Er trú ekki byggð á gögnum?

Það er komin upp einhver misskilningur meðal margra að trú sé ekki byggð á gögnum. Að ef þú hefur gögn þá er ekki um trú að ræða. Þetta er alls ekki rétt.  Það er skiljanlegt að margir hafa þessa hugmynd því að fólk trúir mörgu sem það hefur engin gögn fyrir og oft virðast margir trúa þrátt fyrir að gögnin virðast afsanna viðkomandi trú.  Menn þurfa að gera sér grein fyrir því að það er hægt að túlka gögn á mismunandi vegu, gögnin túlka sig ekki sjálf og þar spilar trú viðkomandi stórt hlutverk.

Svona skilgreinir Biblían hvað trú er:

Hebreabréfið 11:1
Now faith is the substance of things hoped for, the evidence of things not seen.

Við sjáum í Jóhannes 14:29, 13:19, 16:4 að þá segir Jesú að Hann segir lærisveinunum frá ákveðnum atburðum áður en þeir gerast svo að þegar þeir gerast þá munu þeir trúa. Hann gefur þeim gögn til að byggja sína trú á. Öll kristin kirkja byggir þeim vitnisburði að Jesú reis upp frá dauðum. Menn geta auðvitað afneitað þeim sem vottuðu að þetta gerðist en þeir hinir sömu geta ekki neitað að þarna eru gögn eða vitnisburður til að byggja sína trú á. Þeir geta aðeins sagt að þeirra mati er vitnisburðurinn eða gögnin ekki nógu áreiðanleg fyrir þá til að trúa.

Ímyndið ykkur Ísrael sem var vitni að því þegar Guð opnaði hafið fyrir þjóðinni til að bjarga henni frá egyptum. Erfitt að tala um að það fólk hafði trú þegar það var vitni að slíku en samt nokkru seinna sjáum við að það hafði ekki lengur trú að Guð væri með þeim, að Guð myndi gefa þeim að borða og svo framvegis. Þið getið lesið sögu þeirra í 2. Mósebók.

Ég gerði fyrir nokkru grein þar sem ég fór yfir af hverju þróunarsinnar hafa trú, sjá: Trú þróunarsinna

Síðan að lokum, John Lennox, stærðfræðingur við Oxford að útskýra tenginguna milli skynsemi, trúar og vísindalegra gagna.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skeggi Skaftason

Stundum held ég að þú sért inn við beinið efasemdarmaður, þú þarfnist RÖKLEGRAR réttlætingar fyrir því að trúa á Guð.

Haldbærasta réttlæting þín er sköpun lífs, sem þú telur þér trú um að hafi ekki getað átt sér stað án vitræns hönnuðar - skapara. Þar með er þú kominn með SÖNNUN fyrir tilvist Guðs, og þá er auðveldara að trúa öllu mögulegu öðru í kjölfarið, svo sem að þessi vitræni Guð hafi í raun og veru boðsent efni Biblíunnar telepatískt til þeirra mennsku höfunda sem hana skrifuðu.

(Svo er enn annar handleggur að trúa því að frásagnir biblíunnar um t.d. að Guð hai opnað hafið séu sannar. Um það ætla ég ekki að ræða hér. Við Íslendingar trúðum því framan af að Íslendingasögur væru meira og minna sannar, þær eru líka meira en 1000 árum yngri en biblíuhandritin. Samt vitum við nú að þær eru auðvitað meira og minna skáldskapur.)

Ef sköpunar-sönnuninni sleppir, þá hefurðu í raun og veru ENGA aðra sönnun fyrir því að vitrænn Guð sé til.

Þér virðist ekki nægja að einfaldlega TRÚA því að Guð sé til, þú þarft að SANNFÆRA þig með rökum, gögnum, helst vísindalegum, fyrir því að Guð sé til í raun og veru, en sé ekki hugsanlega bara HUGMYND - SKÖPUN MANNSINS.

Skeggi Skaftason, 22.8.2012 kl. 09:39

2 Smámynd: Mofi

Ég upplifi allt sem ég trúi á þann hátt að ég hef ástæður til að trúa því. Ef að það væru ekki til "sannanir" eða gögn sem bentu til tilvist Guðs þá sé ég ekki að ég gæti réttlætt slíka trú fyrir mér. Hið sama gildir um Biblíuna, ef að hennar vitnisburður væri að mínu mati óáreiðanlegur eins og ég sé Mormónsbók og Kóraninn þá á ég erfitt með að ímynda mér að ég trúa honum.

En sköpunarsönnunin er aðeins ein af svo ótal mörgum. Þetta er í rauninni eins og fjalla af gögnum og þau benda upp á við, til Guðs.  Eins og vefur sem allur raunveruleikinn er búinn til úr og síðan hvernig er best að skilja hann.  Hérna er lítið brot af þeim gögnum sem mynda þennan vef sem ég get aðeins séð að rökréttur út frá tilvist Guðs og að Biblían fari með rétt mál:

  1. Alheimurinn hafði upphaf.
  2. Lögmálin alheimsins eru fínstillt fyrir líf.
  3. Upphaf lífs.
  4. Öll endalausu dæmi um hönnun í náttúrunni, þessi skipta þúsundum sem tilviljanakenndar breytingar á DNA og náttúruval geta engan veginn útskýrt.
  5. Merkileg þekking í Biblíunni, eins og lög um heilsufar og fleira.
  6. Spádómar Biblíunnar sem hafa þegar ræst.
  7. Vitnisburður þeirra sem þekktu Jesú og sögðu frá upprisu Hans.
  8. Orð Jesú sjálfs sem opinbera það sem mér finnst vera raunveruleg trúverðug persóna.

Ég ætti einhvern tíman að gera mjög ýtarlegan lista en hérna erum við aðeins að tala um af hverju einhverjir trúa eins og þeir trúa. Ég hef marg oft reynt að fá svipaðan lista frá guðleysingjum en þeir virðast byggja sína heimsmynd á einhverju öðru en gögnum; aðalega bara efasemdum en það virkar í mínum augum svakalega sorglegur grunnur að trú.

Mofi, 22.8.2012 kl. 10:13

3 Smámynd: Skeggi Skaftason

ÞAð að þú trúir að maður af holdi og blóði eins og ég og þú hafi tekist á loft og horfið upp til skýja (eftir að hann dó og lifnaði við), ja, það segir eitt og annað um það hvað þú telur vera áreiðanleg "gögn" og "vitnisburðir".

En þú um það.

Þú gerir þér grein fyrir því að ALLAR ritaðar heimildir um þessa himnaför Jesúsar Jósepssonar voru skráðar nokkrum kynslóðum EFTIR að hún átti að hafa átt sér stað? Svo ENGINN af þeim sem skráði söguna í Biblíuna talaði actually við einhvern sem sá þetta.

(Svona eins og við ættum að trúa því ef við finndum rit frá árinu 1800 sem greindu frá því að árið 1570 hafi maður á Íslandi flogið til himna... og myndum líta á það sem órækan vitnisburð.)

Skeggi Skaftason, 22.8.2012 kl. 11:35

4 Smámynd: Mofi

Skeggi
ÞAð að þú trúir að maður af holdi og blóði eins og ég og þú hafi tekist á loft og horfið upp til skýja (eftir að hann dó og lifnaði við), ja, það segir eitt og annað um það hvað þú telur vera áreiðanleg "gögn" og "vitnisburðir".

Þú veist að akkúrat núna eru sirka 700.000 uppi í loftinu er það ekki?

Ef að Guð er ekki til þá sannarlega er erfitt að sjá hvernig slíkt ætti að vera hægt en ef Guð er til þá er allt annað uppi á teningnum.  Jesaja var búinn að spá fyrir þessu sem gefur mér ennþá meiri ástæðu til að trúa þessum vitnum.

Skeggi
Svo ENGINN af þeim sem skráði söguna í Biblíuna talaði actually við einhvern sem sá þetta.

Hvaðan færðu þessa hugmynd?

Ég skrifaði eitt sinn um efni sem tengist þessu:  Hann er ekki hér, Hann er upprisinn

Að síðan kristnum fjölgaði ótrúlega mikið á mjög skömmum tíma, svo mikið að heimsveldi þess tíma varð kristið aðeins sirka 300 árum eftir þessa atburði segir þó nokkuð.

Mofi, 22.8.2012 kl. 11:47

5 Smámynd: Mofi

Ómálefnaleg athugasemd fjarlægð frá Jóni Ragnarssyni.

Mofi, 22.8.2012 kl. 11:47

6 Smámynd: Skeggi Skaftason

Sorrí, fór frjálslega með tölur. Biðst afsökunar. Kíkti á grein þína.

1. Til eru yfir 5.000 forn handrit af Nýja testamentinu, þau elstu talin vera frá 100 e.kr. til 150 e.kr.

...

2. Ekkert af upprunalegu handritunum er til en aldur elstu handritanna er nálægt aldri upprunalegu eða um 50-150 árum eftir ritun upprunalegu handritanna.

...

4. Flest af bókum Nýja Testamentisins voru skrifuð af sjónarvottum

Elstu handrit NT sem eru til, en eru samt ekki, eru skrifuð 100-150 árum e.kr. af sjónarvottum - sem voru þá ... 110-200 ára gamlir?

Skeggi Skaftason, 22.8.2012 kl. 12:51

7 Smámynd: Skeggi Skaftason

sorrí - punktar 1., 2. og 4. áttu að vera skáletraðir.

Skeggi Skaftason, 22.8.2012 kl. 12:52

8 Smámynd: Mofi

Elstu handritin eru ekki upprunalegu handritin heldur afrit. Fjöldi þeirra og hve nálægt þau eru frá því að upprunalegu handritin voru skrifuð er betra en nokkur önnur forn rit sem mannkynið hefur.

Mofi, 22.8.2012 kl. 13:03

9 Smámynd: Sveinþór Eiríksson

Mín hugmynd um eilíft líf (án Guðs ) Nú er alheimurinn í okkar skilningi endanlegur, þ. e . guð skapaði himinn og jörð, en það stenst ekki, samkvæmt óðaþennslukenningunni, á heimurinn að hafa þanist út, ( eftir svokallaðan STÓRA HVELL, eða hvað það er nú kallað, ) (stóru hvellirnir hafa efalaust orðið til á fleiri stöðum samkvæmt líkindalögmálinu ) með hraða langt yfir ljóshraða, þan...
nig að samanber þyngdarlögmáið, hafa orðið til, við getum kallað það bólur, þar sem einn alheimur er í hverri bólu. Í bólu 1 er alheimurinn okkar sem við þekkjum NÚ, öllum eindum raðað upp í alla mögulegar raðir sem hægt er. Þá á ég við að ef öllum eindum , frum eindum nifteindum rafeindum og öllu draslinu væri hrært saman og ef útkoman væri heimur alveg eins og sá sem við þekkjum nú væri harla ólíkleg, Nær væri að álykta að í næstu bólu væri allt allar heimur, jafnvel með öðrum lögmálum, þriðji heimurinn gæti verið allt öðruvísi og svo koll af kolli út í það nærri óendanlega. Samkvæmt þessu er hægt að reikna út að annar heimur nákvæmlega þessi ER TIL þar sem t. d. ég er skrifa þessa bölvuðu vitleisu ekki á TOSHIBA tölvu heldur á á aðra tegund. þetta hefur verið reiknað út, alheimurinn er talinn vera 20 til 30 Milljarða ára gamall, ljóshraðinn er 300.000 km/sek Sem sagt stærðin á bólu1. Bóla 2 er þarna einhversstaðar fyrir utan og hinar langt í burtu, Bóla með alheimi eins og við lifum í og nákvæmlega eins jörðinni og öllu sem væri á henni, fiskveiðikvóta og öllu væri þá ,i c.a. 1 með 1500 núllum fyrir aftan km. fjarlægð. Meira seinna ef ég nenni að pæla í þessu

Sveinþór Eiríksson, 28.8.2012 kl. 00:21

10 Smámynd: Sveinþór Eiríksson

Sveinþór Eiríksson
Framh. En þetta er bara byrjunin. Hver kannast ekki við það að hafa fengið á tilfinninguna að hafa lifað einstaka tilfinningu áður, t. d. einstaka atburð, þá í aðeins breittu formi, smá "flashback" hvað skyldi það vera. Dr. Helgi ...
Pjeturson Nýaldarsinni og fræðimaður velti þessu mikið fyrir sér, þar sem hann hélt því fram að það væri framhaldslíf á öðrum hnöttum, ég vil leifa mér að koma með þá tilgátu að við sem lifum á þessai plánetu erum að lifa LÍKA 'a öðrum plánetum í öðru sólkerfi í annari BÓlU sem ég minntist á í fyrri grein, ( Öllum frumeindum , Fiseindum rafeindum og öllu draslinu er eki hægt að raða upp sitt á hvað nema í takmarkaðann fjölda, ( ef ótakmarkaður fjöldi apakatta hamrar á tölvur, ótakmarkaðann tíma hlítur einhver apinn að hitta á að skrif BrennuNjálssögu orðrétt, það gefur augaleið: Þess vegna í 'orafjarlægð 10 X10 í veldinu 1500 er annar heimur nákvæmleg eins og okkar (meiri segja sami ku-ornafjöldi I Sahara eiðimörkinni, Ég vil leifa mér að trúa því að þegar við dauðlegar n-manneskjur yfirgrfum þessa jörð, þá höfum við VAL, hvernig sem það fer fram veit ég ekki. Ég hef spekulað mikið í heimsfræði, t. d. ræddum við þetta mikið ég og faðir minn sálugi síðustu árin sem hann lifði, þó það fðri ekki hátt, (blessuð sé minning hans ) Ég held að hann hafi farið sáttur,, allavegna vona ég það, hann trúði þessu . Við erum semsagt að lifa LÍKA ANNARSSTAÐAR. En þetta er ekki allt. Meira sinna
Sjá meira
Fyrir um klukkustund · Líkar þettaLíkar ekki við
  • Sveinþór Eiríksson

Sveinþór Eiríksson, 28.8.2012 kl. 00:30

11 Smámynd: Sveinþór Eiríksson

sveinþór skrifar :   Fyrir óra löngu síðan trúði mannskeppnan á stokka og eteina  sólin tunglið o.fl.   þegar hún þroskaðist,  einn varð náttúrulega framar öðrum,  samanber kenninguna um þeir sem eru gáfaðastir og sterkastir lifa af.  Að halda þvþi fram að til sé einhver guðleg vera í mannsmynd er fals.   Spurning :    akkurat hvað kom til að mannskeppnan fór að trúa á einhvern guð í n',mannsmynd,  eg bara spyr.   (  Þetta var löngu fyrir að allar trúar bækur voru skrifaðar ,  hver sem trúin er ) Ég held því fram að sá sterkasti ,  hvar sem það var nú   var gerður að guði,  til þass eins að halda niðri almúganum.  Ég held að þessir trúarofstækismenn ættu að hætta þessu bulli og snúa sér að því pretika frekar um að ná fram réttlæti í heiminum fyrir alla.  Það á að banna alla trúflokka .      meira seinna 

Sveinþór Eiríksson, 28.8.2012 kl. 00:56

12 Smámynd: Mofi

Sveinþór
Mín hugmynd um eilíft líf (án Guðs ) Nú er alheimurinn í okkar skilningi endanlegur, þ. e . guð skapaði himinn og jörð, en það stenst ekki, samkvæmt óðaþennslukenningunni, á heimurinn að hafa þanist út, ( eftir svokallaðan STÓRA HVELL, eða hvað það er nú kallað, )

Er eðlilegt að stökkva strax á að Biblían hafi rangt fyrir sér ef einhverjir menn hafa búið til kenningar sem eru í andstöðu við hana?

Stóri hvellurinn svo kallaði var hugmynd sem guðleysingjar börðust mjög hart á móti af því að þeir sáu að þarna voru mjög sterk rök fyrir tilvist Guðs. Þeir vildu alheim sem væri eilífur en gögnin bentu til þess að alheimurinn, efni, orka, tími og rúm var eitt sinn ekki til. Sem þýðir að það sem orsakaði alheiminn er ekki efnislegt og er eilíft, alveg eins og Biblían lýsir Guði.

Sveinþór
(stóru hvellirnir hafa efalaust orðið til á fleiri stöðum samkvæmt líkindalögmálinu ) með hraða langt yfir ljóshraða, þan...

nig að samanber þyngdarlögmáið, hafa orðið til,
Veistu um einhver gögn sem styðja að marga stórahvelli? 
Sveinþór
Sem sagt stærðin á bólu1. Bóla 2 er þarna einhversstaðar fyrir utan og hinar langt í burtu, Bóla með alheimi eins og við lifum í og nákvæmlega eins jörðinni og öllu sem væri á henni, fiskveiðikvóta og öllu væri þá ,i c.a. 1 með 1500 núllum fyrir aftan km. fjarlægð. Meira seinna ef ég nenni að pæla í þessu
Veistu um einhver gögn sem styðja tilvist Bólu 2? 
Sveinþór
ég vil leifa mér að koma með þá tilgátu að við sem lifum á þessai plánetu erum að lifa LÍKA 'a öðrum plánetum í öðru sólkerfi í annari BÓlU sem ég minntist á í fyrri grein,
Veistu um einhver gögn sem styðja þessa tilgátu þína? 
Sveinþór
Það á að banna alla trúflokka . meira seinna
Þú ert sem sagt á móti trúfrelsi og vilt þá líklegast að þín trú verði ríkistrú býst ég við?

Mofi, 28.8.2012 kl. 09:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband