Risastór dýr og fornir hákarlar sem áttu að vera útdauðir

10_461Nokkrar fréttir sem mér þótti merkilegar og langar að benda fólki á.  Sú fyrsta er frétt af risastóru dýri sem vísindamenn sáu nálægt Suðurskautslandinu og var á 150 metra dýpi. Hérna til hliðar má sjá mynd sem vísindamennirnir náðu af dýrinu en ég veit ekki til þess að þeir áttuðu sig almennilega á stærð dýrsins. 

 

Forn hákarl sem átti að vera útdauður finnst lifandi

Lifandi steingervingar eru dýr sem finnast í setlögunum og eiga að hafa dáið út fyrir svo og svo mörgum miljónum árum síðan en finnast svo lifandi. Vanalega lítið sem ekkert breyst miðað við það sem við sjáum í setlögunum.

frillshark-big-4 Hérna eru linkar á fréttirnar sem þetta er tekið frá:

Antarctica

 

Rare "Prehistoric" Shark Photographed

  

Photo in the News: Rare "Prehistoric" Goblin Shark Caught in Japan

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég verð að viðurkenna að ég átta mig ekki á efri mynd

Arnbjörn (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 11:08

2 Smámynd: Mofi

Ég skil þetta þannig að þeir tóku mynd niður frá skipinu og sáu þetta og þetta er bara lítill hluti af baki dýrsins.

Mofi, 8.4.2008 kl. 11:12

3 identicon

og hvað Mofi, er þetta sönnun fyrir geimgaldrakarli

DoctorE (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 11:17

4 Smámynd: Mofi

Allt í náttúrunni er sönnun fyrir skapara.  Ef þú ert að leita að sönnun fyrir geimgaldrakarli þá geturðu kíkt á þetta: http://www.tofrar.is/ny/jonvidis.html

Mofi, 8.4.2008 kl. 12:20

5 identicon

Það má með sanni segja að þau dýr sem þróast í miklu myrkri og dýpi enda ferlega ljót.

sbs (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 14:02

6 Smámynd: Mofi

Hvað segir fólk aftur... beauty is in the eye of the beholder.  En líklegast hefur hrörnun frá upphaflegu sköpuninni orsakað eitthvað af þessum ljótleika.

Mofi, 8.4.2008 kl. 14:13

7 identicon

Arnbjörn. Þetta er risastór krossfiskur. Bara með miklu fleiri arma en þessir ,,venjulegu" sem eru bara með fimm.

Jóhannes (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 20:43

8 identicon

Nákvæmlega ekkert skrítið við að það finnist undarlegir hlutir í sjónum. Ég held að við höfum ekki kannað nema u.þ.b 3% af honum. Það hlýtur þá ýmislegt að leynast í þessum 97% sem eru eftir. Með fyrirvara um að þessar tölur gætu verið örlítið vitlausar en allavega er klárt mál að langstærstur hluti sjávarins er ókannaður.

Stebbi (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 10:15

9 Smámynd: Mofi

Stebbi, sammála því. Það verður mjög forvitnilegt að fylgjast með því sem við munum uppgvöta næstu árin og áratugina.

Mofi, 9.4.2008 kl. 12:58

10 identicon

Ég skil ekki afhverju það eru til svona stór dýr, ættu stærð þeirra ekki að hafa hrörnað niður?

Lárus Viðar Lárusson (IP-tala skráð) 9.4.2008 kl. 18:08

11 Smámynd: Mofi

Kannski voru þau stærri Lárus :)    Virðist síðan gilda aðrar reglur um dýr í sjónum, líklegast hafa skilyrðin breyst mest fyrir dýr á landi til hins verra.

Mofi, 9.4.2008 kl. 19:14

12 identicon

"February 9, 2007—A rare goblin shark—a "living fossil" that closely resembles ancient shark species—was caught alive recently in Tokyo Bay ....... "Dead goblin sharks are caught from time to time, but it is rarely seen alive," a park official told the AFP news agency"

Þess er mjög líkur útdauðum hákarli, en hefur oft áður fundist, reyndar dauðir.

Sama saga með hin hákarlinn.

Þetta er bara vitleysa að halda því fram að allar lifandi tegundir séu þekktar, það á eftir að finna helling á lífi, sem taldar eru útdauðar.

En bentu mér á setlög, þar sem menn og risaeðlur, ásamt öðrum frumstæðum lífverum liggja saman hlið við hlið.  Þú sagðir að setlögin hefðu myndast í flóðinu hans nóa, þess vegna hljóta þessi setlög að vera til. 

Kallinn (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 23:03

13 Smámynd: Mofi

Kallinn, ég veit ekkert hvað við munum finna saman í setlögunum. Ég hef enga sérstaka ástæðu til að finna menn og risaeðlur í sömu setlögunum. Ég aftur á móti hef bent á það að það er engin ástæða til að leita að slíku fyrir málstað sköpunarsinna því að vísbendingarnar fyrir því að risaeðlur dóu út fyrir ekki svo löngu síðan og að fornir menn sáu risaeðlur eru mjög sterkar, sjá: Hvernig getur einhver trúað að þessi dýr dóu út fyrir 65 miljón árum síðan?

Mofi, 18.4.2008 kl. 09:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 802785

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband