Myndbandið sem sannar vitræna hönnun

Að sjá er að trúa og mynd er virði þúsund orða svo þetta myndband ætti að gefa mörgum eitthvað til að hugsa um.  Hérna er grein sem fer ýtarlega í af hverju þessi örsmái mótor hlýtur að vera hannaður og gæti ekki hafa þróast, sjá:  ATP synthase: majestic molecular machine made by a mastermind

Þetta er heimsins minnsti mótor og vinnur á nálægt 100% hagkvæmni sem er margfallt betra en nokkur af þeim mótorum sem við mennirnir höfum geta búið til.

 

Hérna er annað myndband þar sem farið er yfir af hverju þetta er óyfirstíganlegt vandamál fyrir darwiniska þróun, sjá: http://www.metacafe.com/watch/4012706/evolution_vs_atp_synthase_molecular_machine/    Fyrirlesarinn er Jonathan Sarfati en ég gerði grein um bók sem hann skrifaði fyrir nokkru, sjá:  The greatest hoax on earth?

Jonathan Sarfati
You couldn’t have life unless you had this motor to produce the energy currency, so it looks like this motor must have been there right from the beginning, and I’d say that because this motor is so much better, so much tinier and more efficient than anything we can design, … the Designer of the motor is far more intelligent than any motor designer we have today too.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Sigurðsson Diego

Þetta er vægast sagt mjög merkilegt því kjarninn í þessu er sá að þarna er hlekkur á milli vísinda og trúar.

Hörður Sigurðsson Diego, 17.12.2010 kl. 14:58

2 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

hmmm. Creation.com

Af hverju finnur þú ekki samsvörun í virtum ritrýndum vísindamiðlum?

Jú! Alveg rétt. Því þessir miðlar sem þú bendir á svífast einskins í viðleitni sinni að láta náttúruna passa við sköpunarsögu biblíunnar. "Pick and Choose" heitir svona framsetning og þetta er ekkert annað en auglýsingamyndband fyrir "trúarnöttera".

Páll Geir Bjarnason, 18.12.2010 kl. 22:40

3 Smámynd: Mofi

Hörður, að mínu mati hefur trú alltaf verið stór hluti af vísindum, hún tekur við þar sem að augljósu niðurstöðurnar og gögnin enda. Hvort sem að einhver aðhyllist þróun eða hönnun þá veit hann ekki hvort er satt, aðeins hvað hann trúir að sé líklegast.

Mofi, 20.12.2010 kl. 09:39

4 Smámynd: Mofi

Páll Geir, þú virðist ekki vera alveg í lagi; ég er að minnsta kosti búinn að fá nóg af ruglinu í þér. Vertu sæll

Mofi, 20.12.2010 kl. 09:40

5 Smámynd: Hörður Sigurðsson Diego

Hvað segja alvöru vísindamenn um þetta? Viðurkenna þeir tilveru þessa "mótors"?

Hörður Sigurðsson Diego, 20.12.2010 kl. 10:42

6 Smámynd: Mofi

Hörður, eins og kom fram þá fékk sá sem uppgvötaði tilvist þessa mótors Nóbels verðlaunin fyrir það, sjá: http://en.wikipedia.org/wiki/ATP_synthase

Tilvist hans er ekki ágreiningsmál heldur hvernig hann gat orðið til. Sumir sjá hér merki vitrænnar hönnunar á meðan aðrir trúa að tilviljanir gætu sett þetta saman; eitthvað sem mér finnst of erfitt að trúa.

Það er síðan auðvitað spurning hverja menn vilja kalla "alvöru" vísindamenn, t.d. þessi maður sem ég vísa í Jonathan Sarfati er með doktor en af því að hann aðhyllist sköpun þá vilja margir ekki flokka hann sem alvöru vísindamann.

Mofi, 20.12.2010 kl. 10:48

7 Smámynd: Hörður Sigurðsson Diego

Sem almennum leikmanni með takmarkaða vísindalega þekkingu þá get ég ekki séð annað en að lífið hljóti upphaflega að hafa verið skapað og síðan "látið" þróast. Svona "mótor" verður ekki til fyrir neina mögulega tilviljun.

Hörður Sigurðsson Diego, 20.12.2010 kl. 10:58

8 Smámynd: Mofi

Hörður, það er afstaða sem er nokkuð algeng meðal vísindamanna ( þeirra sem hafa gráður í þessum fræðum ) og að mínu mati mjög rökrétt.

Mofi, 20.12.2010 kl. 12:53

9 Smámynd: Jón Ragnarsson

"mitt mat" og "mér finnst" eru mjög algengir frasar hjá þér.

Mjög vísindalegt

Jón Ragnarsson, 20.12.2010 kl. 16:02

10 Smámynd: Mofi

Jón Ragnarsson, og hvert er þitt mat, eða... hvað finnst þér? :)

Mofi, 20.12.2010 kl. 16:53

11 Smámynd: Jón Ragnarsson

LOL. "Super-Intelligent Design"...

Af hverju liggja loftopin og mataropin saman í hálsinum á mér? Eitthvað kvikindislegt grín hjá hönnuðinum?

Jón Ragnarsson, 8.6.2011 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 802784

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband