Hræsni í góðverkum

madonna_chains_narrowweb__300x421,0Hvernig væri að nota eitthvað af þessum auðæfum sem hún er að drukkna í, til að bæta aðstæður HIV smitaðra barna?  Hennar líf er ein alsherjar munaðarveisla, þar sem engu skal til sparað til að henni líði sem best frá morgni til kvöld.

Jesaja 64
5 og urðum allir eins og óhreinn maður,
allar dygðir vorar eins og saurgað klæði, 

Ég held að Jesaja hitti þarna naglann á höfuðið. Jafnvel þegar við reynum að gera góðverk þá anga þau af sjálfselsku.  Stundum er það mjög augljóst, viðkomandi er bara að gera góðverk til að ganga í augun á öðrum en ekki öllum. Síðan vona ég að einhverjir gera það aðeins vegna náungakærleika en ekki til að upphefja sjálfan sig.

Ég get ekki neitað því að ég fæ dáldið samviskubit við að gagnrýna þetta hjá henni því ég ætti að setja meiri pening í hjálparstarf og hætta að eyða pening í óþarfa. Ansi margt af því sem maður gerir virðist vera sjálfs síns vegna en ekki óeigingjörn verk aðeins til að gera öðrum gott og fá ekkert í staðinn.

Að elska náungann eins og sjálfan sig er hægara sagt en gert!  

Ég vona samt auðvitað að heimildarmynd hennar um HIV smituð börn muni hjálpa þeim börnum sem eru í þessum hræðilegu aðstæðum.  Ég vona einnig að hún gerir þetta af heilum hug en ekki til að upphefja sjálfan sig en leyfi mér að efast um það.

En hvernig væri að byrja daginn vel og gefa góða summu til hjálparstarfs ADRA sem er að starfa í Búrma og Kína?

Myanmar Cyclone Fund


mbl.is Hótelstarfsmenn hneykslaðir á kröfum Madonnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mama G

Get nú ekki annað sagt en að mér hafi fundist þetta nauða saklausar kröfur hjá henni

Skulum ekki gleyma því að þegar maður gefur til góðgerðarstarfsemi án þess að upphefja sjálfan sig, fellst það yfirleitt í því að ekki er tilkynnt um framlag viðkomandi aðila til starfsins. Það gæti nú alveg átt við Madonnu og við bara vissum ekkert af því

Mama G, 22.5.2008 kl. 13:09

2 identicon

Varðandi góðverk vs. sjálfselsku..

.. er hægt að 'fremja' meðvitað góðverk og gera það ekki af sjálfselsku?

Td. samkvæmt kristinni trú þá er 'gott' að framkvæma góðverk.  Þeir sem stunda svoleiðis eiga greiðari leið til himna.. hvar sem það er.  En eru þeir þá ekki ósjálfkrafa að reyna að bæta sína eigin stöðu með góðverkinu?

Arnar (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 13:10

3 identicon

Madonna hefur að öllum líkindum gefið meiri pening til góðgerðarmála heldur en íslenska ríkið. Minnir að hún hafi gefið út þá yfirlýsingu í þar síðustu viku að hún ætlar að fjármagna heilan skóla afríku.

Næst þegar þú gefur hundruð milljóna í skóla í afríku, þá máttu gagnrýna hana. Þangað til, þá hefurðu ekki unnið þér inn réttinn til þess. 

Það er mjög mikil mannvonska finnst mér að saka fólk alltaf um óheilindi. Eins og Bart sagði, You're damned if you do, and you're damned if you don't.

Ef stjörnur gefa ekki pening, þá eru þær nískir aumingjar.

Ef stjörnur gefa pening, þá eru þær bara að upphefja sig. 

sbs (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 13:12

4 Smámynd: Mofi

Mama G
Get nú ekki annað sagt en að mér hafi fundist þetta nauða saklausar kröfur hjá henni

Já, þú ættir að roðna :)

Fannst þetta aðeins svona dæmi um hvernig stjörnurnar dekra við sjálfan sig. Madonna þarna sýnir svo sem ekki helmingin af þeim öfgum sem maður hefur heyrt um.

Arnar
Td. samkvæmt kristinni trú þá er 'gott' að framkvæma góðverk.  Þeir sem stunda svoleiðis eiga greiðari leið til himna.. hvar sem það er.  En eru þeir þá ekki ósjálfkrafa að reyna að bæta sína eigin stöðu með góðverkinu?

Ekki rétt framsetning á þessu. Það er þannig að góð verk sýna hver trúin er en frelsun er að engu tengd verkum manna heldur aðeins því sem Kristur gerði á krossinum svo að enginn maður gæti unnið sér inn frelsun.

sbs
Næst þegar þú gefur hundruð milljóna í skóla í afríku, þá máttu gagnrýna hana. Þangað til, þá hefurðu ekki unnið þér inn réttinn til þess.

Ég gagnrýndi nú sjálfan mig í færslunni líka svo... þegar þú síðan átt gífurlega mikla peninga þá er ekki svo merkilegt að gefa brot af því til annara.  

sbs
Það er mjög mikil mannvonska finnst mér að saka fólk alltaf um óheilindi. Eins og Bart sagði, You're damned if you do, and you're damned if you don't.

Nei, ég tók alveg fram að það eru margir sem gera góðverk af heilum hug og ekki til að upphefja sjálfan sig. Aðeins að benda á að margir gera það til að upphefja sjálfan sig og ég er ekki saklaus af því.

Mofi, 22.5.2008 kl. 14:27

5 Smámynd: Mofi

Það er það sem mig grunar Henry og það er kannski meira þessi tilfinning sem ég fæ frá Hollywood stjörnum sem miklast af því að gefa brota brot af því sem þau eiga til að þykjast vera góð.  Kannski er Madonna afskaplega góð og gefur mikið til þeirra sem minna mega sín og þá er auðvitað leitt að hafa gagnrýnt hana en mér finnst hennar hegðun gefa allt annað til kynna.  Til dæmis hef ég aldrei gist á hótelherbergi sem kostaði 150.000 nóttin enda myndi ekki detta í hug að eyða í slíkan munað. 

En þetta er bara það sem maður sér alls staðar í kringum sig, óþarfa ferðalög sem eru bara til að gleðja sjálfan sig, óþarfa munaður heima hjá fólki, rándýr flatskjás sjónvörp og græjur. Allt til að gleðja sjálfan sig og þótt ég er sekur um hið sama þá ætla ég ekki að dirfast að segja að þessi hegðun er í lagi.

Mofi, 22.5.2008 kl. 15:41

6 identicon

Er ekki enþá eftir eitthvað þunglyndis naumhyggju klaustur handa ykkur tveimur?

Ekki furða að þú (mófi) þurfir trú til að hafa tilgang í lífinu ef þú leyfir þér ekki að gleðja sjáfnan þig með einstaka óþarfa munaði.

Arnar (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 17:04

7 identicon

Ég held að þú ættir að fara varlega í að gagnrýna hana Mofi. Hún má gera það sem hún vill við sína peninga og ég veit ekki betur en að hún sé nokkuð dugleg við að eyða bæði peningum og tíma í hjálparstarf. Fyrir utan það að það geti vel verið að hún gefi einnig peninga undir nafnleysi.

Varðandi þessar kröfur á hótelinu, þá finnst mér nú bara alveg sjálfsagt að fara fram á þetta þegar herbergið kosta 150.000 kall nóttin!

Helgi (IP-tala skráð) 22.5.2008 kl. 17:15

8 Smámynd: Mofi

Arnar, ég var einmitt að segja að ég geri allt of mikið af því og allt of lítið af því að gefa til hjálparstarfs...

Helgi, ég gagnrýndi sjálfan mig í leiðinni og þessu er frekar beint á ríka Hollywood liðið en akkurat Madonnu og akkurat þetta atriði sem fréttin fjallar um. 

Mofi, 22.5.2008 kl. 17:32

9 Smámynd: Mama G

Vá, ég hef greinilega horft waaaay too much á "The Fabulous Life Of..." seríuna. Ég tók varla eftir þessu 150k nóttin dæmi, fannst það nú bara naumhyggja út af fyrir sig

En hvað er þetta, þó frúin biðji um að loftræstingin sé up and running og nokkur blóm hér og þar. Bara few homie touches sem verið er að fara fram á. Og þetta með líkamsræktartækin er bara cool, hún er að nálgast fimmtugt og er í betra formi en tja, nánast hver sem er á hennar aldri og þó víðar væri leitað hjá yngra fólki.

Ég tek alla vegana hennar commitment í hlutina mikið til fyrirmyndar

Mama G, 22.5.2008 kl. 22:24

10 Smámynd: Mofi

Mama G, það er margt í hennar fari sem maður getur tekið til fyrirmyndar. Til dæmis vann sig upp í þá stöðu sem hún er í dag og hefur alltaf verið virk í að koma sér áfram á mörgum vígstöðvum. Flest hefur að vísu ekki verið til eftirbreytni þó að maður dáist að orkunni.

Mofi, 22.5.2008 kl. 23:29

11 Smámynd: Linda

Sæll Mófs, ég held að hún viti manna best hvað það er að missa fólk sakir Aids, sumir af hennar bestu félögum hafa látist af þessum hræðilega sjúkdómi, auk þess eru hún tengt hjálparstarfi á mismunandi sviðum, þar kynntist hún barninu sem hún ættleiddi.  Ég held að hún sem bara ekkert að ota sínum tota í þessum málum, og hluti af því að vera stórstirni er að haga sér þannig opinberlega, frægð þarf mikla vinnu og sú vinna fellst m.a. í því að fá umskrif góð og slæm.

Það er líka rétt sem Mamma G skrifar auk þess sem það er skýr fyrirmæli í ritningunni um þessi mála  :

Skulum ekki gleyma því að þegar maður gefur til góðgerðarstarfsemi án þess að upphefja sjálfan sig, fellst það yfirleitt í því að ekki er tilkynnt um framlag viðkomandi aðila til starfsins

Ég er engin Madonna fan, finnst hún með afburðum leiðinleg í viðtölum og jú oft í framkomu en ég efast engan vegin um að hún sinni góðgerða málum.

knús.

Linda, 23.5.2008 kl. 08:42

12 Smámynd: Mofi

Hræsnin sem ég er að benda á er að dekra við sjálfan þig og eyða brota broti af því sem þú átt til að hjálpa öðrum en samt vilja fá einhvern stimpil um að þú sért góður eða góð af því að þú gerir eitthvað smá af þannig. Versið í Jesaja átti að útskýra þetta en virðist ekki hafa tekist.  Þegar við reynum að gera eitthvað gott þá er það samt svo litað af okkar eigin sjálfselsku og það finnst mér skína best í Hollywood liðinu sem eyðir hlutfallslega mjög litlu til hjálparstarfs en heilum hellingi í rándýra bíla, rándýr hótelherbergi, risastór hús og alls konar munað en vill síðan fá klapp á bakið þegar það tekur smá af þessum auðæfum og hjálpa öðrum.

Kannski er það erfiðasta sem kristnir eiga með að skilja er hvað það er að vera í alvörunni góður; þetta kemur ágætlega fram þegar ungi ríki maðurinn kemur til Krists og segir "Góði meistari, hvað þarf ég að gera til að öðlast eilíft líf" og það fyrsta sem Kristur segir við hann, aðeins Guð er góður. Hið athyglisverða þarna er líka að viðkomandi hélt að hann væri góður en þegar hann þurfti að velja milli Guðs og peninganna sinni þá valdi hann peningana.

Mofi, 23.5.2008 kl. 09:36

13 Smámynd: Linda

Hæ Mófster, ég skil hvað þú átt við, en þetta eru svo rosalegir peningar sem þetta fólk á og græðir á hverjum deigi einfaldlega vegna þess að það er til, hugsa sér, svo við getum ekki dæmt um hvað fer mikið leynilega til hjálparstarfa, mig grunar og vona að það sé mun meira en það sem það fær hrós fyrir.  Bill Gates t.d. hann gefur millljarða ofan á milljarða en þénar samt meiri milljarða, hann gæti ekki gefið allt, nema með því að afsala sér öllum rétti til MS en hvaða tilgangi mundi það þjóna.  Það hlýtur að vera frábært að geta gefið svona mikið og ég vona að það sé gert af einlægni og með góðu hjarta, og ég ætla leyfa mér að vera bjartsýn að svo sé.

Knús

Linda, 23.5.2008 kl. 09:56

14 Smámynd: Mofi

Við sjáum hvernig það lifir í gífurlegum munaði og leyfir sér alls konar hluti sem er ekkert nema sóun og eyðsla.  Ég veit að ég leyfi mér allt of mikið og ég ætti að nota miklu meira í hjálparstarf og þess háttar svo þetta er líka gagnrýni á sjálfan mig.  Við erum mjög gjörn á það að líta á annað fólk sem gott fólk þegar Guð segir að enginn er góður nema Hann. Við eigum meira að segja erfitt með að trúa Guði þegar um ræðir fólk eins og Madonnu sem hefur gert alls konar einstaklega ókristilega hluti...

Mofi, 23.5.2008 kl. 10:06

15 Smámynd: Mofi

Frábært að heyra, jafnvel mínir kristnu bloggvinir voru ekki svo hrifnir af þessu hjá mér 

Mofi, 23.5.2008 kl. 16:03

16 Smámynd: Viðar Freyr Guðmundsson

Mér finnst það alls ekki skrýtið þótt tónlistamenn og annað fólk sem hefur tekjur af því að vera sem mest í fjölmiðlum, nýti tækifærið til að vera enn meira í fjölmiðlum..

Viðar Freyr Guðmundsson, 24.5.2008 kl. 00:24

17 identicon

Eins og svo margt annað á þessari síðu þá er þetta rugl Halldór

Sam­kvæmt egóismanum ber okkur einungis að taka til­lit til annarra, sjálfs ok­kar vegna (Rachels 1993). „Ég klóra þér og þú klórar mér“. Þannig er eðli­legt fyrir bóndann að sinna um­hver­fis­vernd, svo lengi sem hann græðir sjálfur á því, og eins ber honum að taka til­lit til vel­ferðar dý­ranna ef hann græðir á því, en að öðrum kosti ekki.        Það er margt í ok­kar nú­tíma­sam­fé­lagi – ekki síst í því hvernig við um­göngumst dýr – sem fær mann til að trúa á þessa kenningu. Þannig er fólk yfir­leitt mjög upp­te­kið af vel­ferð gælu­dýra, enda er vel­líðan þeirra for­senda þess að við njótum þess að vera með þeim. Á meðan eru önnur dýr – svokölluð mein­dýr – rétt­dræp hvar sem til þeirra næst, og í raun með hvaða að­ferðum sem gefast, þar sem þau valda okkur ama. Þetta þykir eðli­legt, jafnvel þótt í sumum til­fellum sé um sömu dýra­tegundir að ræða (t.d. mýs).       Vanda­má­lið við að viður­kenna egóisman sem heppi­lega sam­fé­lags­sið­fræði er að á honum eru ákveðnir gallar. Í fyrsta lagi felst í því mót­s­ögn að vera fylgis­maður egóismans. Sem slíkur telur maður að sínir eigin hags­munir séu æðri öllum öðrum. En á sama tíma vill maður að ná­granni manns sé líka egóisti. Það þýðir að maður ós­kar þess að hann snið­gangi ok­kar óskir... sem er jú nákvæm­lega það sem maður vill ekki!        En kenningin leiðir okkur einnig fljótt í hag­nýt vanda­mál. Hvernig eigum við að með­höndla gamalt fólk, fat­laða og veika, sem óneitan­lega getur verið byrði á okkur sjálfum og sam­fé­laginu sem heild? Egóisminn segir okkur að hags­munir þessara hópa komi okkur ekki við.

                Egóisminn hefur fleiri galla, sem gera það að verkum að fæstir hefðu í al­vöru áhuga á búa í sam­fé­lagi sem byggðist á kenningunni. Okkur finnst flestum að það sé eðli­legt að allir þegnar sam­fé­lagsins hafi lág­marks réttindi og að te­kið sé til­lit til þessara réttinda.

Sigmar (IP-tala skráð) 24.5.2008 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 802855

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband