Góður Guð, vondur heimur?

Ef það er eitthvað sem skekur trú margra þá er það þegar það sér saklaus börn þjást. Það er á þannig stundum sem trúaðir spyrja sig "afhverju stöðvar Guð þetta ekki" og þeir sem trúa ekki á Guð hugsa "ef það er til Guð þá er Hann ekki góður".

Til að skilja þetta betur þá þarf maður að kynna sér deiluna miklu milli góðs og ills. Vandamálið sem Guð glímir við er að illska er kominn inn í sköpunarverkið og til þess að leysa það vandamál þá þarf að eyða illskunni í öllum hennar myndum en það er hægara sagt en gert.  Ein ástæðan er að Guð vill ekki að neinn deyi og óskar þess að allir munu iðrast og snúi sér frá glæpum gegn Honum.  Önnur ástæðan er sú að það eru áhorfendur sem Guði þykir vænt um og vill vera viss um að þeir séu í engum vafa um lindiseinkun Hans og Hans réttlæti.  Ef illskunni hefði verið eytt án þess að hún fengi að sýna sitt rétta andlit þá liti Guð út eins og vondur harðstjóri sem eyðir öllum þeim sem eru ekki sammála Honum. Svo það sem er í gangi í okkar heima er að illskan fær að sýna sitt rétta andlit og Guð verður að halda sig til hlés til þess að afleiðingar hennar verði öllum ljós.  

Við sem erum vond í samanburði við Guð vildum fátt meira en bjarga þessum börnum, gefa þeim gott og langt líf. Sjá til þess að það sé séð um þau og þau geta lifað hamingjusömu lífi. Engin spurning í mínum huga að Guð vill það miklu meira en við en verður að halda að sér höndunum því annars gæti aldrei orðið til heimur án illsku. 

Góðu fréttir fagnaðarerindisins eru að það mun koma dagur þar sem þeir sem eru kúgaðir og beittir óréttlæti fá hlut sinn réttann.  Börn sem þessi munu öðlast eilíft líf án þjáninga og illsku.  Góðu fréttirnar eru þær að allri illsku verður eytt en vandamálið við það er að hver getur sagst vera vera saklaus af hatri, öfund, þjófnaði, lygum, græðgi eða hvers konar illsku?  Þess vegna skipar Guð öllum að iðrast og setja traust sitt á það réttlæti sem Hann útvegaði okkur með því að senda Jesú til að borga gjaldið fyrir okkar syndir. Allt var lagt í sölurnar til þess að ekkert okkar myndi glatast á degi reiðinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Egill Óskarsson

...og þeir sem trúa ekki á Guð hugsa "ef það er til Guð þá er Hann ekki góður".
 Nei. En þetta er gott dæmi um það sem hefur verið bent á áður varðandi það að þegar þú setur þig í spor trúleysingja þá setur þú þig í spor einhver sem er ekki í raun trúleysingi. 

Egill Óskarsson, 27.5.2010 kl. 15:47

2 Smámynd: Mofi

Egill, hvað ertu að bulla?   Ertu að segja mér að guðleysingjar benda ekki á illsku í náttúrunni til að segja að ef Guð er til, þá getur Hann ekki verið góður?

Þú gerir þér grein fyrir því að það eru ekki allir guðleysingjar eins og þú er það ekki?

Mofi, 27.5.2010 kl. 16:15

3 Smámynd: Sigurður Rósant

Mofi ...og þeir sem trúa ekki á Guð hugsa "ef það er til Guð þá er Hann ekki góður".

Já, en þetta eru þeir sem teljast frekar -efasemdarmenn- sem hugsa svona, Mofi. Oft börn, unglingar eða þeir sem velta þessum hlutum ekki mikið fyrir sér, líka.

Forhertir trúleysingjar eins og ég og flestir hér á bloggsíðum Mbl. hugsa ekki svona.  Þeir hugsa miklu fremur. Guð er ekki til og þar af leiðandi er ekki hægt að saka hann um eitt eða neitt, eða þakka honum eitt eða annað.

En að öðru óskyldu, sem ég verð að spyrja þig um. Sinnir kvenprestur í kirkjum Aðventista sömu störfum og karlprestar?

Nú spyr ég, þar sem ég hitti fyrir tilviljun konu sem var að kynna trú Aðventista og gefa rit og bækur í góða veðrinu um daginn hér í Næstved í Danmörku.

Ég spurði hana hvort einhverjir kvenprestar væru í söfnuði Aðventista í Danmörku. Hún sagðist ekki vita til þess, en ef svo væri þá sinntu þær ekki skírnum, hjónavígslum og greftrunum.

Hún sagði einnig að sjálfsagt væri að konur töluðu á samkomum ef þær væru gæddar sérstökum "náðargjöfum andans", eins og Páll postuli minnist á í fyrra Kórintubréfi kafla 12.

Sigurður Rósant, 27.5.2010 kl. 17:00

4 Smámynd: Mofi

Rósant, það var þarna "ef" sem skiptir töluverðu máli í þessu samhengi. Þetta voru síðan ein af stærstu rökum Darwins fyrir því að hann hætti að trúa á Guð og ástæðan fyrir þessari grein var vegna þess að ég fékk svona spurningu frá manni sem trúir ekki á Guð ( að ég best veit ).

Áhugaverð þessi saga af þessari konu. Hefði haldið að danir væru sérstaklega frjálslindir en kannski ekki.

Mofi, 27.5.2010 kl. 17:09

5 Smámynd: Egill Óskarsson

Ertu að segja mér að guðleysingjar benda ekki á illsku í náttúrunni til að segja að ef Guð er til, þá getur Hann ekki verið góður?

Einhverjir trúleysingjar hafa vissulega sagt að ef einhverskonar yfirnáttúrulegt afl væri til þá gæti það ekki verið gott. Það kemur því sem við erum að ræða hins vegar ekkert við. 

Trúleysingi hefur enga ástæðu til þess að hugsa svona eins og þú gerir af þeirri einföldu ástæðu að hann er trúlaus. Það er ekkert ef

Þú gerir þér grein fyrir því að það eru ekki allir guðleysingjar eins og þú er það ekki?

Þú gerir þér grein fyrir því að grundvallarforsenda fyrir því að kalla sig trúleysingja er að vera trúlaus er það ekki? Og að trúleysi er ekki það sama og efahyggja?

Egill Óskarsson, 27.5.2010 kl. 17:49

6 Smámynd: Egill Óskarsson

Það vantar viðbót á fyrstu málsgreinina mína. Hún er sú að þegar trúleysingjar tala á þessum nótum þá eru þeir að tala 'theoratically' til þess að benda á það sem þeim finnst skrýtið eða órökrétt við trú.

Egill Óskarsson, 27.5.2010 kl. 17:51

7 Smámynd: Sigurður Rósant

Mofi - Engin spurning í mínum huga að Guð vill það miklu meira en við en verður að halda að sér höndunum því annars gæti aldrei orðið til heimur án illsku. 

Hér ertu í raun að gefa í skyn að guð þinn hafi skapað illskuna til þess eins að sýna hve góður hann sjálfur er. Og svo til að skreyta hugmynd þína enn betur, þá heldur þessi guð þinn sig til hlés þegar verið er að níðast á börnum, eða þau að deyja í milljónatali af völdum malaríu eða öðrum barnasjúkdómum sem trúleysingjar á Vesturlöndum dirfðust að finna bóluefni gegn í óþökk trúaðra.

Sérðu ekki hvað þetta eru frumstæðar hugmyndir sem þú ert með í kollinum, Mofi? Svona hugmyndir lifa góðu lífi meðal frumstæðra þjóðflokka sem finnast lengst inni í skógum Suður-Ameríku, Afríku og á fleiri afskekktum stöðum þar sem fólk hefur ekki enn kynnst því sem við köllum - þekkingu, vísindum og framförum.

Sigurður Rósant, 27.5.2010 kl. 19:05

8 Smámynd: Mofi

Rósant, ég er ekki að gefa neitt slíkt þannig í skyn. Virkar bara eins og stórfurðulegur út úr snúningur hjá þér.

Mofi, 27.5.2010 kl. 19:53

9 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

"Ein ástæðan er að Guð vill ekki að neinn deyi og óskar þess að allir munu iðrast og snúi sér frá glæpum gegn Honum.  Önnur ástæðan er sú að það eru áhorfendur sem Guði þykir vænt um og vill vera viss um að þeir séu í engum vafa um lindiseinkun Hans og Hans réttlæti."

M.ö.o. Guð vill að allir sjái hvað hann er góður. 

Þið hafið gaman af því að tala um Guð sem "föður". Ef faðir leyfir börnunum sínum að þjást svo hann geti bjargað þeim seinna er hann ekki góður faðir. Faðir sem "heldur sig til hlés" til að "illskan sýni sitt rétta andlit" með þeim afeiðingum að börnin hans þjást og jafnvel deyja, er hann ekki góður faðir. Þarf ég að segja þér að faðir sem nennir ekki að ala börnin up sjálfur, en skrifar þess í stað illskiljanlega handbók handa þeim og refsar þeim svo ef þau mistúlka bókina er ekki góður faðir.

Sem trúleysingi tel ég afskaplega ólíklegt að guðir séu til. Ef ég ætti að velja, myndi ég þó allra síst vilja að þinn væri til, því hann er ekki bara óábyrgur "faðir" heldur líka smámunasamur, öfundsjúkur og grimmur.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 29.5.2010 kl. 12:48

10 Smámynd: Mofi

Tinna
M.ö.o. Guð vill að allir sjái hvað hann er góður
Vill ekki að þær verur sem Hann skapaði haldi að Hann sé vondur.

Tinna
Faðir sem "heldur sig til hlés" til að "illskan sýni sitt rétta andlit" með þeim afeiðingum að börnin hans þjást og jafnvel deyja, er hann ekki góður faðir.

Mannlegur faðir, já en það er annað í gangi þegar kemur að Guði. Dauði þessa heims er aðeins svefn í augum Guðs því að Hann hefur vald til að gefa líf, eitthvað sem mannlegur faðir hefur ekki.  Án Guðs er ekkert líf svo ef að sköpun Guðs vill yfirgefa Hann vegna þess að hún heldur að Hann er vondur þá yrði niðurstaðan eilífur dauði.  

Síðan er aðal illska þessa heims það sem mennirnir gera; ætti Guð að stöðva alla menn í hvert skipti sem þeir gerðu eitthvað sem mun hafa slæmar afleiðingar?  Er það góður faðir sem tekur burt valfrelsi frá sínum börnum? Að þau hafa ekkert val milli þess að lifa með honum eða fara frá honum?

Tinna
Þarf ég að segja þér að faðir sem nennir ekki að ala börnin up sjálfur, en skrifar þess í stað illskiljanlega handbók handa þeim og refsar þeim svo ef þau mistúlka bókina er ekki góður faðir.

Þú ert að gefa þér ákveðnar forsendur sem ég tel vera rangar. Í fyrsta lagi að bókin sé eitthvað illskiljanleg, það eru aðalega þeir sem sjá að vilji Guðs fer á móti þeirra eigin vilja eða hefðum sem eiga í vandræðum með að lesa Biblíuna. Í öðru lagi þá heldur þú að Guð er eitthvað að refsa þeim sem mistúlka Biblíuna, ég trúi því ekki; ég trúi því að Guð dæmi fólk eftir því ljósi sem það hefur fengið. Hvort að það fylgi af öllu hjarta því sem Guð var búinn að opinbera því.

Mofi, 30.5.2010 kl. 23:06

11 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

 "Vill ekki að þær verur sem Hann skapaði haldi að Hann sé vondur."

Jahá. Finnst þér það hafa gengið vel hingað til?

"Dauði þessa heims er aðeins svefn í augum Guðs því að Hann hefur vald til að gefa líf, eitthvað sem mannlegur faðir hefur ekki.  Án Guðs er ekkert líf svo ef að sköpun Guðs vill yfirgefa Hann vegna þess að hún heldur að Hann er vondur þá yrði niðurstaðan eilífur dauði."  

Mér er bara alveg sama þó dauðinn sé bara svefn í augum þessa karakters, það kemur málinu ekkert við. Okkur finnst ekki fallegt að pynta dýr eða leyfa þeim að þjást, jafnvel þó ævi þeirra sé ósköp stutt miðað við okkar. Ef við færum með gæludýr eins og þú vilt meina að guðinn þinn fari með okkur, væri ansi langt seilst að lýsa því sem einhverju kærleiksverki. "Já, ég læt gullfiskinn minn synda í skítugri klósettskál og gef honum aldrei að éta. Það skiptir engu máli, því gullfiskar lifa hvort eð er svo stutt."

"Síðan er aðal illska þessa heims það sem mennirnir gera; ætti Guð að stöðva alla menn í hvert skipti sem þeir gerðu eitthvað sem mun hafa slæmar afleiðingar?  Er það góður faðir sem tekur burt valfrelsi frá sínum börnum? Að þau hafa ekkert val milli þess að lifa með honum eða fara frá honum?"

Er það slæmur faðir sem vara börnin sín ekki við þegar hann veit sjálfur að t.d. flugvélin sem þau stíga upp í muni farast? Er hann þá að taka af þeim eitthvað val? Þú veist að slæmir hlutir henda gott fólk, jafnvel þó farið sé eftir þínum stöðlum; jafnvel devout aðventisti getur lent í slysi sem hann ber enga sök á sjálfur. Segjum að hann verði fyrir eldingu. Guð hefði getað varað hann við, en hann gerði það ekki. Hvers vegna ekki? Vegna þess að þá myndi fólk hætta að verða fyrir eldingum? Virkar það ekki fyrir guð?  

"Í fyrsta lagi að bókin sé eitthvað illskiljanleg, það eru aðalega þeir sem sjá að vilji Guðs fer á móti þeirra eigin vilja eða hefðum sem eiga í vandræðum með að lesa Biblíuna."

Þar sem "vilji Guðs" virðist innihalda þrælahald, morð, pyntingar, kynjamisrétti og fleira ógeðfellt, myndi ég halda að flestir teldu "vilja Guðs" andstæðan sínum eigin. Ef þú vilt í raun og veru fara eftir "vilja Guðs" ættirðu ekki að vera hér að blogga! "Farið og gjörið allar þjóðir að lærisveinum" - hér er nægur aðgangur að "Orði Guðs", meira að segja hellingur af Aðventistum sem hafa höndlað hinn eina stóra sannleik. Þú gerir meira gagn - og ferð eftir skipun Guðs - með því að dreifa Biblíum á götuhornum í...tja, segjum Íran. Eða stangast þessi skipun á við þinn eigin vilja og hefðir?

"Í öðru lagi þá heldur þú að Guð er eitthvað að refsa þeim sem mistúlka Biblíuna, ég trúi því ekki; ég trúi því að Guð dæmi fólk eftir því ljósi sem það hefur fengið. Hvort að það fylgi af öllu hjarta því sem Guð var búinn að opinbera því."

Þú veist ósköp vel að Biblíuna má túlka fram og til baka. Fólk velur úr það sem hentar - þú líka: annars værirðu í óðaönn að grýta fólk. Þú hefur hins vegar ákveðið að þeir hlutar Biblíunnar gildi ekki lengur. Þú hefur líka ákveðið að hlutinn um að konur eigi að hafa hægt um sig og megi ekki kenna "guðs orð" sé fallinn úr gildi - geri ég ráð fyrir, þar sem Ellen White var jú kona. Aðrir ríghalda í þessi orð og "vita" alveg jafn vel og þú að Guð vill að farið sé eftir þeim. Enn aðrir hafa ákveðið að Jesú hafi verið alveg ofsalega líbó miðað nútímastandarda, hvað þá standarda í Palestínu fyrir 2000 árum. Þetta fólk "veit" allt að það er að fylgja orði Guðs. Þér finnst auðvelt að túlka Biblíuna, vegna þess að þú velur úr það sem hentar þér - gerir kannske málamyndabreytingar...hættir að borða pepperoni eða eitthvað. En þó þú farir eftir því (og mikið ofsalega hefurðu klappað þér mikið á bakið fyrir það í gegnum tíðina) sleppirðu án umhugsunar öðrum reglum sem þó finnast í sömu bók - jafnvel sama kafla! Þú þykist vita hvaða reglur eru í gildi og hverjar ekki, en hvernig ákveðurðu það? Jú, þú gerir það sem allir hinir gera: velur úr þá kafla sem henta þér.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 31.5.2010 kl. 02:53

12 Smámynd: Mofi

Tinna
Jahá. Finnst þér það hafa gengið vel hingað til?

Við erum ekki einu verurnar sem Guð hefur skapað. Við erum aðeins þær sem taka þátt í deilunni milli góðs og ills.  Það eru síðan fjölmargir sem efast ekki um kærleika Guðs, jafnvel þótt að heimurinn sé fullur af illsku.

Tinna
Ef við færum með gæludýr eins og þú vilt meina að guðinn þinn fari með okkur, væri ansi langt seilst að lýsa því sem einhverju kærleiksverki.

Ég sé ekki Guð þannig að Hann er á virkann hátt að gera eitthvað með okkur. Að leyfa okkur að finna fyrir afleiðingu okkar eigin gjörða er aðeins Guð að virða okkar valfrelsi. Áður en Guð síðan grípur inn í þá þarf að vera á hreinu fyrir alla sem horfa á að það er rétt af Guði að grípa inn í.  

Tinna
Er það slæmur faðir sem vara börnin sín ekki við þegar hann veit sjálfur að t.d. flugvélin sem þau stíga upp í muni farast? Er hann þá að taka af þeim eitthvað val? Þú veist að slæmir hlutir henda gott fólk, jafnvel þó farið sé eftir þínum stöðlum; jafnvel devout aðventisti getur lent í slysi sem hann ber enga sök á sjálfur.

Nóg af viðvörunum í Biblíunni og allir menn hafa samvisku sem segir þeim hvað þeir ættu að gera og allar sjá sköpunarverkið og geta vitað að það er til skapari.  Þetta snýst um eilífa lífið, ekki eitthvað slæmt sem getur gerst í þessu lífi því sannarlega lenda aðventistar í slysum og fá sjúkdóma eins og aðrir. Aftur á móti þá höfum við góðar leiðbeiningar varðandi hvernig við eigum að lifa sem hjálpar mjög mikið í því að eiga gott líf á þessari jörð.

Tinna
Þar sem "vilji Guðs" virðist innihalda þrælahald, morð, pyntingar, kynjamisrétti og fleira ógeðfellt, myndi ég halda að flestir teldu "vilja Guðs" andstæðan sínum eigin

Þín sýn á Guð Biblíunnar er mér mjög framandi.  Til að stjórna Ísrael þá voru margar reglur til að glíma við vondt fólk og slæmar aðstæður. Kannast vægast sagt ekki við einhverjar pyntingar. Þrælahald var til að glíma við fátækt, til að gefa þeim sem gat ekki séð um sig sjálfur að fá vinnu í staðinn fyrir mat og húsnæði. Ef að þræll flúði frá húsbónda þá mátti ekki skila honum til baka. Ástæðan er einfaldlega sú að þetta var samkomulag tveggja aðila, einn útvegar húsnæði og mat í staðinn fyrir þjónustu.

Veit ekki hvað þú ert að hugsa um þegar kemur að kynjamisrétti.

Tinna
Ef þú vilt í raun og veru fara eftir "vilja Guðs" ættirðu ekki að vera hér að blogga! "Farið og gjörið allar þjóðir að lærisveinum" - hér er nægur aðgangur að "Orði Guðs", meira að segja hellingur af Aðventistum sem hafa höndlað hinn eina stóra sannleik. Þú gerir meira gagn - og ferð eftir skipun Guðs - með því að dreifa Biblíum á götuhornum í...tja, segjum Íran. Eða stangast þessi skipun á við þinn eigin vilja og hefðir?

Ef það er eitthvað sem ég hef lært af þessu bloggi þá er það það að íslendingar hafa ekki lengur kristna heimssýn og vita í rauninni ekki hver hún er. Svo, það er nóg að gera hérna. 

Tinna
Þú veist ósköp vel að Biblíuna má túlka fram og til baka. Fólk velur úr það sem hentar - þú líka: annars værirðu í óðaönn að grýta fólk

Nei, auðvitað ekki.  Af hverju ætti ég að taka til mín lög Ísraels? Þarna ertu að tala um lög þjóðar og þeirra dómsstóla. Einstaklingar áttu aldrei og gátu aldrei verið að framkvæma refsingar, þannig hefði verið litið á sem morð. 

Ég veit vel að það eru til þó nokkrar kristnar kirkjur en flestar eru sammála um ákveðin grunn atriði og þau sem þau eru ósammála um, það er sjaldnast að það er í raun og veru Biblíunni að kenna.

Tinna
Þú hefur hins vegar ákveðið að þeir hlutar Biblíunnar gildi ekki lengur. Þú hefur líka ákveðið að hlutinn um að konur eigi að hafa hægt um sig og megi ekki kenna "guðs orð" sé fallinn úr gildi - geri ég ráð fyrir, þar sem Ellen White var jú kona.

Þar sem ég trúi að Ellen White var spámaður þá t.d. að konur ættu ekki að predika var eitthvað sem á ekki lengur við okkar tíma.

Tinna
Aðrir ríghalda í þessi orð og "vita" alveg jafn vel og þú að Guð vill að farið sé eftir þeim. Enn aðrir hafa ákveðið að Jesú hafi verið alveg ofsalega líbó miðað nútímastandarda, hvað þá standarda í Palestínu fyrir 2000 árum.

Ef það fólk eru ósammála því að Ellen White var spámaður þá hefur þetta fólk ágætar ástæður til að fara eftir þessum versum.

Tinna
Þér finnst auðvelt að túlka Biblíuna, vegna þess að þú velur úr það sem hentar þér - gerir kannske málamyndabreytingar...hættir að borða pepperoni eða eitthvað.

Ég hefði ekkert á móti því að borða pepperóní, finnst það alveg meiriháttar gott. Biblían er aftur á móti skýr að maður á ekki að borða svínakjöt. Hérna er minn vilja á móti Biblíunni og ég vel að hlýða. Þeim sem eru ekki til í að hlýða þeir verða að snúa út úr Biblíunni til að fá þetta út úr henni.

Tinna
sleppirðu án umhugsunar öðrum reglum sem þó finnast í sömu bók - jafnvel sama kafla! Þú þykist vita hvaða reglur eru í gildi og hverjar ekki, en hvernig ákveðurðu það? Jú, þú gerir það sem allir hinir gera: velur úr þá kafla sem henta þér.

Ef ég geri það, þá er það ekki viljandi. Minn vilji er sannarlega að fara eftir reglum Biblíunnar.

Mofi, 31.5.2010 kl. 10:34

13 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

"Við erum aðeins þær sem taka þátt í deilunni milli góðs og ills."

Þannig að þjáningar dýra skipta engu máli? Þjáningar manna finnast þér ómerkilegar, þjáningar dýra eru þá ekkert til að æsa sig yfir.

"Þar sem ég trúi að Ellen White var spámaður þá t.d. að konur ættu ekki að predika var eitthvað sem á ekki lengur við okkar tíma."

"Ef ég geri það, þá er það ekki viljandi. Minn vilji er sannarlega að fara eftir reglum Biblíunnar."

Sérðu enga mótsögn í þessu?

1Andinn segir berlega að á síðustu tímum muni sumir ganga af trúnni og gefa sig að villuöndum og lærdómum illra anda. 2Þessu valda hræsnisfullir lygarar sem eru brennimerktir á samvisku sinni. 3Þeir banna hjúskap og bjóða mönnum að halda sér frá þeirri fæðu er Guð hefur skapað til þess að við henni sé tekið með þakklæti af trúuðum mönnum er þekkja sannleikann. 4Allt sem Guð hefur skapað er gott og engu ber frá sér að kasta sé það þegið með þakklæti. 5Það helgast af orði Guðs og bæn. (1.Tim.4)

En þú hefur ákveðið að borða ekki svínakjöt, þó Guð hafi skapað það. 

17Þegar Jesús var kominn inn frá fólkinu spurðu lærisveinar hans hann um líkinguna. 18Og hann segir við þá: „Eruð þið einnig svo skilningslausir? Skiljið þið ekki að ekkert sem fer inn í manninn utan frá getur saurgað hann? 19Því að ekki fer það inn í hjarta hans heldur maga og út síðan í safnþróna.“ Þannig lýsti hann alla fæðu hreina. (Mark.7)

En þú hefur ákveðið að Jesú hafi ekki lýst alla fæðu hreina.

 Það er samt allt í lagi: 

20Enginn maður réttlætist fyrir Guði með verkum í hlýðni við lögmálið en lögmálið kennir hvað sé synd. (Tim.3)

Sko, Jesú dæmir þig ekki...

Jesús sagði: „Til dóms er ég kominn í þennan heim, til þess að blindir sjái og sjáandi verði blindir.“(Jóh.9)

Úps. Nei, heyrðu:

"Ég er ekki kominn til að dæma heiminn heldur til að frelsa heiminn." (Jóh.12)

 Mikið skiptir hann oft um skoðun...

Þú þóttist ekki kannast við kynjamisrétti:

9Sömuleiðis vil ég að konur séu látlausar í klæðaburði, ekki með fléttur og gull eða perlur og skartklæði 10heldur skrýðist góðum verkum eins og sómir konum er segjast vilja dýrka Guð.
11Kona á að læra í kyrrþey í allri auðmýkt. 12Ekki leyfi ég konu að kenna eða taka sér vald yfir manninum heldur á hún að vera kyrrlát.(1.Tím)
 
Eins og siður er í öllum söfnuðum hinna heilögu 34skulu konur þegja á safnaðarsamkomum því að þeim er ekki leyft að tala heldur skulu þær hlýða eins og líka lögmálið býður. 35En ef þær vilja fræðast um eitthvað, þá skulu þær spyrja eiginmenn sína heima. Konum sæmir ekki að tala á safnaðarsamkomu.(1.Kór.14)
 
Pyntingar þykistu ekki kannast við heldur, og gleymir því þá að trúarkerfið sem þú aðhyllist varð til fyrir pyntingar - án pyntinga og aftöku væri engin upprisa, og þ.a.l. engin kristni. 

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 31.5.2010 kl. 15:41

14 Smámynd: Mofi

Tinna
Þannig að þjáningar dýra skipta engu máli? Þjáningar manna finnast þér ómerkilegar, þjáningar dýra eru þá ekkert til að æsa sig yfir

Jú, þær skipta máli. Ef við skoðum þjáningar þá spila þær stórt hlutverk í að halda okkur á lífi; eru einhvers konar viðvörun við hættum og dauða.  Miklu frekar að þetta er viðvörunin sem þú vildir að Guð gæfi okkur.  

Tinna
Sérðu enga mótsögn í þessu?

Nei, að aðstæður breytast og Ellen White kom með spámannlegt orð um sitthvað þannig er að mínu mati ekki í andstöðu við Biblíuna. Breyting já, en heimurinn breytist og sumt á við ákveðnar aðstæður og annað á við aðrar aðstæður.

Tinna
En þú hefur ákveðið að borða ekki svínakjöt, þó Guð hafi skapað það.

Ég hef ákveðið að hlýða Biblíunni varðandi mataræði. Það er hægt að borða margt sem Guð skapaði en það þýðir ekki að Guð skapaði það til matar.

Tinna
En þú hefur ákveðið að Jesú hafi ekki lýst alla fæðu hreina

Já, ég tel að Jesú gerði það ekki. Tel að þarna voru þýðendur að skrifa sína túlkun í textann. Að minnsta kosti skildu lærisveinar Krists Hann ekki svona eins og við sjáum í Postulasögunni ( postulasagan 10:14 ) og sömuleiðis hefði fólkið þarna virkilega mótmælt ef að Jesú hefði verið að gera að engu reglur Guðs varðandi mataræði en það gerðist ekki.  Það væri líka fáránlegt að breyta jafn mikilvægu atriði í menningu gyðinga og þessu í umræðu sem fjallaði um handaþvott en ekki svínakjöt. Enginn þarna minntist einu sinni á svínakjöt svo sá sem notar þetta vers til að réttlæta það að borða svínakjöt er að taka orð Krists úr samhengi.

Tinna
Mikið skiptir hann oft um skoðun...

Nei, bara spurning um samhengi. Þegar Jesú kom í fyrsta skiptið þá kom Hann til að frelsa heiminn, þegar Hann kemur í seinna skiptið þá kemur Hann til að dæma heiminn.

Tinna
Þú þóttist ekki kannast við kynjamisrétti:

Finnst þér það vera misrétti að konur hafi ekki völd yfir körlum?

Tinna
Pyntingar þykistu ekki kannast við heldur, og gleymir því þá að trúarkerfið sem þú aðhyllist varð til fyrir pyntingar - án pyntinga og aftöku væri engin upprisa, og þ.a.l. engin kristni

Ég kannast ekki við að Biblían hvetji til eða leyfi pyntingar, það er það eina sem ég var að meina.

Mofi, 31.5.2010 kl. 16:23

15 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Finnst þér það vera misrétti að konur hafi ekki völd yfir körlum?

Finnst þér það vera jafnrétti að konur megi ekki tala á samkomum? Finnst þér það ekki misrétti að konur megi aldrei "hafa völd yfir körlum" eingöngu vegna þess að þær eru konur?

Enginn þarna minntist einu sinni á svínakjöt svo sá sem notar þetta vers til að réttlæta það að borða svínakjöt er að taka orð Krists úr samhengi.

Þannig að þú veist hvað Jesú meinti? Þú veist að þegar hann sagði að ekkert sem kæmi utan frá gæti saurgað manninn var hann að tala um handþvott!?

Viðurkenndu það bara, Mofi, þú velur það sem hentar þínum hugmyndum og hefur nákvæmlega engar forsendur til að halda því fram að þínar skoðanir og túlkanir á Biblíuversum séu sannleikur.  Það sést hversu mikið mark er takandi á þeim túlkunum að þér tekst að taka vers sem talar um hluti sem fara í magann og svo út í safnþróna og túlka það svo að það fjalli um handþvott! Stingurðu höndunum yfirleitt í gegnum meltingarkerfið til að þvo þær?

Nei, að aðstæður breytast og Ellen White kom með spámannlegt orð um sitthvað þannig er að mínu mati ekki í andstöðu við Biblíuna. Breyting já, en heimurinn breytist og sumt á við ákveðnar aðstæður og annað á við aðrar aðstæður.

Já, aðstæður breytast. Sem dæmi má nefna að í gamla daga skildi fólk ósköp lítið um það hvernig heimurinn virkar, svo það skáldaði í götin. Í dag höfum við meiri þekkingu og betri aðferðir, svo við hættum að taka mark á gömlum skáldsögum sem voru skrifaðar fyrir fólkið sem vissi ekkert. Tja, flestir gera það. Flestir sætta sig við að aðstæður breytist, en aðrir kjósa frekar að halda í gömlu, einföldu skáldsögurnar. 

Í Biblíunni stendur skýrum stöfum að konur eigi ekki að taka sér vald yfir körlum eða kenna. Ellen White braut þá reglu. Viljirðu í alvörunni halda því fram að þú fylgir boðum Biblíunnar ættirðu að fordæma þetta brot hennar. Þú ættir að berjast manna harðast fyrir því að ríkiskirkjan verði lögð niður, enda vígir hún óverðugar kvensniftir hægri vinstri.  

Nei, bara spurning um samhengi. Þegar Jesú kom í fyrsta skiptið þá kom Hann til að frelsa heiminn, þegar Hann kemur í seinna skiptið þá kemur Hann til að dæma heiminn.

Hversvegna sættirðu þig ekki bara við það að þetta hjátrúarsystem þitt er orðið svo uppfullf af afsökunum og útúrsnúningi að það er ekki þess virði að púkka upp á það lengur? Það er enginn að segja að þú þurfir að hætta að trúa á Guð eða Jesú. Gó ahead! En ekki reyna að halda því fram að Biblían sé óskeikul. Skoðaðu listann yfir mótsagnir í Biblíunni. Sumt af þessu eru smáatriði, en athugaðu hversu margar þú þarft að útskýra burt með "þýðingavillum" eða "ekki í gildi lengur þó það standi í Biblíunni" eða "það sem Jesú ætlaði að segja var sko...". Spurðu svo sjálfan þig: ef ég þarf að eyða svona mikilli orku í að útskýra burt allt sem ekki hentar mér, getur ekki verið að hinir hafi rétt fyrir sér; kannske er Biblían bara safn rita sem innihalda alls konar villur, upphugsuð, rituð og þýdd af mönnum. Kannske er Guð bara ekkert ánægður með lokaútkomuna. Kannske kom "Hann" bara ekkert nálægt henni.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 31.5.2010 kl. 21:08

16 Smámynd: Mofi

Tinna
Finnst þér það vera jafnrétti að konur megi ekki tala á samkomum? Finnst þér það ekki misrétti að konur megi aldrei "hafa völd yfir körlum" eingöngu vegna þess að þær eru konur

Þarna er Páll að senda bréf til ákveðins safnaðar og þetta bréf var valið til að vera hluti af Biblíunni. Hvort að allir ættu að taka þetta til sín á öllum tímum er stór spurning og síðan að minnsta kosti fyrir mig þá breyttist þetta með Ellen White.

Tinna
Þannig að þú veist hvað Jesú meinti? Þú veist að þegar hann sagði að ekkert sem kæmi utan frá gæti saurgað manninn var hann að tala um handþvott!?

Það er mín trú, get ekki sagt að ég viti það hundrað prósent. En umræðan snérist um handaþvott:

Matteus 15
1
Then came to Jesus scribes and Pharisees, which were of Jerusalem, saying,

 2Why do thy disciples transgress the tradition of the elders? for they wash not their hands when they eat bread.
...
9 For out of the heart proceed evil thoughts, murders, adulteries, fornications, thefts, false witness, blasphemies. 20 These are the things which defile a man, but to eat with unwashed hands does not defile a man.”

Pétur var síðan þarna sá sem fékk útskýringu á þessu en það er greinilegt að hann skildi þetta ekki þannig að hann mætti borða svínakjöt því við lesum í Postulasögunni um sýn sem hann fékk þar sem hann neitaði Guði um að borða óhrein dýr.

Tinna
Viðurkenndu það bara, Mofi, þú velur það sem hentar þínum hugmyndum og hefur nákvæmlega engar forsendur til að halda því fram að þínar skoðanir og túlkanir á Biblíuversum séu sannleikur.

Það tók mikið á að hætta að borða pepperóní fyrir mig. Mér fannst pizza með pepperóní hreinlega vera eitt af því besta sem ég fékk en eftir að hafa skoðað þetta þá sannfærðist ég um að þetta er það sem Biblían kennir og lét af þessu. Ekkert hérna sem hentar mér.

Tinna
Já, aðstæður breytast. Sem dæmi má nefna að í gamla daga skildi fólk ósköp lítið um það hvernig heimurinn virkar, svo það skáldaði í götin. Í dag höfum við meiri þekkingu og betri aðferðir, svo við hættum að taka mark á gömlum skáldsögum sem voru skrifaðar fyrir fólkið sem vissi ekkert.

Ég veit ekki hvaða þekkingu við höfum öðlast sem gefur okkur ástæðu til að hætta að taka mark á Biblíunni.

Tinna
Í Biblíunni stendur skýrum stöfum að konur eigi ekki að taka sér vald yfir körlum eða kenna. Ellen White braut þá reglu

Hún gerði það mjög óbeint. Hún fékk sýnir sem hún sagði að kæmu frá Guði en það var hverjum í sjálfsvald sett að trúa því eða fylgja því.

Tinna
Þú ættir að berjast manna harðast fyrir því að ríkiskirkjan verði lögð niður, enda vígir hún óverðugar kvensniftir hægri vinstri. 

Ég styð það að leggja ríkiskirkjuna niður en ég hef valið mér önnur baráttuefni sem fá hærri forgang.

Tinna
En ekki reyna að halda því fram að Biblían sé óskeikul. Skoðaðu listann yfir mótsagnir í Biblíunni

Ef að Biblían er orð Guðs, ætti ég að hafna henni þegar einhver hópur guðleysingja ræðst á hana? Þeir eru að gera það sem ég býst við af þeim.  Í öll þau skipti sem ég skoða svona þá öðlast ég meiri skilning á Biblíunni og sé að ekki var um mótsögn að ræða. Ef það síðan er eitthvað sem er undarlegt þá er það vanalega eitthvað sem skiptir engu máli og engin alvöru ástæða til að hafna Biblíunni enda hvað annað ætti að taka við í staðinn?  Skoðanir manna sem breytast frá ári til árs? Ef Guð er til, hefur Hann þá aldrei haft samband við mannkynið eða eru þá skilboð Guðs til manna að finna í Kóraninum?

Mofi, 1.6.2010 kl. 10:00

17 Smámynd: Odie

Pizza með pepperóni er ekki guði þóknanleg.    

Nú er Dóminos í vandræðum.   

Odie, 1.6.2010 kl. 10:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband