Eru jólaguðspjöllin í mótsögn við hvort annað?

the_nativity_story_08Í hvíldardagsskóla fyrir nokkru þá kom upp sú spurning hvort að jólaguðspjöllin væru í mótsögn við hvort annað.  Eins og einn kristinn einstaklingur orðaði þetta eftir að lesa bók Christopher Hitchens, God is not great.

I am reading through "God is not Great" (2007), by atheist Christopher Hitchens.

Hitchens raises a point that I am having some difficulty refuting. He writes that Matthew and Luke “flatly contradict each other on the ‘Flight to Egypt,’ Matthew saying that Joseph was ‘warned in a dream’ to make an immediate escape and Luke saying that all three stayed in Bethlehem until Mary’s ‘purification according to the law of Moses,’ which would make it forty days, and then went back to Nazareth via Jerusalem” (page 111).

In other words, Luke’s account makes no mention of the flight to Egypt. It also makes no mention of a need to escape. Rather, Luke indicates that Jesus was circumcised eight days after His birth (2:21). Luke then proceeds to write that Jesus’s parents took Him to the Temple to present Him to the Lord. In sum, the problem, from my perspective, is twofold: 1. Luke does not seem to leave a gap of time for Jesus’s family to flee to Egypt and then travel to Nazareth. 2. Luke provides no reason for the family to need to escape.

What would be some good apologetic responses to this issue?

Mig langar að skoða þetta aðeins, hvort um er að ræða mótsögn eða ekki.

Skoðum fyrst viðeigandi vers, hlið við hlið.

Lúkas 2Matteus 2
Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem9Þeir hlýddu á konung og fóru. Og stjarnan, sem þeir sáu austur þar, fór fyrir þeim uns hana bar þar yfir sem barnið var. 10Þegar þeir sáu stjörnuna glöddust þeir harla mjög, 11þeir gengu inn í húsið og sáu barnið og Maríu, móður þess, féllu fram og veittu því lotningu
15Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himins sögðu hirðarnir sín á milli: „Förum beint til Betlehem að sjá það sem gerst hefur og Drottinn hefur kunngjört okkur.“ 
16Og þeir fóru með skyndi og fundu Maríu og Jósef og ungbarnið sem lá í jötu. 
22En er hreinsunardagar þeirra voru úti eftir lögmáli Móse fóru þau með hann upp til Jerúsalem til að færa hann Drottni 
 14Jósef vaknaði, tók barnið og móður þess um nóttina og fór til Egyptalands. 15Þar dvöldust þau þangað til Heródes var allur. 
 16Þá sá Heródes að vitringarnir höfðu gabbað hann og varð afar reiður, sendi menn og lét myrða öll sveinbörn í Betlehem og nágrenni hennar, tvævetur og yngri en það svaraði þeim tíma er hann hafði komist að hjá vitringunum.
39Og er þau höfðu lokið öllu, sem lögmál Drottins bauð, sneru þau aftur til Galíleu, til borgar sinnar Nasaret23Þar settist hann að í borg sem heitir Nasaret en það átti að rætast sem spámennirnir sögðu fyrir um: „Nasarei skal hann kallast.“ 

 

Möguleg atburðarás í tímaröð:

1. Hjónin fara frá Nasaret til Betlehem. Matteus fjallar ekki um þetta ferðalag heldur byrjar hans saga í Betlehem.

2. Textinn segir að á meðan þau voru í Betlehem þá fæðist Jesú svo það þarf ekki endilega að hafa verið þannig að María hafi verið kasólétt þegar þau ferðuðust til Betlehem.

3. Fjárhirðar sem voru þarna nálægt koma til þeirra og veita barninu lotningu.

4. Eftir minnsta kosti 40 daga, gæti hafa verið nokkrir mánuðir, þá fara María og Jósef til Jerúsalems af því að lögmálið segir að börn eiga að vera helguð Guði í musterinu.

5. Jósef fær vitrun í draumi um að flýja til Egyptalands því að Heródes vill drepa barnið. Þetta gæti hafa gerst ári eftir fæðingu Jesú því að Heródes skipar svo fyrir að það skuli drepa öll börn tveggja ára og yngri.

6. Eftir að Heródes deyr þá koma María og Jósef aftur til Ísraels og setjast að í Nasaret.

Ég sé enga mótsögn milli jólaguðspjallanna, eina sem ég sé er að Lúkas fjallar ekki um flóttann til Egyptalands. Það geta verið margar ástæður fyrir því, kannski vissi hann ekki af því, kannski fannst honum sá atburður ekki skipta máli fyrir sinn lesendahóp, að minnsta kosti þá er það ekki endilega mótsögn að ekki segja frá öllu. Alveg eins og þegar við segjum frá hvað á okkar daga hefur drifið þá veljum við hvað við viljum segja frá því að þylja allt upp er eitthvað sem enginn nennir að hlusta á.

Svo, vonandi mun enginn hlusta á jólaguðspjallið lesið þessi jól með vafa í huga heldur aðeins að njóta mjög fallegrar sögu sem boðar vonar boðskap fyrir allt mannkyn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 802813

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband