Hvernig getur góður Guð leyft svona að gerast?

1410521627_cf38ec2e7e

Margir missa trúnna á Guð þegar þeir mæta mótlæti og skiljanlega svo. En þegar kristnir missa trúnna á Guð í mótlæti þá er það líklegast vegna þess að þeir eru að misskilja boðskap Biblíunnar.  

Til að útskýra þetta þá vil ég segja stutta dæmisögu sem útskýrir hvað ég á við.

Ímyndaðu þér tvo farþega um borð í flugvél. Flugfreyja kemur til fyrsta farþegans og bíður honum fallhlíf því hún muni bæta flugferðina. Með fallhlífina þá mun farþeginn njóta ferðarinnar betur.  Þar sem að flugfreyjan virðist vera einlæg þá ákveður fyrsti farþeginn að prófa fallhlífina þótt hann geti engann veginn séð að vera með fallhlíf geti gert flugferðina ánægjulegri.  Þegar hann er búinn að setja fallhlífina á sig þá finnur hann fyrir þunga hennar, hann finnur að hann getur ekki lengur sitið uppréttur og sumir af hinum farþegunum eru að hlægja að honum.  Eftir smá stund þá tekur fyrsti farþeginn fallhlífina af sér og hendir henni í burtu og bölvar henni. Að Hans mati þá var logið að honum og viðbrögðin skiljanleg.  

Önnur flugfreyja kemur til seinni farþegans en segir honum að einhvern tímann bráðlega mun hann þurfa að stökkva úr flugvélinni; flugvélin er í hættu og eina leiðin til að lifa af er að setja á sig fallhlíf og stökkva þegar sá tími kemur.  Í þakklæti setur farþegi fallhlífina á sig og bíður eftir því að kallið kemur.  Honum er alveg sama þótt að fallhlífin er þung og að hann getur ekki setið uppréttur. Þegar síðan aðrir hlægja að honum þá einfaldlega vorkennir hann þeim að vera ekki búnir að setja á sig fallhlífina svo þeir mættu lifa af líka. 

Kristnir eiga að setja traust sitt á Jesú Krist til að forða þeim frá því stökki sem allir menn munu einhvern tímann taka. Þeirra trú og traust á Krist er að Hann muni bjarga þeim frá dauða, veita þeim réttlæti frammi fyrir dómi Guðs.  Trúin á Jesú snýst ekki um betra líf hér og nú heldur um réttlæti og von um líf eftir þetta líf.  Þeir kristnir sem lofa fólki betra lífi hér og nú ef þeir verða kristnir boða eitthvað sem er engann veginn í samræmi við boðskap Krists.  Meira að segja varar Jesú fólk við, Hann segir að fylgja Honum getur orsakað það að mans eigin ættingjar munu svíkja mann til dauða og sumir munu hata þig bara vegna þess að þú fylgir Kristi. 

Ég við biðja Kristna um að biðja fyrir þessu fólki þarna sem á um sárt að binda.  Einnig vil benda á http://www.adra.org sem er hjálparstarf Aðventista sem er með starf á stöðum eins og Búrma.


mbl.is Um 4 þúsund látnir í Búrma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Fritzl skilið að þjást að eilífu í logum helvítis?

Fritzl-1Líklegast finnst mörgum ég fara núna yfir strikið en mér finnst þetta mjög þörf spurning miðað við afstöðu marga í þessu máli.  Mín afstaða er að Fritzl á það ekki skilið. Í annan stað þá kennir Biblían ekki eilífar þjáningar, ekki einu sinni fyrir jafn ógeðfelldann einstakling og Fritzl.  En hið magnaða er að margir kristnir halda því fram að þetta eru örlög allra þeirra sem deyja án þess að trúa á Krist. Kirkjudeildir sem halda þessu fram eru til dæmis Hvítasunnukirkjan, Kaþólska kirkjan, Fíladelfía og Krossinn.  Ég skil ekki hvernig hægt er að halda þessu fram og samt reyna að segja að Guð sé góður og réttlátur.

Hérna eru nokkrar greinar þar sem ég sýni hvað Biblían hefur að segja um þetta efni en það er sannarlega ekki eilífar þjáningar í logum vítis.

Hver er refsing Guðs, eilífar þjáningar í eldi eða eilífur dauði?

Hugmyndin um Helvíti á ekki heima í Biblíunni

Þeir sem lifa vita að þeir munu deyja en hinir dauðu vita ekki neitt

Áskorun fyrir kaþólikka og hvítasunnufólk varðandi helvíti, taka 2

Svar við grein sem styður kenninguna um eilífar þjáningar hinna syndugu

 

Ef ég fer rangt með afstöðu einhverra þessara trúfélaga þá endilega einhver að leiðrétta mig og ég leiðrétti færsluna með mikilli ánægju.


mbl.is Fimm læstar hurðir lokuðu kjallara Fritzl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Fritzl skilið að fara til himna?

42877_2Þegar maður les um svona glæpi þá bíður manni við illskunni og sjálfs elskunni sem mat eigin físnir fram yfir tilfinningar barna sinna.  Ef þú værir í sporum Guðs, myndir þú veita þessum manni aðgang að himnaríki?  Þótt að ég sé algjörlega mótfallinn hugmyndinni um eilífar þjáningar í helvíti þá samt finnst mér að þessi einstaklingur eigi skilið að þjást fyrir það sem hann gerði og hef lítinn efa um að það muni gerast.

Það sem ég held að margir geri sér ekki grein fyrir er að þarna er aðeins dæmi um þar sem synd sem í byrjun virkaði saklaus hefur vaxið úr grasi í að verða að þessu skrímsli.

Það er athyglisvert að skoða söguna í Biblíunni af fyrsta morðinu.

Fyrsta Mósebók 4:3-7
Einhverju sinni færði Kain Drottni fórn af ávexti jarðarinnar. 4Abel færði einnig fórn af frumburðum hjarðar sinnar og feiti þeirra. Drottinn gaf gaum að Abel og fórn hans 5en leit ekki við Kain og fórn hans. Þá reiddist Kain mjög og varð þungur á brún. 6Drottinn sagði við Kain: „Hví reiðist þú og ert þungur á brún? 7Er ekki svo að þú getur verið upplitsdjarfur ef þú gerir rétt, en gerir þú rangt þá liggur syndin við dyrnar? Hún girnist þig en þú getur sigrast á henni.

 Það sem byrjaði í óhlíðni og reiði endaði í morði en Biblían segir að sá sem hatar bróður sinn er morðingi. Ástæðan er einfaldlega sú að hatur ef það fær að vaxa mun enda illa. Hið sama gildir um þjófnað og lygar; virka kannski saklausar í byrjun en ávextir þeirra er á endanum dauði.  Svo ef lygara, þjófar, öfundsjúkir og gráðugir fengu að ganga inn í himnaríki myndu þeirra syndir vaxa og dafna og að lokum breyta himnaríki í stað eins og okkar jörð þar sem að óréttlæti, þjáningar og dauði ríkja.

Svo spurningin, á Fritzl skilið að fara til himna?  Það er ekki erfitt að svara því. Nei, Fritzl á sko engann veginn skilið eilíft líf.  Erfiðari spurning er hvort að maður sjálfur á skilið að fara til himna og ég fyrir mitt leiti á ég það ekki skilið en Guð er ríkur af náð og er til að gefa hana þeim sem leita eftir henni. Þeim sem iðrast og biðjast fyrirgefningu og biðja um það réttlæti sem Jesú útvegaði þeim á krossinum.  Svo stærsta spurning lífs þíns, átt þú skilið að fara til himna?


mbl.is Sýnir enga iðrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óvenjuleg kirkju skilti og risa smokkfiskur

Aðeins mjög forvitnileg frétt um "hjúmongus" smokkfisk sem fannst fyrir um ári síðan en loksins núna er verið að rannsaka hann. Hérna er fréttin: Up Close With a Colossal Squid Síðan í kaupbæti, síða sem fjallar um "óvenjuleg" kirkju skilti og stundum...

Áhugaverðar spurningar

Hvernig myndir þú gera í eftirtöldum aðstæðum? Prestur og kona hans eru hræðilega fátæk. Þau eiga þegar 14 börn og núna kemst eiginkonan að því að hún er ólétt. Miðað við þeirra miklu fátækt og slæmu aðstæður til að ala upp barn og of fjölgun mannkyns;...

Ný stofnun helguð rannsóknum sem byggjast á Vitrænni hönnun

Stofnunin "The Center for Science and Culture" styður þessa nýju stofnun sem ber nafnið Biologic Institute. Þetta er stofnun sem hefur það hlutverk að stunda vísinda rannsóknir á náttúrunni. Þessi stofnun á að sýna gildi þess að rannsaka náttúruna út frá...

Engin tengsl milli Nasizmans og Darwinisma?

Þeir sem hafa einhverjar efasemdir um að hugmyndafræði nasismans byggðu það ekki á darwinisma ættu að horfa á þetta. Þetta er klippa frá 1930 og er áróðursmynd nasista þar sem þeir reyna að réttlæta ófrjósemis aðgerðir. Í byrjun myndarinnar þá talar...

Og það verður hungur á ýmsum stöðum og kærleikur flestra kólna

Ég get hreinlega ekki neitað því að verða fyrir vonbrigðum með sjálfan mig að geta heyrt svona og horft á svona án þess að hreinlega gráta. Það er kannski ekki hægt að láta þetta fá á sig því maður heyrir þetta svo oft en maður á að finna til með þessu...

Expelled - sjónarhorn darwinista

Hérna er stutt klippa sem sýnir PZ Meyers og Richard Dawkins tjá sig um frelsi fræðimanna til að fjalla um ákveðin málefni í vísindum og þá aðalega hugmyndina um Guð og Vitræna hönnun. Hérna er stutt klippa sem sýnir PZ Meyers og Richard Dawkins tjá sig...

Hvað sagði Skúli um þetta mál?

Ég vona að Skúli og aðrir hafi ekki á móti því að ég taki hér aðeins saman það sem Skúli hafði um þetta mál að segja. Skúli Skúlason - http://einartor.blog.is/blog/einartor/entry/510271/ Þar sem mér líst ekki alveg á þær upplýsingar sem koma frá Ingvari...

Expelled - Fruman og stökkbreytingar

Stutt sýnishorn úr myndinni Expelled sem var frumsýnd síðasta föstudag. Klippan sem fjallar aðeins um frumuna: Expelled - A Cell (1:59) Klippan sem fjallar um stökkbreytingar: Expelled - Genetic Mutation (2:23)

Ótrúleg tilviljun

Árið 1898, fjórtán árum áður en Títanic fór í sína jómfrúarferð þá gaf út maður að nafni Morgan Robertson bókina "Futility of the Wreck of the Titan". Þetta var saga af ósökkvanlegu risa skipi eins og Titanic og fór í sína jómfrúarferð frá Bretlandi til...

Enginn kemur til föðurins nema fyrir...Kaþólsku kirkjuna?

Fyrir mig er það mjög alvarlegt að setja sjálfan sig milli manna og Guðs. Að eina leiðin til þess að þú getir komist til Guðs er í gegnum einhverja menn. Þetta er það sem Kaþólska kirkjan hefur kennt núna í u.þ.b. 1700 ár. Sem betur fer hefur hún ekki...

Frumsýning á myndinni Expelled!

Í dag er myndin Expelled frumsýnd og hlakkar mig mikið til að sjá hana. Í þessari mynd fjallar Ben Stein um skoðana kúganir darwinista og guðleysingja sem banna öllum að íhuga eitthvað sem gæti stutt tilvist Guðs. Það sem hann fer einnig í er tengingin...

Ótti Drottins, upphaf viskunnar

Í gegnum aldirnar þá hefur fólk fengið alls konar hugmyndir um hvernig væri best að ala upp börnin sín. Gaman að sjá rannsókn sem styður þær ráðleggingar sem Biblían gefur varðandi barnauppeldi. Þótt að þessi frétt hefði verið um hvernig einhverjar...

Það sem skiptir máli í lífinu

Ég held að ein aðal uppskriftin að ömurlega lífi er að binda allar sínar vonir við velgengni í þessu lífi. Maður verður að ná prófunum, maður verður að fá góða vinnu, kaupa stórt og fallegt heimili, geta ferðast um heiminn, finna sálufélaga og umfram...

Er hægt að kaupa sér aðgang að himnaríki?

Ég sannarlega er ánægður með hennar viðhorf og vona að hún öðlist eilíft líf en það er samt eitt sem ég er hræddur um. Það sem margir halda er að maður getur keypt sér aðgang að himnaríki. Að maður getur einhvern veginn unnið sér inn rétt til að öðlast...

Dauðinn, hinn mikli óvinur

Margir láta eins og að dauðinn er bara eðlilegur hlutur af náttúrunni en afhverju þá þessi mikla sorg þegar svona gerist? Ef þarna hefði verið á ferðinni rúta full af gömlu fólki, værir þetta þá ekkert mál? Langar ekki þeim sem eru gamlir að fá æskuna...

Vissir þú að þú ert á dauðadeild?

Hebreabréfið 9:27 Á sama hátt og það liggur fyrir mönnunum eitt sinn að deyja og eftir það að fá sinn dóm Ímyndaðu þér að vera í sporum þessara manna, að sitja sekir inn á dauðadeild og bíða eftir því að fá að vita hvenær eða hvort þú verður tekinn af...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband