Forsetinn er eini alvöru fulltrúi fólksins í landinu

Allt þetta lið sem er á þingi komst þangað óbeint. Það komst þangað í skjóli flokksins sem það tilheyrir. Í síðustu kosningum þá var mjög lítill hluti sem hefði sagt já við því að Sigmundur Davíð yrði valdamesti maður þjóðarinnar en vegna þessa fyrirkomulags sem við höfum þá gerðist akkúrat það.

Forsetinn er í rauninni eini einstaklingurinn sem er persónulega kosinn af þjóðinni og hans vald er mjög heppilegt, að geta stöðvað þingið og beint málum til þjóðarinnar ef hann telur þörf á því. Mér finnst þetta fyrirkomulag vera það besta sem ég veit um meðal þeirra þjóða sem ég þekki til. Hve stórfurðulegt væri það ef að það væru kosningar í Bandaríkjunum og síðan verður einhver forseti sem hafði frekar fá atkvæði á bakvið sig en bara lenti í góðri samningastöðu. 

Nei, að við höfum forseta sem er persónulega kosinn af þjóðinni er það lýðræðislegasta við Ísland. Það er eins og þeir sem komast á þing tútni út af sjálfum sér, fyllist valdahroka og þola ekki að einhver geti stöðvað þá. Að breyta eina hlutverki eina einstaklingsins sem er persónulega kosinn af þjóðinni í eitthvað valdalaust skraut er ekki skref til lýðræðis. Sumir geta sagt að þjóðin sjálf á alltaf að geta knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu og því er ég sammála en þjóðin hefur mjög oft ekki nægilega þekkingu á því sem er að gerast inn á alþingi svo þess vegna er ekki hægt að treysta á að almenningur muni alltaf hafa nægar upplýsingar til að standa upp og stöðva þingið.


mbl.is Helgi Hrafn: Vill breytt hlutverk forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband