Ekki hægt að taka mormóna alvarlega

Þetta kann að hljóma hart, þetta kann að hljóma eins og fordómar en þetta er niðurstaða mín eftir að hafa rökrætt við mormóna nokkrum sinnum og lesið helling um trú þeirra.  Að þessi vitleysa skuli vera tengd kristinni trú er virkilega sorglegt en sem betur fer hafa kristnir í gegnum tíðina verið duglegir að benda á að þetta er ekki kristni.  Það er síðan ekki hægt að treysta að sá sem virkilega trúir öllum þeirra trúarkenningum geti hugsað rökrétt eða á gagnrýninn hátt.

Fyrir nokkru tók ég saman hvað mér finnst órökrétt við mormónatrúna: Mormónar ( Kirkja Jesú Krists hinna síðari daga heilögu )

Hérna er South Park þáttur um Mormóna trúna og hið sorglega er að þeir þurftu bara að segja söguna, hreinlega þurftu ekki að gera beint grín að henni, aðeins að segja hana: http://www.southparkstudios.com/full-episodes/s07e12-all-about-mormons

 

 


mbl.is Mormónatrúin stöðvar ekki Romney
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Í greininni sem þú vísaðir á virðistu finnast það galli á mormónatrú að þeir séu fjölgyðistrúarmenn. Það finnst mér undarlegt þar sem að margir staðir í biblíunni tala um tilvist fleiri en eins guðs, t.d. sálmur 82 og 5Mós 32. 

Hjalti Rúnar Ómarsson, 23.11.2011 kl. 23:06

2 Smámynd: Omnivore

Ég held þú áttir þig ekki á því hvað það er skondið fyrir þá sem hafa ekki þína trú að sjá þig segja þetta um aðra trú. Það er enginn munur að mínu mati á Aðventistum og Mormónum hvað fáránleika varðar.

Omnivore, 24.11.2011 kl. 09:17

3 Smámynd: Mofi

Hjalti, Biblían er alveg skýr að þessir guðir eru aðeins til í ímyndunarafli fólks eða að fólk hefur gert eitthvað að guðum.

Omnivore, kemur ekki á óvart en það er vegna fáfræði fólks. Þetta var mín niðurstaða eftir að hafa skoðað trú Mormóna, var ekki mín skoðun áður en ég hafði rannsakað þetta. Aftur á móti er ég nokkuð viss um að þeir sem halda að trú aðventista sé fáránleg vita afskaplega lítið um hana. Sú trú sem ég hef aftur á móti rannsakað mest er guðleysis trúin og þó hún slái ekki mormónatrúnni við í fáránleika er hún afspyrnu órökrétt.

Mofi, 24.11.2011 kl. 09:59

4 Smámynd: Odie

Svona sjá allir aðrir ykkar trú Mofi.  Það er það sorglega og það fyndna við þetta.  En þið eruð náttúrulega svo gegnsýrð að þið sjáið ekki vitleysuna sem þið trúið.  En það er akkúrat enginn munur á ykkur og Mormónum.

Odie, 24.11.2011 kl. 11:37

5 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Hjalti, Biblían er alveg skýr að þessir guðir eru aðeins til í ímyndunarafli fólks eða að fólk hefur gert eitthvað að guðum.

Neibs, ef þú skoðar til dæmis sálminn sem ég vísaði á, þá er erfitt að sjá hvernig guðinn þinn á að geta staðið á þingi "ímyndunarvera" og dæmt ímyndaðar verur. Og ef þú kíkir á 5Mós þá er erfitt að sjá hvernig ímynduð vera á að geta skipt mannkyninu á milli ímyndaðra vera. 

Og já, þetta er rétt hjá Odie, mormónatrú er ekkert fjarstæðukenndari heldur en "venjuleg" kristni. 

Hjalti Rúnar Ómarsson, 24.11.2011 kl. 12:22

6 Smámynd: Mofi

Odie, ég er virkilega undrandi að það skuli vera opið á athugasemdir frá þér. Það er leiðrétt hér með.

Mofi, 24.11.2011 kl. 13:03

7 Smámynd: Mofi

Hjalti, aðrar verur eru kallaðar guðir en þær eru ekki Guð í sama skilningi og eilífur skapari eða Jehóva.

Hjalti
Og já, þetta er rétt hjá Odie, mormónatrú er ekkert fjarstæðukenndari heldur en "venjuleg" kristni.

Þú sérð engan mun á vitnisburði ótal manna um sögulega atburði sem við getum athugað hvort að staðirnir og fleira hafi raunverulega verið til og síðan skáldsögu eins manns um sögu sem passar ekki við neitt og viðkomandi maður var gripinn að augljósum svikum... enginn munur?

Mofi, 24.11.2011 kl. 13:09

8 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Hjalti, aðrar verur eru kallaðar guðir en þær eru ekki Guð í sama skilningi og eilífur skapari eða Jehóva.

Ah...þú viðurkennir sem sagt að samkvæmt biblíunni eru margar andaverur sem eru kallaðar "guðir"?

Hjalti Rúnar Ómarsson, 24.11.2011 kl. 13:19

9 Smámynd: Mofi

Já, aldrei neitað því. Það er aftur á móti allt annað sem Mormónsbók kennir því hún kennir að Jehóva eigi faðir sem á faðir og svo framvegis. Það er ekkert að ástæðulausu að kristnir hafa almennt hafnað mormóns trú sem kristinni því þarna fer hún á móti grundvallar atriði Biblíunnar sem er að Guð er einn.

Mofi, 24.11.2011 kl. 13:24

10 Smámynd: Jón Ragnarsson

Þarna færðu örlitla nasasjón af því hvernig okkur trúlausum liður... :)

Jón Ragnarsson, 25.11.2011 kl. 17:34

11 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Þú hefur aldrei neitað því? Það eru sem sagt til margir guðir! Merkilegt.

Það er aftur á móti allt annað sem Mormónsbók kennir því hún kennir að Jehóva eigi faðir....

Samkvæmt biblíunni þá á Jahve faðir.  

Hjalti Rúnar Ómarsson, 25.11.2011 kl. 19:01

12 Smámynd: Mofi

Jón Ragnarsson, ég útskýrði af hverju mormónatrúin er í mínum augum ekki trúverðug. Þetta voru þó nokkur atriði. Ef þið guðleysingjar gætu gert hið sama varðandi kristni þá er það forvitnileg umræða. Virðist oftast vera einfaldlega það að hugmyndin um Guð er ykkur svo erfið.

Hjalti, ekki guðir í skilningi þess að þeir eru eilífir, alvitir og geta skapað.  Ég kannast ekki við það að Biblían kennir að Jehóva eigi faðir, hvar færðu það?

Mofi, 25.11.2011 kl. 21:59

13 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Hjalti, ekki guðir í skilningi þess að þeir eru eilífir, alvitir og geta skapað.  

Allt í lagi. Það eru sem sagt til margir guðir, en einn æðsti guð. Mofi, þú ert fjölgyðistrúarmaður.

Ég kannast ekki við það að Biblían kennir að Jehóva eigi faðir, hvar færðu það?

Í 5Mós 32:8-9 er sagt að guðinn "El Elyon" ('hinn hæsti') skipti mannkyninu á milli sona sinna. Síðan er sagt að Jahve fái úthlutað Ísrael. 

Jahve er því augljóslega einn af þessum sonum Els.  

Hjalti Rúnar Ómarsson, 27.11.2011 kl. 12:53

14 Smámynd: Mofi

Þetta í Mósebók passar við Jesú því Jesú er sonur Guðs eða Jehova.

Mofi, 28.11.2011 kl. 16:04

15 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Mofi, ef ég skil þig rétt þá virðistu vera að segja að þetta passi af því að Jesús sé sagður vera sonur Jahve. Þá á Jesús afa, því að þarna er sagt að Jahve eigi faðir (og helling af bræðrum).

Hjalti Rúnar Ómarsson, 28.11.2011 kl. 17:19

16 Smámynd: Mofi

Hérna eru versin:

Deu 32:8 
When the most High divided to the nations their inheritance, when he separated the sons of Adam, he set the bounds of the people according to the number of the children of Israel.
9  For the LORD'S portion is his people; Jacob is the lot of his inheritance.
Ég sé í þessum versum aðeins að hinn hæsti sem er Jehóva skiptir arfinu milli þjóðanna og Jehóva fékk sitt fólk sem ég held að hljóti að vera Ísrael og síðan nefnir hann ætt Jakobs.

Mofi, 29.11.2011 kl. 13:29

17 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Mofi, til að byrja með þarftu að athuga að þetta er ekki réttur texti hjá þér. Þarna stendur "children of Israel", en í raun stendur "synir guðs/El".

Sem sagt, við höfum "hinn hæðsta" (Elyon) sem skiptir mannkyninu á milli "sona guðs" (El). Síðan segir að Jahve fékk Ísraelsþjóð úthlutað ("for the lord's portion is his people...). 

Sem sagt, Jahve er einn af þessum sonum El, og hann fær Ísrael úthlutað.

Ef maður skoðar þetta svo í samhengi (þeas með því að þekkja til Úgarít), þá vitum við að fólk þarna trúði því að æðsti guðinn hét El, og hann átti helling af synum. 

Hjalti Rúnar Ómarsson, 30.11.2011 kl. 22:39

18 Smámynd: Mofi

Hjalti, vá hvað mér finnst þetta undarlegt hjá þér.  Ég sé bara hinn hæðsta sem er Guð eða Jehova eða Jave sem er Elohim sem er orðið yfir Guð og El er stytting á því eins og Jave eða jafnvel Ja er stytting á Jehóva. Síðan fær hinn hæðsti, Jehóva Ísrael. Í gegnum alla Biblíuna þá er Ísrael sú þjóð sem Jehóva tók að sér svo engin ástæða til að ætla að þessi texti þarna sé túlkaður á annan hátt en þann.  Hvað þá að túlka texta í Biblíunni út frá einhverju Úgarít sem ég þekki ekki til. Fólkið þarna trúði Biblíunni, maður leitar ekki út fyrir Biblíuna til að skilja texta í Biblíunni; ekki nema Biblían er þögul um viðkomandi atriði.

Mofi, 1.12.2011 kl. 10:15

19 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Hjalti, vá hvað mér finnst þetta undarlegt hjá þér.
Hvað finnst þér undarlegt við þetta? 
Ég sé bara hinn hæðsta sem er Guð eða Jehova eða Jave sem er Elohim sem er orðið yfir Guð og El er stytting á því eins og Jave eða jafnvel Ja er stytting á Jehóva.

El er ekki stytting á Elohim. 

Í gegnum alla Biblíuna þá er Ísrael sú þjóð sem Jehóva tók að sér svo engin ástæða til að ætla að þessi texti þarna sé túlkaður á annan hátt en þann.

Hvað ertu að tala um "annan hátt"? Jahve fær Ísraelsþjóðina, það er ek ispurning.

Hvað þá að túlka texta í Biblíunni út frá einhverju Úgarít sem ég þekki ekki til.
Já, að túlka texta biblíunnar með það í huga hverju fólkið þarna trúði, það gengur ekki! 
Fólkið þarna trúði Biblíunni, maður leitar ekki út fyrir Biblíuna til að skilja texta í Biblíunni; ekki nema Biblían er þögul um viðkomandi atriði.

Mofi, höfundur fimmtu Mósebókar trúði augljóslega ekki biblíunni, enda var engin biblía til þegar hann skrifaði. 

Svo er þetta tal þitt um að leita ekki út fyrir biblíuna til að skilja hana órökrétt trúaratriði.

Förum aftur í gegnum þetta.

Hinn hæsti skiptir mannkyninu (sonum Adams) samkvæmt fjölda sona Els. Er þá ekki augljóst að hann er að skipta mannkyninu á milli sona Els?

Síðan er sagt að Jahve fái úthlutað Ísrael. Er þá ekki augljóst að þarna er sonur guðs að fá sinn hlut af mannkyninu?

Svo til gamans má geta að í Gamla testamentinu er mannkyninu skipt í 70 hluta (1Mós 10). Gettu hvað synir Els voru margir!

Hjalti Rúnar Ómarsson, 1.12.2011 kl. 12:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 802835

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband