Hugleiðing um samfélagið

Ég hef verið að hlusta mikið á eitt lag undanfarið og finnst það vera eitthvað svo viðeigandi við þá tíma sem við upplifum núna.  Lagið heitir "Society" og er eftir Eddie Vedder. Ég heyrði það fyrst í myndinni "Into the wild" sem fjallaði um strák sem ákvað að  yfirgefa samfélagið og flakka um heiminn.   Kannski sú setning í laginu sem snertir mig mest er "Society, have mercy on me.
I hope you're not angry, if I disagree.
" en það virkar á mig að samfélagið getur orðið frekar reitt við þá sem hafa öðru vísi skoðanir en fólk flest. Samfélagið óbeint heimtar að maður samþykki samkynhneigð sem eðlilega, samþykki fóstureyðingar sem rétt kvenna og þróunarkenninguna sem sannleika sem ekki ber að efast um.

Annars fjallar lagið um græðgi samfélagsins, hvernig við teljum okkur trú um að við þurfum alltaf meira og meira.  Frábært lag og vona að þið njótið þess.


Society

Oh it's a mystery to me.
We have a greed, with which we have agreed...
and you think you have to want more than you need...
until you have it all, you won't be free.

Society, you're a crazy breed.
I hope you're not lonely, without me.

When you want more than you have, you think you need...
and when you think more then you want, your thoughts begin to bleed.
I think I need to find a bigger place...
cause when you have more than you think, you need more space.

Society, you're a crazy breed.
I hope you're not lonely, without me.
Society, crazy indeed...
I hope you're not lonely, without me.

There's those thinkin' more or less, less is more,
but if less is more, how you keepin' score?
It means for every point you make, your level drops.
Kinda like you're startin' from the top...
and you can't do that.

Society, you're a crazy breed.
I hope you're not lonely, without me.
Society, crazy indeed...
I hope you're not lonely, without me
Society, have mercy on me.
I hope you're not angry, if I disagree.
Society, crazy indeed.
I hope you're not lonely...
without me.


mbl.is Erlendar skuldir banka og fyrirtækja 9.000 milljarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Þetta lag er afar viðeigandi miðað við aðstæður. Takk Dóri. 

Guðsteinn Haukur Barkarson, 24.10.2008 kl. 10:52

2 Smámynd: Kristinn Theódórsson

Þú ert með auka "n" að villast í fyrisögninni: Hugleiðning um samfélagið

Into the wild þykir mér nokkuð góð mynd.

mbk,

Kristinn Theódórsson, 24.10.2008 kl. 14:19

3 Smámynd: Mofi

Takk Haukur :)

Sérstakar þakkir til þín Kristinn, búinn að leiðrétta :)

Ég veit ekki alveg hve góð mér fannst myndin en hún vakti mjög sterkar tilfinningar hjá mér, mjög sterk stemming í henni, þessi upplifun að vera fjarri samfélaginu...

Mofi, 24.10.2008 kl. 14:42

4 Smámynd: Herra

"Society, have mercy on me.
I hope you're not angry, if I disagree.
"

Getur þetta nú ekki alveg eins átt við, segjum, Kóperníkus, þetta hefur bara snúist við, og af hverju ætti það að vera eitthvað ósanngjarnara en hitt?

Er það sem þú ert að segja ekki bara í rauninni, 'en hvað það væri gott ef meirihlutinn væri eins og ég'?

Þú vilt að fólk sætti sig við þína skoðun að samkynhneigð sé slæmur hlutur en tekur sjálfur ekki skoðun fólks sem finnst samkynhneigð ekki slæmur hlutur í sátt.

Heldurðu að ef meirihlutinn hefði sömu skoðanir og þú myndi hann taka minnihlutann sem hefði aðrar skoðanir í sátt?

Kallast það ekki hræsni?

Herra, 25.10.2008 kl. 13:05

5 Smámynd: Herra

Annars er Into The Wild með bestu myndum sem ég hef séð uppá síðkastið og tónlist Eddie Vedders gerir ótrúlega mikið fyrir hana.

Afsakaðu double postið.

Herra, 25.10.2008 kl. 13:06

6 Smámynd: Guðni Már Henningsson

Þessi mynd er frábær, ein af bestu kvikmyndum sem hingað hafa ratað. Tónlist Vedder er einnig mjög svo áheyrileg.

Guðni Már Henningsson, 25.10.2008 kl. 13:23

7 Smámynd: Mofi

Herra
Er það sem þú ert að segja ekki bara í rauninni, 'en hvað það væri gott ef meirihlutinn væri eins og ég'?

Nei, aðeins að fólk væri ekki reitt og óumburðarlint út í þá sem eru ekki sammála meiri hlutanum.

Herra
Annars er Into The Wild með bestu myndum sem ég hef séð uppá síðkastið og tónlist Eddie Vedders gerir ótrúlega mikið fyrir hana.

Sammála :)

Guðni Már, takk fyrir heimsóknina :) 

Mofi, 27.10.2008 kl. 11:01

8 identicon

Eddie Vedder er náttúrulega snillingur af guðsnáð.  Öll lögin hans í Pearl Jam eru um málefni sem eru umhugsunarverð.  Pearl Jam og Eddie Vedder eru og hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér.

http://www.azlyrics.com/lyrics/pearljam/soonforget.html  <---Þetta lag er einnig mjög viðeigandi fyrir ísland eins og það var fyrir ári síðan.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 27.10.2008 kl. 11:52

9 Smámynd: Mofi

Þetta er lag sannarlega nær að fanga einhvern af þeim sem féllu fyrir græðginni. Veit samt ekki með línuna "a man we will soon forget". Well, kannski munum við muna eftir kreppunni og einhverjum gráðugum úlfum en helst ekki vilja muna hvaða fólk þetta var.  Sumir gætu spurt, hvað um fyrirgefninguna...og það er alveg góður punktur. Vandamálið hérna er að enginn hefur beðist fyrirgefningar. Enginn vill kannast við að eiga einhverja sök á þessu. 

Mofi, 28.10.2008 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 802801

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband