Er svínakjöt holl fæða?

wda0443lÍ rökræðum um hvort að Biblían væri úreld eða ennþá viðeigandi fyrir daginn í dag þá komu þau rök að Biblían væri úreld vegna þess að hún hefur rangt fyrir sér varðandi hvort að svín væru góð til matar eða ekki. Rökin eru þau að fyrst að Biblían segir að svín eru óhrein dýr, ekki hæf til áts en að það er ekki lengur rétt þá er Biblían úreld að þessu leiti.

Svo stóra spurningin er hvort að svín eru góð til matar eða hvort að Biblían fór með rétt mál og hennar ráðgjöf varðandi mataræði er ennþá góð ráð í dag.

Hérna eru nokkur rök fyrir því að svín eru ekki góð til matar og er unnið upp úr þessari grein hérna:  PIG & PORK FACTS

 

Svínakjöt er vinsælt meðal flestra kristinna en flestir þeirra vita ekki að Guðinn sem þeir lýsa yfir að tilbiðja hafði fordæmt að borða svínakjöt. Þessi fordæming getur vel verið vegna þessara atriða hérna varðandi svínakjöt sem sýna svo ekki verður um villst að þetta getur ekki verið góð fæða fyrir fólk.

  • Svín eru algjör ruslakista. Þau borða allt, þar á meðal þvag, skít, hrörnandi dýraleyfar, orma og jafnvel krabbameins vöxt annara svína og dýra.
  • Kjöt svína sígur í sig eiturefni eins og svampur. Ekki óalgengt að kjöt svína er 30 sinnum eitraðra en nautakjöt.
  • Þegar menn borða nautakjöt þá tekur það líkamann um 8-9 tíma að melta það svo að hvaða magn af eitri sem er í því getur verið tekið burt af lifrinni. En þegar svínakjöt er étið þá tekur það aðeins 4 klukkutíma að melta kjötið. Þannig fáum við miklu meira af hvaða eitri sem er í kjötinu á skemmri tíma.
  • Ólíkt nautgripum og lömbum þá svitna svín ekki út úr líkamanum heldur inn í kjötið sjálft. Þegar dýr svitna þá fara eiturefni út úr líkamanum en fyrir svínin þá fara þau í kjötið.
  • Svín eru svo eitruð að ef eitraðir snákar bíta þau, þá hefur það vanalega lítil áhrif á þau og hið sama gildir um önnur eitur.
  • Bændur setja svín oft með skröltormum því að svínin munu éta snákana og ef þeir bíta þau, þá hefur eitrið ekki merkjandi áhrif á svínin.
  • Þegar svíni er slátrað þá er það étið upp af ormum og skordýrum miklu hraðar en flest önnur dýr.
  • Svín hafa fleiri en tólf snýkjudýr í þeim og mörg þeirra geta valdið sjúkdómum. Mjög erfitt að elda kjötið þannig að það er alveg 100% öruggt.
  • Kýr hafa flókin meltingarveg enda með fjóra maga. Það tekur þess vegna u.þ.b. 24 klukkutíma að melta þeirra grænmetis fæði sem hreinsar eiturefni úr kjötinu. Aftur á móti þá tekur það svín aðeins um 4 klukkutíma að melta sína fæðu þar sem að eiturefnin verða hluti af kjötinu.

Einhverjir kristnir gætu verið ósammála og sagt að þetta tilheyrði Gamla Testamentinu en ekki því Nýja og ég er alveg til í að taka þá umræðu upp ef einhver áhugi er fyrir hendi.

Ég man eftir þegar ég fékk í fyrsta sinn bacon borgara, það var óneitanlega alveg frábært. Sömuleiðis eru pítsur í uppahaldi hjá mér og pepparóní pítsur þær bestu svo... það er ekki hægt að neita því að það var mikil eftirsjá í að forðast svínakjöt.

Annars fyrir mitt leiti er ég þakklátur að Guð gaf okkur góð ráð varðandi heilsu sem hafa staðist tímans tönn og forðað okkur frá alls konar sjúkdómum og hvers konar óheilbrigði. 


C.S. Lewis - Mere Christianity

csl2Hérna er hægt að downloada bók C.S.Lewis Mere Christianity. Ef einhver vill taka sér smá tíma til að kynna sér hvernig þessi snillingur útskýrði hina kristnu trú þá er þetta mjög góð byrjun. Þeir sem segjast vera opnir og leitandi þá er þetta góð kynning á kristni og rökum fyrir henni.

Mere Christianity Audio Book


Rövlað við lúguna - Vandamál við trúarbrögð - sjónarhorn guðleysingja

t_17172Bloggarinn Jóhannes H. Proppé  skrifaði forvitnilega grein sem hægt er að finna hérna: Vandamál við trúarbrögð - sjónarhorn guðleysingja

Þar sem að þetta er mikið efni langaði mig að taka svarið saman hérna. 

 

Heilagastasta ritið
Margir ganga út frá því að biblían sé heilagur sannleikur, guðlega innblásin og sannur með öllu. Meðan aftur á móti er Kóraninn, Mormónsbók, Hávamál og Talmudinn bara skrafl á pappír. Jafnvel þótt einhver vers í biblíunni hefðu komið frá guði, hversu mikið af því hefði lifað af óteljandi umskrifanir, þýðingar og söguhagræðingu síðastliðinna 2000 ára?

Hafa ber í huga að þeir sem aðhyllast að Kóraninn eða Mormónsbók sé sönn telja oft að Biblían er ekki rétt, pottþétt þar sem hún er ekki í samræmi við boðskaps hinna bókanna.  Varðandi umskrifanir og þýðingar þá er t.d. Nýja Testamentið best staðfesta bók af fornum bókmenntum þegar kemur að handritum. Gæði handrita og samræmi á milli þeirra og aldur. Skrifaði um þetta efni hérna: Hann er ekki hér, Hann er upprisinn

  

Siðferðisleg sjálfumgleði
Margir virðast sannfærðir um að sú siðferðislega heimspeki sem þeir aðhyllast sé öðrum betri. Sjálfur geri ég það, enda er það mitt siðferði, ekki fengið úr pakka eða bók. Margar hugmyndir kristninnar eru mjög góðar, samanber náungakærleik. Stundum eiga trúaðir til að gleyma þessum kærleika þegar kemur að fólki sem sumir geta túlkað sem svo að séu ekki bókinni samboðnir. Ef einhver var ekki að skilja þá var ég að meina andúð trúaðra gegn samkynhneigðum og réttindum þeirra til að stofna til fjölskyldu. Einhverstaðar var talað um sjónræna bjálka og syndlaust grjótkast (í glerhúsi).

Eins manns siðferði er annars manns synd. Það er mjög slæmt að sumir kristnir virðast hafa ( eða hreinlega hafa ) andúð á hópum eins og samkynhneigðum. Það er samt ekki hægt að líta frá því að kristnir trúa því að samkynhneigð er ekki í samræmi við vilja Guðs og þar af leiðandi slæmt fyrir þá einstaklinga sem lifa þannig. Þannig að sá boðskapur á að vera gerður vegna umhyggju til þeirra sem velja þennan lífstíl því að við trúm því að þetta mun valda þeim skaða.  

Trúboð
Þetta á ekkert endilega við kristna frekar en múslima eða mormóna en á sérstaklega við þá sem eru að reyna að ná til barna. Flest trúarbrögð eru virkt að reyna að ná fleirum á sitt band, sumir gera það af misvísuðum kærleik, reyna að forða fólki frá vítisvist. Aðrir gera það til að reyna að tryggja sér himnavist með því að bæta í söfnuðinn, einskonar himneskt pýramídaplott. Eini söfnuðurinn sem ég veit að er með stranga reglu gegn trúboði er Ásatrúarfélagið og dafna þeir engu að síður.

 

Eftirlífs-elítismi
Flestar útgáfur af kristni sem ég hef séð lofa manni ýmist vítisvist eða engu boðskorti í eftirlífspartíið. Það er ekkert pláss fyrir fólk sem að hefur lifað heiðvirðu lífi, komið vel fram við náungann og verið sér og sínum trúr ef viðkomandi hefur ekki játast heilögum anda. Í Ragnarökum ásanna þá er staður nefndur Gimlé og þar sleppa heiðvirðir menn, sem þó ekki komust til Valhallar, við bál Surts og taka þátt í að koma heiminum á réttan kjöl á ný. Í kristni bíður þeirra allt frá helvíti til limbósins.

Samkvæmt mínum skilningi þá er ástæðan fyrir að einhver fær ekki aðgang að himnaríki er vegna þess að hann hefur hatað, logið, stolið eða hvers konar illska.  Eina leiðin til að komast til himna er að iðrast og taka við þeirri gjöf sem krossinn er; borgunin fyrir þá glæpi sem viðkomandi kann að hafa drýgt.  Síðan er helvíti ekki eilífar þjáningar í eldum vítis heldur dauðinn sem allir vita að bíður þeirra.

Ritning>röksemd
Þegar stendur í bókinni að guð hafi skapað himin og jörð meðan allar rannsóknir sýna að jörðin sé mynduð úr efni sem varð afgangs við myndun sólarinnar og fólk þarf raunverulega að hugsa sig um? Sama á við um sólmiðjuvesenið á rannsóknarréttinum og þetta ID vs. Darwin vesen.

Það er ekki eins og menn vita af einhverju viti hvernig jörðin og sólin varð til með aðeins náttúrulegum ferlum.  Að einhverjir menn trúðu einhverju sem kom ekki úr Biblíunni ætti að varpa aðeins ljósi á hve menn eru slappir að komast að góðum niðurstöðum án góðrar leiðbeiningar. ID og Darwin, það sem það raunverulega fjallar um er hvort er betri útskýring á þúsund alfræðiorðabókum, efnafræði og náttúrulegir ferlar eða vitsmunir. Ég veit ekki betur en allar bækur sem innihalda upplýsingar voru skrifaðar af mönnum eða vitsmunaverum. Enginn hefur komið með sannanir fyrir því að eitthvað annað en vitsmunir geti búið til þúsund alfræðibækur.

Sannskoska röksemdin
Þegar trúaðir fara að eigna sér afrek fólks og afneita ólátum þess. Þegar bent er á hina og þessa vísindamenn og heimspekinga og sagt "Þarna fór kristinn maður". Má vera, gætir eins bent á kauða og sagt "Þarna fer konungssinni/lýðræðissinni/endurreisnarmaður". Eins er það óþolandi þegar upp kemst um kirkjunnar menn sem sýna af sér fádæma siðleysi og þá eru menn fljótir að hrista hausinn og segja "Hann er greinilega ekki kristinn fyrst hann lætur svona".

Auðvitað!  Ef þú ert með einhvern sem þykist vera sjálfstæðismaður en vill síðan að ríkið eigi allt og vill banna einkaeign þá myndir þú segja að þetta er nú ekki "sannur" sjálfsstæðismaður.  Kristur setur fram hvernig menn eiga að hegða sér og það er ekki hægt að kenna Honum um að menn hegða sér ekki; sérstaklega þegar Hann varaði við að margir myndu þykjast fylgja Honum en væru sem úflar í sauðagæru. 

Kristin þjóð
Hversu kristnir eru íslendingar raunverulega? Ég efast um að þau 90% prósent íslendinga sem eru í þjóðkirkjunni séu jafn kristnir og þeir sem að tönglast hvað mest á þessum 90%. Flestir láta sér duga skírnir, fermingar, brúðkaup og jarðarfarir. Mér segir svo hugur að það sé aðallega vegna þess að það eru ekki margir skemmtilegir valmöguleikar í staðinn. Flestir fæðast inn í kirkjuna, leyfi mér að efast um að margir séu að sækja þangað.

 Sasmmála

Siðferðisleg heimtufrekja
Heimurinn stendur ekki og fellur með boðorðunum 10. Sambærilegar reglur voru til löngu áður en gyðingarnir flúðu Egyptaland og líka í menningarheimum sem höfðu aldrei heyrt af síðhærða trésmiðnum frá Nazaret. Ég trúi ekki staf í biblíunni, nema kannski þarna fremst þar sem þeir segja mér hvar hún var prentuð, en er samt fyllilega fær um að sleppa því að myrða, stela, nauðga eða brúka munn við foreldra mína. Þessi hugmynd um að siðferðislega færi heimurinn til helvítis án guðlegs dóms er sambærilegt við að gefa bara stefnuljós þegar löggan er beint fyrir aftan mann. Fólk getur raunverulega komið vel fram við aðra af tillitsemi, ekki ótta við refsingu.

Ég trúi því að Guð gaf okkur öllum þekkingu á réttu og röngu svo ég er ekki sammála að þeir sem eru ekki kristnir eru endilega eitthvað minna siðari en aðrir.  Þó er það samt þannig að standardinn sem Kristur gaf er æðri en allir menn myndu búa til handa sjálfum sér.

Dómsdagsspámenn
Á efsta degi mun [setjið inn sendiboða dómsdags] [setjið inn aðferð við að spila á hljóðfæri] [setjið inn hljóðfæri] sinn/sitt/sína [strokið út það sem ekki við á] og [setjið inn ógnvald] koma úr/ofan af [strokið út það sem ekki við á] dýpinu/himnum [strokið út það sem ekki við á] og eldur/flóðbylgja/frost/eldgos/jarðskjálfti [strokið út það sem ekki við á] tortíma öllum syndugum í augum [setjið inn nafn guðlegrar veru].

Þið getið vafalaust fundið þessa efnisgrein í hvaða trúarriti sem er. Það hafa verið menn sérhverja einustu kynslóð síðan trúarbrögð voru fundin upp sem hafa verið sannfærðir um að allt sé á leiðinni í vaskinn og dómsdagur sé á þriðjudaginn, fimmtudag í það seinasta. Það væri kannski auðvelt að sjá fyrir sér dómsdag á bronsöld og þú ert að sjá þitt fyrsta eldgos, en hnattræn tortíming? Þú þyrftir náttúruhamfarir á borð við vænsta hnullung utanúr geimnum, hikstakast hjá sólinni eða ofstækismann í hvíta húsinu sem er orðinn þreyttur á að bíða eftir dómsd....   Ó boj... 

Dómsdagur á að vera dagur réttlætis, þar sem þeir sem hafa verið kúgaðir fá hlut sinn bættann. Dagurinn sem glæpamenn hætta að fá að kúga og valda öðrum þjáningum. Það er eftir þennan dag sem engin þjáning og dauði er lengur til svo þetta er miklu frekar byrjunin á góðu lífi en endirinn. 

Réttlæting óréttlætis
Þegar fólk er að réttlæta kynjamisrétti, kynþáttahatur, stríð, þjóðarmorð, pyntingar og ofsóknir með trúarritum. Ekki reyna að veifa "þeir voru ekkert kristnir" spjaldinu. Krossfarar stunduðu margskonar voðaverk, rannsóknarrétturinn er með svarta samvisku og þessir snaróðu hryðjuverkamenn sem að reglulega sprengja sig í loft upp til að drepa nokkra saklausa borgara í leiðinni gera þetta allir með annað hvort kóran eða kross í vasanum. Ekki koma með "Stalín var trúlaus" spilið, hann framdi sín voðaverk í nafni kommúnisma, ekki trúleysis.

Í einu orðinu þá er talað um að nota trúarrit til að réttlæta eitthvað og í öðru má ekki benda á trúarritið þegar kemur að þeim sem hegða sér illa.  Ef einhver gengur á móti boðskapi trúarritsins þá greinilega er það ekki trúarritinu að kenna.  Varðandi að Stalín var trúlaus... Stalín einfaldlega var trúlaus og við sjáum hvernig hann hegðaði sér. Þar sé ég hvernig hann gat notað þá trú ( trúleysi á Guð ) og álykta að sú trú hafði slæmar afleiðingar. Hvað Stalín gerði í nafni einhvers kemur málinu ekki við. Ef Stalín hefði gert þetta í nafni Jóhannes Proppé þá hefði Jóhannes líklegast eitthvað við það að athuga.  Alveg eins og ef Stalín hefði gert það sem hann gerði í nafni Krists þá hefði ég mjög mikið við það að athuga.

Vonandi hefur Jóhannes ekkert á móti að ég svaraði honum hérna.

Vinar kveðja,
Mofi


Imagine there is no possession

Eitthvað á Yoko Ono erfitt með að fylgja boðskap lagsins eftir og gott að þetta bull í henni er á enda. Ætli hún hafi reynt að ímynda sér "engar eignir" áður en hún ákvað að fara í mál við einhverja sem voru að gera heimildarmynd og notuðu nokkrar...

Hverjir eru dónalegri, kristnir eða vantrúar?

Það kom upp skemmtileg umræða á þræðinum hans Hauks þar sem hann var að rífast við Matta hjá Vantrú um hvor hópurinn, kristnir eða Vantrúar væru dónalegri. Svo, mig langar að vera með smá skoðana könnun hvað fólki finnst. Hvor hópurinn er dónalegri? Ég...

Um hjálparstarf ADRA í Búrma

Stutt samantekt yfir hjálparstarf ADRA í Búrma en það eru ekki svo margar hjálparstofnanir sem hafa náð að starfa á þessu svæði. Hérna er hægt að styrkja þetta starf, sjá: Myanmar Cyclone Fund Grein: ADRA í Myanmar Eins og alþjóð veit fór fellibylurinn...

Baloney Detector: Your Guide to Clear Thinking

Hérna er síða sem fer yfir rökvillur og áróðurs tækni sem sumir nota, sjá: http://www.creationsafaris.com/crevbd.htm Sérstaklega er tekið á rökum þróunarsinna í þessu samhengi og er fróðleg lesning.

Bono, Karma og náð

Merkilegt hvað þetta er algeng trú að Guð sé eins og þrumuguðinn Þór og er að refsa fólki hingað og þangað um heiminn. Biblían talar aðeins um þetta, þegar hún segir að Guð geri ekkert nema láta þjóna sína, spámennina vita. Alveg eins og þegar Guð lét...

Hver fær heiðurinn af því að búa til alvöru greind?

Þetta er meiriháttar árangur hjá Ara og ég sé ekki betur en hann á verðlaunin vel skilið. Mig minnir að hann hafi kennt áfanga um gerfigreind þegar ég var í HR en gæti verið að misminna. Það sem mér finnst standa svo upp úr í svona er hve mikla vinnu og...

Blóðskömm og óeðli?

DoctorE benti á síðu sem gagnrýnir Biblíuna. Ætla að svara þessari síðu sem Doctorinn bendir á. Hérna er færsla DoctorE, sjá: Blóðskömm & annað óeðli: Topp 6 í biblíunni Cain and his Wife Já, það er ekki hægt að neita því að fyrstu mennirnir giftust...

Má það ekki?

Ég ætla rétt að vona að þú ( lesandi ) hrópir yfir þig "NEI"! En hvaðan kemur þessi skoðun? Þessi "þekking" að þetta er algjörlega rangt og getur aldrei verið rétt? Sumir vilja meina að siðferði er afstætt. Fer eftir stað og stund; fer eftir menningu og...

Fyrir kristna: Námskeiðið "Deilan Mikla"

Fyrir fjórum árum síðan kom hingað fyrirlesari sem var með ýtarlegt námskeið um Biblíuna þar sem tekið var sérstaklega á deilunni miklu milli góðs og ills og spádómum Biblíunnar. Fyrirlesarinn heitir Chad Kreuzer og er frá Bandaríkjunum en hann er þýddur...

Getur líf verið frumstætt?

Þeir sem trúa því að líf geti kviknað með aðeins náttúrulegum ferlum án allrar hönnunar verða að grípa til þess að tala um "frumstætt" líf eins og það er til einföld útgáfa af lífinu. Ég er hræddur um að þannig er aðeins til í ímyndunarafli sumra manna...

Atburðir endalokanna

Hérna er fyrirlestra röð sem fjallar um hvað Biblíuna segir um síðustu tímana.

Hræsni í góðverkum

Hvernig væri að nota eitthvað af þessum auðæfum sem hún er að drukkna í, til að bæta aðstæður HIV smitaðra barna? Hennar líf er ein alsherjar munaðarveisla, þar sem engu skal til sparað til að henni líði sem best frá morgni til kvöld. Jesaja 64 5 og...

Anna, ertu alveg viss um að þú viljir vera stelpa?

Alveg sé ég fyrir mér foreldri spyrja barnið hvort það vilji nú ekki frekar vera strákur frekar en stelpa því að það er þegar búið að eignast fjórar stelpur. Heyrði sögu fyrir nokkru þar sem sagt var frá fjölskyldu þar sem foreldrarnir voru búnir að...

Námskeið í spádómum Biblíunnar

Námskeið- Spádómar Biblíunnar í Suðurhlíðarstofu, Suðurhlíð 36 kl. 20 Langar að benda á námskeið sem byrjar í dag klukkan átta og heldur áfram næstu sjö kvöld. Fjallað verður um hvort að spádómarnir eru skiljanlegir og hvaða þýðingu þeir hafa fyrir okkur...

Trúir þá Cherie ekki að páfinn sé óskeikull?

Hennar gjörðir segja svo sem allt sem segja þarf. En hvernig er það, trúir hinn venjulegi kaþólikki því að páfinn sé óskeikull? Hérna fjallar kirkjan sjálf um þetta efni: Explanation of papal infallibility Hið fyndna er að þeir nefna Pétur postula sem...

Afhverju Kristni?

Valið Ímyndaðu þér að þér væru boðnar fjórar gjafir: Móna Lísa málverkið Lyklarnir að glænýjum Lamborghini Hundrað miljónir í peningum Fallhlíf Þú getur aðeins valið eina af þessum fjórum. Hvað myndir þú velja? Áður en þú ákveður þig þá færðu hérna...

ADRA að starfi í Búrma

Hérna er frétt frá heimasíðu ADRA af starfi þeirra í Búrma og hérna er linkur á síðu sem gefur manni kleypt að styrkja starfið, sjá: Myanmar Cyclone Fund May 16: ADRA Delivers Increased Aid in Southern Myanmar Friday, May 16, 2008 Silver Spring,...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband