Hver er besti kristni bloggarinn 2008?

brehm-single-4.jpgGuðsteinn Haukur var með skemmtilega könnun hérna um daginn en þar sem hann sjálfur gaf ekki kost á sér enda hélt hann könnunina þá vil ég prófa að gera svona könnun líka.

Hérna er skoðanakönnunin: Hver er besti Kristni bloggarinn 2008?

Þeir sem voru tilnefndir hjá Hauki voru eftirtaldir:

    * Rósa Aðalsteinsdóttir
    * Theodór Norðkvist
    * Bryndís Böðvarsdóttir
    * Andrés Böðvarsson
    * Ingvar Valgeirsson
    * Jón Valur Jensson
    * Haraldur Davíðsson
    * Tryggvi Hjaltason
    * Svavar Alfreð Jónsson
    * Guðsteinn Haukur
    * Snorri í Betel
    * Kristinn Ásgrímsson

Ég er ekki "kjörgengur" þar sem ég held könnunina.  Ætli ég byrji ekki bara á því að tilnefna Hauk :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég tilnefni mig á þennan lista. Ég er þrælkristinn.

Már Högnason (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 13:43

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Það var nú bara ágúst þegar þessi skoðunarkönnun var gerð og margt getur gerst á þeim fjórum mánuðum eða einum þriðja sem eftir er á þessu ári.

Shalom/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.9.2008 kl. 14:56

3 Smámynd: Mofi

Það er góður punktur Rósa... ég vildi aðeins að það væri könnun þar sem Haukur félagi fengi að vera með; þó það var nú hans ákvörðun að vera ekki með í hans eigin könnun :)

Mofi, 2.9.2008 kl. 15:02

4 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Jæja, við getum þá borið niðurstöðurnar saman eftir einhvern tíma. Og séð þá raun niðurstöðu þar sem engan vantar. En þótt að þessi könnun sé gerð í ágúst, þá var ég með svipaða könnun í ágúst í fyrra, þannig það er liðið ár síðan þetta var gert seinast.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 2.9.2008 kl. 15:08

5 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll aftur.

Guðsteinn er flottur bloggari og Hippókrates var alltaf að nefna hann á bloggi þar sem við vorum að klóra  nú undanfarna daga. Hann einn var og er kurteis og góður drengur og ég tek undir það að Guðsteinn er ljúfmenni.

Vertu Guði falinn

Shalom/Rósa 

Rósa Aðalsteinsdóttir, 2.9.2008 kl. 15:09

6 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Ég heiti Kristinn og fjalla mikið um kristni, ég hlýt að koma til greina!

Kristinn Theódórsson, 2.9.2008 kl. 15:17

7 Smámynd: Mofi

Kristinn, kannski einhver tilnefni þig Kristinn :)    Ef þú vilt vera kristinn bloggari þá væru það gleðifréttir :)

Mofi, 2.9.2008 kl. 15:35

8 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Takk fyrir falleg orð Rósa, en ef Kristinn stendur undir nafni og tekur smá u-beygju, þá væri hann tilvalinn á þennan lista! Ekki satt Moffi ?

Guðsteinn Haukur Barkarson, 2.9.2008 kl. 16:00

9 Smámynd: Mofi

Haukur, jú, hann yrði til fyrirmyndar!       Hann myndi taka alla þessa guðleysingja í nefið  

Mofi, 2.9.2008 kl. 16:22

10 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Til að byrja með skrifar maður kristinn (lo.) með litlum staf.

Annars finnst mér að þú mættir hafa vísanir í blogg þessara einstaklinga á listanum.

Og í gvuðanna bænum, ekki velja Svavar Alfreð, þó svo að ég sé ósammála t.d. þér í öllu, þá er að minnsta kosti eitthvað innihald í skrifunum þínum. Það er varla að finna eina einustu skýra röksemdafærslu í skrifum Svavars.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 2.9.2008 kl. 16:50

11 Smámynd: Mofi

Takk fyrir gott innlegg Hjalti.

Mofi, 2.9.2008 kl. 16:59

12 Smámynd: Kristinn Theódórsson

lol takk fyrir skondin orð um mig Mofi og Guðsteinn

Kristinn Theódórsson, 2.9.2008 kl. 17:58

13 identicon

Rósa er að standa sig gríðarlega vel . Hún er svona mótvægi við doctore .

conwoy (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 21:02

14 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Sæl verið þið. Ég held ég nefni Jón Val til sögunnar. Þó er Mofi honum næstur í röðinni. Að samanlögðu eru þeir nokkuð fullkomnir sem hinn kristni maður með smá "dashi" af skrifum frá mér í bland, svona smá Lútherisma . Kannski hallar þannig á Jón Val þar sem þá eru komnir 2 mótmælendatrúar gegnt honum einum , en hann er með breitt bak og þolir það vel.

Adeste Fideles

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 2.9.2008 kl. 21:44

15 identicon

Hvernig metur maður hver er bestur í kristnu bloggi??  Hmm við skulum sjá

  • Er það sá er fyndnastur ?
  • Er það sá er þykir hafa ríkasta "innihaldið" ?
  • Er það sá er þykir hafa bestu túlkanirnar á biflíunni ?

Þar sem ekkert af ofangreindu kemur til greina fyrir kristinn bloggara, nema að vera skildi fyrsta atriðið en ekki viss um að kristnum finnist hugarburður sinn fyndin,  þá er þetta kannski spurning um:

  • Hver steypir mest ?   Mofi
  • Hver er sýktastur ?   Jón Valur
  • Hver er innihaldslausastur ? Svavar Alferð
  • Hver er mesti rugludallurinn ?  Snorri í Betel

Nú er úr vöndu að ráða..   Þar sem þetta er síðan hans Mofa þá má ekki velja hann..  Snorri í Betel ekki á listanum..

Af tvennu illu myndi ég því velja Svavar Alfreð af þeirri ástæðu að hann er líklega meinlausasti froðusnakkarinn í þessum hópi.. 

TInni (IP-tala skráð) 2.9.2008 kl. 22:06

16 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Ég persónulega myndi líka vilja sjá Snorra í Betel þarna. Þó að ég muni ekki eftir því að hafa verið sammála honum, þá er amk eitthvað innihald í því sem hann skrifar, hann er skiljanlegur og svo er það oft mjög fyndið.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 2.9.2008 kl. 22:52

17 Smámynd: Mofi

Góð ábending Hjalti, bæti Snorra við.

Mofi, 3.9.2008 kl. 13:31

18 Smámynd: Sigurður Rósant

Gat svo sem verið að Mofi sæi ekki þann besta til að stinga upp á. Svanur Gísli Þorkelsson er sá al-áhugaverðasti og frumlegasti bloggari sem ég hef séð hér blogga um trú sína sem kristinn maður.

Sigurður Rósant, 3.9.2008 kl. 13:52

19 Smámynd: Mofi

Rósant, listinn kom frá Hauki og ég hafði alveg opið fyrir tillögur og ég notaði mitt "atkvæði" til að koma Hauki á framfæri.  Svanur er síðan Baháí en ekki kristinn og gæti alveg verið besti Baháí bloggarinn þó að vinur minn hann Róbert Badí er ekki síðri.

Mofi, 3.9.2008 kl. 14:08

20 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Mofi.

Var að senda þér bréf. Sem betur fer eigum við marga kristna bloggara og þar er m.a. Kristinn Ásgrímsson pastor í Keflavík.

Væri gott að hvetja bloggarana okkar til dáða með kynnngu á síðu þar sem margir heimsækja. Gott væri líka að frétta af kristnum bloggurnum en ég veit að við förum á mis við suma því við vitum ekki að þau séu til. Það erum ekki allir sem eru boðflennur eins og ég á síðunni hans Guðsteins í nóv. sl.

Shalom/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 3.9.2008 kl. 14:19

21 Smámynd: Mofi

Takk fyrir það Rósa og alveg sammála þér.  Set Kristinn Ásgrímsson á listann!

Mofi, 3.9.2008 kl. 15:25

22 Smámynd: Sigurður Rósant

Mofi - "Svanur er síðan Baháí en ekki kristinn..."

Alveg er ég gáttaður á hvernig þú vinsar sauðina frá höfrunum. Svanur segist sjálfur vera kristinn, Gyðingur, múslimur, búddisti, hindúi, zóróastríani, bábisti og bahæi.

Bahæjar nefna alla þessa sem spámenn guðs síns:

  • Abraham
  • Krishna
  • Móses
  • Zaraþústra
  • Búdda
  • Jesús
  • Múhammeð;
  • Báb
  • Bahá'u'lláh
Hvernig getur þú útilokað svo "stóra" trú?

Sigurður Rósant, 3.9.2008 kl. 16:27

23 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Sigurður, var síðasta athugasemdin grín? Auðvitað er Svanur ekki kristinn.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 3.9.2008 kl. 16:35

24 Smámynd: Mofi

Rósant
Alveg er ég gáttaður á hvernig þú vinsar sauðina frá höfrunum. Svanur segist sjálfur vera kristinn, Gyðingur, múslimur, búddisti, hindúi, zóróastríani, bábisti og bahæi.
Tek undir með Hjalta, ertu að meina Þetta eða ertu að grínast?

Mofi, 3.9.2008 kl. 16:39

25 Smámynd: Sigurður Rósant

Ég geri mér grein fyrir því að þetta virkar á þá sem ekki þekkja til Bahætrúarkenninga sem grín, en það er ekki langt síðan ég sá það skráð hjá Svani að hann væri kristinn.

Sá sem segist vera kristinn og vitnar líka í trúarkenningar síns safnaðar því til stuðnings er þar af leiðandi kristinn. Hver getur véfengt það nema einhver "lítiltrúaður"?

Sigurður Rósant, 3.9.2008 kl. 16:59

26 Smámynd: Sigurður Rósant

Hér er þessi staðhæfing Svans: - "Láttu því kyrrt liggja um þessi mál Tinni minn, en ég skal gjarnan ræða við þig um hvort Jesú eða aðrir boðberar Guðs hafi verið í raun og veru það sem þeir sögðust vera, ef þér er annt um að afkristna mig.

Svanur Gísli Þorkelsson, 8.8.2008 kl. 15:41" Sjá hér.

Sigurður Rósant, 3.9.2008 kl. 17:15

27 identicon

Þegar ég hugsa um trúbloggsgæði þá nota ég m.a.  þá viðmiðun hvort menn geti tekið athugasemdum, séu umræðuhæfir og skrifi ekki gagngert til að stuða liðið

Þá finnst mér gæðin koma vel fram í kommentakerfum en sumir sanka að sér leiðindum í massavís á meðan t.d. Mofi getur haldið uppi sínum stórfurðulegu skoðunum og búið um þær vettvang sem gaman er að sækja heim.  Það er kúnst að gera svoleiðis og eins finnur maður einlægan trúmann í gegnum skrifin hans Guðsteins sem oft flotta jákvæða punkta sem öllum nýtast.

Góðir trúbloggarar eru ekki á hverju strái en Mofi og Guðsteinn eru stétt sinni til sóma þó ég viðurkenni að skoða ekki allar trúbloggsíður

Gylfi Gylfason (IP-tala skráð) 3.9.2008 kl. 19:59

28 Smámynd: Mofi

Rósant
Sá sem segist vera kristinn og vitnar líka í trúarkenningar síns safnaðar því til stuðnings er þar af leiðandi kristinn. Hver getur véfengt það nema einhver "lítiltrúaður"?

Fer það þá ekki eftir því hver skilgreiningin á því að vera kristinn sé?  Ég fyrir mitt leiti segi að það er algjört lágmark að viðkomandi trúi að Jesú sé Guð; allt annað getur ekki verið kristni.  Góður punktur samt hjá þér; grunaði ekki að Svanur teldi sig kristinn.

Sáli
Mofi getur haldið uppi sínum stórfurðulegu skoðunum

Í grunninn er mín skoðun að það þarf vitsmuni til að búa til upplýsingakerfi og flóknar vélar og Guð er til; er þetta virkilega svona furðulegt? 

Ég gæti ekki trúað öðru þó að líf mitt lægi við.

Takk annars fyrir vingjarnlega athugasemd :)

Mofi, 4.9.2008 kl. 09:27

29 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Sáli, ég þakka góð orð. En ég er að klukka þig Moffi minn, sjá nýjustu grein mína.  ;)

Guðsteinn Haukur Barkarson, 4.9.2008 kl. 16:02

30 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Rósant - þetta er hárrétt hjá Hjalta og Mofa, Bæhæistar skilgreinar sig ekki sem kristna, fremur hallast þeir að Íslam. Og getur henn ekki talist kristinn fyrir vikið. Til að mynda halda þeir uppá sömu hátíðir og Íslamistar, til að mynda Rammadam.

Guðsteinn Haukur Barkarson, 4.9.2008 kl. 16:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 802878

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband