Eru draugar til?

Mjög margir hafa upplifað svona hluti og erfitt er að flokka allt það fólk ímyndunarveikt eða lygara. Biblían er samt alveg skýr að draugar eru ekki til; þ.e.a.s. að dáið fólk ráfi um jörðina og hafi jafnvel samband við þá sem eru lifandi.

Predikarinn 9:5
Því að þeir sem lifa, vita að þeir eiga að deyja, en hinir dauðu vita ekki neitt og hljóta engin laun framar, því að minning þeirra gleymist.

Þegar við deyjum þá hættum við að vita eitthvað eða finna eitthvað. Við förum í sama ástand og við vorum í áður en við fæddumst, við hættum að vera til. Erum aðeins til í minningu Guðs og lifum í þeirri von að Hann muni vekja okkur á efsta degi. 

Sálmarnir 146:3-4
Put not your trust in princes, nor in a son of man in whom there is no help.   
His breath goeth forth, he returneth to his earth; in that very day his thoughts perish.

Þegar við deyjum þá munu hugsanir okkar líða undir lok. 

Sálmarnir 13:4
Lít til, svara mér, Drottinn, Guð minn, hýrga augu mín, að ég sofni ekki svefni dauðans

Enn frekar tekur Biblían fram að hinir dánu koma ekki í heimsóknir til þeirra sem búa nú í húsunum þeirra.

Jobsbók 7:9-10
Eins og skýið eyðist og hverfur, svo kemur og sá eigi aftur, er niður stígur til Heljar.    Hann hverfur aldrei aftur til húss síns, og heimili hans þekkir hann eigi framar.

Því miður hefur spiritismi haft allt of mikil áhrif á kristni og heiðnar hugmyndir um eilífa sál smogið sér inn í kristni frá grikkjum og rómverjum en þetta á sér enga stoð í Biblíunni. Svo til að vera alveg skýr, draugar eru ekki til!


mbl.is Í mál vegna draugagangs í glæsivillu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mofi

Þrymur, það yrði tekið af þeim sem taka Biblíuna alvarlega. En jú, þetta er trú sem er mjög... lífseig :)

Mofi, 1.4.2008 kl. 12:12

2 identicon

Mofi, þú ættir kannski að ganga í Vantrú, þeir 'berjast' geng svona hindurvitnum

Arnar (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 13:27

3 Smámynd: Mofi

Arnar
Mofi, þú ættir kannski að ganga í Vantrú, þeir 'berjast' geng svona hindurvitnum
Ég reyndi það!   Umsókn í Vantrú 

Mofi, 1.4.2008 kl. 13:45

4 identicon

Þannig að draugar eru ekki til því það stendur í Biblíunni?

Er þetta djók eða? 

jenný (IP-tala skráð) 1.4.2008 kl. 17:22

5 Smámynd: Mofi

Jenný, að minnsta kosti samkvæmt Biblíunni þá eru þeir ekki til.  Hvaða heimild hefur þú fyrir því að draugar eru til og afhverju er sú heimild trúverðug?

Mofi, 1.4.2008 kl. 18:53

6 Smámynd: Linda

Ég held að það séu draugar til, þó ekki eins og mætti ætla.  það er vissulega margir sem segjast hafa séð drauga, eða upplifað draugagang, mér dettur ekki í hug að draga slíkt í efa, en vísindin  skoða þetta mál líka, og það virðist vera samhugur í þeirri hugsun að "draugar" séu í raun eins og orka sem fólk skilur eftir sig og sum hús, sumir staðir virðast hafa mjög sterkt segulsvið sem ku geta geymt þess orku, og við réttar aðstæður sér fólk það sem við köllum "draug". Það mætti segja að við fengum í raun að sjá myndbrot af fortíðinni í rauntíma.

knús og kv.

Linda, 1.4.2008 kl. 20:37

7 Smámynd: Árni þór

Við eru vöruð við því að leita frétta af framliðnum í Biblíunni...

þegar illir andar fara út af manni reika þeir um vatnslausa staði

Árni þór, 1.4.2008 kl. 21:48

8 identicon

Hvað um himnadrauginn ykkar ... er hann til ???

Ellinn (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 07:43

9 identicon

Fyrirgefðu en ég bara verð að spyrja að einu. Fyrst þú aðhyllist biblíulega sköpun, trúirðu þá að heimurinn sé 2-3000 ára gamall og að risaeðlur voru ekki til?

 Því einsog ég sé það þá getur það ekki haft mikið uppá sig að reyna að ræða við einhvern sem biður um sönnun fyrir tilvist anda, þegar hann sjálfur trúir á (heilagan) anda en neitar að trúa því sem vísindi hafa sýnt frammá sem er auðvitað tilvist risaeðlna og að heimurinn sá marg miljón/milljarða ára gamall?

Ég ætla ekki að eyða tíma í að reyna að sannfæra þig í að ég hafi rétt fyrir mér og þú rangt, auðvitað finnst þér þú líka hafa rétt fyrir þér. Ég sé hreinlega ekki tilgang í eitthverjum rökræðum okkar á milli þar sem hvorugt okkar er í raun og veru tilbúið til að skipta um skoðun eða trú.

En einsog ég sé það þá er allt til svo lengi sem fólk trúir á það. 

Alma (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 09:46

10 Smámynd: Mofi

Linda, held að lausnin er að það eru til anda verur en það eru ekki fólk sem dó.

Ellinn, veit ekki um tilvist einhvers himnadraugs.

Alma, hljómar eins og þú hafir svipaðar spurning og ég svaraði hérna: http://mofi.blog.is/blog/mofi/entry/346622/ 

Hvernig geturðu sýnt fram á aldur einhvers? 

Mofi, 2.4.2008 kl. 09:51

11 Smámynd: Mofi

Trú, von og kærleikur
Við eru vöruð við því að leita frétta af framliðnum í Biblíunni...

þegar illir andar fara út af manni reika þeir um vatnslausa staði
Ástæðan er sú að við erum ekki að tala við dáið fólk heldur einhverjar aðrar andaverur. Biblían er alveg skýr, hinir dánu vita ekki neitt. 

Mofi, 2.4.2008 kl. 10:00

12 identicon

Alma, þú misskilur algerlega!

Samkvæmt kenningum mofa þá voru risaeðlur uppi á sama tima og menn, Nói tók víst nokkrar með sér í örkina og alles.

Arnar (IP-tala skráð) 2.4.2008 kl. 11:34

13 Smámynd: Sigurður Rósant

Mofi nú er ég undrandi á þinni yfirlýsingu.

Draugur, afturganga, framliðinn og "sá sem rís upp frá dauðum og birtist og hverfur sitt á hvað", þetta er allt sama fyrirbrigðið.

Þú ert með öðrum orðum að segja að Jesús sé ekki til lengur, er það ekki rétt skilið hjá mér?

Sigurður Rósant, 2.4.2008 kl. 18:08

14 Smámynd: Mofi

Rósant, draugar eru ekki fólk sem hefur risið upp frá dauðum. Þeir sem rísa upp frá dauðum er eftir það lifandi.

Mofi, 3.4.2008 kl. 10:02

15 identicon

Já en hvernig skýriru þá þegar Jesú kom aftur fyrir mannfólkinu? Fór hann aftur í líkama sinn, eða var hann draugur? Biblían segir hvorugt af þessu sé möguleiki... svolítið kjánalegt að segja eitt en trúa á annað...

Binni (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband