Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Góð hugmynd hjá Denzel Washington

denzelwashingtonpicture.jpgDenzel Washington er í miklu uppáhaldi hjá mér svo fyrir mig er þetta mjög skemmtileg frétt.   Biblían er full af góðum ráðum og margir ættu að íhuga alvarlega að fara að þessu fordæmi Denzels.

Dæmi um ráð eru t.d.

  • Borða aðalega ávexti, fræ og grænmeti því það er fæðið sem við vorum hönnuð fyrir.
  • Taka sér einn dag á viku til að hvíla sig og eiga stund með fjölskyldunni.
  • Forðast hættur áfengis ( Orðskviðirnir 20:1, Jesaja 5:11 )
  • Ekki reiðast ( Sálmarnir 37:8 )
  • Sýna öðrum gjafmildi ( Matteus 5:42 )
  • Ekki hata neinn, ekki einu sinni þá sem setja sig upp sem þína óvini ( Matteus 5:43 )
  • Koma fram við aðra eins og þú vilt að þeir komi fram við þig ( Matteus 7:12 )
  • Forðastu eins og þú getur að skulda öðrum ( orðskviðirnir 22:7 )
  • Sýndu umhyggju fyrir ekkjum, ókunnugum og munaðarleysingjum ( 2. Mósebók 22:22)
  • Ekki slúðra um annað fólk ( 3. Mósebók 19:6 )
  • Sýndu eldra fólki virðingu ( 3. Mósebók 19:32 )
  • Viska er betri en auður ( Orðskviðirnir 8:11 )
  • Vertu góður við dýrin ( Orðskviðirnir 12:10 )
  • Hlustaðu á ráðlegginar foreldra þinna ( Orðskviðirnir 13:1 )
  • Vingjarnlegt andsvar kemur í veg fyrir reiði ( Orðskviðirnir 15:1 )
  • Að vera glaður er gott fyrir heilsuna ( Orðskviðirnir 17:22 )

Af mjög miklu er að taka og þetta er bara lítið sýnishorn. Langar einnig að nefna heilsufars og hreinlætis reglur sem hefðu getað komið í veg fyrir dauða þúsunda ef ekki miljóna.

En þetta var skemmtileg frétt og vonandi hvatning fyrir marga að skoða betur Biblíuna.


mbl.is Denzel Washington lifir samkvæmt Biblíunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hve einfalt getur lífið orðið?

prokaryote_cell-_en_svgMinnstu og einföldustu gerðir af frumum eru dreifkjörnungar. Þetta eru bakteríur og forngerlar sem hafa engan kjarna og vanalega litið á sem frumstæð form lífs.  Vísindamenn eru aftur á móti að finna að þeir gera mörg af þeim flóknu aðgerðum sem heilkjarna frumur gera.

Tímaritið PhysOrg var með umfjöllun um Mycoplasma sem er tegund af dreifkjörningum og þar kom fram meðal annars þetta:

PhysOrg
Even the simplest cell appears to be far more complex than researchers had imagined.  In a series of three articles in the journal Science, researchers including Vera van Noort at the European Molecular Biology Laboratory (EMBL) in Heidelberg, have provided a complete picture of a single cell for the first time.  The study has provided important new insights for bacterial biology.  For instance, prokaryotes – cellular organisms without a cell nucleus – seem to be more similar to eukaryotes than was previously thought.

Á meðal þess sem var uppgvötað var að bakteríurnar virðast vera settar saman á miklu flóknari hátt en áður hafði verið talið. Margar sameindirnar höfðu mörg hlutverk, t.d. þá gátu sum ensím hraðað á mismunandi ferlum og sum prótein tóku þátt í mörgum prótein samsetningum. Annað sem vísindamennirnir sögðu að hefði komið þeim á óvart var þetta: 

“What is remarkable is that the regulation of the transcriptome – the collection of RNA that deals with copying genetic information stored in the DNA – appeared to be far more similar to that of eukaryotes than had previously been thought.” 

Og einnig þetta hérna:

Another surprising result of the research is that, despite its very small genome, the bacterium is extremely flexible: it adapts its metabolism to major changes in its environment,” the article said.  “It can therefore rapidly adapt to the available food sources and stress factors, just like the more complex eukaryotes.

Ein af greinunum í Science sem PhysOrg vísaði í sagði að sirka 200 prótein vélar hefðu fundist í þessari litlu frumu. Þar sem þessi lífvera er með eitt minnsta genemengi sem vitað er um þá er hún tilvalin til þess að rannsaka lágmarks kröfurnar sem lífið þarf.  Núna benda rannsóknir til þess að það eru 689 gen.  

Vil benda á fréttina sem ég lauslega þýddi þetta frá því ég sleppti heilmiklu, sjá: http://creationsafaris.com/crev200912.htm#20091229a

Hérna geta vísindamenn verið að rannsaka beint hve einfalt lífið getur mögulega verið. Það er auðvitað alltaf hægt að ímynda sér eitthvað en vísindalega aðferðin heimtar að aðskilja ímyndanir frá raunveruleikanum. Svo hve líklegt er að efni gæti raðast í svona frumu?  Það er mjög erfitt að reikna slíkt út en við getum fengið smá hugmynd um það, með því t.d. að reikna hverjar líkurnar eru á því að eitt af þessum 200 próteinum gæti myndast fyrir tilviljun.

Meðal langt prótein er sirka 300 amínósýrur að lengd svo við skulum byrja á einföldu próteini sem er aðeins 100 amínósýrur að lengd. Hérna þarf að raða þessum 100 amínósýrum í ákveðna röð. Líkurnar að fyrsta er rétt er einn á móti tuttugu því að við höfum 20 gerðir af amínósýrum. Að næsta sé rétt er þá 20x20 og að þriðja sé rétt er þá 20x20x20. Út frá þessum sjáum við að líkurnar á þessu eina próteini er 20^100 sem er alveg svakalega ólíklegt. Til að setja þessa tölu í samhengi þá er 10^80 veldi talan yfir hve mörg atóm eru til í alheiminum.  

Hafa síðan í huga að hérna er hunsað vandamálið við að búa til amínósýrurnar og að þetta er aðeins eitt prótein en þessi fruma þarf 200 prótein samsetningar. Til að auka vandamálið enn frekar þá þarf DNA upplýsingar um hvernig á að raða öllum þessum próteinum saman.

Sannarlega hafa guðleysingjar mikla trú á tilviljunum en hérna tel ég að þeirra afstaða er í engu samræmi við staðreyndirnar. Lífið hefur öll einkenni hönnunar svo trú á tilvist hönnuðar er eina rökrétta afstaðan í ljósi þessara staðreynda.


Hinir gæfustu lifa af

Á síðasta ári þá gáfu vísindamenn í háskólanum í Berkeley út grein um rannsókn sem þeir töldu sýna fram á að þeir sem væru gæfir og óeigingjarnir væru þeir sem væru raunverulega hæfari. Þeir sem í raun og veru lifa frekar af. Hérna er hægt að lesa um þessa rannsókn: http://www.sciencedaily.com/releases/2009/12/091208155309.htm

Þarna voru þessir vísindamenn að fara á móti viðurkennda viðhorfi að hinir hæfu og sjálfselsku lifa af og eignast afkvæmi. 

Hugmyndir um rétt og rangt, um gott og illt hafa alltaf verið til vandræða fyrir þróunarsinna. Það er alls ekki að þeir hafa ekki gott siðferði heldur aðeins að þeir hafa enga rökrétta ástæðu til að trúa að það er rétt og rangt.  Þegar guðleysingjar og þróunarsinnar tala um rétt og rangt þá eru þeir ekki að hugsa rökrétt innan sinnar eigin heimsmyndar. Ef að mannkynið er aðeins afleiðing af efnum, af atómum að rekast saman í miljónir ára þá er alveg glórulaust að tala um rétt og rangt.

Samt eru fáir jafn duglegir að tala um leiðir til að bæta heiminn sem er glórulaust í heimi án Guðs af því að þá er það eins og það skipti einhverju máli hver efnasamsetning einhvers drullupolls sé. Í guðleysis heimsmyndinni þá erum við aðeins samansafn efna sem er hér í dag og horfin á morgun. Hvaða þú kallar eina samsetningu efna skiptir þar af leiðandi engu máli, hvort sem það er kærleikur eða hamingja.

Hérna er fjallað ýtarlegra um þetta:  Evolution and the Challenge of Morality

Að lokum, hugmynd að afmælis eða jólagjöf: http://officialdarwinawards.com/shop/product_info.php?products_id=35

condom_photo.jpg


mbl.is Heimskir bankaræningjar verðlaunaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski var Salómon ekki svo vitlaus

little-house-prairie_l.jpgRannsókn sem segir að það sé gott að beita líkamlegum refsingum?  Það verður fróðlegt að fylgjast með umræðunni um þessa rannsókn og áframhaldandi rannsóknum á þessu. Persónulega þá var ég ekki agaður með rasskellingu eða kinnhestum þegar ég var að alast upp en held að ég hefði haft gott af því. En þetta er mjög vand með farið, ef þessu er beitt í reiði eða til að hefna sín þá trúi ég að þetta verður að bölvun. Ég trúi því að aðeins ef foreldri getur beitt svona refsingu með sjálfsstjórn, réttlæti og kærleika getur þetta hjálpað að ala upp barnið.

Persónulega aldrei barið einn eða neinn og veit ekki alveg hvernig ég myndi glíma við svona...

Þeir sem muna eftir Húsinu á sléttunni muna eftir því hvernig Charles Ingels agaði sína krakka en spurning hvort margir í dag sæju það ekki sem misþyrmingu á börnum.

Orðskviðirnir er bók í Biblíunni sem er eftir Salómon konung sem var uppi í kringum 1000 f.kr. Hann fjallar á nokkrum stöðum um að aga drengi með vendinum; aldrei um stelpur svo spurning hvort hann sé að boða að það á ekki að beita þessu á stelpur. Hérna eru nokkur dæmi:

Orðskviðirnir
29:15
Vöndur og umvöndun veita speki
en agalaus sveinn gerir móður sinni skömm. 

Orðskviðirnir
13:24
Sá sem sparar vöndinn hatar son sinn
en sá sem elskar hann agar hann snemma. 

Orðskviðirnir
22:15
Setjist heimskan að í hjarta sveinsins,
þá mun vöndur agans reka hana þaðan. 

Orðskviðirnir
19:18
Agaðu son þinn meðan enn er von,
gættu þess að gera ekki út af við hann.

Kristnir í dag eru mjög með þá afstöðu að Gamla Testamentið var fyrir gyðinga svo það eigi ekki við þá. Svo út frá því er mjög auðvelt að hafna þessum versum eins og svo mörgum öðrum sem þykja ekki lengur skemmtileg. Ég er alveg ósammála þessari afstöðu. Ég trúi því að gyðingarnir voru valdir af Guði til að vera Hans þjóð og þegar einhver gerist kristinn þá á viðkomandi að tilheyra þjóð Guðs og GT er þá vegvísir að því hvað það þýðir að tilheyra þjóð Guðs.

Mér finnst merkilegt hve fáir hafa bloggað um þetta þar sem ég hefði haldið að þessi frétt myndi falla í grýttan jarðveg. Að hver bloggarinn að fætur öðrum myndi rakka þetta niður og kalla þetta misþyrmingu á börnum...


mbl.is Tuktuð til og hefur vegnað betur í lífinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 802850

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband