Fjöldskyldan - Umdeild vers Páls um konur

Eftirfrandi grein er eftir Eric Guðmundsson formann Aðvent kirkjunnar á Íslandi 

 

Fjölskyldan070410_153409_Family before the Cross
Fjölskyldan er grunnstoð samfélagsins. Hjónaskilnaður og hjúskaparslit eru tíð í nútímasamfélaginu. Á nemendavefsíðu KHÍ kemur fram að á Íslandi lyktar líklega þremur eða fjórum að hverjum tíu hjónaböndum með skilnaði. Árið 2003 voru 531 lögskilnaðir á Íslandi. Þó skal taka fram að tíðni lögskilnaða hefur lítið sem ekkert breyst undanfarin þrjátíu ár og samanborið við nágrannalönd okkar eru töluvert færri lögskilnaðir hér á landi. Þetta mætti skýra með því að nú á dögum er orðið algengara að fólk gifti sig seinna eða sé jafnvel í sambúð í mörg ár áður en það giftir sig ef það er yfirleitt að gifta sig. Tíðni skilnaða er samt mikið áhyggjuefni ekki síst vegna þeirra afleiðinga sem rofin fjölskyldutengsl hafa á líðan bara og uppeldi. Óstöðugleikinn sem skilnaðarbörnin verða fyrir er einmitt eitt helsta kennileyti nútíma uppvaxtarskilyrða.

Meginreglur farsæls heimilishalds er að finna í einhverri allra mikilvægustu umfjöllun Nýja Testamentisins um heimilið en jafnframt ein af þeirri misskildustu. Í Efesusbréfinu 5. kafla "Já" segir einhver, "það er þar sem Páll skipar karlinn höfuð konunnar og kallar á undirgefni konunnar." Við fyrstu sýn kann þetta að vera rétt, en þetta er ekki kjarni boðskaparins: "Sýnis Kristi lotningu og hvert öðru auðsveipni: konunnar eiginmönnum sínum eins og Drottni. Því að maðurinn er höfuð konunnar eins og Kristur er höfuð og frelsari kirkjunnar, líkama síns. En eins og kirkjan lýtur Kristi, þannig, þannig lúti og konurnar eiginmönnum sínum í öllu. Karlmenn, elskið konur ykkar eins og Kristur elskaði kirkjuna og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir hana til þess að helga hana með orðinu og hreinsa hana í vatnslauginni. Hann vildi leiða kirkjuna fram fyrir sig í dýrð án þess að hún hefði blett eða hrukku né neitt slíkt." Ef 5.21-26. Megin kjarni þessa texta er ekki yfirráð heldur ást og kærleikur. Hér koma fram eðlisþættir þess kærleika sem ríkja skal milli hjóna og innan heimilisins.

1. Fyrst, kærleikurinn innan heimilisins á að vera fórnandi kærleikur. Eiginmaðurinn á að elska konu sína á sama hátt og Kristur elskaði kirkjuna og gaf sjálfan sig fyrir kirkjuna. Þessi kærleikur má aldrei vera eigingjarn kærleikur. Kristur elskaði ekki söfnuðinn til þess að söfnuðurinn myndi aftur gera hluti fyrir hann, heldur þannig að honum gæfist kostur á að koma einhverju í kring fyrir söfnuðinn.

Að vísu segir Páll hérna: Karlinn er höfuð konunnar, en hann segir einnig að maðurinn skuli elska konuna eins og Kristur elskaði kirkjuna, þ.e. með viðhorfi sem aldrei birtist í formi valdbeitingar eða frelsisskerðingar heldur ástar sem er reiðubúin að veita hvaða fórn sem er henni til góðs. Jesús segir sjálfur "Sá er vill fremstur vera meðal yðar, sé þræll yðar, eins og Mannsonurinn er ekki kominn til þess að láta þjóna sér, heldur til að þjóna og gefa líf sitt til lausnargjalds fyrir marga."

2. Í öðru lagi. Kærleikurinn á að vera hreinsandi kærleikur. Kristur hreinsaði og helgaði söfnuðinn með því að þvo hann í vatni á þeim degi þegar sérhver meðlimur vottaði trúarjátningu sína. Páll á við skírnina. Með hreinsun skírnarinnar og játningu trúarinnar leitaðist Kristur við að gera söfnuð sinn hreinan og heilagan þar til ekki var að finna nokkurn blett né misfellu. Ef ástin dregur persónuna niðurávið er ekki um sanna ást að ræða. Ást sem gerir persónuna gróafari í stað þess að gera hana vandaðri, er óekta. Sérhver ást sem krefst undirferils eða veikir siðferðisvitundina eða sem gerir fólk verri persónur er ekki sannur kærleikur. Sönn ást hreinsar allt líf sérhvers manns.

3. Í þriðja lagi. Þetta er umhyggjusamur kærleikur. Innan heimilisins eigum við að elska og annast hvert annað sem eigin líkama. Sannur kærleikur annast ávallt þann sem hann elskar. Hann elskar ekki til að krefjast þjónustu eða í því að skyni að eigin þörfum sé mætt eða í ábataskyni heldur annast hann þann sem hann elskar.

4. Í fjórða lagi, sönn ást er órjúfanleg. Vegna ástarinnar yfirgefur maðurinn foreldra sína og býr með eiginkonu sinni og þau verða eitt hold. Hjónin eru sameinuð eins náið og limir líkamans eru ein heild. Og þau áforma ekki frekar að skilja við hvort annað en að sundra eigin líkama.

5. Öll þessi tengsl innan heimilisins eru "í Drottni" eins og Páll kemst að orði. Þau eru lifuð í návist Drottins og í andrúmslofti Drottins. Sérhver hreyfing er undir handleiðslu Drottins, sérhver ákvörðun er tekin "í Kristi". Páll segir "verið góðviljaðir  hver við annan, miskunnsamir, fúsir til að fyrirgefa hver öðrum, eins og Guð hefur í Kristi fyrirgefið yður. Ef 4.32. Á hinu kristna heimili er Jesús stöðugt nálægur þó óséður gestur.

Í þessum þáttum árangursríks heimilishalds sjáum við háleitt fordæmi Jesús Krists sjálfs, sem eins og segir í Filippíbréfinu "fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur." Það er, hann yfirgaf föður sinn og himneskt heimkinni til þess að verða eitt með söfnuði sínum um alla eilífð.

Bjóðum honum daglega inn á heimili okkar með lestri Orðsins og bænahaldi þannig að Andi hans móti viðhorf okkar, samræður og hegðun og að sannur guðdómlegur kærleikur ráði þar ríkjum.

Eric Guðmundsson - formaður Aðvent kirkjunnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Mofi
"Við fyrstu sýn kann þetta að vera rétt, en þetta er ekki kjarni boðskaparins."

Falleg grein og tilgangur góður, að mínu mati. 

Mér finnst þó alltaf pínulítið kómískt þegar menn fullyrða að þetta eða hitt sé "kjarni boðskaparins", því alltaf eru einhverjir aðrir tilbúnir að segja annað og grýta fólk og meiða í nafni sömu bókstafa.

Það er þó lítið við því að gera og gott að þið trúarboltarnir séuð að reyna að messa fallegri túlkun. 

mbk, 

Kristinn Theódórsson, 11.7.2008 kl. 10:55

2 Smámynd: Mofi

Kristinn, ég tel að lesa þessi vers Páls í samhengi, frá upphafi til enda þá er engin spurning hver kjarninn var í hans orðum.  Þeir sem vilja túlka eitthvað á vondan veg geta ávalt gert það; hvort sem um er að ræða þín orð, orð Darwins eða orð Biblíunnar.

Mofi, 11.7.2008 kl. 11:03

3 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Já já, menn telja alltaf sína túlkun og skilning augljósan og réttan þegar kemur að trúarbrögðum, s.b. risaeðlan sem þú sérð nánast hoppa af síðum bókarinnar þegar þú lest óljósa lýsingu á furðudýri sem menn hafa brotið heilan um hvað sé árhundruðum saman, en er einfalt fyrir þér.

Orð mín eða Darwins eru svo ekki heilög orð Guðs og því ekki eins alvarlegt að einhver túlki þau undarlega. Ekki koma nú með nasistana, gerðu það :)

mbk, 

Kristinn Theódórsson, 11.7.2008 kl. 11:29

4 Smámynd: Mofi

Auðvitað telja menn sína túlkun og skilning réttann, ef þeir myndu telja sinn skilning ranngann þá myndu þeir skipta um skoðun og halda áfram að telja sinn skilning réttann. Alveg eins og guðleysingjar gagnrýna Biblíuna, þá eru þeir alveg viss um að þeirra skilningur er réttur.

Ég skal hlífa þér við Darwin og Hitler í bili en ég þarf að gera ýtarlega grein sem fer vel yfir þau  tengsl. 

Mofi, 11.7.2008 kl. 11:37

5 Smámynd: Mofi

Haukur, aragrúi af fólki hefur farið frá guðleysi yfir í kristna trú og margir kristnir hafnað kristni vegna þess að einhver rök sannfærðu þá um að hún væri röng.

Mofi, 11.7.2008 kl. 15:18

6 Smámynd: Mofi

Ahh, get ekki lofað neinu :(     þú getur... ahhh.... well, látið það kjurrt liggja þó þú verðir í netsambandi....  bara hugmynd og ég geri mér grein fyrir því að hún kann að virka algjörlega úr öllu sambandi við raunveruleikann :)

Mofi, 11.7.2008 kl. 15:25

7 Smámynd: Linda

100% sammála þessu hjá þér , þakka þér fyrir að færa þetta hér inn. Það er alltaf verið að slíta þetta úr samhengi eins og svo margt annað, þetta ætti að koma fólki um skilning hvað Páll átti við.  Það væri óskandi að hjón mundu hafa þetta sér til viðmiðunnar og því til blessunar.

kv.

Linda, 12.7.2008 kl. 00:18

8 identicon

Nei en gaman... er Eric farin að blogga ;)

Þóra Jóns (IP-tala skráð) 12.7.2008 kl. 23:41

9 Smámynd: Theódór Norðkvist

Góð grein frá Eric.

Theódór Norðkvist, 13.7.2008 kl. 00:03

10 Smámynd: Mofi

Að mörgu leiti alveg sammála þér Andrés en það er samt dáldið hérna sem mér finnst skipta máli. Segjum t.d. að þú segðir mér hvar þú býrð, hvaða konu þú ert giftur og hvort þú eigir börn eða ekki en ég segi að ég trúi þér ekki.  Þegar maður neitar að trúa einhverjum þá er maður beint eða óbeint að kalla viðkomandi lygara.  Fyrir einhvern sem "þekkir" Guð, þá trúir hann Honum því að Guð er traustsins verður.

Linda, já, þetta er texti sem fólk vandræðast með nema það reynir að skilja hann í samhengi og í réttu ljósi. Takk fyrir heimsóknina.

Þóra, Eric er efni í ofur bloggara

Mofi, 13.7.2008 kl. 00:59

11 Smámynd: Mofi

Theódór, já, mér fannst hann glíma við þennan texta á mjög góðan hátt.

Mofi, 13.7.2008 kl. 01:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 802791

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband