Lifandi steingervingar finnast í Kína

Enn annað dæmi af lifandi steingervingum. Marglyttur fundust í Kína sem passa við steingervinga sem þróunarsinnar trúa að séu í kringum 200 miljón ára gamlir.  Að finna svona lifandi steingervinga, dýr sem hafa ekkert breyst í setlögunum óneitanlega passar miklu betur við sögu Biblíuna af Nóaflóðinu en skáldsögurnar sem menn spinna út frá þróunarkenningunni.  Miðað við sögu Biblíunnar þá hefur ekki liðið langur tími síðan að þessi dýr grófust og þessi sem við finnum í dag sem útskýrir mjög vel af hverju þau eru eins.  Það er skemmtilegur brandari í þessu myndbandi þegar þulurinn segir að þetta sé verðmætt efni í rannsóknir á þróun.  Dýrin breyttust ekkert og það er rannsóknarefni í þróun?  Þvílíkur brandari. Gott innlegg aftur á móti í umræðuna um sköpun þróun og hérna dæmi um enga þróun eins og vanalega.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað ætli það sé búið að benda þér oft á það hérna Mofi að það að dýr breytist lítið sem ekkert í langan tíma er ekkert sem gengur gegn þróunarkenningunni...

Hákarlar eru þannig ekki, eða hafa nokkurn tíma verið neitt vandamál fyrir þróunarkenninguna...

Ef engar ytri aðstæður krefjast þess að dýr aðlagi sig er fullkomlega eðlilegt að þær geri það ekki...

ÉG hugsa að þetta sé að minnsta kosti tíundi nákvæmlega eins pósturinn frá þér um þetta sama

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 18.8.2011 kl. 16:22

2 Smámynd: Mofi

Jón Bjarni, að mínu mati gerir það það. Held að flestir sjái að þetta er ekki það sem þróunarkenningin spáir fyrir um að finna steingervinga án þróunarsögu og síðan breytast þeir ekkert í hundruði miljónir ára og síðan eru lifandi í dag eins og þeir voru þegar þeir birtust fyrst í setlögunum.  Ef það lætur ekki einhvern efast um kenninguna þá bara vill hann trúa og er sama um staðreyndir því að það verður að lúta fyrir lönguninni að trúa að þessi kenning sé sönn.

Mofi, 18.8.2011 kl. 16:53

3 identicon

Það hvað þér finnst um það skiptir afskaplega litlu máli, það er ekkert í þróunarkenningunni sem segir það að allar lífverur "verði" að breytast - það er því einfaldlega rökvilla að benda á dæmi um slíkar lífverur sem eitthvað meint vandamál fyrir kenninguna... Hún spáir einfaldlega ekki fyrir um neitt þvíumlíkt..

Ef þú getur fundið einhverjar heimildir fyrir því Mofi að skv þróunarkenningunni eigi allar lífverur að breytast með tímanum þá þætti mér gaman að sjá það.

Ef lífvera hefur enga þróunarsögu þá þýðir það einfaldlega að hún hafi ekkert breyst, hafi hún ekkert breyst þá þýðir það að hún hafi ekki þurft þess - afhverju hún þurfti þess svo ekki er áhugavert rannsóknarefni fyrir þá sem slíkar rannsóknir stunda - það að þú sért búin að sannfæra sjálfan þig um það að skv kenningunni geti lífvera ekki verið óbreytt í langan tíma - þýðir, því miður fyrir þig - ekki að sú sé raunin... Þetta hefur þér verið bent á hérna aftur og aftur og aftur

Ef þetta væri eitthvað vandamál fyrir þróun þá væru hákarlar ásamt ótal öðrum lífverum löngu búnar að fella kenninguna - hafa þær gert það Mofi?

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 05:45

4 Smámynd: Mofi

Jón Bjarni, ég leyfi fólki að ákveða sjálft hvað því finnst vera rökrétt. Hvort að þetta er virkilega eitthvað sem því finnst passa við kenninguna eða ekki.

Mofi, 19.8.2011 kl. 10:19

5 identicon

Afhverju ætti þetta ekki að passa við kenninguna Mofi þegar ekkert í henni segir það að þetta sé eitthvað óeðlilegt?

Þú ert hér að búa til einhverja fullyrðingu varðandi þróunarkenninguna sem enginn fótur er fyrir og er einfaldlega ekki hluti af kenningunni.. og ráðast svo á þinn eigin tilbúning..

Manstu hvað þessi rökvilla heitir?

Afhverju virðist þú alltaf hrósa einhverju happi yfir því þegar það finnst "lifandi steingervingur" þegar það eru nú þegar til fullt af lifandi steingervingum sem hafa engin áhrif á kenninguna..

Afhverju ert þú búinn að sannfæra sjálfan þig um það að ALLAR lífverur VERÐI að breytast með tímanum og geri þær það ekki sé þróunarkenningin röng... Hvernig komst þessi hugsunarvilla inn í hausinn á þér?

Það eru til FULLT af lifandi steingervingum og það vita það allir sem koma að rannsóknum að þróun, hvaða nýju fréttir heldur þú alltaf að þú sért að koma með hvað það varðar?

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 12:23

6 Smámynd: Mofi

Jón Bjarni, er þetta það sem menn bjuggust við að finna? 

Mofi, 19.8.2011 kl. 13:05

7 identicon

Hvað meinar þú eiginlega með því?

En hér ert þú líkelga kominn með svarið við eigin pælingum um það afhverju þróunarvísindamönnum finnst þetta áhugavert..

Bentu mér nú á það Mofi hvar það segir í kenningunni að allar lífverur verði að breytast, og þessi póstur þinn fer kannski að meika eitthvað sense..

En í hundraðasta skipti hérna, það að lífvera breytist ekki í miljónir ára, er ekkert nýtt og ekkert sérstakt áhyggjuefni fyrir kenninguna

Jón Bjarni Steinsson (IP-tala skráð) 19.8.2011 kl. 17:41

8 Smámynd: Mofi

Jón Bjarni, þú getur endurtekið þetta eins oft og þú vilt en það sýnir aðeins hve blindur þú ert.  Að dýr birtast án þróunarsögu í setlögunum og síðan breyttast ekkert í miljónir ára er engann veginn það sem þróunarsinnar bjuggust við. Þú hlýtur bara að vita þetta.

Mofi, 23.8.2011 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 802824

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband