1. Hvernig varð lífið til?

OriginOfLifeÁ næstu dögum mun ég fara yfir nokkrar af þeim spurningum sem sérhver vitsmunalega sáttur guðleysingi ætti að vilja hafa svör við.  Þetta mun vera lauslega þýtt frá creation.com, af þessu skjali hérna: http://creation.com/images/pdfs/flyers/15-questions-for-evolutionists-s.pdf 

Þróunarsinninn Paul Davies viðurkenndi, "Nobody knows how a mixture of lifeless chemicals spontaneously organized themselves into the first living cell.". Andrew Knoll, prófessor í líffræði við Harvard sagði "we don't really know how life originated on this planet". Minnsta fruma þarf að minnsta kosti nokkur hundruð prótein.  Miðað við stjarnfræðilegu líkurnar á því að eitt prótein í röð sem lífið þarf þá höfum við góða ástæðu til að hafna að eitt slíkt prótein gæti myndast í alheimin sem er jafn stór og gamall og þróunarsinnar trúa að okkar alheimur sé. 

Þannig að, hvernig gat líf myndast sem þarf mörg hundruð prótein án þess að hönnuður kæmi þar nálægt?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ragnarsson

God of the gaps, sem sagt. "Við vitum ekki hvernig eitthvað virkar, þess vegna er Guð til". Alveg skothelt.

Jón Ragnarsson, 26.5.2011 kl. 16:49

2 Smámynd: Mofi

Jón, nei því að þetta byggist á því sem við vitum.  Við vitum hvað þarf til að raða litlum hlutum í ákveðna röð og setja saman flóknar vélar.  Ef þú trúir að slíkt geti gerst án hönnuðar, þá ert þú sem situr uppi með stórt skömmustulegt gat.

Mofi, 26.5.2011 kl. 16:52

3 Smámynd: Rebekka

Jebb, það er mögulegt að líf hafi myndast af sjálfu sér!  Því hvernig í ósköpunum geta sköpunarsinnar heimtað að líf VERÐI að hafa hönnuð, en krefjast ekki sömu forsendu fyrir hönnuðinn sjálfan?  Þú hefur bara ennþá stærra og skömmustulegra gat ef þú bætir einhverjum hönnuði við...

Sleppum hönnuðinum, mikið einfaldara þannig.  Þó við vitum ekki hvernig líf myndaðist, þá þýðir það ekki að einhver ósýnilegur hönnuður hafi myndað það. 

Rebekka, 28.5.2011 kl. 10:21

4 Smámynd: Mofi

Rebekka, ég veit hvernig líf getur orðið til ef að hönnuður setur saman þessa hluti. Það er gífurlega erfitt og tæknilegt afrek að gera það og enn sem komið er, getur enginn gert það sem segir mér að sá sem gerði það er ennþá gáfaðri en okkar vísindamenn.

Þetta einfaldlega passar við þá trú að það er til hugur sem er á bakvið raunveruleikann, tilvist alheimsins og þau lögmál sem honum stjórna. Þessi hugur varð aldrei til, hefur enga byrjun og engann endir, hann einfaldlega er.

Mofi, 29.5.2011 kl. 12:27

5 identicon

sæll aftur Moffi

Fékk ekki svar hvort að þú mættir í kirkjuna á mánudagskvöld nkm?

Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 1.7.2011 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 802824

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband