Þrælahald í Biblíunni

Þegar við heyrum orðið "þrælahald" þá kemur upp í huga okkar það sem var stundað t.d. í Bandaríkjunum fyrir sirka 150 árum síðum. Þá fóru þrælahaldar til Afríku og tóku frjálst fólk þar í ánauð og fóru með það til Bandaríkjanna þar sem það lifði restina af sínu lífi í þrældómi og oftar en ekki við misþyrmingar.

Þess vegna er eðlilegt að þegar fólk heyrir að Biblían leyfir þrælahald að þá finnst fólki það virkilega slæmt og telur að góður Guð myndi aldrei leyfa svona og jafnvel þess vegna sanni þetta að Biblían sé ekki innblásin. Ég vil meina að það sem Biblían kallar "þrælahald" sé í rauninni það sem við gætum kallað atvinnusamning og þær reglur sem Biblían gefur varðandi "þræla" sé til að vernda þá sem lentu í þessu. Skoðum nokkra af þeim textum/reglum sem Biblían gefur varðandi þetta atriði.

Í fyrsta lagi þá í Gamla Testamentinu(GT) kemur vel fram eins og í því nýja að við eigum að elska náungann eins og okkur sjálf.
3. Mósebók 19:18
Eigi skalt þú hefnisamur vera né langrækinn við samlanda þína, en þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig. Ég er Drottinn.

Þar sem vegan illsku manna þá komu upp aðstæður sem voru ekki það sem Guð vildi en þurfti að glíma við. Eitt af því var fátækt þar sem einhver gat ekki séð fyrir sér sjálfur eða gat ekki borgað skuldir sínar og þá gat viðkomandi neyðst í þrældóm. Einnig gat fólk lent í þrældómi sem refsing fyrir ákveðna glæpi.  Við þurfum líka að hafa í huga að orðið sem er þýtt sem þræll ( doulos ) er notað á ýmsa vegu eins og lærisveinarnir voru "þræll/doulos" hinna kristnu í 2. Kórintubréfi og Páll sagðist vera "þræll/doulos" Krists í Galatabréfinu.  Þannig að þetta samband milli manna þýddi ekki hið slæma sem við í dag tengjum þessu og í einhverjum tilfellum þá gat "þrællinn" ekki viljað yfirgefa húsbónda sinn eins og kemur fram í 5. Mósebók 15:16-17.

Ef að "þræli" var misþyrmt eða farið illa með hann og hann flúði þá gaf Biblían skýr fyrirmæli um að það mætti ekki skila honum aftur til húsbóndans eða fara illa með hann.

Fimmta bók Móse 23:15 Þú skalt eigi framselja í hendur húsbónda þræl, sem flúið hefir til þín frá húsbónda sínum. 16 Hann skal setjast að hjá þér, í landi þínu, á þeim stað, er hann sjálfur velur, í einhverri af borgum þínum, þar sem honum best líkar. Þú skalt ekki sýna honum ójöfnuð.

Það sem gert var í Bandaríkjunum að fara til Afríku og hneppa fólk þar í ánauð var alvarlegur glæpur samkvæmt lögum GT.

2. Móse 21:16 Hver sem stelur manni og selur hann, eða hann finnst í hans vörslu, hann skal líflátinn verða.

Það þrælahald sem við þekkjum best snérist að miklu leiti um kynþátt eða hörundslit en það er ekki að finna neitt þannig í Biblíunni, meira að segja tilgreinir GT sérstaklega hvernig viðhorf þjóðin átti að hafa gagnvart útlendingum.

3. Mósebók 19:33 Ef útlendur maður býr hjá þér í landi yðar, þá skuluð þér eigi sýna honum ójöfnuð.   34 Útlendan mann, sem hjá yður býr, skuluð þér svo með fara sem innborinn mann meðal yðar, og þú skalt elska hann eins og sjálfan þig, því að þér voruð útlendingar í Egyptalandi. Ég er Drottinn, Guð yðar.

5. Mósebók 24:14 Þú skalt eigi beita fátækan og þurfandi daglaunamann ofríki, hvort sem hann er einn af bræðrum þínum eða útlendingum þeim, er dvelja í landi þínu innan borgarhliða þinna. 
15 Þú skalt greiða honum kaup hans sama daginn, áður en sól sest, _ því að hann er fátækur, og hann langar til að fá það _, svo að hann hrópi ekki til Drottins yfir þér og það verði þér til syndar.

Einnig áttu þeir sem voru "þrælar" höfðu sama rétt til trúarathafna og gyðingar, áttu að fá frí á Hvíldardaginn og máttu taka þátt í trúarhátíðum ( 5. Mósebók 16:9-17 ).

Þeir Hebrear sem lenti í því að verða þrælar fengu frelsi sitt sjöunda árið.
2. Mósebók 21:2 Þegar þú kaupir hebreskan þræl, skal hann þjóna þér sex ár, en á sjöunda ári skal hann frjáls burt fara án endurgjalds

Nokkrir aðrir punktar sem varpa ljósi á þetta mál:

  • "Þrælar" áttu sínar eigin eignir ( 2. Mósebók 21:23 ; 3. Mósebók 25:46 )
  • Það var dauðarefsing við því að deyða þræl, allt annað var í gangi í Bandaríkjunum.
  • "þræll" var meðlimur heimilis húsbónda síns ( 3. Mósebók 22:11 )
  • Þegar "þræll" öðlaðist frelsi þá átti fyrrverandi húsbóndi hans að kveðja hann með gjöfum ( 5. Mósebók 15:14 )

 Vonandi varpaði þetta einhverju ljósi á þetta efni.

Mofi


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Mofi

Ég er nú að benda á að þrælahald sem Guð leyfði var engann veginn einhver misþyrming heldur lög til að vernda þræla og þá sem urðu undir í þjóðfélaginu. Finnst eins og þú hafir skrifað þessa athugasemd án þess að lesa greinina en ég svo sem skil það alveg.

Þrælahald sem viðgengst í dag er á mikils efa miklu verra en það sem Guð leyfði Ísraels þjóðinni.

Kær kveðja,
Mofi

Mofi, 25.5.2007 kl. 22:50

2 Smámynd: Janus Hafsteinn Engilbertsson

Sæll Mofi. Mjög góð og þörf samantekt um þrælahaldið í Biblíunni, því menn eru alltaf að tala um þetta í neikvæðri meiningu. Að Guð sé vondur Guð, því hann hafi leyft þrælahald. Ég er líka sammála þér, að þetta þrælahald, sem talað er um í Biblíunnu, megi frekar lýsa sem atvinnusamningi við verkamann en hann hafi verið hnepptur í þrældóm. Enda ekkert í líkingu við það þrælahald sem viðgekkst í henni Ameríku fyrir einni og hálfri öld. Og er ekki enn í dag verið að hneppa fólk í þrældóm, eins og Skúli benti hér á. Og þá meina ég þrældóm, þar sem engin miskunn er. Það er því maðurinn sem er hinn vondi þrælahaldari, en ekki Guð. Ég vona því að margir komi til með að lesa þennan pistil þinn.

Kær kveðja, Janus.

Janus Hafsteinn Engilbertsson, 26.5.2007 kl. 03:03

3 Smámynd: Mofi

Takk fyrir það Janus.

Daníel, miðað við það sem þú skrifaðir þá lastu ekki greinina. Endilega lestu þetta yfir svo þú áttir þig á um hvað málið snýst og ef þú ert ennþá ósammála endilega deildu því með okkur.

Mofi, 27.5.2007 kl. 13:48

4 identicon

"Þegar "þræll" öðlaðist frelsi þá átti fyrrverandi húsbóndi hans að kveðja hann með gjöfum"

Þetta segir svoldið um málefnið. Ef þræll var ekki í ánauð, hvernig gat hann þá öðlast frelsi? Getur frjáls maður öðlast frelsi? Svo er líka spurning hvort við erum ekki öll þrælar. Við getum a.m.k. ekki gert allt hvað okkur lystir.

kv.
E

Elías Þór (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 00:42

5 Smámynd: Mofi

Lögin sem segja fyrir um að ef þræll flýr frá húsbónda sínum þá ætti ekki að skila honum aftur til húsbóndans ættu að segja allt sem segja þarf. Ástæðan er einfaldlega sú að lögin snúast um að vernda minni máttar.  Þessi lög voru aðeins til að koma á móts við vondar ástæðu og að vernda þá sem lentu í þeim. Sjöunda hvert ár þá fengu allir frelsi og allar skuldir felldar niður til að minna á hvað Kristur myndi gera fyrir okkur, að Hann myndi borga það sem við skuldum og höfum ekki efni á að borga.

Mofi, 30.5.2007 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband