Löngu kominn tími til

Þeim söfnum og skemmtigörðum sem byggja á sögu Biblíunnar fer fjölgandi og þessi virðist eiga að verða mjög öflugur.  Gaman að sjá að í Sviss er ennþá að finna mjög kristna einstaklinga sem láta verkin tala. Ef þeir láta verða að því að gera Örkina í réttum hlutföllum þá yrði það að ég best veit í fyrsta sinn sem það er gert. Slatti af örkum sem eru stórar en aldrei rétta stærðin enda var hún mjög stór. Hérna fyrir neðan er hún borin saman við önnur skip sögunnar.

 

 

ships-tn

 

 

Önnur sköpunarsöfn og eftirlíkingar á Örkinni:

Örkin hans Nóa í Hollandi

Nýtt sköpunarsafn

 

 


mbl.is Biblíuskemmtigarður í bígerð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér fannst skrítið þegar ég las þessa frétt, að miðpunkturinn í showinu ætti að vera endurgerð örk.  Væri ekki réttara að hafa eitthvað svona jesúlegt sem miðpunkt?

Eða snýst þetta meira um að sannfæra fólk um að örkin hafi verið til í raun og veru heldur en að breiða út boðskap krists..

Arnar (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 15:10

2 Smámynd: Mofi

Sammála Arnar, ekki leiðin sem ég hefði valið. Í rauninni bara röng leið. Aðal ástæðan fyrir því að ég trúi að Örkin hafi raunverulega verið til er vegna Krists, að Hans vitnisburður vegur þyngra en það sem takmarkaðir dauðlegir menn í dag telja vera rökrétt.

Mofi, 11.6.2008 kl. 15:16

3 Smámynd: Jonni

Eh..Mofi; sagði Jésú eitthvað um Örkina hans Nóa? Eða réttara sagt; hefur einhver "takmarkaður dauðlegur" maður haldið því fram að hann hafi sagt eitthvað um þetta atriði?

Jonni, 11.6.2008 kl. 15:45

4 Smámynd: Mofi

Hann líkti Sinni seinni komu við daga Nóa svo Hann talaði um Nóa sem raunverulegann mann. Ekki akkurat um örkina en Nóa og flóðið.

Mofi, 11.6.2008 kl. 15:51

5 Smámynd: Jonni

Og sá sem hélt þessu fram talaði um Jésú sem raunverulegan mann mætti bæta við. En skyldi sögumaður hafa verið raunverulegur sjálfur? Sannanafærslan fyrir tilvist arkarinnar er frekar slöpp finnst mér. Telurðu þetta vera vísindalega röksemdafærslu?

Jonni, 11.6.2008 kl. 15:55

6 Smámynd: Mofi

Aðal heimildirnar um hvað Kristur sagði er að finna í þessum handritum svo ef Hann var til, þá að öllum líkindum sagði Hann þetta. Ég er ekki að koma hér með hvorki ástæður til að trúa guðspjöllunum né að trúa sögunni um Nóa. Það vonandi kemur að því.  Að vísu þá er á blogginu á víð og dreif hinir og þessir punktar sem ég tel styðja þetta en ekki í góðri lógískri uppbyggingu.

Mofi, 11.6.2008 kl. 16:01

7 identicon

Hlægilega lummó... Jesú myndi sparka í rassgatið á þessum ruglukollum... þetta er svona eins og ég myndi skilja guðlast.
En gott mál að fólk sjái hvar áherslur krissa eru, amusement park hahahaha

DoctorE (IP-tala skráð) 11.6.2008 kl. 18:37

8 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Hvað, þora þeir ekki að reyna að smíða sjófæra örk?

Greyið Hollendingurinn treysti sér ekki til að gera litla útgáfu af örkinni án þess að nota helling af stáli.

Hjalti Rúnar Ómarsson, 11.6.2008 kl. 18:48

9 Smámynd: Mofi

Veit ekki um sjófærni arkarinnar sem þeir ætla að gera. Veit ekki betur en hollendingurinn gerði sjófæra örk þótt hún er ekki í fullri stærð.

Mofi, 12.6.2008 kl. 09:25

10 Smámynd: Hjalti Rúnar Ómarsson

Auðvitað verður hún ekki sjófær. Þeir geta ekki smíðað svona stórt sjófært tréskip. Örkin hans Jóhanns var örugglega sjófært, enda skrokkurinn úr stáli!

Hjalti Rúnar Ómarsson, 12.6.2008 kl. 13:18

11 Smámynd: Mofi

Kannski hjálpar að sjá fyrir sér "flotfært" en ekki sjófært.

Mofi, 12.6.2008 kl. 15:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 802783

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband