Hve mörg börn dóu við að búa til stríðsgöng Hamas?

hamaschildarticle.jpgEr erfitt að trúa því að það er til fólk sem er sama um börn?  Ég get vel ímyndað mér að það er mjög erfitt fyrir venjulegt fólk að ímynda sér slíkt.  Samt, út um allan heim þá lifa börn við hræðileg skilyrði, sum neydd í þrælkunarbúðir, sum seld í kynlífsiðnaðinn ( að kalla bara þetta iðnað er hræðilegt ) og margt, margt annað.  

Til að skilja hugmyndafræði Hamas þá mæli ég með þessu viðtali hérna við fyrrverandi meðlim Hamas hreyfingarinnar, sjá: Fyrrverandi Hamas liði segir frá sinni æsku

En að heiti greinarinnar, hérna er grein sem fjallar um hve mörg börn er talið að hafa dáið við að grafa göngin sem Hamas notar til að berjast við Ísrael, sjá: http://www.nationalreview.com/article/384004/child-labor-deaths-hamas-tunnels-are-no-surprise-spencer-case 

Um 160 börn eru talin hafa dáið við að búa þessi göng til svo ætti það að koma einhverjum á óvart að Hamas sé sama um hvort að börn slasist vegna þeirra stríðsbrölts?  Það sem er alveg á hreinu er að Hamas velur að berjast meðal almennings og velur að skjóta á almenna borgara svo þeir sem efast um illsku þeirra eru vægast sagt heilaþvegnir.


mbl.is Stúlkan sem leitaði skjóls í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skeggi Skaftason

Enn heldur þú áfram að líta mjög einhliða á þetta stríð og einblína á HAMAS.

Ég sé enga hér á landi sem mótmæla offorsi Ísraels vera neitt að styðja Hamas. Af hverju heldur þú alltaf áfram að tala um Hamas? Fullr fullt af fólki flýr yfirvofandi sprengjuregn, Hamas ræður ekki yfir því hvar hver og einn Gaza íbúi er staddur. Um 3000 manns höfðust að í skóla einum, sem fólkið taldi "öruggt" svæði, en varð svo fyrir sprengjuárás.

Heldur þú að það sé hægt að komast áleiðis í deilunni um Palestínu, með því að "útrýma" Hamas, með hernaðaraðgerðum? Og hvað svo??

Hvernig er líf palestínskra óbreyttra borgara á Vesturbakkanum, þar sem Hamas hafa lítil ítök og eru ekki við stjórnvölinn? Hafa Ísraelsmenn sýnt ÞAR að þeir virði mannréttindi og stuðli að friði og viðunandi framtíð fyrir ALLA??

Ég held að þessi eindregni stuðningur þinn við ANNAN aðilann í þessu stríði sé til marks um trúarlega grundvallaðar rasískar skoðanir þínar á Aröbum.

Þú ættir að lesa betur orð Jesú Krists, hann var friðarins maður og elskaði ALLA.

Þú tekur þátt í að dreifa stríðsáróðri. Þú ert stríðsæsingamaður og þú leyfir þér að RÉTTLÆTA morð á börnum. Óþverri.

Skeggi Skaftason, 31.7.2014 kl. 10:45

2 Smámynd: Mofi

Skeggi
Enn heldur þú áfram að líta mjög einhliða á þetta stríð og einblína á HAMAS.

Ég tel að gögnin bendi algjörlega í þá átt.

Skeggi
Ég sé enga hér á landi sem mótmæla offorsi Ísraels vera neitt að styðja Hamas

Það er ekki að kenna Hamas um þessar hörmungar en á meðan árásar aðilinn heldur áfram sínu árásum þá er engin möguleiki á friði.

Skeggi
Heldur þú að það sé hægt að komast áleiðis í deilunni um Palestínu, með því að "útrýma" Hamas, með hernaðaraðgerðum? Og hvað svo??

Það þarf bara að stöðva þá eða þeir að hætta sjálfir. Ef að almennings álitið í heiminum væri á þá leið að þeir væru þrjótar fyrir það sem þeir eru að gera. Ef að þeirra aðgerðir væru að búa til samúð með Ísrael og andúð á Hamas þá myndu þeir líklegast hætta. Aðalega þá reyna að finna aðra leið til að tortýma Ísrael en allar aðrar leiðir hljóta að vera betri en sú sem þeir eru að beita núna.

Skeggi
Hvernig er líf palestínskra óbreyttra borgara á Vesturbakkanum, þar sem Hamas hafa lítil ítök og eru ekki við stjórnvölinn? Hafa Ísraelsmenn sýnt ÞAR að þeir virði mannréttindi og stuðli að friði og viðunandi framtíð fyrir ALLA??

Ég veit ekki betur en arabar sem búa í Ísrael hafi það bara fínt, sjá: http://en.wikipedia.org/wiki/Arab_citizens_of_Israel

Skeggi
Ég held að þessi eindregni stuðningur þinn við ANNAN aðilann í þessu stríði sé til marks um trúarlega grundvallaðar rasískar skoðanir þínar á Aröbum.

Mín skoðun er að Ísrael er ekki þjóð Guðs, sjá: Ísrael er ekki lengur útvalin þjóð Guðs  Taktu eftir að ég gerði þessa grein 2008.

Ég vinn með nokkrum múslímum, virkilega fínir strákar sem ég kalla vini.

Skeggi
Þú ættir að lesa betur orð Jesú Krists, hann var friðarins maður og elskaði ALLA.

Og Hann gagnrýndi harkalega þá sem voru að gera ranga hluti eins og Faríseiana.  Ég trúi að Hamas er að gera hræðilega hluti og gagnrýni þá.

Skeggi
Þú tekur þátt í að dreifa stríðsáróðri. Þú ert stríðsæsingamaður og þú leyfir þér að RÉTTLÆTA morð á börnum. Óþverri

Nei, ég vil að skömmin fari til þeirra sem eru sekir og það er Hamas. Ef þú kennir röngum aðila um þá ertu að ýta undir að fleiri börn deyi svo mér finnst það virkilega mikilvægt.

Eina sem þarf að gerast er að Hamas hætti sínum árásum, það er ekkert flóknara en það. 

Mofi, 31.7.2014 kl. 11:27

3 Smámynd: Mofi

Ein spurning sem mig langar að leggja fyrir þig Skeggi, heldur þú að Ísrael vilji drepa almenna borgara og börn í Gaza? 

Mofi, 31.7.2014 kl. 11:29

4 Smámynd: Skeggi Skaftason

Ég veit ekki betur en arabar sem búa í Ísrael hafi það bara fínt,

Þú veist ekki betur segirðu, já þú hefur greinilega ekkert kynnt þér hlutina. Og heldurðu að Palestínumenn á Vesturbakkanum og Gaza geti bara sí svona flutt til Ísrael??

Lestu t.d. þetta:

http://kvennabladid.is/2014/07/30/dagbokarbrot-fra-vesturbakkanum/

Svo geturðu líka kíkt á þetta, síðu sem fyrrverandi ísraelskir hermenn halda úti því þeir vilja upplýsa um hvermig hernám þeirra á VEsturbakkanum er í raun og veru:

http://www.breakingthesilence.org.il/

My first mission involved the seizure of a Palestinian home. I had never before had the opportunity to be inside a Palestinian home, and my squad was surprised for a moment by the fact that within the home lived an entire family – spanning three generations. We woke everyone up, and took over the house. We put everyone in one room - women, men, children, and the elderly. One of the guys was stationed at the door to ensure that they didn’t get out. In the meantime, we took care of our business. I remember asking myself: what do they think about all of this? What would I do if soldiers broke into my home? But I immediately repressed these questions and carried on with the mission. As time passed, fear turned into boredom, adrenaline stabilized, and my doubts about the extent of the operational logic and its justification would return to gnaw at me. But the next day there were already new operations. This was our daily routine, and as a result, the next time I didn’t really think about how the family whose home we entered felt. My personal red moral line blurred very quickly. Every time I would tell myself – this is still okay. But it’s in the nature of red lines to move along an imaginary scale. I wasn’t bothered when we destroyed entire homes during search operations, and when my squad accidentally shot an innocent woman, and we quickly buried the incident and moved on. Today I know that my ability to distinguish whether a particular action crosses the line, didn’t really exist back then.

Skeggi Skaftason, 31.7.2014 kl. 12:09

5 Smámynd: Skeggi Skaftason

Nei, ég held ekki að ísrael VILJI myrða óbreytta borgara og börn eða geri það með glöðu geði (þó svo raunar fámennir hatursfullir öfgahópar í Ísrael fagni öllum hinum látnu), en þeir virðast líta á slík hryðjuverk sín sem ásættanlegan fórnarkostnað í stríði sínu við Hamas.

Skeggi Skaftason, 31.7.2014 kl. 12:12

6 Smámynd: Mofi

Skeggi
Þú veist ekki betur segirðu, já þú hefur greinilega ekkert kynnt þér hlutina. Og heldurðu að Palestínumenn á Vesturbakkanum og Gaza geti bara sí svona flutt til Ísrael??

Nei, ég held að gyðingar séu mjög á varbergi gagnvart að hleypa þessu fólki nálægt sér enda hafa þau slæma reynslu af því. 

Skeggi
http://kvennabladid.is/2014/07/30/dagbokarbrot-fra-vesturbakkanum/

Í mínum augum er þetta áróður.  Það eru ótal sögur frá alls konar fólki út um allt, þar á meðal gyðingar sem Ísrael vildi að þeir færu frá því sem þeir kölluðu heimili.  Þetta er ekkert auðvelt ástand en það er hægt að vinna í að gera það betra eða fara í skæruliða hernað gagnvart óbreyttum borgurum.

Skeggi
Nei, ég held ekki að ísrael VILJI myrða óbreytta borgara og börn eða geri það með glöðu geði (þó svo raunar fámennir hatursfullir öfgahópar í Ísrael fagni öllum hinum látnu), en þeir virðast líta á slík hryðjuverk sín sem ásættanlegan fórnarkostnað í stríði sínu við Hamas.

Hvað heldur þú að þau ættu frekar að gera?  

Mofi, 31.7.2014 kl. 12:27

7 Smámynd: Skeggi Skaftason

Nei, ég held að gyðingar séu mjög á varbergi gagnvart að hleypa þessu fólki nálægt sér enda hafa þau slæma reynslu af því.

Þessu fólki

ÞESSU FÓLKI

ÞESSU FÓLKI

Einmitt - í þínum augum eru Ísraelar góða fólkið og "þetta fólk" varhugavert.

Í mínum augum er þetta áróður. Það eru ótal sögur frá alls konar fólki út um allt, þar á meðal gyðingar

EN af hverju kýst þú að trúa bara og hampa sögum frá ANNARRI HLIÐINNI??

Ég geri mér grein fyrir því að mér ekki takast að breyta skoðunum þínum, og allt sem ég segi kýst þú að kalla áróður. Ég ætla því ekkert að ræða þetta frekar við þig.

Þú verður af afsaka ókurteisina en ég reiðist þega ég les svona skrif eins og þín og ég segi þetta ekki til að móðga þig heldur bara til að lýsa minni skoðun eftir þessi skrif þín sem er sú að mér finnst þú heimskt auðtrúa fífl.

Skeggi Skaftason, 31.7.2014 kl. 12:59

8 Smámynd: Mofi

Skeggi
Einmitt - í þínum augum eru Ísraelar góða fólkið og "þetta fólk" varhugavert.

Hve oft þar þetta fólk að senda inn sjálfsmorðs menn sem sprengja sig meðal almennings til þess að þú yrðir á varðbergi gagnvart því?

Hve oft þarftu að sjá barnaefni frá þessu fólki þar sem börnunum er kennt að það er ekkert dýrlegra en að deyja þannig?

Hérna er eitt dæmi: https://www.youtube.com/watch?v=N3OYjKZ2Cu8

Skeggi
EN af hverju kýst þú að trúa bara og hampa sögum frá ANNARRI HLIÐINNI??

SKoðaðu aðeins þetta kort hérna:

Megnið af þessum löndum voru unnin með hervaldi af því að það er eðli Islam. Það er þannig sem Múhammeð útbreiddi trúna og hans fylgjendur fóru að hans fordæmi og í dag hefur ekkert breyst.

Skeggi
Þú verður af afsaka ókurteisina en ég reiðist þega ég les svona skrif eins og þín og ég segi þetta ekki til að móðga þig heldur bara til að lýsa minni skoðun eftir þessi skrif þín sem er sú að mér finnst þú heimskt auðtrúa fífl.

Gaman að heyra að þú hefur sterkar skoðanir á þessu og reiðist óréttlæti en þú virðist ekki einu sinni velta því fyrir þér hvort að þú ert í röngu liði í þessu.  Ég kalla þetta sem þú bentir mér á áróður af því að þetta var tilfinningaleg saga einstaklings eins og slíkt segi alla söguna og sé einhvers konar grunnur til að taka afstöðu í svona máli.  Ég sagði aldrei að þessi saga væri einhver lygi heldur að þetta er ekkert öll sagan.

En þú vilt sem sagt ekki segja okkur hvað Ísrael ætti að gera í þeirri stöðu sem það er í?

Mofi, 31.7.2014 kl. 13:20

9 Smámynd: Skeggi Skaftason

Ef ég vissi HVAÐ Ísrael ætti að gera myndi ég hrópa það á öllum götuhornum!

Ég segi bara þetta - leiðin til friðar er ekki sú að ala á meira hatri.

Ef þú getur lesið þig í gegnum sænskuna ættirðu að kíkja á þetta:

http://www.dn.se/nyheter/varlden/hatet-krossar-skor-samvaro/

Skeggi Skaftason, 31.7.2014 kl. 13:52

10 Smámynd: Mofi

Með hjálp google translate þá held ég að ég hafi náð megin atriðum greinarinnar.  Ég er á því að Ísrael ætti ýtrekað að gera hlé á árásum, ýtrekað segja að þeir vilja frið og svo framvegis. Mér finnst að aðal baráttan er almennings álitið út um allan heim og þeir virðist ætla að sleppa þeirri baráttu.  Ég held að á meðan þessi göng eru til staðar þá vilja þeir eyðileggja þau áður en þeir eru til í frið en já, slíkar aðgerðir ala á hatri bæði í Palestínu og út um allan heim. Núna eru fréttir af auknu gyðinga hatri og fjöldi gyðinga að flýja Evrópu til Ísraels vegna þess.

Ég held að Hillary Clinton er hérna að útskýra eitthvað sem er virkilega stórt atriði sem þarf að laga ef það á að vera fræðilegur möguleiki á friði í framtíðinni, sjá:  https://www.youtube.com/watch?v=wsmd4CfgMdM

Mofi, 31.7.2014 kl. 14:46

11 Smámynd: Skeggi Skaftason

Soorý, ég nenni ekki að hlusta á Hillary Clinton ræða um þetta mál. Kannsk hefur hún eitthvað að segja, en hún er EKKI hlutlaus.

Hér er önnur grein fyrir þig (á ensku), við fyrrum yfirmann Shin Bet (sem er svona einskonar FBI Ísraels).

http://www.spiegel.de/international/world/interview-with-former-israeli-security-chief-yuval-diskin-a-982094.html

Skeggi Skaftason, 31.7.2014 kl. 15:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband