C14 mælingar sem passa ekki við miljónir ára

carbon_dating_103253Langar að benda á grein þar sem fjallað er um C14 mælingar á sýnum sem eiga að vera margar miljón ára gömul en C14 mælingarnar segja 20.000 til 30.000 ára aldur, sjá: Carbon Dating of '70 Million Year Old' Mosasaur Soft Tissues Yields Surprising Results

Því miður þá sjá vísindamenn sjaldnast ástæðu til að nota C14 á sýni sem þeir telja vera margra miljón ára gömul svo dæmin eru miklu færri en ég tel að þau gætu verið en þau eru samt mörg og í greininni er farið yfir nokkur.  Að gefa sér niðurstöðuna fyrirfram á að vera óvísindalegt en þróunarsinnar gerast sekir um þetta í mörgum tilfellum.  Í flestum af þessum tilfellum þá reyna þeir að afsaka þessar niðurstöður, virðast til í að gera flest allt til að halda í þennann gífurlega aldur enda án hans hrynur trú þeirra á þróunarkenningunni.

Varðandi hvort ég tel að C14 aldurinn sé áreiðanlegur þá er svarið nei, ég tel svo ekki vera.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: helgason

Helmingunartími C14 er 5730 ár Mofi. Segjum að þú hafir sýni sem er með C14 og þú geymir það í milljón ár hvað er þá mikið eftir af C14? ~ 1 á móti 2^174 (til samanburðar eru ca. 10^80 eindir í alheiminum) 

helgason, 25.5.2011 kl. 14:58

2 Smámynd: Mofi

Helgi, það ætti ekki að vera mælanlegar leifar af C14 eftir miljón ár og í rauninni varla neitt eftir 100.000 ár.

Mofi, 25.5.2011 kl. 15:07

3 Smámynd: helgason

Akkúrat, þess vegna nota menn ekki C14 til að mæla aldur hluta sem eru mikið eldri en 10-20 þús ára og algjörlega úti í hött að nota mælingar á hlutum sem eru langtum eldri til að kasta skugga á áreiðanleika aðferðarinnar.

helgason, 25.5.2011 kl. 16:08

4 Smámynd: Mofi

En þú veist ekki aldurinn á hlutnum, þess vegna er fullkomlega eðlilegt að beita C14 aðferðinni á hlutinn.  Þegar þú síðan mælir C14 í hlutnum þá segir það mjög skýrt að hluturinn er ekki margra miljón ára gamall, ekki satt?

Mofi, 25.5.2011 kl. 16:11

5 Smámynd: helgason

Þú þarft nú fleiri forsendur en það þar sem að það er kolvetni úti um allt.

helgason, 25.5.2011 kl. 17:21

6 Smámynd: Jón Ragnarsson

Það er alveg nóg að lesa wikipedia greinina um carbon dating til sjá að þessi grein er bara skáldskapur og óskhyggja frá fyrstu setningu.

Jón Ragnarsson, 25.5.2011 kl. 21:51

7 Smámynd: Mofi

Helgi, þú ert nýbúinn að viðurkenna að ef að hlutur er margra miljón ára gamall þá á ekki að finnast C14 í honum, hvað þá að mælast í kringum 20.000 ára. Þannig er ósköp rökrétt að athuga hvað þessi mæling segir um hlutinn.

Jón Ragnarsson, endilega prófaðu að rökstyðja mál þitt.

Mofi, 26.5.2011 kl. 09:37

8 Smámynd: Odie

Fyrir þá sem hafa áhuga að kynna sér hvernig C14 virkar í raun og hvers vegna þeir sem ekki skilja þetta mæla aldur risaeðlubeina sem 20.000 ára

http://www.youtube.com/watch?v=udkQwW6aLik

Sjá 9:34 með 20.000 ára aldurinn.  :-)

Odie, 26.5.2011 kl. 13:57

9 Smámynd: Mofi

Odie, þetta fjallar að engu leiti um dæmin sem ég er að benda á.

Mofi, 26.5.2011 kl. 14:18

10 Smámynd: Odie

Likewise, the amount of finite carbon was exceedingly small, corresponding to 4.68%±0.1 of modern 14C activity (yielding an age of 24 600 BP), and most likely reflect bacterial activity near the outer surface of the bone (although no bacterial proteins or hopanoids were detected, one bacterial DNA sequence was amplified by PCR, and microscopic clusters of bone-boring cyanobacteria were seen in places along the perimeter of the diaphyseal cortex). Two short DNA sequences of possible lagomorph origin were amplified by PCR (together with three human sequences), and consequently it is possible that the outer surface of the bone has been painted with animal glue at some point. 

Eins og alltaf þá er vissara að lesa greinar sem þú og creation vinir þínir vísa í því þú/þeir eru vanir að sleppa því sem skiptir máli.

En Það er hvergi sagt að aldur beinana sé undir 30.000 árum.  Aðeins að þarna hafi samt fundist carbon sem gefi aldur þarna undir 30.000 árum og skýringa á því er líka að finna í greininni.

 Greinin sem vísað er í http://www.plosone.org/article/info%3Adoi%2F10.1371%2Fjournal.pone.0019445

Dæmi um annað sem sýnt var fram á að var frá risaeðluni heldur bakteríur.

http://www.plosone.org/article/info:doi/10.1371/journal.pone.0002808

Odie, 27.5.2011 kl. 01:06

11 Smámynd: Odie

Hata typós

Átti að vera: Dæmi um annað sem sýnt var fram á að var ekki frá risaeðluni heldur bakteríur.

http://www.plosone.org/article/info:doi/10.1371/journal.pone.0002808 

Odie, 27.5.2011 kl. 01:08

12 Smámynd: Mofi

Odie, þetta var þeirra afsökun fyrir að hafa mælt C14 en við höfum alveg ástæður til að ætla að það sé ekki rétt.  Miðað síðan við þetta þá er hægt að afskrifa allar mælingar með alls konar afsökunum eins og þessum og þá er nú varla hægt að kalla þessar mælingar áreiðanlegar.

Mofi, 27.5.2011 kl. 11:20

13 Smámynd: Odie

Þetta er nú ekki afsökun, heldur einföld skýring á því hvers vegna c14 getur fundist á þessum sýnum.  Það er nú ekki eins og þessi bein hafi verið geymt í tómarúmi allan þennan tíma og í raun fáranlegt að gera ekki ráð fyrir svona smiti á sýnum.

P.s.  Þetta er líka ástæðan fyrir því að c14 er ekki notuð til að aldurgreina risaeðlubeinin.  Þú verður að þekka þær takmarkanir sem aðferðirnar hafa.   

Odie, 27.5.2011 kl. 12:50

14 Smámynd: Mofi

Það var tekið sérstaklega fram að það fundust engin ummerki um bakteríur. Það var einfaldlega gripið til þessara afsökunnar af því að niðurstöðurnar pössuðu ekki við þá niðurstöðu sem fólkið var búið að gefa sér fyrirfram.

The researchers found plenty of C-14 in their mosasaur—enough to calculate "an age of 24,600 BP [years before present]."2 To explain how any C-14 could be present at all after millions of years, the study authors speculated that the C-14 could have come from recent bacteria. But this doesn't fit well with the data, since "no bacterial proteins or hopanoids [cholesterol-like compounds] were detected."2

Mofi, 27.5.2011 kl. 13:08

15 Smámynd: Odie

one bacterial DNA sequence was amplified by PCR, and microscopic clusters of bone-boring cyanobacteria were seen in places along the perimeter of the diaphyseal cortex). Two short DNA sequences of possible lagomorph origin were amplified by PCR (together with three human sequences), and consequently it is possible that the outer surface of the bone has been painted with animal glue at some point.
 

Eins og venjulega lestu ekki allt og undanskilur það sem skiptir máli.  

Og gettu hvað stendur í næstu línu sem þú sleppir  

Odie, 27.5.2011 kl. 21:29

16 Smámynd: Mofi

Það voru ekki ummerki eftir bakeríur og þetta DNA sem fannst, það var ekki stutt með einhverjum rökum hverju það tilheyrði.

Mofi, 30.5.2011 kl. 17:53

17 Smámynd: Jón Ragnarsson

LOL... þegar trúarliðið fer að biðja um rök á hlutum það vill ekki skilja.

Jón Ragnarsson, 30.5.2011 kl. 22:57

18 Smámynd: Mofi

Jón Ragnarsson, þú sem sagt getur ekki fært rök fyrir þessu.

Út frá okkar þekkingu á C14 mælingum þá á ekki að vera mælanlegar leifar af þeim í sýnum sem eru eldri en sirka 100.000 ár. Við aftur á móti höfum aragrúa af dæmum þar sem sýni sem aðrar mælingar mæla margra miljón ára, þá finnst C14 leifar í sýnunum og þær mælingar segja 20.000-50.000 ár.

Ég er aðeins að benda á staðreyndir sem gefa mér ástæðu til að álykta að allar þessar mælingar séu óáreiðanlegar.  Einhverjar afsakanir með bakteríum staðfesta bara enn frekar óáreiðanleikann.

Mofi, 31.5.2011 kl. 09:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband