Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2013

Bókin 80-10-10

Þessi rannsókn kemur ekki á óvart en mig grunar að þessar grænmetisætur eru að gera mikið af mistökum og ef að það væri að gera rannsókn þar sem væri hópur sem gerði ekki þessi mistök þá væri um að ræða hóp sem er í 90% minni hættu á að deyja úr hjartasjúkdómum. Smá varðandi þessi 90%, þá er það bara mín ágískun.

Þetta mat mitt er byggt á þessari bók hérna: "80-10-10".  Hún breytti minni sýn á mataræði eftir að hafa farið í gegnum þó nokkuð margar bækur um æfingar, heilsu og mataræði.  Vísindamaðurinn sem skrifar bókina nálgast þessa spurningu, hvað er best fyrir okkur að borða, út frá þróunarkenningunni en samt kemst að þeirri niðurstöðu að ávextir er það sem passar best fyrir okkur. Mér finnst það dáldið fyndið þar sem flestir þróunarsinnar sem ég hef rekist á hallast að því að kjöt hefur spilað stórt hlutverk í okkar þróun og þess vegna ætti kjöt að vera hluti af okkar mataræði.

Rökin hans Douglas Graham eru góð og þar sem þau passa við fyrstu blaðsíðuna í Biblíunni sem segir að ávextirnir voru búnir til handa okkur að borða þá var eins og allt small saman.

Svo hvaða mistök eru þessar grænmetisætur að gera?  Mistökin felast í nafni bókarinnar "80-10-10" sem stendur fyrir 80% kolvetni, 10% fita og 10% prótein. Mistökin sem eru mjög algeng meðal þeirra sem borða ekki kjöt er að hlutfall fitu verður allt of hátt, jafnvel hærra en þeirra sem borða kjöt!

Endilega kaupið þessa bók, ég lofa því að ykkar sýn á heilsu og næringu mun breytast og ef þið farið eftir þeim ráðum sem bókin gefur þá mun heilsan batna til muna.

Hérna er Douglas Graham með nokkrum vinum að fjalla um þetta.


mbl.is Grænmetisætur fá síður hjartasjúkdóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samantekt á trúverðugleika Nýja Testamentisins

Hérna er mynd sem sýnir hvernig rithöfundar Nýja Testamentisins þekktust og hvenær þeir skrifuðu sín handrit ásamt öðrum kristnum höfundum sem lifðu mjög nálægt þessum atburðum en þeirra rit voru ekki valin inn í Nýja Testamentið.

summaryÉg rakst á þessa mynd í þessari grein hérna: On a case study of the willful closed-mindedness produced by the selective hyperskepticism of the New Atheist mindset

Þarna er þetta allt saman útlistað mjög ýtarlega og einnig fjallað um vitni sem voru ekki kristin en vottuðu að Jesú væri söguleg persóna.

Mér fannst nokkrar athugasemdir við greinina hitta naglan á höfuðið. Einn benti heimildir um Alexander Mikla voru skrifaðar löngu eftir hans tíma, engar samtímaheimildir og enginn sem þekkti hann. Samt efast enginn um tilvist Alexanders Mikla.  Annar sagði þetta:

As I told that loser it is a pretty amazing accomplishment to have a fictional character change the world and have time be named in honor of his non-existence 

Mjög vel orðað enda afstaða flestra guðleysingja sem eru ekki fáránlega fáfróðir þá var Jesú til og var krossfestur af rómverskum yfirvöldum en þeir bara trúa ekki að Hann hafi risið upp frá dauðum. Það er alveg afstaða sem ég virði en hin að Jesú hafi ekki verið til er ekki boðleg.


DNA besta leiðin til að geyma upplýsingar sem við vitum um

340px-DNA_Structure+Key+Labelled_pn_NoBBEnn halda vísindamenn að vinna að því að nota DNA til að geyma upplýsingar og hve öflug tækni þetta er, er alltaf að koma betur og betur í ljós.  Hérna er grein sem fjallaði um þetta, sjá: Half a Million DVDs in Your DNA

Ég hafði áður fjallað um líkar tilraunir, sjá: Vísindamenn geyma 70 miljarða bóka á DNA   En núna vilja þessir vísindamenn meina að þeir hafa geymt þrisvar sinnum meira en síðasta tilraun. Að þeim hafi tekist að geyma 2,2 petabytes á hverju grammi af DNA sem er margfalt meira en sú tækni sem við notum nú í okkar tölvum.

Paleontologists routinely resurrect and sequence DNA from woolly mammoths and other long extinct species. Future paleontologists, or librarians, may do much the same to pull up Shakespeare's sonnets, listen to Martin Luther King Jr.'s "I have a dream" speech, or view photos. Researchers in the United Kingdom report today that they've encoded these works and others in DNA and later sequenced the genetic material to reconstruct the written, audio, and visual information...

Last year, researchers led by bioengineers Sriram Kosuri and George Church of Harvard Medical School reported that they stored a copy of one of Church's books in DNA, among other things, at a density of about 700 terabits per gram, more than six orders of magnitude more dense than conventional data storage on a computer hard disk. Now, researchers led by molecular biologists Nick Goldman and Ewan Birney of the European Bioinformatics Institute (EBI) in Hinxton, UK, report online today in Nature that they've improved the DNA encoding scheme to raise that storage density to a staggering 2.2 petabytes per gram, three times the previous effort. (Emphasis added.)

En þetta er ekki það eina sem gerir DNA svona magnað heldur endist það margfalt lengur en þeir geymslumiðlar sem við höfum búið til.

We've created a code that's error tolerant using a molecular form we know will last in the right conditions for 10,000 years, or possibly longer," says Nick Goldman. "As long as someone knows what the code is, you will be able to read it back if you have a machine that can read DNA.

Tíuþúsund ár er alveg svakalega langur tími en hérna er eitthvað mjög athyglisvert að við höfum fundið DNA í risaeðlubeinum en þótt að DNA endist lengi þá endist það ekki í miljón ár, hvað þá 65 miljón ár en þróunarsinnar trúa að risaeðlur dóu út fyrir 65 miljón árum síðan. Sú trú er orðin einstaklega kjánaleg í ljósi staðreyndanna, meira hérna: DNA finnst í fornum risaeðlu beinum

Út frá þessum staðreyndum, hvort er líklegra að DNA með öllum þeim tækjum sem þarf til að lesa og skrifa það og þeim upplýsingum sem þarf til að búa til lifandi veru hafi orðið til fyrir tilviljun eða að það var hannað af vitrænni veru?


Þetta segja þeir(sökudólgarnir) allir

Þegar fólk er saklaust og blöskrar hið vonda sem aðrir gera þá grípur það í heykvíslina og öskrar "hengjum þá". Þegar það aftur á móti veit upp á sig sökina þá er tónninn töluvert mildari og finnst algjör óþarfi að refsa einhverjum.

Ég vona að minnsta kosti þá verður refsingin að fólk kýs ekki aftur þess tvo flokka sem hafa í rauninni verið þeir einu tveir flokkar sem ég hef verið til í að kjósa undanfarin ár. Verst að þá veit ég ekkert hvað ég á að kjósa, ég er að leita að mannúðlegum jafnaðar flokki sem vill afnema kvótakerfið, rafmagnsvæða bílaflota Íslands og kenna Biblíulega sköpun í skólum landsins. Vonandi býður einhver þannig flokkur sig fram :)

Fyrir þá sem efast um að það sé gott að kenna sköpun í skólum: I seem to know more than my teachers


mbl.is Eigum ekki að leita sökudólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hegðun mannsins

Í umræðum mínum við alls konar fólk þá hefur oft komið upp sú spurning eða ásökun að Guð sé hefnigjarn og hræðilegur eða eins og Dawkins orðaði það:

Richard Dawkins - The God delusion
The God of the Old Testament is arguably the most unpleasant character in all fiction: jealous and proud of it; a petty, unjust, unforgiving control-freak; a vindictive, bloodthirsty ethnic cleanser; a misogynistic, homophobic, racist, infanticidal, genocidal, filicidal, pestilential, megalomaniacal, sadomasochistic, capriciously malevolent bully

Að mörgu leiti skil ég af hverju Dawkins upplifir Guð í Gamla Testamentinu svona en ég hef alltaf séð þetta öðru vísi. Ég sé þetta frekar á þá leið, af hverju leifir Guð mannkyninu að halda áfram í sinni illsku?  Þegar Guð grípur inn í sögu þjóða í Gamla Testamentinu þá er illska viðkomandi samfélags sögð ástæða fyrir því að Guð greip inn í og hver hefði gagnrýnt þann sem hefði gripið þarna inn í og stöðvað þessa menn frá því að nauðga þessari ungu stelpu?

Hérna er myndband sem mér finnst sýna vel hversu þolinmóður Guð er gagnvart mannkyninu og umbera okkar ógeðslegu hegðun en líka að það getur ekki verið langt í að Guð grípi endanlega inn í og stöðvar þessa vitleysu.


mbl.is Nauðgað og misþyrmt af hópi karla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Risaeðlubein mælast 22.000 to 39.000 ára gömul

Vísindamenn sem aðhyllast sköpun aldursgreindu risaeðlubein með C-14 aðferðinni og niðurstöðurnar voru aldur frá 22.000 til 39.000. Hérna er ýtarlega fjallað um þessar rannsóknir, sjá: Radiocarbon in dino bones - International conference result censored

Hérna er fyrirlesturinn:

Ef að þessi bein væru raunverulega margra miljón ára gömul þá ætti ekki að mælast neitt magn af C-14 í þeim. Þessir vísindamenn hvetja aðra vísindamenn til að endurtaka þessar tilraunir og vonandi sjáum við fleiri gera samskonar rannsóknir. Þar sem að þróunarsinnar eru sérfræðingar í afneitun þá auðvitað skiptir þetta litlu máli í umræðunni um sköpun þróun en fyrir sköpunarsinna eða þá sem eru að velta þessum hlutum fyrir sér þá ætti þetta að gefa þeim enn aðra ástæðu til að hafna sögu þróunarsinna og þróunarkenningunni.


Að borða kjöt eykur líkurnar á krabbameini í blöðruhálskirtli um 40%

red-meat-prostate-cancer-380x252.jpgMig langar að benda á þessa grein sem heldur þessu fram, sjá: Eating Meat Boosts Risk of Prostate Cancer by 40 Percent

Það er alveg merkilegt hvernig ef við förum eftir uppskrift Biblíunnar á því hvernig við ættum að lifa þá lifum við betur og lengur en Biblían segir að fæðan sem við vorum hönnuð til að borða eru ávextir og grænmeti. Kjöt var leyft eftir flóðið en það er ekki hluti af því sem er best fyrir okkur. Spámaður Aðvent kirkjunnar, Ellen White sagði fyrir hundrað árum síðan að dýraafurðir yrðu verri og verri með tímanum og við sjáum að þau orð hafa ræst. Hún sagði einnig að kristnir ættu að stefna að því að verða grænmetisætur og það væri óskandi ef að fleiri tækju þau orð til sín.

mbl.is Þrefalt meiri líkur á krabbameini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband