Hvíldardags boð fyrir kristna í Hebreabréfinu

SabbathMargir kristnir halda að eina boðorðin af boðorðunum tíu sem ekki var endurtekið í Nýja Testamentinu var hvíldardagsboðorðið  og þess vegna hafa kristnir ekki ástæðu til að halda það. Fyrir utan hina augljósu villu að láta sem svo að Kristur hafi hent öllu því sem Gamla Testamentið kenndi í ruslið sem passar engan veginn við það sem Hann kenndi þá er skýrt boð til kristinna í Nýja Testamentinu um að halda hvíldardaginn heilagann.

Til að skilja þau vers Hebreabréfsins í Nýja Testamentinu almennilega þá er gott að skoða versin í Gamla Testamentinu sem höfundur Hebreabréfsins er að vísa til.

Esekíel 20:12
Ég gaf þeim einnig hvíldardaga mína sem tákn um sáttmálann milli mín og þeirra svo að þeir skildu að ég, Drottinn, helga þá. 13En Ísraelsmenn risu gegn mér í eyðimörkinni. Þeir fóru ekki að lögum mínum og höfnuðu reglum mínum þótt hver sá sem hlýðir þeim lifi vegna þeirra. Þeir vanhelguðu hvíldardaga mína stórum.  Þá hugðist ég úthella reiði minni yfir þá þarna í eyðimörkinni og tortíma þeim...
16Þetta gerði ég af því að þeir höfðu hafnað reglum mínum og ekki fylgt lögum mínum og vanhelgað hvíldardaga mína því að hugur þeirra var bundinn skurðgoðum

Hérna lesum við um af hverju þjóðin sem var leidd út úr Egyptalandi dó í eyðimörkinni og ein af aðal ástæðunum var  að þjóðin vanhelgaði hvíldardaga Guðs.

Á öðrum stað lesum við um eina af ástæðunum fyrir því að Jerúsalem var eytt:

 Jeremía 17:21
Svo segir Drottinn: Gætið yðar, líf yðar liggur við. Berið enga byrði á hvíldardegi og flytjið ekkert inn um hlið Jerúsalem. 22Berið engar byrðar úr húsum yðar á hvíldardegi og vinnið ekkert verk. Haldið hvíldardaginn heilagan eins og ég bauð feðrum yðar.“
...
27En ef þér hlýðið ekki á boð mitt að halda hvíldardaginn heilagan með því að bera engar byrðar um hlið Jerúsalem á hvíldardegi þá kveiki ég í hliðum Jerúsalem og eldurinn mun gleypa hallir Jerúsalem og ekki verða slökktur

Aftur er það að vanhelga hvíldardaginn sem vekur upp reiði Guðs og dóm yfir þeim sem vanhelga það sem Guð gerði heilagt.

Þá komum við að Hebreabréfinu í Nýja Testamentinu.

Hebreabréfið 3:15
Svo segir: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í uppreisninni.“ - 16Hverjir voru þá þeir sem heyrt höfðu og gerðu þó uppreisn? Voru það ekki einmitt allir þeir sem Móse hafði leitt út af Egyptalandi? 17Og hverjum „var hann gramur í fjörutíu ár“? Var það ekki þeim sem syndgað höfðu og báru beinin á eyðimörkinni?
18Og hverjum „sór hann að eigi skyldu þeir ganga inn til hvíldar
hans,“ nema hinum óhlýðnu? 19Við sjáum að sakir vantrúar fengu þeir eigi gengið inn.

Hérna sjáum við tilvísunina í fólkið sem dó í eyðimörkinni og að það var vantrú og óhlýðni við að halda sjöunda daginn heilagan sem orsakaði að það gékk ekki inn í fyrirheitnalandið.

Hebreabréfið 4:1
Fyrirheitið um að ganga inn til hvíldar hans stendur enn, vörumst því að nokkurt ykkar verði til þess að dragast aftur úr
...
4Því að einhvers staðar er svo að orði kveðið um hinn sjöunda dag: „Og Guð hvíldist hinn sjöunda dag eftir öll verk sín.“ 5Og aftur á þessum stað: „Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.“ 6Enn stendur því til boða að nokkrir gangi inn til hvíldar Guðs. Þeir sem áður fengu fagnaðarerindið gengu ekki inn sakir óhlýðni.

Hérna talar höfundurinn um hinn sjöunda dag og að okkur stendur enn til boða að ganga inn til þessarar hvíldar Guðs.  Tökum eftir því að þetta fólk heyrði fagnaðarerindið en misstu af því vegna óhlýðni við hvíldardagsboðorðið.

Hebreabréfið 4:7
Því ákveður Guð aftur dag einn er hann segir löngu síðar fyrir munn Davíðs: „Í dag.“ Eins og fyrr hefur sagt verið: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar.“

Þessi beiðni Guðs um eiga stund með þeim sem segjast vilja fylgja Honum mætir merkilega oft mikilli andstöðu. Þess vegna koma þessi orð, þegar þið heyrið þetta kall um að halda hvíldardaginn, ekki herða hjörtu ykkar.

Hebreabréfið 4:9
Enn stendur þá til boða sabbatshvíld fyrir lýð Guðs. 10Því að sá sem gengur inn til hvíldar hans fær hvíld frá verkum sínum eins og Guð hvíldist eftir sín verk.

Gríska orðið þarna sem er þýtt sem "sabbatshvíld" er "sabbatismos" og  er bein tilvitnun í fjórða boðorðið um að halda hvíldardaginn.  Tökum eftir því að hérna er höfundurinn að tala til kristinna, áratugum eftir krossinn og hann segir að þeir eiga að halda hvíldardags boðorðið.

Hebreabréfið 4:11
Kostum því kapps um að ganga inn til þessarar hvíldar til þess að
enginn óhlýðnist eins og þeir og falli.

Eina leiðin til að hvílast ekki og að það sé óhlýðni er að brjóta hvíldardags boðorðið sem er eitt lengsta boðorðið af boðorðunum tíu sem Guð skrifaði á steintöflur sem settar voru í sáttmálsörkina sem var geymd í hinu allra helgasta.  Svo hérna er einlægt kall frá höfundi Hebreabréfsins að hinir kristnu vanhelgi ekki hvíldardaginn svo þeir falli ekki eins og þeir sem ráfuðu um í eyðimörkinni í 40 ár og dóu þar.

Hebreabréfið 4:12
Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans.

Fyrir mig þá sé ég þetta birtast á mjög raunverulegan hátt þegar kemur að hvíldardagsboðorðinu. Menn eiga í engum vandræðum með hin níu og að kalla þau synd en þegar kemur að hvíldardsagsboðorðinu þá sér maður hjörtun bókstaflega herðast á andlitum þeirra sem maður segir frá þessu.  Öll hin boðorðin eru augljóslega rétt en hvíldardagsboðorðið er þannig að frá mannlegum viðmiðum þá getur það virkað órökrétt. Eins og hvaða máli  skiptir það, á hvaða degi maður heldur hvíldardag? Ástæðan fyrir því af hverju það skiptir máli er sú að hérna birtist í okkar hegðun hverjum við hlýðum, hver er okkar Guð. Hlýðum við mönnum eða hefðum eða hlýðum við Guði?

Ég bið að sem flestir mættu velja að hlýða boðorðum Guðs svo þeir mættu ekki falla í óhlýðni og glatast.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 802830

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband