Af hverju peningakerfi? Zeitgeist

Ég horfði á mjög forvitnilega mynd núna um daginn, Zeitgeist Moving Forward.  Að ég skuli hrósa þessari mynd miðað við að ég rakkaði fyrstu myndina niður, sjá: Zeitgeist  hlýtur að segja margt. 

Það er mjög margt í myndinni sem vekur mann til umhugsunar. Má þar nefna áhrif umhverfisins á þroska barna og síðan hegðun fólks, áhrif vélvæðingarinnar og áhrif þess sem er kallað Peak Oil. Það sem stendur upp úr eru gallar peningakerfisins, hvernig við höfum búið til kerfi sem hvetur til sóunnar. Enn frekar þá er kerfið þannig að sjúkdómar og glæpir eru arðvænlegir. Ímyndaðu þér að það kæmi á sjónarsviðið maður sem gæti læknað fólk og byrjaði að lækna gífurlega marga á hverjum degi. Segjum sem svo að hann læknaði 10.000 manns á dag.  Hve margir myndu vilja stöðva þennan mann með öllum tiltækum ráðum því að hann væri að láta þá tapa peningum, skilja eftir miljónir án atvinnu og svo framvegis. 

Myndin fer síðan yfir hvernig við ættum frekar að setja upp kerfi til að hugsa um mannkynið og nota þær auðlyndir sem við höfum. Enginn ætti að láta þessa mynd fram hjá sér fara. Þetta er sömuleiðis skemmtileg tilraun til að hætta hugsa innan kassans, þ.e.a.s. að hugsa innan peninga kerfisins og líta á það utan frá.


mbl.is Málþing um þjóðareign á auðlindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eins og Clyde Lewis sagði, ef Jesús kæmi í dag, þá myndum við taka á móti honum með vélbyssum :P

En fyrst þú talar um ógnina af manni sem læknar 10.000 á dag við heilbrigðisgeirann, þá bendi ég á tregðuna í þjóðfélaginu til að viðurkenna möguleikann á því að lyfjarisar reyni að selja bóluefni sem eru ónauðsynleg og valda óþarfa áhættu.  Þú getur enn fengið svínasprautu, þó allir ættu að vita að svínafárið var PR herferð lyfjarisa og leppa þeirra hjá WHO og víðar.

Georg O. Well (IP-tala skráð) 16.2.2011 kl. 13:59

2 Smámynd: Mofi

Georg, það væri nóg af fólki sem án efa myndi taka upp vopn gegn Honum, engin spurning að mínu mati.  Ógnin er vegna kerfis þar sem það er fólk sem græðir á óförum annara sem ætti að segja okkur að kerfið er ekki mjög heppilegt ef að við viljum lifa í samfélagi þar sem lítið er um sjúkdóma. Það óneitanlega lítur út núna eftir á að svínafárið var bara tilraun til að græða pening og tókst líklegast með ágætum.

Kíktir þú á myndina?  Dáldið löng, hátt í þrír tímar en mjög skemmtilegir og fræðandi þrír tímar; persónulega er ég búinn að horfa þrisvar sinnum á hana.

Mofi, 16.2.2011 kl. 14:19

3 Smámynd: Charles Geir Marinó Stout

Þetta er öflug mynd, takk fyrir það að pósta henni ;)

Charles Geir Marinó Stout, 21.2.2011 kl. 22:13

4 Smámynd: Mofi

Gaman að heyra Charles :)

Mofi, 22.2.2011 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 802803

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband