Að traðka á von annara

gisele_b_ndchen.jpgÉg skil alveg efasemdafólk þegar það nálgast boðskap Biblíunnar og á erfitt með að trúa honum.  Það sem ég skil ekki er fyrirlitningin og löngunin að rakka niður fólk sem hefur þessa von. Erfitt fyrir mig að sjá það sem eitthvað annað en illsku og mannfyrirlitningu.

Það er sannarlega erfitt þegar svona ung lífsglöð manneskja deyr en andspænis því þá er vonin um eilíft líf þar sem þjáningar og dauði er ekki lengur til. 

Ef að bara þessir svo kölluðu efasemdamenn sem svo sem kunna ekki að efast um sína eigin afstöðu myndu aðeins nálgast þetta efni frá aðeins jákvæðari forsendum og aðeins meiri kærleika til þeirra sem hafa aðrar skoðanir en þeir. 


mbl.is „Í dag varð hún að engli“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skeggi Skaftason

Finnst þér í alvörunni að þú finnir fyrir slíkum viðhorfum? Að fólk sé að traðka á og gera lítið úr trú og von um einhverskonar framhaldslíf? Það er leitt að heyra.

Skeggi Skaftason, 6.10.2014 kl. 12:51

2 Smámynd: Mofi

Finnst þér í alvörunni það ekki vera þannig?

Mofi, 6.10.2014 kl. 13:31

3 Smámynd: Skeggi Skaftason

Hér á þessarri bloggsíðu og víðar er hart deilt, ekki síst um Biblíulega bókstafstrú. Ég sé miklu minna og sáralítið að því að trúleysingjar séu beinlínis að gera lítið úr því að fólk hafi einhverskonar trú og von um að eitthvað taki við eftir dauðann.

Annars held ég að "traðkið" sé ekki minna hinum megin. Það er líka æði oft traðkað á lífsviðhorfum trúlausra, þeir sagðir lifa tómu og vonlausu lífi, jafnvel að trúlausa skorti traust og gott siðferði.

Skeggi Skaftason, 6.10.2014 kl. 14:12

4 Smámynd: Mofi

Ég er ekki bara að tala um hérna heldur almennt í samfélaginu.  Ég er ekki að gagnrýna að einhver gagnrýni lífsviðhorf heldur hvernig er nálgast viðfangsefnið en hvernig fólk nálgast umfjöllun um kristna trú í samfélaginu er mjög oft með mikilli fyrirlitningu.

Mofi, 6.10.2014 kl. 14:34

5 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Mofi, fólk "rakkar niður" þessa trú ykkar af því að fólkið sem hefur þessa von lætur annað fólk ekki í friði. Ef kirkjur væru ekki ríkisreknar, væru ekki endalaust að reyna að komast í börn annarra og væru ekki sífellt að reyna að sannfæra annað fólk um að þessi von væru raunveruleg, þá er ég nokkuð viss um að þið gætuð haft hana í friði.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 6.10.2014 kl. 18:27

6 Smámynd: Mofi

Ég vil ekkert vera látinn í friði, mér finnst bara undarleg nálgunin á trúnni, þessi fyrirlitning og oftar en ekki hatur. Þú heldur að andspænis dauðanum er engin von, allt í lagi, en af hverju þeir sem hafa þessa von, af hverju einhver ánægja að rakka hana niður?

Mofi, 6.10.2014 kl. 21:31

7 Smámynd: Skeggi Skaftason

Mofi,

ég held þetta sé einhver ímyndun í þér, í alvöru, að þín von sé rökkuð niður?!

Skeggi Skaftason, 6.10.2014 kl. 23:13

8 Smámynd: Mofi

Ég sé kristna trú sem snýst um þessa von andspænis dauðanum vera rakkaða niður í íslensku samfélagi. Það sem angrar mig er afhverju að nálgast viðfangsefnið með fyrirlitningu. Mér finnst miklu eðlilegra að fólk myndi óska þess að þessi trú væri sönn en einfaldlega efast um það en það sem ég sé er að fólk er sannfært um að hún sé röng og hatar hana og gerir grín af trúnni. Mér finnst þetta bara sorgleg nálgun á umræðuefnið.

Mofi, 7.10.2014 kl. 07:41

9 Smámynd: Skeggi Skaftason

Fólk gerir grín að mörgu varðandi trú, ég held að það sé ósköp eðlilegt að fólk grínist að því að sumt fólk trúi á alveg hreint ótrúlegustu hluti. En afar fáir gera grín að því að fólk leyfi sér að vona og trúa því að það sé eitthvað "meira" til í þessu lífi.

Er ekki málið að þú tengir þetta saman, þína "von" OG allan þinn trúarpakka? Þú ert sjálfur mjög gjarn á að beina því til trúelysingja að fyrist þeir trúi ekki á Guð og framhaldslíf þá sé þeirra líf tómt vonleysi og tilgangslaust. Hversu marga pistla hefur þú ekki skrifað um akkúrat það, að trúlaust líf hafi engan tilgang í sjálfu sér, ekkert rétt eða rangt?

Ert þú ekki bara að hlaupa í fórnarlambadilkinn með biskupnum?!

Skeggi Skaftason, 7.10.2014 kl. 08:42

10 Smámynd: Mofi

Þetta er mín upplifun á samfélaginu ásamt umræðum um trúmál á blogginu. Bara þessi nálgun.

Ég bendi sannarlega á það sem mér finnst vera að guðleysis hugmyndafræðinni og myndi ekki óska mínum verstu óvinum þannig lífi svo sú gagnrýni er miklu frekar að maður vonar að fólk sjái hvað þetta er döpur heimsmynd.  Af hverju ætti einhverjum að finnast slæmt að sú hugmyndafræði sé rökkuð niður? Þykir einhverjum vænt um að þetta er allt saman tilgangslaust og engin von andspænis dauðanum?

Skeggi
Ert þú ekki bara að hlaupa í fórnarlambadilkinn með biskupnum?!

Mér finnst aðeins eðlilegra að umræðan væri á öðrum nótum. Það hefur nokkrum sinnum komið upp að fólk hefur sagt "Auðvitað vildi ég að Guð væri til, að það væri réttlæti framundan þar sem hlutur hinna minni máttar væri réttur og hinum vondu væri refsað og fram undan væri eilíft líf án þjáninga og sorga". 

Mofi, 7.10.2014 kl. 09:31

11 Smámynd: Skeggi Skaftason

Æ, veistu, þú er að henda steinum úr glerhúsi.

af hverju ætti einhverjum að finnast slæmt að sú hugmyndafræði sé rökkuð niður?

Þú sem sé beinlínis agiterar fyrir því að mín lífsskoðun sé rökkuð niður, en ert svo að grenja af því einhverjir rakki niður þína lífsskoðun.

Skeggi Skaftason, 7.10.2014 kl. 10:54

12 Smámynd: Mofi

Af því að þín lífsskoðun er að það er engin von... ég vil ekki beint rakka hana niður en ég vil benda á að hún er frekar niðurdrepandi.

Ég er að benda á að mér finnst undarlegt að nálgast von einhvers á fjandsamlegan hátt.  Hvaða von er í þinni lífsskoðun?  Ég vil ekki rakka hana niður, ég vil bjóða þér eitthvað betra. Ef þér þykir vænt um þína lífsskoðun... þá er ég bara orðlaus, af hverju eiginlega? 

Mofi, 7.10.2014 kl. 10:57

13 Smámynd: Skeggi Skaftason

:)

Þú skilur ekki mína lífsskoðun og ég nenni ekkert að útskýra hana fyrir þér. Veit ekki hvort þú myndir vilja skilja.

Vertu nú bara feginn að þú þurfir ekki að styrkja með þínum sköttum sérstaka ríkisstofnun með yfir 140 ríkisstarfsmönnum utan um mína lífsskoðun!

Skeggi Skaftason, 7.10.2014 kl. 11:38

14 Smámynd: Mofi

Þjóðkirkjan er engan vegin stofnun sem passar við mína trú, ég er mjög á móti henni. Ef þú ert einhvern tíman í stuði þá endilega segðu mér hver þín lífsskoðun er og enn frekar, hvað við hana þér þykir vænt um.

Mofi, 7.10.2014 kl. 11:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 802791

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband