Richard Dawkins berst á móti því að það megi gagnrýna Darwin

dawkins_richardAthyglisvert að sjá Dawkins senda út hjálparbeiðni að menn þurfi að taka höndum saman og berjast á móti því að í Bandaríkjunum ( gaurinn er frá Bretlandi ) í einu fylki þar á að leyfa kennurum að kenna þróun á gagnrýninn hátt.

Ég fyrir mitt leiti fullyrði að þeir sem eru á móti því að þeirra trúarlegu hugmyndir séu gagnrýndar hafa ekki mikið traust á þeim. Sömuleiðis eru þeir ekki mjög vísindalega þekkjandi þar sem þeir eru á móti gagnrýnni hugsun.

 http://richarddawkins.net/forum/viewtopic.php?f=14&t=48331 


Kannski af því að góðir strákar reyna ekki að komast yfir margar stelpur?

love_ring_heart_marriage1Ég er alveg viss um að almennilegir strákar sem kunna að njóta lífsins og skemmta sér eru alltaf eftirstóttir af konum. Vondir strákar eru einfaldlega þeir sem vilja komast yfir sem flestar stelpur og er alveg sama um hvaða afleiðingar það hefur. Ég efast um að hið villta í strákum sem heillar konur er að þeir vilji sofa hjá sem flestum stelpum. Gæti haft rangt fyrir mér...   Miklu frekar hið villta væri að vera fullur sjálfstrausts og vilja prófa nýja hluti og kunna að skemmta sér; ekki að ef konan myndi missa sjónar af gaurnum og þá væri hann kominn upp á einhverja aðra stelpu.

Man eftir rannsókn fyrir nokkrum árum sem sagði að fólk nyti kynlífs miklu betur ef það var gift. Að hafa þessa yfirlýsingu um að aldrei yfirgefa viðkomandi myndaði traust sem síðan leyfði parinu að njóta kynlífsins betur.  

Ég að minnsta kosti er ekki í neinum vafa um að ráðgjöf Guðs um að finna eina konu og vera með henni til æviloka er besta ráðið þegar kemur að samböndum og kynlífi. 


mbl.is Hvers vegna komast „vondir strákar“ yfir fleiri stelpur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samt miklu einfaldara en minnsta eining lífs

sega-robot-404_679626cÞrátt fyrir að þetta virkar frekar kjánalega í mínum augum þá er engin spurning að það hefur þurft gífurlega mikinn tíma og vitsmuni að setja þetta saman. Ef við hefðum fundið svona á tunglinu, hvaða hugsandi manneskja myndi komast að þeirri niðurstöðu að þetta litla vélmenni væri ekki hannað heldur afurð miljóna ára og náttúrulegra ferla? 

Líklegast enginn en samt þá komast margir að þeirri niðurstöðu þegar kemur að uppruna fyrstu lífverunnar.  Síðan í þokkabót þá vilja þeir meina að sú niðurstaða er vísindaleg og allt annað óvísindalegt. Ég efast um að ég muni nokkur tímann skilja það fólk.

Heilbrigð skynsemi og staðreyndir haldast í hendur saman þegar kemur að þessari spurning og svarið augljóst, lífið var skapað.


mbl.is Vélmenni lifnar við
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Guð Biblíunnar og Allah sá hinn sami?

Svona dæmi sýna svo ekki verður um villst að það er allt annar boðskapur í Kóraninum og Biblíunni. Annað sem sýnir manni að eðli Islam er allt annað en eðli kristninnar er að kristni breyddist fyrst út fyrir vitnisburð manna á meðan Islam breiddist út...

Louisiana samþykkir lög sem leyfa gagnrýni á Darwin

Þann 16. júní var samþykkt í Louisiana að kennarar mættu kenna þróunarkenninguna á gagnrýninn hátt. Að þeir mættu kenna kenningu Darwins ásamt gagnrýni en ekki sem heilagan ógagnrýnilegan sannleika. Frábærar fréttir en það er enn mikið verk eftir. Meira...

Sannleikurinn og umburðarlyndi

Þetta er áframhald af hugleiðingum sem koma fram í þessari grein: Ræður þú við sannleikann? Flest trúarbrögð hafa einhverjar trúarsetningar sem eru sannar þá geta ekki öll trúarbrögð verið sönn því þau kenna mismunandi hluti; þau kenna andstæður. Svo það...

Kristni og dýraveiðar

Þegar ein vinkona mín heyrði af þessu máli þá var hún bæði hneyksluð en líka ályktaði að þarna hefðu verið á ferðinni skotglaðir vitleysingjar. Hún ólst upp á svæði þar sem birnir eru algengnir og fólk aðeins með ráðgjöf um hvað það á að gera ef það...

Ræður þú við sannleikann?

Þetta er áframhald af hugleiðingum sem koma fram í þessari grein: Pússluspil lífsins - trú og leitin að sannleikanum Sannleikurinn og trúin Þegar kemur að trúarbrögðum, þá er eins og margir hafa mikið á móti að það er eitthvað til sem heitir sannleikur;...

Þeir sem trúa ekki á tilvist einhyrninga...

Stundum þegar guðleysingjar eru að færa rök fyrir sinni trú að Guð er ekki til þá vísa þeir til þess að þeir trúa heldur ekki að einhyrningar eru til. En ástæðan fyrir því að þeir þurfa að trúa því að einhyrningar eru ekki til er vegna þess að sögur af...

Getur Gibson gefið góða leiðsögn?

Ég man eftir að hlusta á Gibson tala um sína kaþólsku trú. Þar kom fram að hann hélt að eiginkona hans væri á leiðinni til eilífra kvala í logum helvítis vegna þess að hún tilheyrði ekki Kaþólsku kirkjunni. Þarna kom líkleg sorleg kaldhæðni að hann...

Munu okkar neyðarlegu stundir elta okkur á himnum?

Ég get ekki annað en vorkennt Clinton í þessu máli. Ennþá hengur þetta yfir honum. Veit ekki hvort að hann skammist sín ennþá eða hvort að það er ennþá verið að nota þetta á hann. Ef við erum að heyra um þetta hérna á klakanum þá er þetta líklegast...

Löngu kominn tími til

Þeim söfnum og skemmtigörðum sem byggja á sögu Biblíunnar fer fjölgandi og þessi virðist eiga að verða mjög öflugur. Gaman að sjá að í Sviss er ennþá að finna mjög kristna einstaklinga sem láta verkin tala. Ef þeir láta verða að því að gera Örkina í...

Svo það er þá svona sem prestar Vantrúar klæðast

Gaman að sjá Vantrú taka þátt í trúarlífi þjóðarinnar og senda boðbera þeirra trúar. Nú er bara að stofna "kirkju" og vera með "messur" á reglulegum tímum. Ég veit að ég myndi hafa virkilega gaman að sjá og heyra Svarthöfða...

Pússluspil lífsins - trú og leitin að sannleikanum

Pússluspil lífsins Það má segja að þeir sem eru að reyna að skilja heiminn eru eins og maður að pússla saman pússluspili. Stundum þegar maður skoðar hvernig öðrum gengur þá finnst manni eins og þeir hljóti að vera með allt annað pússluspil en maður...

Eru múslimar að reyna að breyta mannkynssögunni - framhald

Því miður þá virkaði ekki ein færslan frá Lindu sem sýndi Ahmadinejad afneita helförunni svo ég ákvað að sýna eina færslu þar sem sýnir hið sama Síðan viðtal við konu sem heldur því fram að það eru til skólar í Bretlandi sem eru hættir að kenna um...

Eru múslimar að reyna að breyta mannkynssögunni?

Fékk þetta sent í pósti og fannst mjög áhugavert svo ég leyfi mér að pósta því hérna. Það var eitt sem kom þarna fram sem var rangfærsla er og búið að fjarlægja. Það sem var ekki rétt er fjallað um í frétt hérna um málið:...

Saga af kínverskum kennara veldur reiði

Hérna er saga af kennara í Kína sem yfirgaf bekk sem hann var að kenna, fullann af ungum nemendum til að bjarga sjálfum sér. Hann fullyrðir að hann hafi gert hið eina rétta, að einstaklingar ættu að setja sitt eigið öryggi fram yfir annara. Þetta hefur...

Miskunsami samverjinn - dauður og grafinn? Ekki fyrir viðkvæma

Síðasta föstudag þá gerðist það að það var keyrt á gamlann mann í Bandarískum bæ sem heitir Hartford. Eins sorglegt og það er að svona ofbeldisverk gerast á hverjum degi, ef ekki á hverjum klukkutíma eða þess vegna hverri mínútu. En í þetta skiptið...

Er ekki í rauninni mannkynssagan sem er að pirra þá?

Jón Gnarr er kannski að nudda salti í sárin en málið er samt að Kaþólska kirkjan setti sig á móti hugmyndum Galileos. Þar sem aftur á móti Galileo var persónulegur vinur tveggja páfa þá fóru þeir ekki svo illa með hann. Félag kaþólskra leikmanna hefur...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband