Af hverju að treysta kenningu sem spánir nærri því aldrei rétt?

atcqxx.jpgMiðað við hörmulegan árangur þróunarkenningarinnar við að spá fyrir um niðurstöðu rannsókna þá finnst mér frekar undarlegt að setja eitthvað traust á hana.  Flestir gera sér ekki grein fyrir hve mikil áhrif þróunarkenningin hefur og hvað hugmyndafræði hennar leynist víða. Í bókum um heilsu finnur maður rökstuðning fyrir einhverju mataræði vegna þess að viðkomandi höfundur trúir að við höfum þróast, í sögu bókum er þetta mjög áberandi og jafnvel í sumum matreiðslubókum sér maður þróunarkenningunar læðast aftan að manni.

Dæmi um mislukkaðar spár Darwins eru til dæmis eftirfarandi:

  • Afgangs líffæri. Í upphaf þessarar aldar voru þróunarsinnar með langan lista af líffærum sem þeir héldu að gerðu ekki neitt og voru afgangar þróunar; núna er sá listi orðinn að engu.
  • Steingervingarnir áttu að sýna einfalda byrjun þar sem ein tegund varð að fleiri tegundum þangað til að við hefðum heilu fjölskyldurnar af tegundum og síðan heilu fylkingarnar en rannsóknir á Kambríum setlögunum hafa leitt í ljós mjög mikla fjölbreytni strax í upphafi og engin merki um þróun Darwins.
  • Steingervingarnir áttu líka að geta sýnt hvernig tegundirnar þróuðust en í staðinn fyrir það birtast tegundir og síðan breytast ekki; alveg þvert á spár þróunarsinna.
  • Þróunarsinnar bjuggust og búast við einfaldri byrjun lífs en þvert á þær spár þá uppgvötuðu vísindamenn að lífið í sínum minnstu einingum er eitt af því flóknasta sem við vitum um.
  • Þegar DNA lífvera var rannsakað þá bjuggust þróunarsinnar við því að sú rannsókn myndi leiða í ljós skýrt þróunarmunstur. Auðvitað hefur allt annað komið upp, meira um það hérna: Bestu rök Dawkins, lygi?
  • Mislukkuðu spár Darwins - 1
  • Mislukkuðu spár Darwins - 2
  • Mislukkuðu spár Darwins - Svarti kassinn

Læt duga að enda á heimasíðu sem fjallar aðeins um þessar mislukkuðu spár Darwins: http://www.darwinspredictions.com/

Miðað við þennan virkilega lélega árangur þá er alveg ótrúlegt hve margir treysta þessari kenningu fyrir sínum eilífu örlögum.  Sérstaklega undarlegt þegar hún kennir að það er engin von, við munum öll einfaldlega deyja. Allt sem við gerðum og munum gera skiptir neinu máli því mannkynið og lífið sjálft deyr út að lokum.  

Hve miklu betra er að leita Guðs sem lofar okkur eilífu líf ef við veljum að fylgja Honum?  Það er síðan skemmtilegur bónus að aðhyllast ekki kenningu sem getur aldrei haft rétt fyrir sér og passar ekki við eitt eða neitt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 802822

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband