16.11.2010 | 10:43
Mofi til stjórnlagaþings
Nei, ég bauð mig ekki fram en mig langaði að svara þessum spurningum sem eru að finna á DV.is sem eru til þess að varpa ljósi á afstöðu frambjóðenda til Stjórnlagaþings.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) að eignarhald þjóðarinnar á náttúruauðlindum verði bundið í stjórnarskrá?
Mjög hlynntur. Margar þjóðir hafa brennt sig á því að hafa misst úr höndunum náttúruauðlindir í hendurnar á gráðugum fyrirtækjum sem bera hag samfélagsins engan veginn fyrir brjósti. Það þarf að tilgreina bæði að þjóðin á náttúruauðlindirnar og að það má ekki selja nýtingaréttin úr höndunum á okkur.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að hafa ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi í stjórnarskránni?
Mjög andvígur. Það er ekki eðlilegt að eitt trúfélag hafi forréttindi í stjórnarskrá landsins. Allir þeir sem eru utan þssa trúfélags finna fyrir mismunun sem er sí vaxandi hópur fólks. Gagnrýnis raddir á þetta fyrirkomulag munu aðeins verða fleiri og háværari og auka spennu í samfélaginu og ástæðan er að réttlætiskennd þessara aðila er misboðið.
Á forseti Íslands áfram að hafa málskotsrétt?
Já. Mér finnst þetta fyrirkomulag sem við höfum á Íslandi vera til fyrirmyndar. Að forsetinn sem er kosinn af þjóðinni geti komið í veg fyrir eitthvað sem hann trúir að þjóðin er andvíg eða eitthvað sem skaðar þjóðina finnst mér vera mjög gott fyrirkomulag. Kemur í veg fyrir að þing meirihluti geti farið offörum á kostnað þjóðarinnar.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) að viðhafa þjóðaratkvæðagreiðslur í auknu mæli?
Mjög hlynntur. Aðal gallinn við málskotsrétt forseta er hve lítið er búiið að beita honum. Það má auðvitað ekki misnota hann en það á að vera eðlilegt í stórum málum er varða hagsumi þjóðarinnar að þjóðin fái að ráða ef forsetinn telur að þörf er á slíku.
Ert þú hlynnt(ur) eða andvíg(ur) persónukjöri?
Mjög hlynntur. Ég tel að persónuleg ábyrgð manna muni verða meiri ef um er að ræða persónukjör. Í dag finnst mér eins og enginn á alþingi beri neina ábyrgð og allt of mikið um að fólk fljóti bara með flokknum.
Á að kjósa ríkisstjórn beinni kosningu?
Já
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að ráðherrar geti setið á Alþingi?
Mjög andvígur. Þetta fyrirkomulag tíðkast ekki í löndunum í kringum okkur og er ekki í samræmi við þrískiptingu valdsins sem ég tel vera mikilvægt til að sporna gegn spillingu og valdníðslu.
Á að lækka eða hækka kosningaaldurinn?
Óbreyttur.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að dómsmálaráðherra fari einn með vald til að skipa hæstaréttardómara?
Andvígur. Gott dæmi um eitthvað sem getur skapað spillingu.
Hver eftirfarandi möguleika lýsir þínum áherslum um kjördæmaskipan á Íslandi best?
Landið eitt kjördæmi
Hver er afstaða þín til atkvæðavægis í Alþingiskosningum?
Öll atkvæði ættu að hafa jafnt vægi. Skoðanir fólks eiga að vera jafn mikils virði, óréttlátt að búseta segir til um hversu mikils virði þín skoðun er.
Hver á að geta knúið á um þjóðaratkvæðagreiðslur? (merktu við allt sem við á)
Forseti, meirihluti alþingis og hlutfall kjósenda. Hlutfallið þarf auðvitað að vera frekar hátt svo að ekki sé hægt að misnota þetta.
Eiga þjóðaratkvæðagreiðslur að vera ráðgefandi eða bindandi?
Bindandi. Það er bara brandari að láta þjóðina mæta á kjörstað og segja sína skoðun og síðan sé bara hægt að hlægja að henni og gera eins og þér sýnist.
Hvort vilt þú heldur að ríki á Íslandi þingræði eða forsetaræði?
Erfitt... veit ekki. Mér líkar vel við núverandi fyrirkomulag þar sem forsetinn getur verið sameiningar tákn landsins. Mér líkar líka vel við fyrirkomulagið í Bandaríkjunum þar sem augljóst er, hver það er sem ræður og hver ber ábyrgð.
Eru hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að dómarar verði kosnir af almenningi?
Ég hreinlega veit ekki. Það sem ég tel vera mikilvægt er að margir aðilar komi að málinu til að minnka áhættuna á spillingu og valdníðslu en hvort að almenningur eigi að kjósa um þetta er eitthvað sem ég veit ekki.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að heimilaðar verði opnar yfirheyrslur á Alþingi?
Ég er ekki á því að stjórnarskráin á að vera að fjalla um svona sértæk mál.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að vald til að veita opinberar stöður sé hjá einum pólitískum ráðherra?
Sé ekki betri leið í fljótu bragði. Ég tel það mikilvægt að ráðherra geti mannað sitt ráðuneiti og samstarfs aðila á þann hátt að hann geti starfað eftir bestu getu.
Á að draga úr eða auka valdheimildir forsetans í stjórnarskránni?
Þær eru fínar held ég. Hvorki draga úr né auka.
Hvort viltu heldur að kjördæmaskipan byggi á einfaldri meirihlutakosningu í einmenningskjördæmum eða á hlutfallskosningu?
Veit ekki.
Á að fjölga eða fækka þingmönnum?
Fækka. Fjöldi þingmanna finnst mér ekki vera í samræmi við fólks fjölda.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að takmarka hversu lengi forseti getur setið?
Mjög hlynntur.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að takmarka hversu lengi forsætisráðherra getur setið?
Mjög hlynntur.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að íslenska verði bundin í stjórnarskrá sem þjóðtunga?
Held að stjórnarskráin ætti ekki að fjalla um þetta.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að tryggja jafnrétti óháð kynhneigð í stjórnarskrá?
Hlynntur. Að vísu finnst mér að þetta ætti að vera almennt. Almennt að tryggja jafnrétti óháð kyni, kynhneigð eða trú.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að stjórnarskrá kveði á um að Ísland verði ávallt kjarnorkuvopnalaust land?
Finnst að stjórnarskráin ætti ekki að fjalla um þetta. Frekar eitthvað almennt varðandi að Ísland stofni ekki til stríðs að fyrra bragði eða taki þátt í stríðsbrölti að fyrra bragði. Það geta komið upp aðstæður þar sem verið er að ráðast á aðra þjóð eða hóp fólks og hið eina rétta í stöðunni er að verja viðkomandi með valdi.
Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) því að réttur almennings til upplýsinga sem varða almannahag verði tryggður í stjórnarskrá?
Hlynntur.
Það er án efa margar fleiri spurningar sem DV ætti að spyrja. Ætti að vera ákvæði um samviskufrelsi,
Þetta verða forvitnilegar kosningar og kannski stórt skref í áttina að því að endurreisa landið okkar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2010 | 09:39
Genesis
Virkilega skemmtilegt myndband sem sýnir í grófum dráttum hvernig barn verður til.
15.11.2010 | 10:24
Hver skapaði þá Guð?
Þegar þróunarsinnar hafa engin mótrök gagnvart rökunum um hönnun þá grípa þeir til þess örþrifa ráðs og spyrja "hver skapaði þá Guð"? Dæmi um ótrúlega hönnun í náttúrunni eru svo mörg að það er oft sem gripið er til þessara spurningar. Þetta voru meira að segja þau rök sem Dawkins kallaði grundvallarröksemdafærslu" í bókinni "The God Delusion".
Þó að þessi spurning er alveg gild sem slík þá er hún ekki alvöru mótrök gegn hönnun. Ímyndaðu þér að eitt af okkar geimförum sem er að kanna geiminn fyndi tölvubúnað á Plútó. Allir íbúar jarðarinnar, guðleysingjar þar með taldir myndu álykta réttilega að þessi tölvubúnaður var hannaður. Hver myndi þá segja að það væri ekki hægt að álykta að þetta væri hannað vegna þess að þá værir Þú ekki búinn að svara neinu þar sem þú vissir ekki hver hönnuðurinn væri eða hver hannaði hönnuðinn? Líklegast myndi einhver koma með þessa vitleysu en ég get ekki ímyndað mér að margir myndu taka undir.
Alveg eins og með tölvubúnað á Plútó og með lífið á jörðinni þá er ályktunin að lífið var hannað rökrétt ályktun miðað við staðreyndirnar. Hver hannaði lífið er alveg gild spurning en hún gildir ekki sem mótrök gegn hönnun. Mitt svar við þessari spurningu er Guð hannaði lífið og ég viðurkenni mæta vel að það er mín trú og ég er alveg sáttur við það, þar sem sú trú er í samræmi við gögnin. Að mínu mati þá hafa allir þeir sem skoðun á stóru trúarlegu spurningum lífs trú, það besta sem við getum gert er að reyna að láta þá trú vera í samræmi við þá þekkingu sem við höfum á heiminum.
Ég rökræddi þessa hluti stuttlega við bloggarann Ketil, forvitnir gætu haft gaman af, sjá: http://ketill.visindin.is/trui-a-visindi/ Skemmtileg síða hjá honum og ég hafði gaman að skoða nokkrar greinar þó að ég hafi aðra sýn á þessi mál en hann.
Vísindi og fræði | Breytt 16.11.2010 kl. 13:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
12.11.2010 | 14:45
How To Be An Intellectually Fulfilled Atheist - Not
11.11.2010 | 15:20
William Dembski - University of Oklahoma
8.11.2010 | 23:14
Ranghugmyndin um Guð
Trúmál og siðferði | Breytt 18.11.2010 kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (40)
3.11.2010 | 12:39
Samband hins kristna við Biblíuna
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.10.2010 | 15:08
Myndband - viska mannsins
29.10.2010 | 13:27
Stærðfræði snillingur á bakvið DNA
26.10.2010 | 14:27
Ekki hreinar meyjar heldur hreinar rúsínur?
26.10.2010 | 10:18
Vitræn hönnun?
24.10.2010 | 15:12
Árás mannréttindarráðs á mannréttindi?
21.10.2010 | 16:43
Aðkoma trúfélaga að skólum
21.10.2010 | 09:50
The greatest hoax on earth?
Vísindi og fræði | Breytt 22.10.2010 kl. 09:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2010 | 14:49
Er Biblían sönn? ( MIQ )
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
18.10.2010 | 14:03
Hverjum þökkuðu námumennirnir björgun sína?
18.10.2010 | 08:35
Ef að Biblían styddi hugmyndina um helvíti
14.10.2010 | 14:59
Lexía - hvers virði ert þú?
12.10.2010 | 11:06
Frjáls vilji og kenningin um helvíti
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 11:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (41)
11.10.2010 | 13:39
MIQ - Aðventista vefur fyrir unglinga
Trúmál | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Mofa blogg
Færsluflokkar
- Bloggar
- Bækur
- Dægurmál
- Ferðalög
- Fjármál
- Fjölmiðlar
- Heilbrigðismál
- Heimspeki
- Íþróttir
- Kjaramál
- Kvikmyndir
- Lífstíll
- Ljóð
- Löggæsla
- Mannréttindi
- Matur og drykkur
- Menning og listir
- Menntun og skóli
- Samgöngur
- Sjónvarp
- Spaugilegt
- Spil og leikir
- Stjórnmál og samfélag
- Sveitarstjórnarkosningar
- Tónlist
- Trúmál
- Trúmál og siðferði
- Tölvur og tækni
- Umhverfismál
- Utanríkismál/alþjóðamál
- Vefurinn
- Viðskipti og fjármál
- Vinir og fjölskylda
- Vísindi og fræði
Tenglar
Kristnar síður
Ýmislegt
Sköpun/þróun
Síður sem fjalla um sköpun/þróun
- Detecting Design
- UnCommon descent Blogg síða William Dembski um vitræna hönnun
- Creation-Evolution Headlines Síða sem fjallar um fréttir tengdar sköpun þróun
- EvolutionNews Síða sem fjallar um fréttir sem tengjast Vitsmunahönnun
Bloggvinir
- Bergur Thorberg
- Birgirsm
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Bryndís Böðvarsdóttir
- Daníel Þór Þorgrímsson
- Davíð S. Sigurðsson
- Davíð Örn Sveinbjörnsson
- Daði Einarsson
- Dóra litla
- Eva
- Eygló Hjaltalín
- Friðrik Páll Friðriksson
- Georg P Sveinbjörnsson
- Gladius
- Gunnar Ingi Gunnarsson
- Gunnlaugur Halldór Halldórsson
- Guðni Már Henningsson
- Guðrún Sæmundsdóttir
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Gísli Kristjánsson
- Halldóra Hjaltadóttir
- Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
- Hjalti Rúnar Ómarsson
- Hörður Finnbogason
- Hörður Halldórsson
- Inga Helgadóttir
- Ingibjörg
- Ingvar Leví Gunnarsson
- Ingvar Valgeirsson
- Janus Hafsteinn Engilbertsson
- Jens Sigurjónsson
- Jóhann Hauksson
- Jóhann Helgason
- Jóhannes Ólafsson Eyfeld
- Jón Hjörleifur Stefánsson
- Jón Ríkharðsson
- Jón Valur Jensson
- Jónatan Gíslason
- Júdas
- Kristin stjórnmálasamtök
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Theódórsson
- Kristinn Ásgrímsson
- Linda
- Mama G
- Morgunstjarnan
- Nonni
- Omnivore
- Predikarinn - Cacoethes scribendi
- Pétur Eyþórsson
- Ragnar Birkir Bjarkarson
- Ragnar Kristján Gestsson
- Ragnar Steinn Ólafsson
- Ragnheiður Katla Laufdal
- Róbert Badí Baldursson
- Rósa Aðalsteinsdóttir
- Rödd í óbyggð, kristilegt félag
- Röddin
- Rúnar Kristjánsson
- Sigurður Þórðarson
- Sigvarður Hans Ísleifsson
- Steinar Immanúel Sörensson
- Styrmir Reynisson
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sverrir Halldórsson
- TARA
- TARA ÓLA/GUÐMUNDSD.
- Theódór Norðkvist
- Tryggvi Hjaltason
- Tímanna Tákn
- Unknown
- Vefritid
- Viðar Freyr Guðmundsson
- gudni.is
- Ólafur Jóhannsson
- Þarfagreinir
- Þórdís Ragnheiður Malmquist
- Alexander Steinarsson Söebech
- Árni Karl Ellertsson
- BookIceland
- Elísa Elíasdóttir
- Fanney Amelía Guðjonsson
- Friðrik Már
- Gestur Halldórsson
- Guðjón E. Hreinberg
- Gunnar Ingvi Hrólfsson
- Gunnar Jóhannesson
- Hulda Þórey Garðarsdóttir
- Jens Guð
- Karl Jóhann Guðnason
- Kristinn Ingi Jónsson
- Lífsréttur
- Mathieu Grettir Skúlason
- Tómas Ibsen Halldórsson
- Valur Arnarson
- Viktor
- Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 803452
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar