Það sem skiptir máli í lífinu

Ég held að ein aðal uppskriftin að ömurlega lífi er að binda allar sínar vonir við velgengni í þessu lífi. Maður verður að ná prófunum, maður verður að fá góða vinnu, kaupa stórt og fallegt heimili, geta ferðast um heiminn, finna sálufélaga og umfram allt, höndla hamingjuna.

Kristur hafði mjög áhugavert um þetta að segja:

Matteusarguðspjall 6:19-23
Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu þar sem mölur og ryð eyðir og þjófar brjótast inn og stela. 20Safnið yður heldur fjársjóðum á himni þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þjófar brjótast ekki inn og stela. 21Því hvar sem fjársjóður þinn er þar mun og hjarta þitt vera.
22Augað er lampi líkamans. Sé auga þitt heilt mun allur líkami þinn bjartur. 23En sé auga þitt spillt verður allur líkami þinn dimmur. Ef nú ljósið í þér er myrkur, hvílíkt verður þá myrkrið.

Maður veit engann veginn hve mikinn tíma maður hefur á þessari jörð og hvað gæti verið í rauninni mikilvægara en að hafa gert öðrum gott?  Það er ekki eins og maður geti huggað sorgmæta á himnum, gefið til líknarstarfs, hjálpað fátækum og sjúkum.  Ekki er hægt að boða fagnaðarerindið að það er búið að sigra dauðann og við getum öðlast eilíft líf því þá eru það gamlar fréttir og dauðinn og sorgin ekki lengur til.

Matteusarguðspjall 6:25-34
Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? 26Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? 27Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn?

Og hví eruð þér áhyggjufull um klæðnað? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. 29En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. 30Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlítil!
31Segið því ekki áhyggjufull: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? 32Allt þetta stunda heiðingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa. 33En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki. 34Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.

mbl.is Þjáð af prófkvíða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Matthías Ásgeirsson

Það er ekki annað hægt en að vísa á þetta skemmtilega myndband um "liljur vallarnis" :)

Matthías Ásgeirsson, 17.4.2008 kl. 11:33

2 identicon

Lífið er ekki tölvuleikur með extra lífi, að lifa í mómentinu er lykillinn

DoctorE (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 11:35

3 Smámynd: Mama G

Ég er ekki frá því að ég sjái smá sameiginlegt viðhorf andstæðra póla hérna aldrei þessu vant!

  • Mofi skrifar: "34Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning."
  • DoctorE skrifar: "Lífið er ekki tölvuleikur með extra lífi, að lifa í mómentinu er lykillinn"

Einhverjir fleiri en ég að sjá tengingu þarna á milli!?

En annars er þessi færsla bara "Word up" eins og maður segir stundum við hátíðleg tækifæri 

Mama G, 17.4.2008 kl. 11:42

4 identicon

Dæmigert.

Það er merkilegt hversu heilaþveginn þú ert. 

Jónas (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 11:55

5 Smámynd: Mofi

Matthías, það er margt annað hægt að gera... eins og að íhuga orð Krists og reyna að skilja hvað Hann var að segja.

DoctorE,  ef þú lifir í mómentinu til að gera sjálfan þig hamingjusamann, eltandi það sem þú telur að muni gera þig ánægðann þá muntu uppskera eins og þú sáir.

Mama G,  takk fyrir að benda á sameiginlegan flöt okkar Doksa :) 

Jónas, hver er heilaþveginn og afhverju telur þú hann vera heilaþveginn?  Hefurðu einhvern tímann hugsað út í það að kannski ert þú sjálfur heilaþveginn?  

Mofi, 17.4.2008 kl. 14:04

6 identicon

Jónas, hver er heilaþveginn og afhverju telur þú hann vera heilaþveginn? Hefurðu einhvern tímann hugsað út í það að kannski ert þú sjálfur heilaþveginn?

Það er augljóslega þú sem ert heilaþveginn.

Hvernig er ég heilaþveginn? Þú veist ekki baun í bala um mig.

Jónas (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 14:25

7 Smámynd: Mofi

Jónas, ég bara spurði...

Mofi, 17.4.2008 kl. 15:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband