Kannski af því að góðir strákar reyna ekki að komast yfir margar stelpur?

love_ring_heart_marriage1Ég er alveg viss um að almennilegir strákar sem kunna að njóta lífsins og skemmta sér eru alltaf eftirstóttir af konum. Vondir strákar eru einfaldlega þeir sem vilja komast yfir sem flestar stelpur og er alveg sama um hvaða afleiðingar það hefur. Ég efast um að hið villta í strákum sem heillar konur er að þeir vilji sofa hjá sem flestum stelpum. Gæti haft rangt fyrir mér...   Miklu frekar hið villta væri að vera fullur sjálfstrausts og vilja prófa nýja hluti og kunna að skemmta sér; ekki að ef konan myndi missa sjónar af gaurnum og þá væri hann kominn upp á einhverja aðra stelpu.

Man eftir rannsókn fyrir nokkrum árum sem sagði að fólk nyti kynlífs miklu betur ef það var gift. Að hafa þessa yfirlýsingu um að aldrei yfirgefa viðkomandi myndaði traust sem síðan leyfði parinu að njóta kynlífsins betur.  

Ég að minnsta kosti er ekki í neinum vafa um að ráðgjöf Guðs um að finna eina konu og vera með henni til æviloka er besta ráðið þegar kemur að samböndum og kynlífi. 


mbl.is Hvers vegna komast „vondir strákar“ yfir fleiri stelpur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mama G

Held þetta sé alveg rétt hjá þér Mofi. Það virkar svona frekar óspennandi pick-up lína að heyra "I've been with 56 women"... eins og ég fékk einu sinni  Hann komst alla vegana ekki mikið lengra með mig það kvöldið

Mama G, 20.6.2008 kl. 10:40

2 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Almáttugur Mama G, það hefur ekki verið mikið á milli eyrnanna á þessum sem sagði þetta!

En Mofi minn, erum við ekki bara uppteknir, þessir bestu? 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 20.6.2008 kl. 10:43

3 Smámynd: Mofi

Fatta ekki þannig gaura; þeir virðast ekki alveg ganga heilir til skógar. Eða eins og kaninn segir "walk whole to the woods"... 

Haukur,  held að þú hittir naglann á höfuðið! :)

Mofi, 20.6.2008 kl. 10:51

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Sammála ykkur félagar. Ljótt og bannað, saurlifnaðurinn.

Theódór Norðkvist, 20.6.2008 kl. 12:03

5 Smámynd: Anna

Ágætis pistill  hjá þér.  En þetta með besta ráðið frá Guði ?  Fólk þarf þá heldur betur að kunna að þroska með sér samskiptatækni og sjálfsaga  til að taka á þeim vanda sem uppá kemur í sambandinu.

Anna, 20.6.2008 kl. 13:23

6 Smámynd: Mofi

Hárrétt Theódór og heimurinn væri miklu betri staður ef fólk færi eftir boðorðinu um að drýgja ekki hór.

Mofi, 20.6.2008 kl. 13:33

7 Smámynd: Anna

Fólk þarf að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum. En nú gerist ég ekki plássfrekari hér í að commenta á þetta  .

Anna, 20.6.2008 kl. 13:44

8 Smámynd: Mofi

Anna, ég átti aðeins við að varðandi sambönd að þá er best að vanda valið og halda sig við það með giftingu.  Ef fólk myndi aldrei brjóta þetta boðorð Guðs þá væri ekki lengur AIDS faraldur og sömuleiðis miklu minna af börnum sem þekkja varla annað foreldrið sitt.  Ég myndi líka segja að til að láta sambandið virka þá eru ráð Krists varðandi mannleg samskipti þau bestu til að samband hjóna geti blómstrað.  Þar efst myndi ég nefna umburðarlindi og vera ávallt tilbúinn að fyrirgefa.  Takk fyrir góða punkta Anna!

Mofi, 20.6.2008 kl. 14:08

9 identicon

Ég skil hvað þú meinar.

Anna (IP-tala skráð) 20.6.2008 kl. 14:12

10 Smámynd: Theódór Norðkvist

Fyrir utan að bak við skyndikynnin og sambönd sem flosna upp eru líklega alltaf brostnar tilfinningar, tómleikakennd og sár á sálinni.

Theódór Norðkvist, 20.6.2008 kl. 15:25

11 Smámynd: Mofi

Hárrétt og síðan er stór spurning hve mikið af morðum eru framin vegna framhjá halds og lauslætis. Það auðvitað þýðir ekki að drýgja hór réttlætir morð en það er ekki hægt að neita því að það er oft ástæðan fyrir morðum.

Mofi, 20.6.2008 kl. 15:33

12 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Hvað með þau morð sem framin eru innan hjónabands án þess að framhjáhald komi við sögu?

Og hvaða augum líta sjöundadagsaðventistar skilnað?

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 20.6.2008 kl. 21:59

13 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Sæll Mofi

Ég púslaði saman spurningu fyrir þig á nýrri síðu minni, sem tók of mikið pláss til að vera athugasemd hér.

Kíktu ef þú mátt vera að:

Spurning fyrir Mofa

Kristinn Theódórsson, 21.6.2008 kl. 08:57

14 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Úps, hlekkur klikkaði.

Slóð hér: http://andmenning.blog.is/blog/andmenning/entry/573111/

Kristinn Theódórsson, 21.6.2008 kl. 08:59

15 identicon

Sér enginn þrælsmyndina að standa frammi fyrir da master og lofa honum að fólk skuli vera saman... ég segi fyrir mig að það er smá Ironmaster fílingur í þessu, það er rosalegur þrælsfílingur í trúarbrögðum; Bow before the imaginary master.
Aðalmálið í öllum samböndum er ekki gifting heldur það að pör séu VINIR, það góðir vinir að þau geti gert ALLT saman.

Fyrir mig væri það alger sambandskiller ef ég tryði því að það væri tannhvass tengdaguð að fylgjast með okkur.

DoctorE (IP-tala skráð) 21.6.2008 kl. 09:01

16 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Mofi minn.

Mikið er ég sammála þér að fara eftir ráðgöf Guðs. Oft í gegnum tíðina hef ég heyrt stráka grínast saman um að þeir hafi sofið hjá þessari eða hinni og svo lýsa þeir stelpunum og oft hef ég heyrt þá gera lítið úr stúlkunum bara til að upphefja sig á kostnað stúlknanna sem voru og eru ágætis stúlkur. Hef ekki áhuga að lána svona vindhönum líkama minn.

Guð blessi þig og launi fyrir hreinskilnina og heiðarleikann í þessum málum.

Kær kveðja/Rósa.

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.6.2008 kl. 14:29

17 Smámynd: Mofi

Tinna
Hvað með þau morð sem framin eru innan hjónabands án þess að framhjáhald komi við sögu?

Og hvaða augum líta sjöundadagsaðventistar skilnað?

Forðast hann eins og hægt er en ekki þannig að einhver þurfi að lifa við ofbeldi, hvort sem um er að ræða andlegt eða líkamlegt. Ég svo sem veit ekki opinberu afstöðu kirkjunnar í þessu en þetta er mín í stuttu máli.

Kristinn
Kíktu ef þú mátt vera að:

Spurning fyrir Mofa

Ég geri það :)

Rósa, takk fyrir heimsóknina og hjartanlega sammála þér! 

Mofi, 22.6.2008 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 802867

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband