "tala nýjum tungum" að þá þýðir það að hegða sér eins og kjáni og babla eitthvað bull upp á sviði? Við höfum dæmi um tungutal í Biblíunni og þá töluðu postularnir önnur tungumál sem þeir kunnu ekki til að koma fagnaðarerindinu á framfæri. Það er kraftaverk með göfugum tilgangi en að babla bull eitthvað þjónar aðeins þeim tilgangi að láta fólk halda að kristnir séu ekki með öllum mjalla.

Mofi, 29.1.2013 kl. 08:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 802892

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband