Segir Biblían ekki að heimsendir sé í nánd?

End_of_the_World_Miðað við að Biblían talar oft um heimsenda og að Jesús kemur skjótt aftur þá eru þetta frekar undarleg skilaboð frá Vatíkaninu. Ef skilaboðin eru að spádómur Majana mun líklegast ekki rætast þá tek ég undir það en samkvæmt Biblíunni er heimsendir svo sannarlega í nánd.  Held síðan að Majarnir voru í Suður Ameríku en ekki Suður Afríku eins og mbl segir frá.

Miðað við hvað Biblían segir um tíma endalokanna þá er ekki mikið eftir, sjá: Hvað segir Biblían um tíma endalokanna?

En þetta orð "heimsendir" hljómar voðalega neikvætt.  Myndin sem Biblían dregur upp er að þessi heimur er að tortýma sjálfum sér og þegar heimurinn mun hreinlega lýsa yfir stríði yfir fylgjendur Guðs þá mun Guð grípa inn í og bjarga sínu fólki.  Þá mun þessi heimur ekki beint enda heldur verða endurskapaður og þá munu þessi orð Biblíunnar verða að veruleika:

Opinberunarbókin 21
1
Og ég sá nýjan himin og nýja jörð, því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið er ekki framar til.
2 Og ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði, er skartar fyrir manni sínum.
3 Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu, er sagði: "Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim, og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra.
4 Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið."
5 Og sá, sem í hásætinu sat, sagði: "Sjá, ég gjöri alla hluti nýja," og hann segir: "Rita þú, því að þetta eru orðin trúu og sönnu."

Þetta eru ein af mínum uppáhalds versum í Biblíunni en nærri því alltaf þegar Biblían er með falleg loforð þá koma líka vers sem fjalla um hina hliðina.

Opinberunarbókin 21
8
En fyrir hugdeiga og vantrúaða og viðurstyggilega og manndrápara og frillulífismenn og töframenn, skurðgoðadýrkendur og alla lygara er staður búinn í díkinu, sem logar af eldi og brennisteini. Það er hinn annar dauði."


mbl.is Páfagarður: Heimsendir ekki í nánd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Mofi, þegar þú talar um að heimsendir sé "í nánd", ertu þá að tala um að það séu ~2000 ár í heimsendi? Þeas að hann verði í kringum árið 4000?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 13.12.2012 kl. 19:15

2 Smámynd: Mofi

Ég myndi gíska innan við 50 ár en það svo sem veit það enginn.  Tvö þúsund ár virka kannski lengi en það er allt afstætt enda mikið til í afstæðiskennigunni.

Mofi, 13.12.2012 kl. 19:34

3 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Og þegar Nýja testamentið segir að heimsendir sé "í nánd" og að síðustu tímar séu þegar upp runnir þá, þá breytist "í nánd" allt í einu í ~2050 ár ;)

Hjalti Rúnar Ómarsson, 18.12.2012 kl. 19:26

4 Smámynd: Mofi

Trúir þú ekki á "theory of relativity" :)

Mofi, 18.12.2012 kl. 22:59

5 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Mofi, afstæðiskenningin bjargar þér ekki. Hérna er skemmtilegt vers handa þér: "Börn mín, hin síðasta stund er runnin upp. Þið hafið heyrt að andkristur kemur og nú eru líka margir andkristar komnir fram. Af því vitum við að það er hin síðasta stund." (1Jóh 2.18) "Síðasta stund" er kannski líka bara 2000 ár. ;)

Hjalti Rúnar Ómarsson, 5.1.2013 kl. 21:49

6 Smámynd: Mofi

Afsakaðu hve lengi ég var að svara. Er búinn að vera að ferðast aðeins um Evrópu, kíkti t.d. á Örkina hans Nóa í Hollandi, mjög gaman.

Já, höfundar NT töluðu mjög mikið á þann hátt að það væri stuttur tími, engin spurning. En það sem er stuttur tími í augum eins getur verið langur í augum einhvers annars. Við sjáum t.d. Páll fjalla um þetta hérna:

2. Þessalóníkubréf
3Látið engan villa ykkur á nokkurn hátt. Ekki kemur dagurinn nema fráhvarfið komi fyrst og maður lögleysisins komi fram, sonur glötunarinnar, 4sem setur sig á móti Guði og hreykir sér yfir allt sem heitir Guð eða helgur dómur, sest í musteri Guðs og gerir sjálfan sig að Guði.
5Minnist þið ekki þess að ég sagði ykkur þetta meðan ég enn þá var hjá ykkur? 6Þið vitið hvað aftrar honum nú. Hann á að bíða síns tíma. 7Því að leyndardómur lögleysisins er þegar farinn að starfa en fyrst verður að ryðja þeim burt sem stendur í vegi.

Þótt að Páll talar eins og hinir að það er ekki langur tími þá samt fjallar hann um að sá tími mun ekki koma fyrr en að ákveðnir atburðir eiga sér stað, að maður lögleysis mun koma fram en eitthvað á þeim tíma stóð í vegi fyrir að það myndi gerast.  Þannig að Postularnir, að minnsta kosti Páll gerði sér grein fyrir að ákveðin atburðarrás myndi eiga sér stað hérna á jörðinni áður en þessi tími kæmi.  Ég heyrði einu sinni í fyrirlestri að einn af kirkju feðrunum hefði sagt að Páll var að tala um Rómarveldi, að það þyrfti að falla áður en þessi maður lögleysis kæmi fram en ég hef ekki fundið neinar heimildir sem styðja það; skal leita betur seinna.

Síðasta stund fyrir viðkomandi sem las bréf Jóhannesar gat verið daginn sem hann las þetta svo...

Mofi, 10.1.2013 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 802799

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband