Betra en himnaríki?

avatar_pandora.jpgEr töfraheimurinn sem við sjáum í myndinni Avatar betri en himnaríki?  Þó við vitum ekki hvernig himnaríki verður þá trúi ég því að það verður betra en Pandóra í Avatar. Strax miklu betra að ég á ekki von á því að við verðum blá með skrítin eyru.  Síðan munu ekki vera einhverjir kjánalegir harðjaxlar að reyna að drepa mann sem ég tel vera mikinn plús.

Að eiga von í þessu lífi og sjá tilgang með þessu öllu saman er gífurlega mikilvægt og sorglegt hve plat vísindi hafa náð að eyðileggja vonir margra.

Því miður hafa margir þá hugmynd um himnaríki að það er ekkert að gera þar. Ekkert nema að sitja á skýjum og spila á hörpu; hreinlega veit ekki hvaðan sú hugmynd kom frá en ekkert slíkt er að finna í Biblíunni.

Það sem fáir vita er að Biblían talar í rauninni aðeins um þúsund ár á himnum en síðan verður þessi jörð endursköpuð.  Ég á minnsta kosti von á því að það verður stórkostlegt, kannski eins og Pandóra án þess slæma sem við sáum í myndinni.

 


mbl.is Þunglyndir í kjölfar Avatars
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Þórhallsson

Ég held að Pandora sé betri en himnaríki. Það eru fljúgandi fjöll - HALLÓ

Sveinn Þórhallsson, 20.1.2010 kl. 13:04

2 Smámynd: Mofi

Sveinn, kannski er Guð tilbúinn að búa til eitt eða tvö fljúgandi fjöll fyrir þig Sveinn :)

Eða þú gætir gert það sjálfur, kannski hægt með nógu miklum tíma og tækni... well, kannski ekki á þessari plánetu.

Mofi, 20.1.2010 kl. 13:42

3 Smámynd: Styrmir Reynisson

Það væri mótsögn við himnaríki ef eitthvað gæti toppað það er það ekki?

Styrmir Reynisson, 20.1.2010 kl. 22:30

4 Smámynd: Mofi

Styrmir, góð spurning. Ég hef að vísu aðeins hugsað himnaríki sem frábæran stað en ekki þannig að það væri ekki hægt að ímynda sér betri stað. Maður getur alltaf ímyndað sér eitthvað, haldið að grasið sé grænna annars staðar. Samt ætti ekkert að toppa himnaríki...

Mofi, 20.1.2010 kl. 23:48

5 Smámynd: Sigurður Rósant

Mofi

Það sem fáir vita er að Biblían talar í rauninni aðeins um þúsund ár á himnum en síðan verður þessi jörð endursköpuð.

Er það nú ekki fullmikið sagt, Mofi að Biblían segi eitthvað svona lagað. Það er aðeins 1 höfundur (Jóhannes, höfundur Opinberunarbókarinnar) af a.m.k. 66 sem fullyrðir eitthvað í þessa áttina.

Hann bjó einn í langan tíma og vissi varla mun á draumum, hugsunum eða veruleika.

Daninn sem lá í 5 sólarhringa undir hrundu húsi á Haiti lýsti þessu ágætlega, þegar hann loksins náðist úr prísundinni.

Sigurður Rósant, 21.1.2010 kl. 22:21

6 Smámynd: Mofi

Rósant, það er algengt í Biblíunni að tala um Guðs ríki, að tala um að Guð mun dag einn ráða jörðinni og þá verður allt gott aftur. Það er rétt að bara Jóhannes er sá sem talar um endursköpun jarðarinnar en það er alveg í samræmi við það sem aðrir höfundar Biblíunnar tala um.

Mofi, 22.1.2010 kl. 11:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband