Sprengingin sem heldur áfram að stækka

metazoan-phylogeny.jpgFyrir ekki svo löngu síðan benti ég á myndina  Darwin's Dilemma sem fjallar aðallega um kambríum sprenginguna og hvernig hún bendir til þess að þróunarkenningin er röng. Hið skemmtilega er að þessi sprenging heldur áfram að stækka, fleiri og fleiri tegundir finnast í kambríum setlaginu. Nýlegar greinar fjölluðu um þetta, sjá:  Middle Cambrian echinoderms from north Spain show echinoderms diversified earlier in Gondwana og Cambrian origin of all skeletalized metazoan phyla—Discovery of Earth's oldest bryozoans (Upper Cambrian, southern Mexico)

Þær fjölluðu um fund tveggja hópa, annar fann bryzoans sem samkvæmt þeim eru enn eldri en áður hafði fundist og hinn hópurinn fundu fjölbreytta echinoderms sem þeir telja vera frá miðju kambríum tímabilinu.

Enn annar hópur vísindamanna fundu Cephalopods og cuttlefish í kambríum setlaginu samkvæmt frétt á BBC, sjá: http://news.bbc.co.uk/2/hi/science_and_environment/10173293.stm  

 cuttlefish1_995630.jpg

 

Fyndið að lesa tilvitnun frá einum af þróunarsinnunum um þennan fund:

Martin Smith
We go from very simple pre-Cambrian life-forms to something as complex as a cephalopod in the geological blink of an eye, which illustrates just how quickly evolution can produce complexity

Ef eitthvað er blind trú, þá er það þetta. 

Þeir sem vilja trúa þróunarkenningunni um að uppruni dýranna var í gegnum hægfara tilviljanakenndar stökkbreytingar sem var mótað af náttúruvali þá eru þeir að trúa í andstöðu við staðreyndirnar.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rebekka

Hverjar eru þá staðreyndirnar? 

Guð galdraði fram allar dýrategundirnar upp úr þurru?  Tegundir sem eru með nógu "sveigjanlegt forrit" í genunum til að þær sem lifðu af Flóðið gátu þróast í þær milljónir tegunda sem til eru núna - en samt ekki nógu sveigjanlegar til að sýna fram á að þróunarkenningin sé sönn (samkvæmt þér).

Þar að auki eru refhvörf (oxymoron) í setningunni, allavega held ég að það heiti það.

" tilviljanakenndar stökkbreytingar sem var mótað af náttúruvali"  Hvernig getur nokkuð verið tilviljanakennt sem er mótað af utanaðkomandi öflum?  Tilviljanakenndar stýrðar stökkbreytingar...

Rebekka, 30.5.2010 kl. 18:27

2 Smámynd: Mofi

Rebekka, skapaði eða hannaði þær eins og Biblían segir; það bara passar við þetta sem við erum að finna.

Við vitum að dýrategundirnar hafa innbyggða fjölbreytni, eitthvað sem við höfum séð greinilega í gegnum ræktun á rósum og hundum og fleiri tegundum.  Þessi sveigjanleiki er ekki vegna stökkbreytinga og þar af leiðandi styður hann á engan hátt þróunarkenninguna.

Rebekka
Þar að auki eru refhvörf (oxymoron) í setningunni, allavega held ég að það heiti það.

Hvaða setning inniheldur "oxymoron"?

Rebekka
Hvernig getur nokkuð verið tilviljanakennt sem er mótað af utanaðkomandi öflum?  Tilviljanakenndar stýrðar stökkbreytingar...

Stökkbreytingarnar eru tilviljanakenndar, það er enginn ágreiningur um það. Að náttúruval og fleiri þættir geta eytt út óheppilegum stökkbreytingum breytir því ekki að stökkbreytingarnar sjálfar eru tilviljanakenndar.

Vill svo til að vísindamenn eru byrjaðir að sætta sig við það að umhverfið getur breytt DNA lífvera og það erfst; Lamarck óbeint risinn upp frá dauðum. Eins fréttnæmt og það ætti að vera þá hefur ekki farið mikið fyrir því í fréttum.

Mofi, 31.5.2010 kl. 10:06

3 Smámynd: Ragnar Þórisson

Mofi:
"skapaði eða hannaði þær eins og Biblían segir; það bara passar við þetta sem við erum að finna."
Segjum að ég samþykki athugasemdalaust röksemdarfærslurnar sem þú færir í þessari grein, að staðreyndirnar sýni fram á að lífið hafi verið hannað. En að það hafi gerst eins og Biblían segir, líkt og þú heldur fram, er út í hött. Nákvæmlega engar ar þeim staðreyndum sem þú bendir á í þessari grein styður það.

Ragnar Þórisson, 31.5.2010 kl. 10:51

4 Smámynd: Mofi

Ragnar, það er mikið til í því, sá rökstuðningur kemur fram í greinunum sem ég vísaði í. Sá rökstuðningur er aftur á móti mjög einfaldur. Kambríum sprengingin vísar til þess að í fyrstu setlögunum eða elstu lögunum þá kemur fram mikil flóra dýra; akkúrat hið gangstæða og þróunarkenningin spáir fyrir um en akkúrat það sem maður býst við ef að saga Biblíunnar er sönn.

Mofi, 31.5.2010 kl. 11:04

5 Smámynd: Ragnar Þórisson

Þróunarkenningin hvorki spáir fyrir Kambríumsprengingunni né er á móti henni svo þetta eru engin rök en ég sagðist ætla að taka þessari röksemdarfærslu athugasemdarlaust. Læt þetta því liggja milli hluta.

En saga Biblíunnar segir ekkert til um að ef þróunarkenningin er röng þá sé hún rétt. Það er fáránlega langsótt.

Ragnar Þórisson, 31.5.2010 kl. 11:11

6 Smámynd: Mofi

Ragnar, þróunarkenningin spáir fyrir um að lífið byrjar einfalt og síðan seinna meir verður það flóknara og fjölbreytilegra.  Sköpunarsagan segir að í upphafi hafi verið mikil fjölbreytileiki svo að finna mikinn fjölbreytileika strax í fyrstu setlögunum sem innihalda steingervinga smell passar við það.

Mofi, 31.5.2010 kl. 11:40

7 Smámynd: Ragnar Þórisson

Þú ert nú eitthvað að oftúlka þróunarkenninguna. En ég sagðist vilja láta það liggja milli hluta og gefa þér þessa röksemdarfærslu frítt svo látum það liggja milli hluta.

Ef þú rýnir í sköpunarsöguna þá ættum við að finna mannvistarleifar í Kambríumsetlögunum. Við gerum það hins vegar ekki. Þessi grein þín er því fáránlega langsótt.

Ragnar Þórisson, 31.5.2010 kl. 11:50

8 Smámynd: Mofi

Ragnar, ég býst ekki út frá sköpunarsögunni að finna leifar manna í Kambríum setlögunum.

Mofi, 31.5.2010 kl. 11:52

9 Smámynd: Ragnar Þórisson

Hvers vegna ekki? Væntanlega fórst fullt af fólki í flóðinu og grófst með öðrum dýrum, þar á meðal í Kambríumlaginu.

Ragnar Þórisson, 31.5.2010 kl. 13:02

10 Smámynd: Mofi

Ragnar, fyrstu stig flóðsins hefðu aðeins átt við dýr sem lifðu á sjávarbotninum eða nálægt honum. Þar sem að setlögin sjálf hefðu aðalega verið að myndast í flóðbylgjum og einhverju sem er kallað turbidite þá búast sköpunarsinnar ekki við því að þetta sé allt í einum hrærigraut. Frekar að vistsvæði hefðu grafist í mörgum slíkum atburðum og smá saman hefði öll jörðin verið komin á kaf.

Mofi, 31.5.2010 kl. 13:30

11 Smámynd: Ragnar Þórisson

Þetta er nú afskaplega langsótt skýring á uppröðun setlaga og alls ekki það sem við finnum í náttúrunni nema bara að hluta til. Það þarf einhverja flókna útskýringu ofan á hvert sértilvik a'la jarðmiðjukenningin til að þetta gangi upp.

Ragnar Þórisson, 31.5.2010 kl. 13:56

12 Smámynd: Mofi

Ragnar, ég held að þú hafir ranga hugmynd á hver þessi röð er; ég er á minnsta kosti því að hún er ekki eins skýr og margir vilja láta í veðri vaka.

Hérna er spurningin hvort líkanið útskýrir flest af gögnunum, ég er auðvitað á því að sköpun gerir það, annars væri ég þróunarsinni. Hérna er stutt grein sem tekur saman helstu einkenni setlagana og steingervingana og af hverju sköpun og flóð er betri útskýring, sjá: The Real Nature of the Fossil Record

Mofi, 31.5.2010 kl. 15:09

13 Smámynd: Ragnar Þórisson

Gallinn við svona stuttar greinar er að þær geta ekki orðið annað en yfirborðskenndar. Raunveruleikinn er svo miklu fjölbreyttari.

Annars finns mér rökin sem þú notar ekki sannfærandi:

ég er á minnsta kosti því

ég er auðvitað á því að sköpun gerir það

Ég veit vel hver þín skoðun er og af hverju þú hefur hana. Þú getur ekki notað það sem rök.

Ragnar Þórisson, 31.5.2010 kl. 16:08

14 Smámynd: Mofi

Ragnar, rökin voru greinin, ekki yfirlýsingin á hver mín afstaða er.

Mofi, 31.5.2010 kl. 16:47

15 Smámynd: Ragnar Þórisson

Eins og ég sagði þá er þessi grein allt of yfirborðskennd til að gefa rétta mynd af raunveruleikanum.

Ragnar Þórisson, 31.5.2010 kl. 22:14

16 Smámynd: Mofi

Ragnar, hún kom með nokkra góða punkta sem fyrir mig eru mjög sannfærandi. Held að ég ætla að þýða hana og sjá hvað fólki finnst.

Mofi, 1.6.2010 kl. 10:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband