Trú Aðvent kirkjunnar

Löngu kominn tími til að ég fjalli aðeins um kenningar Aðvent kirkjunnar. Hérna fyrir neðan eru þau trúar atriði hennar og allar gáfulegar og vingjarnlegar athugasemdir vel þegnar.
 Heilög ritning
Heilög ritning, Gamla- og Nýja testamentið, er ritað orð Guðs borið fram af mönnum innblásnum af Guði sem töluðu og rituðu knúðir af Heilögum anda. Í þessu orði hefur Guð veitt mannkyninu þá þekkingu sem því er nauðsynleg til sáluhjálpar. Heilög ritning er hin óskeikula opinberun á vilja Guðs. Hún er mælikvarði á lyndiseinkunn mannsins, prófsteinn á mannlega reynslu, óvéfengjanleg opinberun á boðskap og áreiðanleg heimild um athafnir Guðs á sögulegum tímum.
2. Pétursbréf 1:20-21Jóhannesarguðspjall 17:17
Hebreabréfið 4:122. Tímóteusarbréf 3:16,17
Sálmarnir 119,105Orðskviðirnir 30:5,6
Jesaja 8:201. Þessaloníkubréf 2:13
Þrenningin
Guð er einn: Faðir, Sonur og Heilagur andi, eining þriggja eilífra persóna. Guð er ódauðlegur, almáttugur, alvitur, öllu ofar og alltaf nálægur. Hann er óendanlegur og ofar mannlegum skilningi, en þó þekktur vegna opinberunar sinnar. Hann er ævinlega verðugur tilbeiðslu, aðdáunar og þjónustu alls hins skapaða.
5. Mósebók 6:4Matteusarguðspjall 28:19
1. Pétursbréf 1:2Efesusbréfið 4:4-6
1. Tímóteusarbréf 1:17Opinberunarbókin 14:7
Faðirinn
Guð hinn eilífi faðir er skapari, uppspretta og alvaldur yfir öllu hinu skapaða. Hann er réttlátur og heilagur, miskunnsamur og fullur náðar, seinn til reiði og fullur staðfastrar elsku og tryggðar. Þeir eiginleikar sem birtast í syninum og Heilögum anda eru einnig opinberanir á föðurnum.
Opinberunarbókin 4:111. Mósebók 1:1
1. Tímóteusarbréf 1:17Jóhannesarguðspjall 3:16
1. Korintubréf 15:282. Mósebók 34:6
Jóhannesarguðspjall 14:91. Jóhannesarbréf 4:8
Sonurinn
Guð, hinn eilífi sonur varð hold í Jesú Kristi. Fyrir hann voru allir hlutir skapaðir, lyndiseinkunn Guðs opinberuð, endurlausnar mannkyns aflað og veröldin dæmd. Að eilífu sannur Guð en varð einnig sannur maður, Jesús Kristur. Hann var getinn af Heilögum anda og fæddur af Maríu mey. Hann lifði og þoldi freistingar eins og mannleg vera, en sannaði fullkomlega réttlæti og kærleik Guðs. Með kraftaverkum sínum sýndi hann mátt Guðs og sannaði að hann væri hinn fyrirheitni Messías. Hann þjáðist og dó sjálfviljugur á krossi fyrir syndir okkar og í okkar stað, var reistur upp frá dauðum og steig til himna til þess að starfa í hinum himneska helgidómi okkar vegna. Hann mun koma aftur í dýrð til að frelsa endanlega lýð sinn og endurreisa alla hluti.
Jóhannesarguðspjall 1:1-3, 14Filipíbréfið 2:5-11
Jóhannesarguðspjall 10:302. Korintubréf 5:17-19
1. Korintubréf 15:3,4Kólossubréfið 1:15-19
Hebreabréfið 8:1-2Jóhannesarguðspjall 14:9
Lúkasarguðspjall 1:35Jóhannesarguðspjall 5:22
Jóhannesarguðspjall 14:1-3Rómverjabréfið 6:23
Hebreabréfið 2:9-18
Heilagur Andi
Guð hinn eilífi Andi tók með föðurnum og syninum þátt í sköpuninni, holdtekjunni og endurlausninni. Hann blés riturum ritninganna anda í brjóst. Hann gaf lífi Krists mátt. Hann laðar til sín og sannfærir mannlegar verur. Þá sem veita honum viðtöku endurnýjar hann og umbreytir í ímynd Guðs. Hann er sendur af föðurnum og syninum til að vera ávallt með Guðs börnum. Hann færir söfnuðinum andleg verðmæti, gefur honum vald til þess að bera Kristi vitni og í samræmi við ritningarnar leiðir hann söfnuðinn í allan sannleika.
1. Mósebók 1:1-2Lúkasarguðspjall 1:35
Lúkasarguðspjall 4:18Jóhannesarguðspjall 16:7-13
1. Korintubréf 12:7-11Postulasagan 10:38
2. Pétursbréf 1:212. Korintubréf 3:18
Efesusbréfið 4:11,12Postulasagan 1:8
Jóhannesarguðspjall 14:16-18,26Jóhannesarguðspjall 15:26,27
 Sköpuninn
Guð er skapari allra hluta og hefur í ritningunum opinberað óvéfengjanlega frásögn af sköpunarstarfi sínu. Á sex dögum skapaði Drottinn "himin og jörð" og allt sem lífsanda dregur á jörðinni og hvíldist á sjöunda degi þessarar fyrstu viku. Þannig stofnaði hann hvíldardaginn til ævarandi minningar um fullkomnun sköpunarverks síns. Fyrsti karlmaðurinn og konan voru sköpuð í mynd Guðs sem kóróna sköpunarverksins, sett yfir alla jörðina og gerð ábyrg á umönnun hennar. Þegar jörðin var fullgerð var hún "harla góð" og vitnisburður um dýrð Guðs.
1. Mósebók 1:12. Mósebók 20:8-11
Sálmarnir 33:6-9Sálmarnir 19:1-6; 104
Hebreabréfið 11:3
Eðli mannsins
Karl og kona voru sköpuð í mynd Guðs með einstaklingseðli, mátt og frelsi til að hugsa og framkvæma. Þó að þau hafi verið sköpuð frjáls eru þau hvort um sig óaðskiljanleg eining líkama, hugar og sálar og háð Guði með líf og anda og allt annað. Þegar fyrstu foreldrar okkar óhlýðnuðust Guði neituðu þau að vera honum háð og hröpuðu úr sínum háu stöðum undir stjórn Guðs. Mynd Guðs í þeim saurgaðist og þau urðu undirorpin dauðanum. Niðjar þeirra gjalda þessa fallna eðlis og afleiðinga þess. Þeir eru bornir með breyskleika og tilhneigingu til illra verka. En Guð tók veröldina í sátt í Kristi og með Anda sínum endurnýjar hann guðsmyndina í iðrandi dauðlegum mönnum. Þeir eru skapaðir fyrir dýrð Guðs og kallaðir til að elska hann og hvern annan og annast umhverfi sitt.
1. Mósebók 1:26-28Rómverjabréfið 5:12-17
1. Mósebók 31. Mósebók 2:15
1. Mósebók 2:72. Korintubréf 5:19-20
Sálmarnir 51:12Postulasagan 17:24-28
Sálmarnir 8:5-91. Jóhannesarbréf 4:7,8,11,20
Deilan mikla
Allt mannkynið er nú þátttakandi í mikilli deilu milli Krists og Satans varðandi lyndiseinkun Guðs, lögmál hans og yfirráð hans yfir alheiminum. Þessi barátta hófst á himni þegar sköpuð vera, gædd valfrelsi, varð, vegna sjálfsupphafningar, Satan, andstæðingur Guðs, og tældi hluta af englaskaranum til uppreisnar. Hann átti upphaf að uppreisnarandanum hér í heimi þegar hann tældi Adam og Evu til að syndga. Þessi mannlega synd leiddi af sér afbökun ímyndar Guðs í mannkyninu, ringulreið í hinum skapaða heimi og endanlega eyðingu hans á tímum alheimsflóðsins. Í augsýn alls sköpunarverksins var þessi veröld vígvöllur allsherjar deilu, þar sem Guð kærleikans mun að síðustu fara með sigur. Lýð sínum til hjálpar í þessari deilu sendir Kristur Heilagan anda og trúfasta engla til að leiðbeina, vernda og viðhalda þeim á vegi hjálpræðisins.
Opinberunarbókin 12:4-9Rómverjabréfið 5:12-21
Rómverjabréfið 1:19-322. Pétursbréf 3:6
Jesaja 14:12-14Hebreabréfið 1:14
Rómverjabréfið 8:19-221. Korintubréf 4:9
Esekíel 28:12-181. Mósebók 3
1. Mósebók 6-8
 Líf, dauði og upprisa Krists
Í lífi Krists í fullkominni hlýðni við vilja Guðs, þjáningu hans, dauða og upprisu, lét Guð í té einu friðþægingarleiðina fyrir mannlegar syndir, svo að þeir sem veita þessari friðþægingu viðtöku í trú öðlist eilíft líf og allt sköpunarverkið skilji betur óendanlegan og heilagan kærleik skaparans. Þessi fullkomna friðþæging staðfestir réttlæti lögmáls Guðs og miskunnsama lyndiseinkunn hans; því að hún bæði fordæmir syndir okkar og aflar okkur fyrirgefningar. Dauði Krists er staðgengilsdauði, afplánandi, sættandi og umbreytandi. Upprisa Krists kunngjörir sigur Guðs yfir öflum hins illa, og þeim sem taka við friðþægingunni tryggir hún endanlegan sigur yfir synd og dauða. Hún kunngerir guðdóm Jesú Krists og fyrir honum mun sérhvert kné á himni og á jörðu beygja sig.
Jóhannesarguðspjall 3:161. Korintubréf 15:3, 20-22
Rómverjabréfið 1:4Rómverjabréfið 8:3,4
Kólossubréfið 2:15Jesaja 53
1. Pétursbréf 2:21,22Rómverjabréfið 3:25
1. Jóhannesarbréf 2:2Filipíbréfið 2:6-11
2. Korintubréf 5:14,15,19-21Rómverjabréfið 4:25
1. Jóhannesarbréf 4:10
Hjálpræðið
Í óendanlegum kærleik og miskunn lét Guð Krist, sem enga synd þekkti, verða synd fyrir okkur, svo að við, fyrir hans atbeina, yrðum réttlætt fyrir Guði. Fyrir leiðsögn Heilags anda finnum við þörf okkar, viðurkennum syndugleika okkar, iðrumst misgjörða okkar og ástundum trú á Jesú sem Drottin og Krist sem staðgengil og fordæmi. Þessi trú sem veitir hjálpræðinu viðtöku kemur fyrir guðlegt vald orðsins og er gjöf Guðs náðar. Fyrir Krist erum við réttlætt, viðurkennd synir Guðs og dætur og frelsuð undan drottinvaldi syndarinnar. Fyrir Andann erum við endurfædd og helguð; Andinn endurnýjar huga okkar, ritar kærleikslögmál Guðs í hjarta okkar, og okkur er gefinn kraftur til að lifa heilögu lífi. Í honum fáum við hlutdeild í guðlegu eðli og höfum fullvissu um endurlausn nú og í dómnum.
Jóhannesarguðspjall 3:16Galatabréf 1:3-4
2. Korintubréf 5:17-21Títusarbréfið 3:3-7
1. Pétursbéf 2:21,22Markúsarguðspjall 9:23
Kólossubréfið 1:13,14Jóhannesarguðspjall 3:3-8
2. Pétursbréf 1:3-4Rómverjabréfið 12:2
Galatabréf 3:13Galatabréfið 1:4
Jóhannesarguðspjall 16:8Rómverjabréfið 10:17
Efesusbréfið 2:5-10Rómverjabréfið 8:14-17
1. Pétursbréf 1:23Rómverjabréfið 8:1-4
Esekíel 36:25-27Galatabréfið 4:4-7
Galatabréfið 3:13,14Lúkasarguðspjall 17:5
Rómverjabréfið 3:21-26Galatabréfið 3:26
Hebreabréfið 8:7-12Rómverjabréfið 5:6-10
Söfnuðurinn
Söfnuðurinn er samfélag trúaðra sem játa Jesú Krist sem Drottin og frelsara. Í óslitnu framhaldi af lýð Guðs á Gamla testamentistímunum erum við kölluð út úr heiminum. Við komum saman til tilbeiðslu, til sameiningar, til að fræðast um Orðið, til neyslu kvöldmáltíðar Drottins, til þjónustu við allt mannkyn og til boðunar Orðsins um allan heim. Söfnuðurinn fær vald sitt frá Kristi sem er Orðið holdi klætt, og frá ritningunum sem eru hið ritaða Orð. Söfnuðurinn er fjölskylda Guðs sem hann hefur tekið að sér sem sín börn. Meðlimir hans lifa á grundvelli hins nýja sáttmála. Söfnuðurinn er líkami Krists, samfélag trúar þar sem Kristur er sjálfur höfuðið. Söfnuðurinn er brúðurin sem Kristur dó fyrir til þess að hann gæti helgað söfnuðinn og hreinsað hann. Þegar Kristur kemur aftur sigri hrósandi mun hann taka söfnuðinn til sín sem dýrlegan söfnuð, hina trúföstu um allar aldir, þá sem hann keypti með blóði sínu.
Matteusarguðspjall 16:13-20Efesusbréf 2:19-22
Efesusbréfið 3:8-11Kólossubréfið 1:17,18
Efesusbréf 4:11-15Matteusarguðspjall 28:19-20
Efesusbréfið 5:23-27Efesusbréfið 1:22-23
Postulasagan 7:38Matteusarguðspjall 18:18
Skírnin
Með skírninni játum við trú okkar á dauða og upprisu Jesú Krists og vottum að við erum dauð syndinni og að ásetningur okkar sé að ganga í endurnýjung lífsins. Þannig viðurkennum við Krist sem Drottin vorn og frelsara, verðum hans lýður og erum meðtekin sem meðlimir í söfnuði hans. Skírn er tákn um sameiningu okkar við Krist, fyrirgefning synda okkar og viðtöku okkar á Heilögum anda. Hún er framkvæmd með niðurdýfingu í vatn og felur í sér staðfestingu á trú á Jesú og vitnisburð um iðrun synda. Á undan henni fara leiðbeiningar um Heilaga ritningu og viðurkenning á kenningum hennar.
Matteusarguðspjall 28:19-20Postulasagan 22:16
Postulasagan 16:30-33Markúsarguðspjall 16:15-16
Rómverjabréfið 6:1-6Postulasagan 2:38
Postulasagan 2:37-38Kólossubréfið 2:12-13
 Kvöldmáltíðin
Kvöldmáltíðin er hlutdeild í táknum líkama og blóðs Jesú og tjáning trúar á honum, Drottni okkar og frelsara. Þegar við njótum þessarar sameiningar er Kristur nálægur til að mæta lýð sínum og styrkja hann. Þegar við göngum að Drottins borði boðum við með fögnuði dauða Drottins uns hann kemur aftur. Undirbúningur fyrir máltíðina felur í sér sjálfsrannsókn, iðrun og játningu. Meistarinn stofnaði til þjónustu fótaþvottarins til þess að tákna endurnýjaða hreinsun, vilja til að þjóna öðrum í kristilegri auðmýkt og að tengja saman hjörtu okkar í kærleik. Kvöldmáltíðarþjónustan er öllum trúuðum kristnum mönnum opin.
Jóhannesarguðspjall 13:1-171. Korintubréf 10:16,17
Opinberunarbókin 3:201. Korintubréf 11:23-28
1. Korintubréf 11:23-30Jóhannesarguðspjall 6:48-63
Matteusarguðspjall 26:17-30
 Lögmál Guðs
Hinar miklu meginreglur lögmáls Guðs eru fólgnar í boðorðunum tíu og dæmigerðar í lífi Krists. Lögmálið ber vott um kærleika Guðs, vilja og tilgang að því er varðar mannlega hegðun og samskipti, og eru bindandi fyrir allt fólk á öllum tímum. Þessi lagafyrirmæli eru grundvöllur sáttmála Guðs við lýð hans og viðmiðunin í dómi Guðs. Fyrir meðalgöngu Heilags anda bendir það á syndina og vekur vitund um þörf fyrir frelsara. Frelsun fæst einungis fyrir náð og ekki verk, en ávöxtur hennar er hlýðni við boðorðin. Þessi hlýðni þroskar kristilega lyndiseinkunn og hefur í för með sér vellíðan. Hún er vottur um ást okkar á Drottni og umhyggju okkar fyrir meðbræðrum okkar og systrum. Hlýðni í trú ber vott um mátt Krists til að umbreyta líferni manna og hún styrkir því kristilegan vitnisburð.
2. Mósebók 20:1-17Jóhannesarguðspjall 14:15
Matteusarguðspjall 22:36-40Jóhannesarguðspjall 16:7-10
Rómverjabréfið 8:3,4Hebreabréfið 8:8-10
Rómverjabréfið 3:315. Mósebók 28:1-14
Efesusbréfið 2:8-10Sálmarnir 19:8-15
Rómverjabréfið 8:1-4Sálmarnir 40:7,8
Matteusarguðspjall 5:17-201. Jóhannesarbréf 5:3
 Hvíldardagurinn
Eftir sex sköpunardaga hvíldist kærleiksríkur skapari á sjöunda deginum og stofnsetti hvíldardaginn handa öllu mannkyni til minningar um sköpunina. Fjórða boðorð hins óumbreytanlega lögmáls Guðs krefst þess að þessi sjöunda dags hvíldardagur sé virtur sem dagur hvíldar, tilbeiðslu og þjónustu í samræmi við kenningu og venju Jesú, Drottins hvíldardagsins. Hvíldardagurinn er dagur unaðslegs sambands við Guð og sambands manna á milli. Hann er tákn um endurlausn okkar í Kristi, tákn um helgun okkar, tákn um hollustu okkar, forsmekkur um eilífa framtíð okkar í ríki Guðs. Hvíldardagurinn er ævarandi tákn Guðs um eilífan sáttmála milli hans og lýðs hans. Fagnaðarríkt helgihald þessa dags frá kvöldi til kvölds, sólsetri til sólseturs, er minningarhátíð um skapandi og endurleysandi starf Guðs.
1. Mósebók 2:1-3Esekíel 20:12-20
Jesaja 56:5,65. Mósebók 5:12-15
2. Mósebók 20:8-11Hebreabréfið 4:1-11
Matteusarguðspjall 12:1-12Markúsarguðspjall 1:32
Jesaja 58:13-14Lúkasarguðspjall 4:16
2. Mósebók 31:13-173. Mósebók 23:32
Þjónusta Krists
Á himnum er helgidómur, hin sanna tjaldbúð sem Drottinn reisti en ekki maður. Í honum þjónar Kristur okkar vegna og veitir trúuðum blessun sinnar friðþægjandi fórnar sem færð var í eitt skipti fyrir öll á krossinum. Hann var vígður sem okkar mikli æðsti prestur og hóf meðalgöngustarf sitt með uppstigningu sinni. Árið 1844, við endalok 2300 daga spádómstímans, hóf hann annan og síðasta þátt friðþægingarþjónustu sinnar. Hún er fólgin í dómsrannsókninni sem er þáttur í endanlegri útrýmingu allrar syndar og var táknuð með hreinsun hins forna helgidóms Hebrea á friðþægingardeginum. Í þessari táknrænu þjónustu var helgidómurinn hreinsaður með blóði fórnardýranna, en himneskir hlutir hreinsast með hinni fullkomnu fórn, blóðs Jesú. Dómsrannsóknin opinberar hinum himnesku verum hverjir hinna dauðu hafi sofnað í trúnni á Krist og séu því í honum, verðugir að fá hlutdeild í hinni fyrri upprisu. Hún opinberar einnig hverjir meðal hinna lifandi breyti í lífi sínu eftir kenningu Krists, varðveiti boðorð Guðs og trúna á Jesú og séu í honum viðbúnir að verða ummyndaðir og teknir til eilífs ríkis Guðs. Þessi dómsrannsókn staðfestir að Guð er réttlátur er hann frelsar þá sem trúa á Jesú. Dómsrannsóknin leiðir í ljós að þeir sem haldið hafa tryggð við Guð skuli ríkið erfa. Fullnusta þesarar þjónustu Krists mun marka lok náðartímans fyrir endurkomu Krists.
Hebreabréfið 8:1-6Opinberunarbókin 14:6-7
Hebreabréfið 10:19-22Daníel 9:24-27
3. Mósebók 16Opinberunarbókin 22:12
Hebreabréfið 9:11-28Daníel 7:9-27
Hebreabréfið 1:34. Mósebók 14:34
Opinberunarbókin 20:12Daníel 8:13-14
Hebreabréfið 4:14-16Hebreabréfið 2:16,17
Esekíel 4:6Opinberunarbókin 14:12
Endurkoma Krists
Endurkoma Krists er sæluvon safnaðarins, hámark fagnaðarboðskaparins. Koma frelsarans verður bókstafleg, persónuleg, sýnileg og nær yfir veröld alla. Þegar hann kemur aftur munu hinir réttlátu, sem dánir eru, rísa upp og ásamt hinum réttlátu lifandi verða gerðir dýrlegir og teknir til himna, en hinir ranglátu munu deyja. Uppfylling spádómanna um hina síðustu tíma sýnir að koma Krists er í nánd. Nákvæmur tími þessa atburðar hefur ekki verið opinberaður og þess vegna erum við áminnt um að vera reiðubúin hvenær sem er.
Jóhannesarguðspjall 14:1-3Títusarbréfið 2:13
Hebreabréfið 9.282. Þessalonikubréf 1,7-10
Opinberunarbókin 19:11-212. Tímóteusarbréf 3:1-5
Postulasagan 1:9-11Matteusarguðspjall 24:1-14
Matteusarguðspjall 26:43,442. Þessalonikubréf 2:8
Markúsarguðspjall 131. Þessaloníkubréf 5:1-6
Opinberunarbókin 1:71. Þessaloníkubréf 4:13-18
1. Korintubréf 15:51-54Opinberunarbókin 14:14-20
Lúkasarguðspjall 21Matteusarguðspjall 24:26-31
Dauðinn og upprisan
Laun syndarinnar er dauði, en Guð sem einn er ódauðlegur mun gefa sínum endurleystu eilíft líf. Fram að þeim degi er dauðinn meðvitundarlaust ástand öllum mönnum. Þegar Kristur, sem er líf okkar, birtist, munu hinir upprisnu réttlátu og hinir lifandi réttlátu verða dýrlegir og burt numdir til að mæta Drottni sínum. Síðari upprisan, upprisa hinna ranglátu, verður þúsund árum síðar.
Prédikarinn 9:5-61. Þessaloníkubréf 4:13-17
Rómverjabréfið 6:23Opinberunarbókin 20:1-10
Jóhannesarguðspjall 5:28-291. Korintubréf 15:51-54
Sálmarnir 146:3,4Jóhannesarguðspjall 11:11-14
1. Tímóteusarbréf 6:15-16Kólossubréfið 3:4
1000 árin
Milli hinnar fyrri upprisu og hinnar síðari eru Kristur og hinir heilögu saman á himnum í þúsund ár. Á þessum tíma verða hinir óguðlegu dauðu dæmdir. Jörðin er auð og tóm. Þar eru engir menn á lífi, aðeins Satan og englar hans. Við lok hinna þúsund ára mun Kristur ásamt hinum heilögu og hin heilaga borg stíga niður af himni til jarðarinnar. Þá verða hinir ranglátu dauðu reistir upp og ásamt Satan og englum hans munu þeir umkringja borgina, en eldur frá Guði mun eyða þeim og hreinsa jörðina. Þannig verður alheimurinn hreinsaður af synd og syndurum að eilífu.
Opinberunarbókin 20Malakí 4:1
Opinberunarbókin 21:1-5Jeremía 4:23-26
2. Pétirsbréf 3:10-141. Korintubréf 6:2-3
Esekíel 28:11-19
Ný Jörð
Á hinni nýju jörð þar sem réttlætið ríkir mun Guð skapa eilíft heimili handa hinum endurleystu og fullkomið umhverfi fyrir eilíft líf, kærleika, hamingju og fræðslu í návist hans. Guð mun sjálfur búa hjá lýð sínum og þjáningar og dauði eru horfin. Deilan mikla er á enda kljáð, og syndin verður ekki framar til. Allt, frá hinu lifandi til hins líflausa, hrópar að Guð er kærleikur og hann skuli ríkja til eilífðar. Amen.
2. Pétursbréf 3:13Matteusarguðspjall 5:5
Opinberunarbókin 11:15Jesaja 35:1-10
Opinberunarbókin 21:1-7Jesaja 65:17-25
Opinberunarbókin 22:1-5

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Varstu búinn að sjá þetta? http://news.bbc.co.uk/1/hi/magazine/7250675.stm

Bestu kveðjur. ÞJ

Þóra Jóns (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 15:17

2 identicon

Svo þetta er einhverskonar dómsdagscult?  Meina, þið eruð að bíða, með eftirvæntingu, eftir endalokum alheimsins ekki satt.

Og: "Milli hinnar fyrri upprisu og hinnar síðari eru Kristur og hinir heilögu saman á himnum í þúsund ár." .. eruð þið þá ekki, svona svipað og vottarnir, ekki aðeins á eftir áætlun?

Arnar (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 15:24

3 Smámynd: Mofi

Nei, takk fyrir að benda á þetta :)   Var búinn að sjá svipaða rannsókn sem National Geographic gerði og þeir komust að sömu niðurstöðu. Því miður fylgja aðventistar hérna á Íslandi þessu að mjög takmörkuðu leiti en líklegast nóg til að það sé einhver munur.

Mofi, 19.2.2008 kl. 15:25

4 Smámynd: Mofi

Arnar, dómsdagur er að mörgu leiti góður dagur. Dagurinn sem þeir sem hafa verið kúgaðir fá hlut sinn réttann og þeir sem myrtu og nauðguðu fá loksins réttlæti.  Loksins endalok þjáninga, sjúkdóma, hungurs og dauða.  Við erum líklegast lík öllum kristnum þegar kemur að því að bíða eftir endurkomunni...

Mofi, 19.2.2008 kl. 15:27

5 identicon

Þakka þér fyrir, ég ætlaði alltaf að spyrja að þessu þannig að gaman að sjá þetta hérna hjá þér.

Bestu kveðjur

Sveinn (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 15:34

6 identicon

Og við þökkum hinum almáttuga skapara jafnframt fyrir fyrrnefda sjúkdóma, þökkum honum fyrir að skapa eyðniveiruna, berkla og þökkum honum fyrir að skapa moskítófluguna og malaríuna, svarta dauða og holdsveikisbakteríuna! Því allt kvikt skapaði hin algóði guð, og ber okkur að hafa hans mikla sköpunarverk í huga næst þegar einhver nákominn okkur veikist eða deyr úr einhverjum þessara sjúkdóma.

Og okkur ber einnig að þakka fyrir hversu fullkomlega tókst til við mannslíkamann, og við skulum lofa guð næst þegar barn sem við þekkjum fær hvítblæði, eða þegar foreldrar okkar fá krabbamein eða alzheimers, þá skulum við skoða hið fullkomna sköpunarverk hins algóða guðs og segja hátt "þetta er harla gott!".   

Jóhann Þórsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 15:44

7 Smámynd: Mofi

Jóhann, í upphafi var allt gott en núna fáum við að upplifa hvernig heimurinn er án þess að Guð viðhaldi honum. Sköpunarverkið er sannarlega stórkostlegt, ætlar þú að segja mér það að þú elskir ekki eitthvað í þessum heimi?  Við skulum lofa Guð fyrir Hans loforð um nýjann himinn og nýja jörð þar sem enginn dauði, þjáning og sorg er lengur til, jafnvel þótt við eigum það loforð ekki skilið.

Mofi, 19.2.2008 kl. 16:00

8 Smámynd: Mofi

Takk fyrir að kíkja við Sveinn,

kveðja,
Halldór

Mofi, 19.2.2008 kl. 16:01

9 identicon

Ertu að segja að guð hafi ekki skapað malaríuveiruna? Eða eyðniveiruna? Eða voru þær bara meinlausar fyrst og breyttust seinna í skaðvalda (og ertu þá að viðurkenna að þær hafi þróast og fengið hæfni til að sýkja okkur mannfólkið)?

Og ef hann er alvitur, af hverju sá hann þetta ekki fyrir og sleppti því bara að skapa þessar leiðinda smáverur?

Bíddu bíddu... leyfðu mér að giska.... "vegir hans eru órannsakanlegir"?

Jóhann Þórsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 16:07

10 Smámynd: Mofi

Þetta er svona svipað að horfa á flottann Ferrarí bíl og síðan sjá hann seinna eftir að hann lendir í árekstri, það er ekki framleiðandanum að kenna. Má kannski færa rök fyrir því að Guð bauð upp á möguleikann að sköpunin gæti skemmst en minn skilningur á því er að þetta er afleiðing á því að Guð lætur okkar heim í friði því að illskan þarf að fá að sýna hvernig hún raunverulega er og sömuleiðis hvað gerist þegar Guð er ekki við stjórn.   Í "kaflanum" Deilan mikla þá er fjallað um þetta í stuttu máli. 

Ef þú vilt vísindalegra svar þá geturðu lesið þessa grein hérna: Did God create pathogenic viruses

Mofi, 19.2.2008 kl. 16:15

11 identicon

Þessi grein þín á aðeins við um vírusa, en ekki bakteríur, og þess þá heldur stærri varga eins og moskítófluguna. Og nei, þetta er ekkert svipað því að einhver keyri bílinn sinn í klessu. Svo er nú betra, svona ef maður vill vita eitthvað eðlilegt um þróun veira að skoða það sem telst "virt" vísindarit, eins og Nature, hérna er t.d. brot úr fínni grein um þróun HIV veirunnar, þar sem guð er hvergi nærri og ("ó nei"!) nýjar upplýsingar verða til:

One of the earliest and most striking observations made about HIV is the extensive genetic variation that the virus has within individual hosts, particularly in the hypervariable regions of the env gene; this variation makes HIV one of the fastest evolving of all organisms. Such rapid evolution is the result of an explosive combination of factors. First, the virus experiences a high rate of mutation, with reverse transcriptase making approx 0.2 errors per genome during each replication cycle, and further errors occurring during transcription from DNA by RNA Pol II polymerase. Second, HIV has remarkable replicatory dynamics: it has a viral generation time of approx 2.5 days and produces approx 1010–1012 new VIRIONS each day. Finally, frequent recombination and natural selection further elevate its rate of evolutionary change.

"Guð bauð upp á möguleikann að sköpunin gæti skemmst." En og aftur ber okkur að þakka honum fyrir eyðni og krabbamein, því alvitur guð á jú að hafa séð þetta fyrir. Fínt að hugsa um börn með hvítblæði í sömu andrá og maður hugsar um hið fullkomna sköpunarverk hins alvitra og algóða guðs.

Þú segir að "kannski" megi færa rök fyrir því að þetta sé "afleiðing á því að Guð lætur okkar heim í friði því að illskan þarf að fá að sýna hvernig hún raunverulega er og sömuleiðis hvað gerist þegar Guð er ekki við stjórn." Ert þú að segja að bakteríur séu illar? Að þær ákveði sjálfar að sýkja lítil börn, af því að guð er ekki að fylgjast með?

(Svo var líka gaman að sjá að sá sem skrifar greinina sem þú nefnir er sko með sjö háskólagráður, eins og annar nýlegur "snillingur".)

Jóhann Þórsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 16:57

12 Smámynd: Mofi

Jóhann
skoða það sem telst "virt" vísindarit, eins og Nature, hérna er t.d. brot úr fínni grein um þróun HIV veirunnar, þar sem guð er hvergi nærri og ("ó nei"!) nýjar upplýsingar verða til:

Skondið að HIV veiran var akkurat dæmi sem Michael Behe notar til að sýna fram á takmörk darwinisma, hver takmörk sköpunarhæfileika stökkbreytinga er.  Vegna þess einmitt að HIV stökkbreytist svo hratt þá gefur það okkur innsýn inn í hvað við getum búist við af stökkbreytingum og það er enginn spurning lengur að takmörk stökkbreytinga útiloka alla alvöru þróun á nýjum vélum og upplýsingum. 

Jóhann
"Guð bauð upp á möguleikann að sköpunin gæti skemmst." En og aftur ber okkur að þakka honum fyrir eyðni og krabbamein, því alvitur guð á jú að hafa séð þetta fyrir. Fínt að hugsa um börn með hvítblæði í sömu andrá og maður hugsar um hið fullkomna sköpunarverk hins alvitra og algóða guðs.

Fínt að hugsa til þess að það er enginn Guð, eitthvað sem þú ættir að fara að predika fyrir þeim sem eru sjúkir af eyðni og börnum með krabbamein.  Okkar dagar hér á jörð eru fáir og daprir.

Jóhann
Ert þú að segja að bakteríur séu illar? Að þær ákveði sjálfar að sýkja lítil börn, af því að guð er ekki að fylgjast með?

Nei, að sköpunin er að hrörna af því að Guð heldur henni ekki við.

Jóhann
(Svo var líka gaman að sjá að sá sem skrifar greinina sem þú nefnir er sko með sjö háskólagráður, eins og annar nýlegur "snillingur".)

Það sem er skemmtilegt við alvöru vísindi er að hvaða gráður maður er með skiptir ekki máli, hvort að greinin sem maður skrifar birtist í virtu riti eða ekki skiptir ekki máli. Þau rök og þær rannsóknir sem þú getur komið með er það sem skiptir máli en ekki hvað virtir menn segja eða þeir sem eru með marga bókstafi á eftir nöfnunum sínum.

Mofi, 19.2.2008 kl. 17:05

13 identicon

Ég trúi því að dómsdagur muni þá fyrst renna upp þegar hvert einasta mannsbarn hefur fundið trú á Guð í hjarta sínu. Fyrst Hann er óendanlegur kærleikur (eins og kemur fram í Hjálpræðis-kaflanum), hlýtur hann að hafa þolinmæði til að bíða eftir því að allir nái þeim þroska sem til þarf til að öðlast náð og miskunn. Sú mikla vera sem Guð er (ódauðlegur, almáttugur, alvitur, öllu ofar og alltaf nálægur eins og talað er um í Þrenningar-kaflanum... þetta eru ekkert hógvær lýsingarorð ef maður pælir í merkingu hvers og eins þeirra) getur ómögulega verið haldin kvötum til að deyða aðra, sama á hversu lágu tilverustigi viðkomandi eru.

Þannig skil ég þessi orð alla vegana, meira táknrænt en að allt muni í alvörunni verða bara grillað í klessu. Hvaða refsing er svosem falin í því að vera þurrkaður út? Ekki sé ég fyrir mér miklar þjáningar fólgnar í því að vera bara hreinlega ekki til...

Gréta (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 17:08

14 identicon

Af hverju þarf guð annars að halda sköpuninni við? Var hún ekki fullkomin?

Og það að "sköpunin sé að hrörna" er ekkert svar við því hvaðan bakteríur og veirur komu, og er í raun ekki svar við neinu. Bakteríur eru svo svakalega góðar í að sýkja og komast á milli manna að þær geta ekki verið annað en skapaðar... eða hvað?

Mofi 

Fínt að hugsa til þess að það er enginn Guð, eitthvað sem þú ættir að fara að predika fyrir þeim sem eru sjúkir af eyðni og börnum með krabbamein.  Okkar dagar hér á jörð eru fáir og daprir.

Það tengist því ekkert sem ég er að segja hvort ljúga eigi að þeim sem eru að deyja til að gleðja þá, ég er einfaldlega að reyna að fá svör frá þér hvernig þú útskýrir það af hverju guð bjó til bakteríur og moskítóflugur, greinilega skaðvalda, því biblían segir jú að allt kvikt hafi hann skapað.

Svo var ég að reyna að vera sniðugur með greinilegri vísun í Næturvaktina, mér er annars alveg sama hvaða gráður maðurinn er með (þó af örðum ástæðum en þú). 

Jóhann Þórsson (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 17:22

15 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Svo þetta er einhverskonar dómsdagscult?  Meina, þið eruð að bíða, með eftirvæntingu, eftir endalokum alheimsins ekki satt.

Og: "Milli hinnar fyrri upprisu og hinnar síðari eru Kristur og hinir heilögu saman á himnum í þúsund ár." .. eruð þið þá ekki, svona svipað og vottarnir, ekki aðeins á eftir áætlun?

Hárrétt Arnar. Raunin er sú að aðventistar og vottar eiga sér sameiginlegt upphaf. Hin svokölluðu "miklu vonbrigði". En það var mikil hreyfing í Bandaríkjunum í sambandi við það að heimsendir ætti að verða árið 1844. Eins og við vitum gerðist það ekki. Ein aðferð sem fólk beitir þegar svona spádómar klikka er að endurtúlka þá. Ef þú kíkir á kaflann "Þjónusta Krists" sérðu að aðventistar trúa því að eitthvað hafi gerst árið 1844, bara ekki heimsendir:

Á himnum er helgidómur, hin sanna tjaldbúð sem Drottinn reisti en ekki maður. Í honum þjónar Kristur okkar vegna og veitir trúuðum blessun sinnar friðþægjandi fórnar sem færð var í eitt skipti fyrir öll á krossinum. Hann var vígður sem okkar mikli æðsti prestur og hóf meðalgöngustarf sitt með uppstigningu sinni. Árið 1844, við endalok 2300 daga spádómstímans, hóf hann annan og síðasta þátt friðþægingarþjónustu sinnar.

Þessi útskýring var auðvitað búin til eftir að spádómurinn um heimsendi klikkaði. Við getum séð svipaða hluti hjá vottunum. Ein af heimsendaspám þeirra var fyrir árið 1914. Þegar heimurinn endaði ekki, þá sögðu þeir að Jesús hefði komið aftur til þess að ráða ósýnilega yfir heiminum. Við getum farið allt aftur til frumkristni til þess að sjá sömu taktínina, augljósar heimsendaspár eru eftirá sagðar þýða allt annað.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 19.2.2008 kl. 17:30

16 identicon

Sko að karpa um þróunarkenninguna er eitt, eins og við Lárus, Ragnar og Arnar höfum verið að gera upp á það síðasta við Mofi, en það er bara eitt sem er óþolanlegra en "frelsaðir" einstaklingar að troða trú sinni upp á aðra.  Það eru trúleysingjar sem troða sér á vettvang trúaðra og gera lítið úr trú og skoðunum þeirra.

En svona til gamans, þá eru til stökkbreytingar sem hafa skapað upplýsingar.  Ég nefni Downs-heilkenni sem dæmi. 

Sveinn (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 18:07

17 identicon

Hvað gerist eftir dómsdag?

Ellinn (IP-tala skráð) 19.2.2008 kl. 19:09

18 Smámynd: Mofi

Gréta
Þannig skil ég þessi orð alla vegana, meira táknrænt en að allt muni í alvörunni verða bara grillað í klessu. Hvaða refsing er svosem falin í því að vera þurrkaður út? Ekki sé ég fyrir mér miklar þjáningar fólgnar í því að vera bara hreinlega ekki til...

Sumir einfaldlega vilja það ekki og ekki eðlilegt að þeir séu neyddir til tilvistar sem þeir vilja ekki.  Mér finnst það skelfileg hugsun að deyja á kvalarfullann hátt ( fer eftir hve glæpirnir voru miklir ) og síðan vera aldrei aftur til að eilífu. Sumir hugsa til eilífs lífs og segja að það skelfi þá og þeir vilja það ekki; finnat það ekki rökrétt að Guð neyði einhvern til að lifa að eilífu ef hann vill það ekki.

Jóhann
Og það að "sköpunin sé að hrörna" er ekkert svar við því hvaðan bakteríur og veirur komu, og er í raun ekki svar við neinu. Bakteríur eru svo svakalega góðar í að sýkja og komast á milli manna að þær geta ekki verið annað en skapaðar... eða hvað?

Hrörnar og eyðileggjast.  Ef þú hefðir lesið greinina þá hefðurðu séð að lang flestar veirur eru nauðsynlegar eða skaðlausar að við best vitum; mjög lítið hlutfall eru skaðlegar.  Ég sé þessar sem eru skaðlegar sem aðeins bilaðar eða eru á röngum stað eins og t.d. HIV er í öpum og gerir engann skaða þar. Það sem virðist hafa gerst er að Guð leyfði okkar gjörðum að hafa áhrif á þennan heim á óteljandi hátt. Þúsund árin sem Opinberunarbókin talar um eru einmitt til þess að við getum rannsakað allt þetta til að geta séð hvort að Guð var raunverulega réttlátur í öllu þessu.

Jóhann
Það tengist því ekkert sem ég er að segja hvort ljúga eigi að þeim sem eru að deyja til að gleðja þá, ég er einfaldlega að reyna að fá svör frá þér hvernig þú útskýrir það af hverju guð bjó til bakteríur og moskítóflugur, greinilega skaðvalda, því biblían segir jú að allt kvikt hafi hann skapað.

Þú værir að segja satt að mínu mati með því að segja að Guð er til og dauðinn er aðeins eins og að fara að sofa og næst þegar þau vakna þá vakna þau til heims án alls þess slæma sem þessi hefur. Þú setur mína trú hérna upp eins og einhvað hræðilegt og ég er einfaldlega að reyna að útskýra afhverju mér finnst hún ekki hræðileg.

Mofi, 20.2.2008 kl. 09:07

19 Smámynd: Mofi

Hjalti
Hárrétt Arnar. Raunin er sú að aðventistar og vottar eiga sér sameiginlegt upphaf. Hin svokölluðu "miklu vonbrigði". En það var mikil hreyfing í Bandaríkjunum í sambandi við það að heimsendir ætti að verða árið 1844. Eins og við vitum gerðist það ekki. Ein aðferð sem fólk beitir þegar svona spádómar klikka er að endurtúlka þá. Ef þú kíkir á kaflann "Þjónusta Krists" sérðu að aðventistar trúa því að eitthvað hafi gerst árið 1844, bara ekki heimsendir:

Spádómurinn kom frá Bíblíunni og þegar maður skoðar hvað Biblían segir í þessum spádómi þá finnst manni mjög undarlegt að einhver gat túlkað þetta sem heimsenda. Öll önnur túlkun hefði verið gáfulegri, tímasetningin rétt en hvað myndi gerast rangt; ekki við Biblíuna að sakast hérna enda segir hún að aðeins Guð veit hvenær þetta verður.

Sveinn
Sko að karpa um þróunarkenninguna er eitt, eins og við Lárus, Ragnar og Arnar höfum verið að gera upp á það síðasta við Mofi, en það er bara eitt sem er óþolanlegra en "frelsaðir" einstaklingar að troða trú sinni upp á aðra.  Það eru trúleysingjar sem troða sér á vettvang trúaðra og gera lítið úr trú og skoðunum þeirra.

Öll þvingun í þessum málum er óþolandi, hvort sem viðkomandi telur sig vera frelsaðann eða ekki. Sé ekkert að því að hinir og þessir séu að koma sér og sínum skoðunum á framfæri en bara á meðan maður getur forðað sér frá áróðrinum.  Takk annars fyrir innleggið. Öllum velkomið að gagnrýna mína trú hérna en ég sannarlega væri þakklátur ef það væri gert á kurteisislegann hátt.

Sveinn
En svona til gamans, þá eru til stökkbreytingar sem hafa skapað upplýsingar.  Ég nefni Downs-heilkenni sem dæmi. 

Enginn ágreiningur um að skaðlegar stökkbreytingar gerast; myndi samt ekki kalla það nýjar "góðar" upplýsingar þegar einstaklingur fær Downs-heilkenni.

Elli
Hvað gerist eftir dómsdag?

Svipaður heimur og við lifum í dag nema án þess slæma sem við upplifum. Engin þreyta, fátækt, ekkert vonleysi, engir sjúkdómar eða fólk að bíða dauðans. Allt það sem kemur upp á milli fólks og veldur deilum hverfur svo engin stríð eða óvild manna á milli.  Hérna erum við oft að reyna að ná endum saman, reyna að fá tveggja þriggja vikna sumar frí; ég held að Guð sjái þetta líf okkar eins og það er orðið sem mikla eymd.

Erlingur, takk fyrir að líta inn :)

Mofi, 20.2.2008 kl. 09:19

20 identicon

"Svipaður heimur og við lifum í dag nema án þess slæma sem við upplifum. Engin þreyta, fátækt, ekkert vonleysi, engir sjúkdómar eða fólk að bíða dauðans. Allt það sem kemur upp á milli fólks og veldur deilum hverfur svo engin stríð eða óvild manna á milli.  Hérna erum við oft að reyna að ná endum saman, reyna að fá tveggja þriggja vikna sumar frí; ég held að Guð sjái þetta líf okkar eins og það er orðið sem mikla eymd."

Ok, ég er kannski tregur og spyr því einu sinni enn.  Akkuru skapaði guð ekki bara þetta sæluríki strax í byrjun?  Ef það hefur alltaf staðið til að koma þessu sæluríki á þá eru þessi 6000 ár frá meintri sköpun bara vesen.

Og hvernig eru svon aðventistar frábrugðnir öðrum kristnum söfnuðum, er þetta ekki allt sama dæmið?  Meina: sami guð, sama biblían. 

Arnar (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 09:43

21 identicon

Allt það slæma hverfur segirðu. En til þess að hið góða sé til, þá þarf að vera til eitthvað slæmt ekki satt? Þetta er í raun náttúrulögmál er það ekki? Heimur sem að hefur einungis góða hluti er fræðilega séð ómögulegur þar sem hinn helmingurninn þ.e. það slæma hefur verið tekin burtu. Það þurfa alltaf að vera tveir pólar. Jing og Yang.

Bara ein persónuleg spurning af tilefni sem þú skrifaðir her að ofan, þú þarft ekki að svara henni frekar en þú vilt. Ertu óhamingjusamur? Mér finnst nú bara ágætt að fá tveggja til þriggja vikna sumarleyfi, er heppin ef ég fæ eitthvað yfirhöfuð og ég sé lífið alls ekki sem einhverja eymd.

Ellinn (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 09:58

22 Smámynd: Mama G

Jóhann (og aðrir):

Hér eru áhugaverð skrif um það afhverju slæmir hlutir henda gott og saklaust fólk.

Mama G, 20.2.2008 kl. 10:26

23 Smámynd: Mofi

Arnar, hann skapaði það í byrjun en gaf mannkyninu vald til að eyðaleggja það. Guð varð síðan að leyfa þessu að spila út til að þegar að því kæmi að Hann yrði að eyða illskunni úr heiminum þá væri enginn vafi á að það væri réttlátur dómur.

Það sem aðalega aðskilur aðventista frá öðrum söfnuðum er sú trú að við eigum að halda hvíldardag Biblíunnar heilagann og síðan okkar skilningur á ástandi hinna dauðu, hvernig helvíti er. Við trúum ekki að helvíti er eilífar þjáningar í eldi heldur dauði. Ég hef karpað slatta um þetta seinna atriði við þó nokkra kristna, ef áhugi er fyrir henda þá er það hérna: Hvað gerist þegar maður deyr, hvað er helvíti?  og  Hver er refsing Guðs, eilífar þjáningar í eldi eða eilífur dauði?

 

Ellinn
Allt það slæma hverfur segirðu. En til þess að hið góða sé til, þá þarf að vera til eitthvað slæmt ekki satt? Þetta er í raun náttúrulögmál er það ekki?

Eða að hið illa er í rauninni aðeins skortur á hinu góðu eða fjarvera þess alveg eins og kuldi er ekki beint til í sjálfu sér heldur er kuldi aðeins fjarvera hita. Hiti er til, hiti er orka sem hefur áhrif á umhverfið en kulda er aðeins fjarvera hita.

Ellinn
Bara ein persónuleg spurning af tilefni sem þú skrifaðir her að ofan, þú þarft ekki að svara henni frekar en þú vilt. Ertu óhamingjusamur? Mér finnst nú bara ágætt að fá tveggja til þriggja vikna sumarleyfi, er heppin ef ég fæ eitthvað yfirhöfuð og ég sé lífið alls ekki sem einhverja eymd.

Ég sé aðeins að lífið gæti verið svo miklu betra, ekki beint óhamingjusamur því svo sem þessa dagana gengur mér vel.  Ertu sammála mér að lífið gæti líklegast verið miklu betra?

Mofi, 20.2.2008 kl. 10:38

24 identicon

Mama G, mér skilst af þessari grein að samkvæmt Talmud sé maðurinn vitlaus og eigi að brosa í gengum allt slæmt sem kemur fyrir, en þakka guði fyrir að hlutirnir séu þó ekki verri. Þvílíkt lífsviðhorf! Svar ykkar við erfiðum spurningum viðrist alltaf vera að hugsa bara minna, og bíða eftir að drepast svo að þið komist í næsta heim.

Og Mofi, ég er búinn að benda þér á að þessi grein þín fjallar um veirur, en ekki bakteríur og stærri meindýr. Af hverju skapaði guð þau? Þau voru jú sköpuð á sama tíma og allt hitt ekki satt?

Mofi
Það sem virðist hafa gerst er að Guð leyfði okkar gjörðum að hafa áhrif á þennan heim á óteljandi hátt.

Virðist samkvæmt hverjum? Er þetta þinn skilningur? En ég er að fara að hætta þessu, sé eins og aðrir sem hafa gefist upp á þér að þú svarar engu, dregur þig bara dýpra inn í skelina og öskrar "guð gerði það!".

Jóhann Þórsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 11:14

25 Smámynd: Mofi

Jóhann Þórsson
Og Mofi, ég er búinn að benda þér á að þessi grein þín fjallar um veirur, en ekki bakteríur og stærri meindýr. Af hverju skapaði guð þau? Þau voru jú sköpuð á sama tíma og allt hitt ekki satt?

Þegar bakteríum þá eru u.þ.b. 90% af þeim góðar, nauðsynlegar fyrir lífið.  Þar sem það eru sirka tíu sinnum fleiri bakteríur í okkur en fjöldi frumna þá erum við... já...   En já, einhverjar hafa skemmst og valda núna skaða og það væri verðugt rannsóknarefni að skoða hvort við getum séð hvernig þær áttu að vera upprunalega.  Hvaða stærri meindýr ertu að hugsa um sem þér finnst að góður Guð gæti aldrei skapað?

Jóhann Þórsson
Virðist samkvæmt hverjum? Er þetta þinn skilningur? En ég er að fara að hætta þessu, sé eins og aðrir sem hafa gefist upp á þér að þú svarar engu, dregur þig bara dýpra inn í skelina og öskrar "guð gerði það!".

Þetta er minn skilningur, alveg eins og þú getur klesst glænýjann bíl sem er galla laus þá getum við eyðilagt sköpunarverkið sem upprunalega var gallalaust.

Mofi, 20.2.2008 kl. 11:26

26 Smámynd: Mofi

Gréta
Hér eru áhugaverð skrif um það afhverju slæmir hlutir henda gott og saklaust fólk.

Hvað finnst þér um ekki beint þetta svar heldur þessar rökræður þar sem þetta vandamál kemur upp: http://www.wayofthemasterradio.com/pastmedia.shtml  - The Case for Atheism

Jóhann, væri gaman að heyra þitt álit líka.

Mofi, 20.2.2008 kl. 12:02

27 identicon

Trúaðir þrá dómsdag mest af öllu, þeir þrá að vera þrælar hins almáttuga MASTERS of slaves.

En gettu hvað Mofi, ég fanna skoðanabróður þinn í Írak, hann er mað nákvæmlega sama take og þú ert með, ef það stendur ekki í kóraninum þá er það ekki satt og því heldur hann fram að jörðin sé flöt og hann talar einnig um augað alveg eins og þú.
Fræddu okkur öll á því hvað gerir þig vitrænni en þessi maður... hvað gerir þitt trúarrit mikilvægara og betra en hans þó svo að erkiengillinn Gabríel eigi að hafa frætt þessa menn um allt í þeirra bók, þeir segjast jú trúa á sama guð og þú
http://www.youtube.com/watch?v=wppjYDj9JUc

DoctorE (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 13:21

28 Smámynd: Mama G

Ég verð að viðurkenna að ég er alveg við það að tapa þræðinum í umræðunni hérna  Mér sýnist þetta rifrildi allt eiga sér upphaf í commenti #9: [...]Og ef hann er alvitur, af hverju sá hann þetta ekki fyrir og sleppti því bara að skapa þessar leiðinda smáverur?[...]

Til hvers í ósköpunum var verið að skapa heiminn yfirhöfuð!? segi ég nú bara. Þetta er spurning sem enginn maður hefur getað svarað hingað til án þess að vekja bara upp enn fleiri spurningar og mér finnst nú alveg ótrúlegt að sjá að hann Jóhann haldi að Mófi geti svarað þessu frekar en aðrir sem þessa Jörð hafa gengið. Mófi setti bara fram hérna færslu um það um hvað Aðvent kirkjan snýst um og ekkert annað. Óþarfi að brjálast eitthvað yfir því.

Mér finnst gaman að lesa um það hverju fólk trúir og afhverju, ég benti nú á þennan link hérna í commenti #23 af því að mér fannst það áhugaverð pæling (kemur sérstaklega fram í færslunni) og mér finnst fólk ekkert vera neitt vitlaust að trúa því að það sé eitthvað æðra og meira sem er í gangi en maður stundum skilur, sbr. foreldrar sem lenda í því að barnið þeirra fá hvítblæði. Ef fólk finnur huggun í trú, er það þá ekki bara allt í lagi? Þeir vita það sem reynt hafa að það er gott að geta leitað sér huggunar þegar á reynir og engin svör finnast við vandamálum og áföllum. Fólk leitar ýmissa leiða, sumir nota trúna, aðrir eitthvað annað.

Það væri nú gaman, svona upp á djókið, að heyra þinn skilning á þessu öllu saman Jóhann. Af hverju við erum hérna? Það væri þá alla vegna meira í ætt við það sem fyrsta innleggið fjallar um, "Trú Aðvent kirkjunnar".

Mama G, 20.2.2008 kl. 13:58

29 Smámynd: Mofi

Frekar að ég þrái nýjann himinn og nýja jörð þar sem engin illska er lengur til, hvorki í heiminum né í mér sjálfum.

Þú vonandi fyrirgefur en mig langar ekki að leiða þessa umræðu út í Islam og allt það. Kannski tilefni í færslu hjá þér Doksi?  Fátt hlýtur að gleðja þitt hjarta og tilefni til að búa til blogg færslu :)

Mofi, 20.2.2008 kl. 13:59

30 identicon

Quote úr myndbandinu sem vísað er í í commenti 28
"Anything that has no indication in the Koran is false"

Er þetta ekki nákvæmlega það sem margir kristnir menn segja líka? Hljómar allaveganna svipað.

Guðmundur Steinbach (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 14:09

31 Smámynd: Mofi

Guðmundur, frekar að kristnir trúa að Biblían sé innblásin af Guði og þar af leiðandi sönn en það þýðir að hún er í samræmi við raunveruleikann. Margir kristnir hafa yfirgefið trúnna vegna þess að einhver sannfærði þá um að Biblían væri röng og aðrir hafa komist til trúar vegna þess að þeir komust að því að Biblían væri trú.

Mofi, 20.2.2008 kl. 14:15

32 identicon

Vó... það má ekki líta af þessu bloggi til að reyna að vinna og þá eru kominn tugir athugasemda. Mofi má þó eiga það að þetta er virkt blogg.

Mér sýnist vera nokkur atriði sem ég er beðinn um að svara... Mofi vill vita um "Hvaða stærri meindýr ertu að hugsa um sem þér finnst að góður Guð gæti aldrei skapað?" Moskítóflugan er gott dæmi, og einnig hinir ýmsu hringormar sem smita fólk í heiminum, þó sérstaklega Afríku. Hérna er smá brot úr greinini í Wikipedia um snýkla (parasites) sem sýnir að til er aragrúi smádýra (þetta eru aðallega bakteríur) sem komast inn í hinn "frábærlega hannaða" líkama okkar og valda veikindum og dauða, oft kvalafullum.

"Parasitic diseases account for a large proportion of human morbidity and mortality, and doubtless contribute significantly to morbidity and mortality among all animal populations as well. In this sense, parasitic disease is an important ecological force shaping the biosphere.

Some major parasitic diseases of humans include malaria, sleeping sickness, schistosomiasis, leishmaniasis, ascariasis, enterobiasis, entamoebiasis, elephantiasis, river blindness, giardiasis and cryptosporidiosis, as well as minor afflictions like lice, mites, chiggers, bot flies, bed bugs, ticks, eye worms, lung worm, and guinea worm. Humans are also subject to a myriad zoonotic diseases including Diphyllobothrium, hydatid disease, trichinellosis, Taenia infections, and anisakiasis."

Og svo er þetta: 

Mama G
"Til hvers í ósköpunum var verið að skapa heiminn yfirhöfuð!? segi ég nú bara. Þetta er spurning sem enginn maður hefur getað svarað hingað til án þess að vekja bara upp enn fleiri spurningar og mér finnst nú alveg ótrúlegt að sjá að hann Jóhann haldi að Mófi geti svarað þessu frekar en aðrir sem þessa Jörð hafa gengið. Mófi setti bara fram hérna færslu um það um hvað Aðvent kirkjan snýst um og ekkert annað. Óþarfi að brjálast eitthvað yfir því.

Ég tel mig í fyrsta lagi ekkert vera "að brjálast", og er eingöngu að benda á vitleysuna sem er sköpunarsaga  Aðventista, sem er í beinni mótsögn við allar vísbendingar í umhverfinu. 90% Íslendinga trúir þróunarkenningunni, og það þýðir þar með að meirihluti þeirra sem trúa á guð á Íslandi trúa þróunarkenningunni engu að síður, enda þarf annað ekkert að útiloka hitt.

Svo þarf nú varla að taka fram að ég trúi því ekki að heimurinn hafi "verið skapaður" og er því lítið að spá í hver tilgangur hins ímyndaða "skapara" ætti að vera. Svo er ég viss um að það er enginn sérstök ástæða fyrir veru okkar hérna á jörðinni, frekar en að antilópur eða þorskar hafi einhverja ástæðu fyrir tilvist sinni.

En þið sem trúið biblíunni... haldið þið að við séum hérna til að geðjast ímyndaðri veru sem refsar svo þeim vondu og umbunar þeim góðu, sem er þó alltaf bara lítill hópur, varla telja Aðventistar að gyðingar komist til himna, eða hvað? Ekkert frekar en vottar Jehóva trúi því að kaþólikkar komist til himna.  Varla trúiði að ég komist til himna.

Jóhann Þórsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 15:07

33 Smámynd: Mofi

Jóhann
Mofi vill vita um "Hvaða stærri meindýr ertu að hugsa um sem þér finnst að góður Guð gæti aldrei skapað?" Moskítóflugan er gott dæmi

Ætla að reyna að fjalla betur um moskítófluguna í kvöld. Þar sem ég þekki ekki öll dæmin get aðeins svarað þeim á almennann og hinn sama og ég gerði áður að þarna er sköpunin búin að bila frá því sem hún áður var.


Jóhann
Ég tel mig í fyrsta lagi ekkert vera "að brjálast", og er eingöngu að benda á vitleysuna sem er sköpunarsaga  Aðventista, sem er í beinni mótsögn við allar vísbendingar í umhverfinu

Hvaða vísbendingar ertu að hugsa um?  Ef þú átt við dæmin um "slæma" sköpun þá passa þau vel við minn skilning á bæði sköpun og síðan falli sköpunarinnar.

Jóhann
En þið sem trúið biblíunni... haldið þið að við séum hérna til að geðjast ímyndaðri veru sem refsar svo þeim vondu og umbunar þeim góðu, sem er þó alltaf bara lítill hópur, varla telja Aðventistar að gyðingar komist til himna, eða hvað? Ekkert frekar en vottar Jehóva trúi því að kaþólikkar komist til himna.  Varla trúiði að ég komist til himna.

Ekki spurning um að geðjast einhverri veru heldur að Skaparinn hefur lagt í brjóst þér og mér hvað er gott og hvað er slæmt. Allir vita að það er slæmt að stela, ljúga, hata, myrða, nauðga, öfunda, girnast og fleira og þeir sem eru sekir um þetta á dómsdegi eru í vandræðum.  Eina ástæðan fyrir því að ég hef von um að erfa eilíft líf er vegna þess að Kristur borgaði gjaldið fyrir hið vonda sem ég gerði; ég geri ekki neitt til að verðskulda það nema að treysta á Hann. þ 

Ég trú því að allir sem eru sekir um þessa hluti verða sekir frammi fyrir Guði og án einhvers til að borga gjaldið þá eru þeir í vandræðum þótt ég viti ætla ekki að þykjast vita hvernig þetta allt saman fer á endanum.

Mofi, 20.2.2008 kl. 15:36

34 identicon

Skoðaðu þetta Mofi því þarna munt þú sjá spegilmynd þína... auðvitað er ég löngu búinn að blogga þetta mar...

DoctorE (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 16:20

35 Smámynd: Mofi

Skoða hvað DoctorE?

Mofi, 20.2.2008 kl. 16:27

36 identicon

Jóhann Þórsson skrifaði: Svo er nú betra, svona ef maður vill vita eitthvað eðlilegt um þróun veira að skoða það sem telst "virt" vísindarit, eins og Nature, hérna er t.d. brot úr fínni grein um þróun HIV veirunnar, þar sem guð er hvergi nærri og ("ó nei"!) nýjar upplýsingar verða til:

One of the earliest and most striking observations made about HIV is the extensive genetic variation that the virus has within individual hosts, particularly in the hypervariable regions of the env gene; this variation makes HIV one of the fastest evolving of all organisms. Such rapid evolution is the result of an explosive combination of factors. First, the virus experiences a high rate of mutation, with reverse transcriptase making approx 0.2 errors per genome during each replication cycle, and further errors occurring during transcription from DNA by RNA Pol II polymerase. Second, HIV has remarkable replicatory dynamics: it has a viral generation time of approx 2.5 days and produces approx 1010–1012 new VIRIONS each day. Finally, frequent recombination and natural selection further elevate its rate of evolutionary change.

Það virðist því vera satt, sem nafni segir, að Guð hafi ekkert með "the extensive variation that the virus has. . ."  Guð hefur ekki neitt að gera með "a high rate of mutation" og þær "errors" som myndast. Og hér er "evolutionary change."

Ég er hvorki læknir né vísindamaður, en ef ég skil þetta rétt, þá er hér um þróun að ræða, ekki af hina góða, en af því sem skaðar hold mannsins of kostar mörg mannslíf. Þetta er þá þróun?

Jóhann Þorvaldsson (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 22:35

37 Smámynd: Mofi

Jóhann
Ég er hvorki læknir né vísindamaður, en ef ég skil þetta rétt, þá er hér um þróun að ræða, ekki af hina góða, en af því sem skaðar hold mannsins of kostar mörg mannslíf. Þetta er þá þróun?

Alvöru þróun býr til nýtt prótein, ekki smá afbrigði af einhverju sem var til fyrir. Alvöru dæmi væri óeinfaldanleg vél eins og flagellum mótorinn og þá hefðu darwinistar eitt dæmi til að reyna að sannfæra menn um að miljónir þeirra gætu hafa myndast svona.

Mofi, 26.2.2008 kl. 10:49

38 identicon

"OK, let’s do the math.*

Total number of proteins listed: 42

(this table excludes the chemotaxis proteins; there are ~10 chemotaxis proteins in standard E. coli, but the number can range from 0 to 10+ in various bacteria)

Total number thought to be indispensable in modern flagella: 23 (55%)

Total number “unique” (no known homologs): 15 (36%)

Total number of indispensable proteins that are also “unique”: 2 (5%)

The implications

Here are some of the various implications of these findings:

1. Scott Minnich, the leading flagellum expert in the ID camp, was severely wrong about the most basic data relevant to the origins of the flagellum, the flagship system of the ID movement.

2. Minnich promoted his mistaken view in the video Unlocking the Mystery of Life, which has been widely promoted by ID advocates across the country, viewed in countless church basements, IDEA club meetings, etc.

3. Stephen Meyer, the Program Director of the Center for the Renewal of Science and Culture at the Discovery Institute, was severely wrong about the most basic data relevant to the origins of the flagellum, the flagship system of the ID movement.

4. The paper by Minnich and Meyer repeated this error, and if the paper was “peer-reviewed” at all, it was not by people who knew anything about the most basic data relevant to the origins of the flagellum.

5. The error propagated further in Minnich’s expert report.

6. William Dembski, who put the flagellum on the cover of his book No Free Lunch, uses the flagellum in all his talks, and makes it the key example in his only wild attempt to actually “do the calculation” of the probability of the natural origin of a complex biological system, was severely wrong about the most basic data relevant to the origins of the flagellum, the flagship system of the ID movement.

7. Discovery Institute spokesman Casey Luskin, although slightly less wrong than everyone else, was severely wrong about the most basic data relevant to the origins of the flagellum, the flagship system of the ID movement, even in an essay where he criticized Kenneth Miller and Judge Jones for getting the flagellum stuff wrong in the Kitzmiller case.

(And, I personally observed Casey Luskin promulgating this exact mistaken talking point to a gaggle of press at the Kitzmiller trial. I corrected him publicly right then (I think I said, “Just so you know, everything he said just then is totally wrong”), but to no avail.)

8. Casey Luskin’s helpers, “Alex Binz, David Klinghoffer, and an un-named biochemist in the University of California system” were also unable to catch the basic error.

9. None of the above folks ever bothered to go to the library and check their basic facts.

10. Heck, none of these guys bothered to get on the web and check their basic facts.

11. No one else in the ID movement, either leaders or fans, ever bothered to check their facts and correct these guys publicly or privately.

12. Apparently, everyone in the ID movement just mindlessly copies everyone else’s talking points.

13. None of these folks have a friggin’ clue what they are blathering about when it comes to flagellum evolution.

That about covers it, I think. Comments are welcome, as are further examples of this error in the ID literature."

Tekið af : Flagellum evolution in Nature Reviews Microbiology

Nr. 12 er uppáhaldið mitt en nr. 13 summerar þetta nokkuð vel upp.

Getur bætt þessu á listan yfir allar 'sannanirnar' sem ég stend mig svo illa í að benda þér á. 

Arnar (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 11:07

39 Smámynd: Mofi

Númer 12 líka uppáhaldið mitt þar sem þú copy pastarið öllu þessu hérna LOL

Númer 9 er líka fyndið af því að Ken Miller vissi ekki hvað stóð í hans eigin skólabókum sem hann skrifað!

Arnar
Total number thought to be indispensable in modern flagella: 23 (55%)
Total number “unique” (no known homologs): 15 (36%)
Total number of indispensable proteins that are also “unique”: 2 (5%)

Rannsóknir sýna að ef eitt af sirka 40 próteinum þá hættir tækið að virka. Það sem þessi virðist vera að gera er að taka tæki sem er líkt flagellum mótornum og setja það fram sem þau prótein sem hægt er að fjarlægja en samt halda einhverri virkni. Málið snýst ekki um einhverja virkni heldur virkni þessarar ákveðnu vélar á þeim stað sem hún er á. Tilgangslaust að hafa mótor í skottinu hjá sér.

Ef þetta er dæmi um einhverja sönnun þá held ég að ég og þú höfum mjög ólíkann skilning á hvað sannanir eru. Þetta var aðeins léleg afsökun á því augljósa sem er að röð af tilviljunum gæti aldrei búið til vél eins og flagellum mótorinn.

Mofi, 26.2.2008 kl. 12:26

40 identicon

'Sönnunn' innan svona ' lappa dæmi :)

Og í nr. 12 stendur "Apparently, everyone in the ID movement just mindlessly copies everyone else’s talking points."  Grunaði að það væri líka í uppáhaldi hjá þér, stundar það amk. grimmt.  Munurinn á mér og þér er að ég las þetta allt áður en ég gerði copy/paste. 

Rannsóknir sýna líka að aðeins 2 af 42 próteinunum séu bæði einstök og ómissandi..

Upphaflega snérist málið um 'einhverja virkni' en fór að gera það fljótlega eftir að bennt var á það var til annað líffæri sem hefur hluta af próteinum úr Flagellum.  Það að líffæri A þróist yfir í líffæri B og A og B hafa ekki nákvæmlega sömu virkni smell passar beint inn í allar þróunarkenningar sem ég hef lesið.  Td. augu.. eyru.. útlimir.. 

Ken Miller vissi ekki hvað stóð í kennslubókinni hans.. var það ekki um hvort þróun væri tilviljunakennd eða ekki?  Hann sagði að þróun væri ekki tilviljunakennd en það stóð að þróun væri tilviljunarkennd í þessari bók.

Hvað segirðu svo um að svara öllu hinu.. eða er AiG&Co ekki tilbúið með svona 'debunking pandas thumb..  ' eitthvað fyrir þig að copy/pasta?

Arnar (IP-tala skráð) 26.2.2008 kl. 12:55

41 Smámynd: Mofi

Arnar
Rannsóknir sýna líka að aðeins 2 af 42 próteinunum séu bæði einstök og ómissandi..

Ég veit ekki betur en rannsóknir hafa sýnt fram á að það þarf 40. Hvort að það séu til lík prótein einhvarsstaðar sem eru lík kemur málinu lítið við.  Að setja þetta allt saman er alveg jafn mikið vandamál og að búa til próteinin.

http://www.answersingenesis.org/home/area/re2/chapter10.asp
Actually, what Behe says he means by irreducible complexity is that the flagellum could not work without about 40 protein components all organized in the right way. Scientific American’s argument is like claiming that if the components of an electric motor already exist in an electrical shop, they could assemble by themselves into a working motor. However, the right organization is just as important as the right components.

Hérna er fín grein sem Behe skrifaði um tilraunir Millers til að þykjast vera sniðugur: http://www.discovery.org/a/1831

Mofi, 26.2.2008 kl. 13:48

42 Smámynd: Mofi

Jóhann Þorvaldsson
Það virðist því vera satt, sem nafni segir, að Guð hafi ekkert með "the extensive variation that the virus has. . ."  Guð hefur ekki neitt að gera með "a high rate of mutation" og þær "errors" som myndast. Og hér er "evolutionary change."

Ég er hvorki læknir né vísindamaður, en ef ég skil þetta rétt, þá er hér um þróun að ræða, ekki af hina góða, en af því sem skaðar hold mannsins of kostar mörg mannslíf. Þetta er þá þróun?

Við sem aðhyllumst sköpun afneitum ekki að stökkbreytingar gerist og að þær geti gert hitt og þetta. Samt aðalega eitthvað eins og HIV, eitthvað sem er skaðlegt. Alveg eins og ef þú værir með skáldsögu og það kemur upp stafsetningarvilla þegar hún er afrituð þá segir það manni ekki að svona stafsetningarvillur voru höfundurinn að bókinni. Þetta er það sem darwinistar virðast trúa og ég skil ekki þeirra miklu trú.

Mofi, 26.2.2008 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 802822

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband