Bæ bæ Ardi

Fyrir nokkru var mikið fjaðrafok yfir Ardi og ég fjallaðihow-humanlike-was-ardi_2.jpg stuttlega um það hérna: Eru þetta alvöru vísindi?

Þróunarsinnar flykktust til að verja Ardi, þar á meðal erfðafræðingurinn Arnar Pálsson  og Brynjólfur Þorvarðsson og bloggarinn Kristinn Theódórsson ( sem er nú í miklu uppáhaldi hjá mér :)

Jæja, smá tími hefur liðið og mengið af fjöðrunum búnar að setjast svo góður tími til að athuga hvað stendur eftir. Núna er hörð gagnrýni á Ardi frá öðrum þróunarsinnum á Ardi, t.d. eina grein í Scientific American, sjá:  How Humanlike Was "Ardi"?

Þar kemur meðal annars fram þetta:

it really doesn't show any adaptations for bipedalism at all." In fact, he says, many components of Ar. ramidus don't make Ardi look that much more adept at walking upright than chimpanzees

Því miður er þetta allt of algengt að þróunarsinnar koma með grófar fullyrðingar miðað við gögnin og fá mikla athygli og síðan reynist lítið sem ekkert vera að marka allt saman.

Meira um þessi mál hérna:
http://www.icr.org/article/5114/
http://www.icr.org/article/new-fossil-hype-fits-old-pattern/

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Takk takk, Mofi

Kristinn Theódórsson, 8.12.2009 kl. 15:22

2 Smámynd: Mofi

   ég er ágætlega duglegur að lesa hjá þér en vanalega er svo mikil örtröð hjá þér, svo mikið af athugasemdum að ég legg oft ekki í að leggja orð í belg.

Mofi, 8.12.2009 kl. 15:39

3 identicon

Og hvað á þetta að segja okkur?

Annað en það að útskýra aðeins hvernig vísindin virka

Cicero (IP-tala skráð) 8.12.2009 kl. 17:02

4 Smámynd: Mofi

Cicero, að hætta að stökkva á svona fullyrðingar þegar þær koma og sýna smá vísindalega hugsun og efa. Ekki vera svona svakalega trúgjarnir!

Mofi, 9.12.2009 kl. 09:37

5 Smámynd: Egill Óskarsson

Hvenær breyttist sköpunarsagan síðast vegna nýrra upplýsinga?

Egill Óskarsson, 10.12.2009 kl. 20:49

6 identicon

Mofi, það eina sem þessi frétt sýnir okkur er nákvæmlega hversu mikið bull það er þegar þú heldur því fram aftur og aftur hér á þessu bloggi að vísindin séu ekki tilbúin að skoða nýjar upplýsingar og hugsanlega kollvarpa eldri hugmyndum í kjölfarið...  heldur eru þau þvert á móti fullkomlega tilbúin til þess, séu gögnin nógu sannfærandi

Þetta er styrkleiki þeirra, ekki veikleiki

Og ég spyr bara eins og Egill... hafa þú og þínir félagar í sköpunarsöguklúbbnum einhvern tíma sýnt sama lit?

Cicero (IP-tala skráð) 10.12.2009 kl. 22:41

7 Smámynd: Jón Ragnarsson

Já, svona virka vísindin. Engin bókstafstrú þar! Málin eru skoðuð, rök með og á móti metin. Annað en sumt.

Jón Ragnarsson, 11.12.2009 kl. 10:45

8 Smámynd: Mofi

Egill, gamall vitnisburður um hvað gerðist í fortíðinni á dáldið erfitt að breytast. Aftur á móti hafa módelin fyrir t.d. Nóaflóðið breyst töluvert með aukinni þekkingu.

Cicero,  vísindin er ekki hið sama og þróunarkenningin.

Jón Ragnarsson,  annað en þróunarkenningin, I hear you brother :)

Mofi, 11.12.2009 kl. 11:00

9 identicon

Cicero,  vísindin er ekki hið sama og þróunarkenningin.

Það er fátt betra svona í morgunsárið en gildishlaðin fullyrðing án raka, það er svona eins og fyrsti kaffibollinn

En þetta er rétt hjá þér, þróunarkenningin er ekki vísindin eins og þau leggja sig, heldur hluti þeirra fræða sem styðjast við hina vísindalegu aðferðafræði

Cicero (IP-tala skráð) 11.12.2009 kl. 11:39

10 identicon

Bara svona af forvitni Halldór... voru það ekki þróunarsinnar sem komu með þessa gagnrýni á eldri þekkingu annarra þróúnarsinna?

Stangast það ekki svolítið á við fullyrðingar þinar um blinda trú þróunarfræðinga á eitthvað yfirvald sem ekki má mótmæla eða tala gegn?

Er þessi frétt því ekki hrein og klár sönnun fyrir því að það sem þú ert oft að halda hér fram sé einfaldlega rangt?

Eða ertu svo blindur að þú sérð það ekki

Cicero (IP-tala skráð) 11.12.2009 kl. 11:46

11 Smámynd: Mofi

Cicero, sköpunarsinnar koma vanalega mjög snemma með svona gagnrýni enda benti ég á þannig gagnrýni þegar þetta kom fyrst fram. Núna eru bara aðrir þróunarsinnar að bætist í hópinn.  Þeir sem aðhyllast þróun þeir vita oft um vandræðin í sínu fagi en gera oft ráð fyrir að virkilega góðu rökin og gögnin eru í fræðunum sem þeir þekkja ekki.  Ég síðan man ekki eftir að hafa haldið fram að þróunarsinnar sem eru vísindamenn hafi þessa blindu trú heldur frekar að ég gagnrýni mína viðmælendur fyrir að taka mörgum svona fullyrðingum frekar blint eins og dæmið með Ardi sýndi fram á.

Mofi, 11.12.2009 kl. 12:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 802788

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband