Sex sex sex

beastofrev.jpgEitt af því sem vekur alltaf kátínu hjá mér er þegar erlendir fyrirlesarar koma til Íslands og fjalla um Opinberunarbókina og merki dýrsins. Þegar þeir síðan segja tölu dýrsins "six six six" og þýðandinn segir "sex sex sex". Svipurinn er vanalega óborganlegur; en nóg um það.

Í gegnum Opinberunar varar Guð ítrekað við merki dýrsins svo ef þú ert kristinn þá ætti það að vera þér mjög mikilvægt að vita hvert merki dýrsins er. Það væri ekki sanngjarnt af Guði að vara sitt fólk aftur og aftur við þeirri hættu að taka við merki dýrsins en segja því ekki hvert merkið er. Sumir halda að merkið er einhver örflaga sem stjórnvöld setja í fólk og aðrir halda að merkið er strikamerkin á vörum út í búð. Í Opinberunarbókinni þá lætur Guð plágur falla á það fólk sem hefur merki dýrsins en væri það sanngjarnt af Guði að refsa fólki að hafa örflögu í hendinni ef Hann sagði engum að það væri rangt?  Það ætti að vera augljóst að ekkert af þessu getur einu sinni komið til greina.  Hið áhugaverða er að það eina sem þú þarf að gera til þess að fá ekki merki dýrsins er að halda boðorðin tíu.

Hérna er þetta efni útskýrt af mjög færum ræðumanni sem heitir David Asscherick og ég vona að sem flestir skoði þetta efni af heilum hug.

dasscherick.jpgThe Actual Certain Unavoidable Identity of the Antichrist

How Not To Get The Mark of the Beast

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Rósant

Ein af þeim skemmtilegri grillum sem ýmsir trúarhópar hafa hlúð að í kolli sínum.

En, Mofi minn, þú losnar sennilega einhvern tímann við þessar grillur ef þú heldur áfram að blogga við trúlausa og trúfrjálsa.

Sigurður Rósant, 10.7.2010 kl. 13:24

2 Smámynd: Mofi

Rósant, ekki ef þeir eru eins og þú, algjörlega ófærir um að rökstyðja sína afstöðu. Þarna er mjög merkilegur spádómur sem er fyrir mig enn ein sönnunin fyrir að Biblían er frá Guði. Hvað eiginlega hefur þú fram að færa?

Mofi, 10.7.2010 kl. 16:23

3 Smámynd: Sigurður Rósant

Rök hafa ekkert að segja til að breyta trúuðum í trúlausa eða trúfrjálsa. Ekki frekar en sögur um Ragnarök breyti afstöðu trúlausra eða trúfrjálsra.

Sigurður Rósant, 10.7.2010 kl. 21:32

4 Smámynd: Mofi

Rósant, staðreyndirnar segja að það er ekki rétt. Það er til nóg af fólki sem hefur orðið kristið vegna þess að það rannsakaði þessi mál og það er til fólk sem urðu þróunarinnar en það getur varla verið vegna góðra raka en whatever.

Mofi, 11.7.2010 kl. 13:04

5 Smámynd: Sigurður Rósant

Mofi - Hið áhugaverða er að það eina sem þú þarf að gera til þess að fá ekki merki dýrsins er að halda boðorðin tíu.

Ég minnist þess nú ekki að hafa heyrt eða lesið um þessa túlkun fyrr. En kannski er maður farinn að gleyma eða missa úr.

En að halda boðorðin 10 eins og þú segir, stangast algjörlega á við þá skoðun Aðventista að boðorðin séu í raun 11 eða jafnvel 12.

Hluta þeirra hafa bæði Gyðingar og kristnir hunsað, eins og ákvæðið um að ekki megi gera myndir af einu eða neinu tagi og svo ákvæðið um að ekki megi bera ljúgvitni gegn náunga sínum. Gyðingar og kristnir eru og hafa alla tíð lagt mikið kapp á að brjóta þessi ákvæði sem eru einhvers staðar í þessum 10 - 12 boðorðum sem Móses staðhæfði að guð sinn hefði ritað. Eða með öðrum orðum. Laug þessu upp á blásaklausan guð sem aldrei var til nema í kollinum á honum og hans samtímafólki.

Sigurður Rósant, 11.7.2010 kl. 20:54

6 Smámynd: Mofi

Rósant, ég á voðalega erfitt að taka mark á þér... hvaðan eiginlega færðu þessa vitleysu?

Mofi, 12.7.2010 kl. 10:54

7 Smámynd: Sigurður Rósant

Ég nenni nú ekki að tíunda þessi 12 boðorð sem þú þykist ekki kannast við en geri það nú samt svo þú sjáir að boðorðin eru a.m.k. 11 eða 12.

3Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.

4Þú skalt engar líkneskjur gjöra þér né nokkrar myndir eftir því, sem er á himnum uppi, eður því, sem er á jörðu niðri, eður því, sem er í vötnunum undir jörðinni.

7Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma, því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt, sem leggur nafn hans við hégóma.

8Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.

9Sex daga skalt þú erfiða og vinna allt þitt verk,

10en sjöundi dagurinn er hvíldardagur helgaður Drottni Guði þínum. Þá skalt þú ekkert verk vinna og ekki sonur þinn eða dóttir þín, þræll þinn eða ambátt þín eða skepnur þínar, eða nokkur útlendingur, sem hjá þér er innan borgarhliða þinna,

12Heiðra föður þinn og móður þína, svo að þú verðir langlífur í því landi, sem Drottinn Guð þinn gefur þér.

13Þú skalt ekki morð fremja.

14Þú skalt ekki drýgja hór.

15Þú skalt ekki stela.

16Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.

17Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, ekki þræl hans eða ambátt, ekki uxa hans eða asna, né nokkuð það, sem náungi þinn á.

24Þú skalt gjöra mér altari af torfi, og á því skalt þú fórna brennifórnum þínum og þakkarfórnum, sauðum þínum og nautum. Alls staðar þar sem ég læt minnast nafns míns, mun ég koma til þín og blessa þig.

Hvar eru S.D. Aðventistar með alatari úr torfi, þar sem þeir fórna brennifórnum o.s.frv.?

Hunsa S.D. Aðventistar ekki líka 2. boðorðið um algjört bann við hvers kyns myndlist?

Allir S.D. Aðventistar hunsa ákvæði 7. boðorðsins um að ekki megi nokkur í umsjá þeirra inna af hendi neitt það sem kallast vinna. Karlarnir láta konur sínar bera á borð fyrir sig mat sem er eldaður daginn áður. Er það ekki augljóst brot á boðorðunum um helgi hvíldardagsins?

Sigurður Rósant, 12.7.2010 kl. 22:58

8 Smámynd: Mofi

Rósant, aðventistar tala alltaf um boðorðin tíu. Það eru auðvitað miklu fleiri boðorð í allri Biblíunni, miklu fleiri en tólf en þegar Biblían talar um boðorðin tíu þá vita menn alveg um hvað er verið að tala.

Það er ekkert boðorð sem bannar myndlist... þetta eru bara einhverjar hártoganir hjá þér.

Rósant
Allir S.D. Aðventistar hunsa ákvæði 7. boðorðsins um að ekki megi nokkur í umsjá þeirra inna af hendi neitt það sem kallast vinna. Karlarnir láta konur sínar bera á borð fyrir sig mat sem er eldaður daginn áður. Er það ekki augljóst brot á boðorðunum um helgi hvíldardagsins?

Æi, hvernig nennir þú að bulla svona???  Í Hafnarfjarðar kirkju þá eru það vanalega mennirnir sem vaska upp og allir sjá um að fá sér sinn eigin disk og fá sér mat.

Mofi, 13.7.2010 kl. 09:58

9 Smámynd: Sigurður Rósant

Ég gleymdi óvart að geta heimilda en þessi boðorðarulla er tekin úr  2. Mós 20. 3-17

Þú virðist hins vegar ekki vilja skilja orðin eins og þau koma fyrir á prenti. Þessi boðorðarulla er endurtekin en með smá orðalagsbreytingum í 5. Mós 5. 7- 21

Ákvæðið um bann við allri myndgerð er þarna en nokkuð skírt fram borið og engin leið að skilja það á annan hátt en að öll myndgerð í hvaða formi sem er, skuli ekki eiga sér stað meðal Gyðinga.

8Þú skalt engar líkneskjur gjöra þér, engar myndir eftir því, sem er á himnum uppi, eða því, sem er á jörðu niðri, eða því, sem er í vötnunum undir jörðinni.

Ákvæðið um algjört bann við hvers konar vinnu er líka þarna í 5. Mósebók og ekki hægt að skilja það á annan veg en að trúaðir eiga að vera í einhvers konar "alkyrrð" eða "nirvana" eins og Hindúar kalla það ástand.

Einnig er mjög augljóst að "þrælar" eða "ambáttir", sem við köllum í dag "ógreitt vinnuframleg" eða "sjálfboðavinnu" á trúaður Gyðingur ekki að þiggja eða krefjast.

14en sjöundi dagurinn er hvíldardagur helgaður Drottni Guði þínum. Þá skalt þú ekkert verk vinna og ekki sonur þinn eða dóttir þín, þræll þinn eða ambátt þín, uxi þinn eða asni eða nokkur skepna, eða útlendingur, sem hjá þér er innan þinna borgarhliða, svo að þræll þinn og ambátt þín geti hvílt sig eins og þú.

Ég minnist þess er ég var nemandi á Hlíðardalsskóla árin 1965 - 1967 að borinn var fram kaldur eða jafnvel upphitaður baunaréttur, drykkur, mjólk, djús, kökur og brauð af konum sem unnu í eldhúsinu virka daga. Nemendur voru síðan skyldaðir til að sjá um uppvask. Kallarðu þetta ekki vinnu, Mofi minn?

Opnaðu nú augu þín og skoðaðu þessi ákvæði án þess að nota "afruglara".

Sigurður Rósant, 13.7.2010 kl. 12:26

10 Smámynd: Mofi

Rósant
Ákvæðið um bann við allri myndgerð er þarna en nokkuð skírt fram borið og engin leið að skilja það á annan hátt en að öll myndgerð í hvaða formi sem er, skuli ekki eiga sér stað meðal Gyðinga.

Þú skalt ekki búa til myndir og tilbiðja þær, ekki að þú mátt ekki búa til myndir; þú ert sá fyrsti sem ég veit um sem skilur þetta svona. Eitthvað segir mér síðan að þú skilur þetta ekkert svona og ert bara með hártoganir.

Rósant
Ákvæðið um algjört bann við hvers konar vinnu er líka þarna í 5. Mósebók og ekki hægt að skilja það á annan veg en að trúaðir eiga að vera í einhvers konar "alkyrrð" eða "nirvana" eins og Hindúar kalla það ástand.

Ekki bann við því að gera einhver verk. Lætur eins og maður mætti ekki lyfta upp fjarstýringunni að sjónvarpinu. Með þinn skilning þá hefðir þú að vísu verið fyrirmyndar faríseii :)

Rósant
Ég minnist þess er ég var nemandi á Hlíðardalsskóla árin 1965 - 1967 að borinn var fram kaldur eða jafnvel upphitaður baunaréttur, drykkur, mjólk, djús, kökur og brauð af konum sem unnu í eldhúsinu virka daga. Nemendur voru síðan skyldaðir til að sjá um uppvask. Kallarðu þetta ekki vinnu, Mofi minn?

Það eru myndir upp á veggjum þarna núna af gömlum nemendum, væri gaman að vita hvort þú ert þarna :)

Mér finnst það ekki vinna að vaska upp eftir sig þó að persónulega finnst mér betra að sleppa uppvaskinu á hvíldardögum. 

Mér finnst síðan eins og ég er dáldið eins og afruglari hérna :)

Mofi, 13.7.2010 kl. 13:25

11 Smámynd: Sigurður Rósant

Smá mistök hjá mér. Hefði átt að vera;

Opnaðu nú augu þín og skoðaðu þessi ákvæði án þess að nota "ruglara".

En, það er nú hrós í mínum augum, ef ég er virkilega sá eini sem kemur auga á þessa augljósu merkingu orðanna.

Þó eru til  Haredi Gyðingar sem ég gerði smá bloggfærslu um 6.6.2009, og vildu koma í veg fyrir að bílastæði yrðu opnuð á hvíldardegi. Brutu að sjálfsögðu umrætt boðorð með því að kasta grjóti.

Mofi - Mér finnst það ekki vinna að vaska upp eftir sig þó að persónulega finnst mér betra að sleppa uppvaskinu á hvíldardögum.

Í þínum augum Mofi, en ekki í augum fólks í dag. Allt skilgreint sem vinna fyrir utan þá skilgreiningu sem finnst í eðlisfræðinni: Vinna = kraftur x vegalend

Mofi - Það eru myndir upp á veggjum þarna núna af gömlum nemendum, væri gaman að vita hvort þú ert þarna :)

Heldurðu að ég sé að ég sé að skrökva?

Sigurður Rósant, 13.7.2010 kl. 17:48

12 Smámynd: Mofi

Rósant, nei ég held ekki að þú ert að skrökva en ég á mjög erfitt með að trúa því að þú meinar það sem þú ert að segja :/

Mofi, 13.7.2010 kl. 20:30

13 Smámynd: Sigurður Rósant

Ég er náttúrulega vanari íslensku og ensku á þessu sviði sem öðrum, en ég get ekki betur séð en að þetta sé svipað orðað á ensku í Exodus 20:

4Thou shalt not make unto thee any graven image, or any likeness of any thing that is in heaven above, or that is in the earth beneath, or that is in the water under the earth.

Sama er að segja um ákvæðið um Sabbath:

10But the seventh day is the sabbath of the LORD thy God: in it thou shalt not do any work, thou, nor thy son, nor thy daughter, thy manservant, nor thy maidservant, nor thy cattle, nor thy stranger that is within thy gates:

Hvernig er hægt að skilja þessi orð öðruvísi en að öll myndgerð af hvaða tagi sem er, skuli Gyðingum bönnuð og öll vinna af hvaða tagi sem er, sömuleiðis?

Það er einungis hægt að skilja þessi ákvæði öðruvísi með því að beita einhverjum útúrsnúningi eða hártogunum.

Vertu nú heiðarlegur við sjálfan þig, svona einu sinni fyrir mig.

Sigurður Rósant, 13.7.2010 kl. 23:02

14 Smámynd: Sigurður Rósant

Enn og aftur smá innsláttarvilla. Setningin átti að vera svona:

Ég er náttúrulega vanari íslensku en ensku á þessu sviði sem öðrum,.....

Sigurður Rósant, 14.7.2010 kl. 06:43

15 Smámynd: Mofi

Rósant, ef að mamma þín segir við þig "ekki fara út í búð og ræna mjólk". Heldur þú að það þýði að þú megir ekki fara út í búð og kaupa mjólk?

Rósant
Hvernig er hægt að skilja þessi orð öðruvísi en að öll myndgerð af hvaða tagi sem er, skuli Gyðingum bönnuð og öll vinna af hvaða tagi sem er, sömuleiðis?

Vinna er það sem ég geri í sirka átta tíma á dag á mínum vinnustað. Svo það er eitthvað sem ég geri ekki á hvíldardegi. Einhver viðvik á heimilinu, það fer bara eftir því hvað mér finnst gera hvíldardeginn betri.

Mofi, 14.7.2010 kl. 09:50

16 Smámynd: Sigurður Rósant

Ef móðir mín hefði sagt: "Þú mátt ekki fara út í búð, sjoppur né á skyndibitastaði og þú mátt ekki líta þessa staði augum, því þá verður þú að  saltstöpli"

Þá hefði ég líklega alveg sleppt því að fara út í búð þó aðrir hafi farið þangað og kíkt á þessa staði án þess að verða að saltstöpli.

En það er hins vegar umhugsunarefni, hvað olli því að Móse bannaði fólki sínu myndgerð, nema í því tilviki þar sem 2 kerúbar eru myndaðir yfir sáttmálsörkinni.

Aron, litli bróðir Móse var grallari mikill og hafði gaman af brellum alls konar og myndlist. Í einni ferð Móse upp á fjallið til að ná í tilskipanir frá guði sínum, missti Móse algjörlega stjórn á skapi sínu þegar hann kom niður af fjallinu með nýjustu útgáfu af boðorðarullunni og sá hvar Aron hafði látið gera kálf úr gulli og fólkið hafið dans í kringum hann sér til dægrastyttingar sbr. 2. Mós. 32. kafla.

19En er Móse nálgaðist herbúðirnar og sá kálfinn og dansinn, upptendraðist reiði hans, svo að hann þeytti töflunum af hendi og braut þær í sundur fyrir neðan fjallið.

    20Síðan tók hann kálfinn, sem þeir höfðu gjört, brenndi hann í eldi og muldi hann í duft og dreifði því á vatnið og lét Ísraelsmenn drekka.

Móse er sagður hafa fæðst í Egyptalandi þar sem allt samfélagið moraði í táknmyndum og ritmál þeirra var að mestu leyti myndrænt eins og við vitum. Kannski hefur hann viljað aðgreina "sína menningu" algjörlega frá þeirri Egypsku? Ekki viljað fá myndmál Egypta inn í ritmál Hebrea.

Skrifum Mósebóka er talið lokið um 1500 árum fyrir okkar tímatal, en það er ekki fyrr en 5-900 árum seinna að höfundur Konungabóka minnist á myndgerð og þá í tengslum við byggingu musteris Salómons, sbr. Fyrri Konungabók 6.35

35Og hann lét skera kerúba, pálma og blómfléttur á þá og lagði það gulli, sem út var skorið.

Þannig hefur hluti Gyðinga smám saman farið að skilja þetta algjöra bann við myndgerð og trúlega litið á það í þeirri merkingu sem flestir gera í dag, það er að ekki megi gera myndir af hjáguðum til dýrkunar.

Trúlega hefur þarna verið um innsláttarvillu hjá Móse og hans aðstoðarmönnum. En svona er nú snúið að setja reglur sem allir eiga að hlíða. Það er næstum ómögulegt.

Sigurður Rósant, 14.7.2010 kl. 11:37

17 Smámynd: Mofi

Rósant
En það er hins vegar umhugsunarefni, hvað olli því að Móse bannaði fólki sínu myndgerð, nema í því tilviki þar sem 2 kerúbar eru myndaðir yfir sáttmálsörkinni.
Þarna er gott dæmi um myndlist sem er í góðu lagi. Málið var að það var bannað að tilbiðja það sem þú bjóst til. Ekki að það væri rangt að teikna myndir og búa til styttur. Þú veist þetta alveg svo tilgangslaust fyrir mig að rökræða eitthvað sem þú þegar veist.

Mofi, 14.7.2010 kl. 11:39

18 Smámynd: Sigurður Rósant

Búinn að senda þér ljósmyndir af nemendum og starfsfólki á Hlíðardalsskóla árin 1965 - 1967, á gmailið þitt.

Mofi - Málið var að það var bannað að tilbiðja það sem þú bjóst til. Ekki að það væri rangt að teikna myndir og búa til styttur.

 Ja, um þetta atriði vitum við svo sem ekkert með vissu. En það má líkja þessu banni við framleiðslu fíkniefna á Íslandi. Það er bannað að framleiða fíkniefni, en hvort það er bannað að selja, kaupa eða neyta þeirra gilda svo aðrar reglur.

Ég held að Móse og hans vinir hafi viljað vera svolítið afgerandi í þessu og til að draga úr öllum vafa, bæði bannað að framleiða myndir og styttur og einnig að góna á þær eða tilbiðja.

Sigurður Rósant, 18.7.2010 kl. 12:15

19 Smámynd: Mofi

Rósant, ég les það ekki úr textanum en það er líka snilldin við þetta allt saman, þetta er bara spurning um samvisku hvers og eins. Það á enginn að neyða annan til að hegða sér svona eða hins veginn; það er sannarlega rót að margri illskunni.

Mofi, 19.7.2010 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 802799

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband