Er Guð Biblíunnar og Allah sá hinn sami?

muslim11Svona dæmi sýna svo ekki verður um villst að það er allt annar boðskapur í Kóraninum og Biblíunni.  Annað sem sýnir manni að eðli Islam er allt annað en eðli kristninnar er að kristni breyddist fyrst út fyrir vitnisburð manna á meðan Islam breiddist út með sverði spámannsins sjálfs og þeirra sem komu á eftir honum.  Hve ólíkt er þetta t.d. þessum orðum Krists:

Matteusarguðspjall 5
38Þér hafið heyrt að sagt var: Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. 39En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim sem gerir yður mein. Nei, slái einhver þig á hægri kinn þá bjóð honum einnig hina. 40Og vilji einhver þreyta lög við þig og hafa af þér kyrtil þinn gef honum eftir yfirhöfnina líka. 41Og neyði einhver þig með sér eina mílu þá far með honum tvær. 42Gef þeim sem biður þig og snú ekki baki við þeim sem vill fá lán hjá þér.
43Þér hafið heyrt að sagt var: Þú skalt elska náunga þinn og hata óvin þinn. 44En ég segi yður: Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður.

http://www.islam-qa.com/en/ref/22809
The hypocrites fear lest a Soorah (chapter of the Qur’aan) should be revealed about them, showing them what is in their hearts. Say: ‘(Go ahead and) mock! But certainly Allaah will bring to light all that you fear.’

If you ask them (about this), they declare: ‘We were only talking idly and joking.’ Say: ‘Was it at Allaah, and His Ayaat (proofs, evidences, verses, lessons, signs, revelations, etc.) and His Messenger that you were mocking?’

Make no excuse; you disbelieved after you had believed”

 ...

With regard to the Sunnah, Abu Dawood (4362) narrated from ‘Ali that a Jewish woman  used to insult the Prophet (peace and blessings of Allaah be upon him) and say bad things about him, so a man strangled her until she died, and the Prophet (peace and blessings of Allaah be upon him) ruled that no blood money was due in this case.

 

Og síðan eitthvað á léttu nótunum: 

svin_og_islam

 


mbl.is Dæmdur til dauða fyrir guðlast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mama G

Fyrir mörgu fólki hefur Guð aldrei verið neitt annað en mikluð mynd af þeim sjálfum. Þannig að ef einhverjum manni finnst gott að sjá óvin sinn drepinn ímyndar hann sér að þá hljóti Guði líka að finnast það sama.

En Guð er óbreytanlegur. Hann er og hefur allaf verið eins. Mannkynið hefur bara þróast aðeins í hugsun með tímanum og því þróað með sér hugmyndir sínar um Guð.

Mismunandi fólk á mismunandi tímum mannkynssögunnar hefur komist í snertingu við Guð og reynt að miðla til fjöldans hvernig sú upplifun er og hvað þarf að gera til að upplifa það sjálfur - bara með misjöfnum árangri...

Mama G, 18.6.2008 kl. 12:34

2 identicon

Guð biblíu er einmitt mjög svo grimmur guð Mofi, hann er alveg fyllilega sambærilegur..
Gyðingar, Islam & kristni eru öll með sama guð.
Gabríel talaði við muhammad, ef þú trúir þínu trúarriti þá verður þú að trúa þeirra líka.. allt dæmið byggir á þvi sama
Nú skilur þú kannski hvers vegna ég hafna öllum guðum

DoctorE (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 13:42

3 identicon

Þriðja bók Móse 24:10-16

Sonur ísraelskrar konu gekk út meðal Ísraelsmanna, en faðir hans var egypskur. Lenti þá sonur ísraelsku konunnar í deilu við ísraelskan mann í herbúðunum. Og sonur ísraelsku konunnar lastmælti nafninu og formælti. Þeir leiddu hann fyrir Móse. En móðir hans hét Selómít Díbrísdóttir, af ættkvísl Dans. Og þeir settu hann í varðhald, til þess að þeim kæmi úrskurður fyrir munn Drottins. Og Drottinn talaði við Móse og sagði:"Leið þú lastmælandann út fyrir herbúðirnar, og allir þeir, er heyrt hafa, skulu leggja hendur sínar á höfuð honum, og því næst skal allur söfnuðurinn grýta hann. Og þú skalt tala við Ísraelsmenn og segja: ,Hver sá, er formælir Guði sínum, bakar sér synd. Og sá er lastmælir nafni Drottins, skal líflátinn verða. Allur söfnuðurinn skal vægðarlaust grýta hann. Hvort heldur er útlendur maður eða innborinn, lastmæli hann nafninu, skal hann líflátinn. 

Þorsteinn K. (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 13:57

4 Smámynd: Sigurður Rósant

Já, Guð Gamla Testamentisins boðaði grjótkast eins og Guð Kóransins, en Guð Nýja Testamentisins sagði eitt í dag og annað á morgun í nokkrum tilfellum.

Matt 10:34 Ætlið ekki, að ég sé kominn að færa frið á jörð. Ég kom ekki að færa frið, heldur sverð.

Matt 26:52 Jesús sagði við hann: "Slíðra sverð þitt! Allir, sem sverði bregða, munu fyrir sverði falla.

En nú er víst búið að laga efri textann þannig að í stað sverðs er komið sundrung eða sundurþykki. Svo heilög innblásin orð Guðs verða seint þýdd þannig að þau valdi ekki misskilningi.

Er Guð/Jesús ekki bara að boða Jihad eins og Allah/Múhameð?

Sigurður Rósant, 18.6.2008 kl. 19:16

5 Smámynd: Mofi

Sigurður Rósant
Er Guð/Jesús ekki bara að boða Jihad eins og Allah/Múhameð?

Nei, ef þetta er lesið í samhengi við annað sem Kristur sagði þá er Hann einfaldlega að benda á það að ef þú velur að fylgja Honum þá getur verið að margir munu vilja ráðast á þig fyrir það eitt. Það síðan gerðist fyrstu aldirnar þegar kristni breiddist um heiminn.

Mama G
Mismunandi fólk á mismunandi tímum mannkynssögunnar hefur komist í snertingu við Guð og reynt að miðla til fjöldans hvernig sú upplifun er og hvað þarf að gera til að upplifa það sjálfur - bara með misjöfnum árangri...

Ef Guð er til og ekki sífellt að breytast... er þá ekki rökrétt að Hann myndi hafa haft einhvert samband við okkur?

Þorsteinn
Allur söfnuðurinn skal vægðarlaust grýta hann. Hvort heldur er útlendur maður eða innborinn, lastmæli hann nafninu, skal hann líflátinn.

Gyðingar lifðu ekki við trúfrelsi en kristnir gera það. 

DoctorE
Gabríel talaði við muhammad, ef þú trúir þínu trúarriti þá verður þú að trúa þeirra líka.. allt dæmið byggir á þvi sama
Nú skilur þú kannski hvers vegna ég hafna öllum guðum

Nei, því að Kóraninn er það sem einhverjir fylgjendur Múhammeðs sögðu að hann hefði sagt. Síðan stundaði Múhammeð sitt trúboð með sverði og það segir mér að hans boðskapur hafi þurft smá hjálp til að vera... trúanlegur. Biblían aftur á móti hefur marga höfunda og margir þeirra létu lífið fyrir það sem þeir voru vitni að og sögðu að væri satt. Mjög ólíkt.

En ég hef aðeins betri skilning jú afherju þú hafnar öllum guðum.

Mofi, 18.6.2008 kl. 19:32

6 identicon

Uhhh og biblían er eitthvað sem einhverjir söguðu að guð hefði sagt, og svo kom guð og drap alla á jörðinni, og hann drap og drap og lagði svo upp með plan til þess að láta drepa son sinn(Hann sjálfan) svo hann gæti fyrirgefið okkur.
Margir aðalmenn guðs voru sjálfir morðingjar, níðingar... same thing Mofi
Getum við fyrirgefið honum?

DoctorE (IP-tala skráð) 18.6.2008 kl. 21:53

7 Smámynd: Mama G

Mofi: Ef Guð er til og ekki sífellt að breytast... er þá ekki rökrétt að Hann myndi hafa haft einhvert samband við okkur?

Fyndið að þessi spurning skuli koma frá þér Mofi  ...eða eru einhverjir staðir í Biblíunni þar sem hann talar um að gera það, öðru vísi en með endurkomu Jesú?

Ég hef alla vegana aldrei skilið af hverju fólk heldur að það sé díllinn að Guð mæti bara allt í einu á svæðið í eigin persónu til að sanna sig, af hverju í ósköpunum ætti það að gerast!? Hvað yrði þá um hinn frjálsa vilja mannsins?

Hann er og hefur alltaf verið sýnilegur hverjum sem vill sjá hann. Fólk nennir bara ekki að bera sig eftir því. Þegar maður sér Guð sér maður hann með öllum skynfærum sem maður mögulega hefur, ekki bara augunum. Þess vegna er kannski betra að tala um að upplifa Guð.

Mama G, 18.6.2008 kl. 22:05

8 Smámynd: Mofi

Mama G
Fyndið að þessi spurning skuli koma frá þér Mofi  ...eða eru einhverjir staðir í Biblíunni þar sem hann talar um að gera það, öðru vísi en með endurkomu Jesú?

Punkturinn sem ég var að reyna að koma að var að ef Guð er til þá myndi Hann að mínu mati hafa eitthvað samband við okkur. Ég tel að Hann hafi gert það og af þeim opinberunum sem fólk heldur fram að séu til þá tel ég Biblíuna vera... "the real deal"...

Mama G
Ég hef alla vegana aldrei skilið af hverju fólk heldur að það sé díllinn að Guð mæti bara allt í einu á svæðið í eigin persónu til að sanna sig, af hverju í ósköpunum ætti það að gerast!? Hvað yrði þá um hinn frjálsa vilja mannsins?

Sammála að frjálsi vilji mannsins væri tekinn frá honum ef Guð myndi bara mæta á svæðið. Reyndi að útskýra það í þessari færslu hérna: Pússluspil lífsins - trú og leitin að sannleikanum

Þú aftur á móti virðist alveg vera sammála mér varðandi þetta atriði svo... :) 

Mofi, 18.6.2008 kl. 23:06

9 Smámynd: Mofi

DoctorE
Margir aðalmenn guðs voru sjálfir morðingjar, níðingar... same thing Mofi
Getum við fyrirgefið honum?
Spurningin er frekar hvort að Guð hafi rétt til að dæma og taka líf af þeim sem misnota þá gjöf sem lífið er... 

Mofi, 18.6.2008 kl. 23:07

10 identicon

Punkturinn sem ég var að reyna að koma að var að ef Guð er til þá myndi Hann að mínu mati hafa eitthvað samband við okkur. Ég tel að Hann hafi gert það og af þeim opinberunum sem fólk heldur fram að séu til þá tel ég Biblíuna vera... "the real deal"...

Nú, síðast sagðirðu að það væri sköpunin sem væri aðal-opinberunin. Þú virðist ekki geta ákveðið þig, en það er líklega mjög þægilegt að geta breytt um skoðun eins og sokka í rökræðum ef maður vill hafa rétt fyrir sér...

Sveinn (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 00:54

11 Smámynd: Mofi

Sveinn, hvar er ég eiginlega að skipta um skoðun?  Hvar segi ég að eitthvað annað en sköpunin er aðal-opinberunin?

Mofi, 19.6.2008 kl. 10:31

12 identicon

Bíddu varstu ekki að enda við að skrifa

Punkturinn sem ég var að reyna að koma að var að ef Guð er til þá myndi Hann að mínu mati hafa eitthvað samband við okkur. Ég tel að Hann hafi gert það og af þeim opinberunum sem fólk heldur fram að séu til þá tel ég Biblíuna vera... "the real deal"...

?? 

Sveinn (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 11:10

13 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Er Gvuð Gyðinga, Kristinna og Múslima ekki allur saman Gvuð Abrahams?

Ég hefði eimmitt haldið það...

...og fengið stig fyrir í spurningakeppninni. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 19.6.2008 kl. 19:09

14 Smámynd: Mofi

Sveinn
Bíddu varstu ekki að enda við að skrifa

Og hvernig færðu það út úr þessum orðum?  


Einar Valur
Er Gvuð Gyðinga, Kristinna og Múslima ekki allur saman Gvuð Abrahams?

Ég hefði eimmitt haldið það...

...og fengið stig fyrir í spurningakeppninni.

Það er vægast sagt annar karakter sem er að finna í Kóraninum og Biblíunni. Þarf ekki að rannsaka það neitt mikil til að sjá það.  Aftur á móti þá var Múhammeð 500 árum eftir Krist og hafði Biblíuna og hreinlega endurtók mikið af þeim sögum sem eru að finna í Biblíunni.

Mofi, 20.6.2008 kl. 10:14

15 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Já...

...en nú ert þú 2008 árum eftir áætlaðan Krists burð og ert því lengra frá þeim eyðimerkurguði sem var trúað á á tímum Múhammeðs, og enn lengra frá Ésú, hvað þá GamlaTestamentisguðinum!

En það sem mér skilst á þér með þessari tímaútskýringu er að Gvuð ykkar Abrahamistanna, eigi við skapgerðabresti og sveiflur að stríða, hafi verið hefnigjarn og viljað börnum barið við stein eða grýtt fyrir ódælni eða það að vera barn óvina þinna, síðan verið rosa friðsæll og næs þegar Ésú talaði (nema ef þú girnist konu nágranna þíns, þá skaltu limlesta þig og rífa út auga), farið aftur í fýlu með postulunum og endanlega gengið af göflunum á tímum Múhammeðs...?

Ég myndi frekar ráðleggja þessum Gvuði Xanax en nokkurntíman kitla egó hans með dýrkun.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 20.6.2008 kl. 17:45

16 identicon

Mofi þér finnst hinn ímyndaði guð hafa rétt til þess að drepa okkur... það gerir þig að sjálfskipuðum þræl, sem er aumkunarvert

DoctorE (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 10:23

17 Smámynd: Mofi

Einar Valur
...en nú ert þú 2008 árum eftir áætlaðan Krists burð og ert því lengra frá þeim eyðimerkurguði sem var trúað á á tímum Múhammeðs, og enn lengra frá Ésú, hvað þá GamlaTestamentisguðinum!

En við erum með áreiðanleg handrit frá þessum tímum og vitnisburð fyrstu kirkjufeðranna. Það er töluvert áreiðanlegra en skáldskapur einhvers eins kallls þ.e.a.s. Múhammeðs.

Einar Valur
En það sem mér skilst á þér með þessari tímaútskýringu er að Gvuð ykkar Abrahamistanna, eigi við skapgerðabresti og sveiflur að stríða, hafi verið hefnigjarn og viljað börnum barið við stein eða grýtt fyrir ódælni eða það að vera barn óvina þinna, síðan verið rosa friðsæll og næs þegar Ésú talaði (nema ef þú girnist konu nágranna þíns, þá skaltu limlesta þig og rífa út auga), farið aftur í fýlu með postulunum og endanlega gengið af göflunum á tímum Múhammeðs...?

Guð hefur ekkert breyst að því leiti að þeir sem gera slæma hluti munu ekki erfa eilíft líf. Þarna aftur á móti fékk fólk að sjá hinn sama dóm fyrr til að kenna þeim og vara þau við því að hafna lögum Guðs og þá Honum sjálfum.

DoctorE
Mofi þér finnst hinn ímyndaði guð hafa rétt til þess að drepa okkur... það gerir þig að sjálfskipuðum þræl, sem er aumkunarvert

Ég hef ekkert á móti því að vera þræll Guðs... 

Mofi, 22.6.2008 kl. 11:03

18 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Hvað höfðu KORNABÖRN Egyptalands gert honum?

Ég hélt að börn væru saklaus...

Ef einhver maður léti eins og Gvuð ykkar Abrahamistanna, þa væri honum komið í steininn. 

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 23.6.2008 kl. 14:34

19 identicon

Og hvernig færðu það út úr þessum orðum?  

Öh, þú hlýtur að vera að grínast...

...af þeim opinberunum sem fólk heldur fram að séu til þá tel ég Biblíuna vera... "the real deal"...

Sveinn (IP-tala skráð) 23.6.2008 kl. 17:12

20 Smámynd: Mofi

Einar Valur
Hvað höfðu KORNABÖRN Egyptalands gert honum?

Ég hélt að börn væru saklaus...

Guð tekur líf og gefur líf; þar sem Guð getur gefið öllum þessum börnum sem virkilega voru saklaus aftur líf þá er þetta ekki eitthvað sem ég hef áhyggjur af. Guð þykir án efa meira vænt um þau en mér og þér.

Sveinn
Öh, þú hlýtur að vera að grínast...

Þú ert alveg ótrúlegur...  þetta þýðir það ekki...  

Mofi, 24.6.2008 kl. 09:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 802814

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband