Vitræn hönnun?

bee.jpgVandi farandssölumannsins  er klassískt þraut fyrir nemendur í Tölvunarfræði og það vandamál sem hefur fengið einna mestu athygli meðal tölvunarfræðinga þegar kemur að leysa það á sem hagkvæmastan hátt.

Ef það er eitthvað sem við höfum lært af þessu vandamáli frá því að það var fyrst sett fram sem stærðfræðileg þraut árið 1930 þá er það að til þess að leysa þessa þraut þá þarftu vitsmuni.  Þessi rannsókn á býflugum er þess vegna mjög merkileg. Þetta t.d. kom fram í rannsókninni:

Bees can solve complex mathematical problems which keep computers busy for days, research has shown.

The insects learn to fly the shortest route between flowers discovered in random order, effectively solving the "travelling salesman problem" , said scientists at Royal Holloway, University of London.

The conundrum involves finding the shortest route that allows a travelling salesman to call at all the locations he has to visit. Computers solve the problem by comparing the length of all possible routes and choosing the one that is shortest.

Bees manage to reach the same solution using a brain the size of a grass seed.

Hérna er sem sagt um að ræða heila flugu sem er örsmár að leysa stærðfræðiþraut sem getur tekið tölvu marga daga að leysa.  Hver er besta útskýringin á hvernig þessi heili flugunnar varð til? Er það virkilega tilviljanakenndar breytingar á DNA flugunnar plús náttúruval?  Ég segi af og frá. Það er ekki þannig sem við bjuggum tölvur til, við notuðum okkar vitsmuni en samt er heili flugunnar enn magnaðri.

Fyrir mig þá eru öll svona dæmi alvöru gögn sem styðja vitræna hönnun og ætti að láta sérhvern sannfærðan þróunarsinna efast stórlega um trú sína.

city100-swapped_cities-9.png


mbl.is Tölvuvæddar býflugur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónatan Gíslason

Neibb efast ekki ennþá!!    :)

Jónatan Gíslason, 26.10.2010 kl. 10:55

2 Smámynd: Mofi

Jónatan,  á hverju byggir þú eiginlega þína trú þegar þú skoðar svona staðreyndir?  Í hvaða haldreipi heldur þú eiginlega andspænis svona yfirþyrmandi gögnum um að þín trú stendst ekki?

Mofi, 26.10.2010 kl. 11:03

3 Smámynd: Jónatan Gíslason

Mér finnst þetta ekki yfirþyrmandi gögn, málið er bara einfaldlega að ef bíflugan hefði ekki þróast svona þá væri hún öðruvísi eða bara ekki til en hún þróðist svona á löngum tíma og þess vegna er hún svona, Bara finnst ekkert þarna bennda beint til hönnunar

Jónatan Gíslason, 26.10.2010 kl. 11:10

4 Smámynd: Mofi

Jónatan, hvernig sérðu fyrir þér tilviljanakenndar breytingar á DNA fara að því að búa til heila flugunnar sem virkar eins og tölva sem getur leyst svona stærðfræðiþrautir?

Hefurðu einhverja reynslu af því að búa til forrit sem leysir vanda farandsalans?

Mofi, 26.10.2010 kl. 11:22

5 Smámynd: Jónatan Gíslason

ég er hvorki líffræðingur né mikið tölvu gúrú svo ég get kannski ekki sagt mikið um það, Ég les ágætlega mikið sérstaklega það sem tengist eðlisfræði og stjörnufræði og smá í líffræði þótt það sé ekki mikið og miða við allt sem ég hef kynnt mér varðandi vísindi, sérstaklega stjörnufræði og líffræði þá finnst mér hönnun vera mjög ólíkleg svo að ég aðhyllist því sem er líklegast að mínu mati sem er þróun, og samkvæmt því er heimurinn eins og hann er því hann er eins og hann er, ef hann hefði þróast öðruvísi væri hann öðruvísi en hann er svona  að hann þróaðist svona. Þannig kemst ég að því að Býflugan hafi þróast svona og er þess vegna eins og hún er!!      

Jónatan Gíslason, 26.10.2010 kl. 11:34

6 Smámynd: Mofi

Jónatan,  :)   þú sem sagt bara trúir í blindi.  Allt í lagi, allir svo sem mega trúa því sem þeim sýnist en ég vil endilega hvetja þig til að kafa dýpra í þetta mál. Ég á ennþá nokkur eintök af bók sem svarar aðal bók Dawkins þar sem hann týnir til bestu gögnin fyrir þróunarkenningunni, sjá: The greatest hoax on earth?

Mofi, 26.10.2010 kl. 11:39

7 Smámynd: Bjarni FJ

Af hverju getur ekki bæði verið um hönnun og þróun að ræða? Fyrst hönnun, svo þróun hönnunarinnar?

Bjarni FJ, 26.10.2010 kl. 11:42

8 Smámynd: Mofi

Bjarni FJ,  það fer allt eftir því hvað menn eiga við með þróun. Ef menn eiga við tilviljanakenndar breytingar á DNA þá er mjög erfitt að ímynda sér að slíkt ferli geti sett saman "tölvu" sem getur leyst svona þrautir. Ef menn eiga við þróun á þann hátt að dýrategundin breytist á einhverjum tíma þá er enginn ágreiningur um að það gerist. 

Ég trúi á sköpun og samkvæmt því þá eru miklar upplýsingar í DNA og sérhvert dýr túlkar þær upplýsingar á smá mismunandi hátt og oft eftir aðstæðum og náttúruvali og þannig breytast dýrategundirnar að einhverju leiti eftir aðstæðum. Þetta aftur á móti er ekki að nýjar upplýsingar verði til vegna tilviljanakenndra stökkbreytingar heldur ólík samsetning á því DNA sem var þegar til meðal tegundarinnar.

Vonandi var þetta skiljanlegt hjá mér :)

Mofi, 26.10.2010 kl. 11:54

9 Smámynd: Jónatan Gíslason

Ég sendi þér mail og vildi endilega fá eintak!!

Nei ég trúi ekki í blindni, ég hef mótað mér skoðun út frá upplýsingum sem ég hef lesið en ég er alls engin líffræðingur og get því ekki verið viss um neitt sem tengist líffræði og nú skýt ég út í loftið en ég giska á að þú sért ekki heldur líffræðingur!!

Jónatan Gíslason, 26.10.2010 kl. 12:12

10 Smámynd: Mofi

Jónatan, hljómar mjög vel. Nei, ég er ekki líffræðingur en reyni að kynna mér þessi mál eins vel og ég get.

Mofi, 26.10.2010 kl. 12:37

11 Smámynd: Mofi

Jónatan, ég sé ekki email frá þér, sendir þú ekki örugglega á mofi25@hotmail.com ?

Mofi, 26.10.2010 kl. 15:49

12 Smámynd: Jónatan Gíslason

Júbb sendi á það bara copy paste! sendi þér aftur!

Jónatan Gíslason, 26.10.2010 kl. 17:38

13 Smámynd: Davíð Þór Þorsteinsson

Tölvuforritaðar býflugur. :)

Davíð Þór Þorsteinsson, 27.10.2010 kl. 16:56

14 Smámynd: Mofi

Davíð, who would have guessed! :)

Mofi, 27.10.2010 kl. 21:13

15 Smámynd: Theódór Norðkvist

Er Bill Gates kominn af býflugum?

Theódór Norðkvist, 27.10.2010 kl. 22:08

16 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Fékkstu þá nokkuð tölvupóstinn frá mér heldur, mofi?

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 28.10.2010 kl. 13:20

17 Smámynd: Mofi

Tinna, jú, ég fékk hann. Afsakaðu hve lengi ég var að svara.

Mofi, 28.10.2010 kl. 13:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband