Morgurmatur Mofa

cereal.jpgÉg er búinn að vera í gegnum árin að reyna að bæta morgunmatinn minn. Reyna að byrja daginn eins hollan og ég get. Svo, hérna er hann:

  • Lýsi, nóg af omega 3 fitusýrum.
  • D vítamín pillur, við fáum svo lítið af því í gegnum sólarljós hérna á Íslandi að það er full þörf á að fá smá auka d vítamín.
  • Kreatín... ef þú ert að æfa þá er þetta mjög gott.
  • Vatn, blandað sítrónu safa ( tvær matskeiðar ) og rauður pipar. Á að vera...hreinsandi.
  • Hörfræ, ég mala í kaffikvörn góðan slatta af hörfræjum og set í vatn og renn því niður. Meiri trefjar hjálpa manni að grennast en það er margt fleira gott við hörfræ.
  • Súrmjólk með slatta af hveitikím í. Hveitikím er fullt af próteinum og næringu, þetta er meira en nóg til þess að ég verð ekki svangur fyrr en í hádegismatnum.  Ég bæti vanalega smá púðursykri til að bragðbæta og þegar ég vil vera góður við sjálfan mig þá bæti ég bláberjum við.

Virkar kannski flókið en ég held að það sé vel þess virði fyrir að byrja daginn vel. Það sem vantar þarna er að borða einn ávöxt á morgnanna, þarf endilega að bæta því við.

Væri gaman að heyra hvað ykkur finnst og sömuleiðis ykkar hugmyndir af hollum morgunmati.


Heili flugunnar hraðari en hvaða tölva sem er

fly_eyes.jpgÞegar fólk kremur óvelkomnar flugur þá hugsar það sjaldnast að það sé að kremja eitthvað merkilegt. Nokkrir vísindamenn hjá Max Planck stofnuninni hafa rannsakað augu flugunnar og heila og þeir sögðu t.d. þetta: "the minute brains of these aeronautic acrobats process visual movements in only fractions of a second.".

Samkvæmt greininni þá ef að knattspyrnu maður hefði sömu sjóngetu og fluga þá væri það eins og hann gæti spilað fótbolta í "slow motion".

Ímyndaðu þér heila flugunnar og hve smár hann er og bættu við þessari staðreynd: "one sixth of a cubic millimetre of brain matter contains more than 100,000 nerve cells – each of which has multiple connections to its neighbouring cells.

Á einum stað í greininni þá segja þeir að heili flugunnar er hraðari en hvaða tölva sem er.  Alls ekki slæmt, sérstaklega miðað við hve örsmár heili flugunnar er.  Til að útskýra þessa fullyrðingu sína þá sögðu þeir þetta: "albeit the number of nerve cells  in the fly is comparatively small, they are highly specialized and process the image flow with great precision while the fly is in flight.  Flies can therefore process a vast amount of information about proper motion and movement in their environment in real time – a feat that no computer, and certainly none the size of a fly’s brain, can hope to match".

Þessi hópur vísindamanna við Max Planck stofnunina töluðu um heila flugunnar með því að nota orð sem við almennt notum um tölvur. Að heili flugunnar breytir gögnum, reiknar út hreyfingar og kemur þeim upplýsingum áfram til flugstjórnunnar kerfisins og svo framvegis.

Það er alveg stórkostlegt að jafnvel í svona smáu dýri þá getur maður hið ótrúlega handverk Guðs.

Hérna er greinin sem fjallaði um þetta í PhysOrg


Do you think you are a good person?

Forvitnilegt að sjá svipinn á þessum einstaklingi þegar upptakan er spiluð fyrir hann.   

Ray Comfort þyrfti endilega að spjalla við þennan einstakling.


mbl.is Skeytti engu um upptökubúnað
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Christopher Hitchens með krabbamein

Sorglegar fréttir af Christopher Hitchens en hann greindist með krabbamein fyrir nokkru. Hitchens er guðleysingi sem skrifaði bókina " God Is Not Great: How Religion Poisons Everything ". Ég hef ekki lesið bókina en henni gekk vel og Hitchens hefur verið...

Trúarskoðanir Dalai Lama

Ég ætla ekki að þykjast vera sérfræðingur í trúarskoðunum Dalai Lama en mig langar að benda á grein sem fjallar um þær út frá sjónarhóli Vitrænnar hönnunar, sjá: Intelligent design east: What might it look like? Sérstaklega skemmtilegt fannst mér þessi...

Jarðfræði og Biblían

Ímyndaðu þér að þú ættir að gera smá rannsókn og komast að því hver drap Abraham Lincon. Fyrst hljómar þetta nokkuð einfalt, lesa heimildir frá þessum tíma og komast að því hvað þeir sem upplifðu þessa atburði höfðu um málið að segja. Þegar þú síðan...

Tilgangur lífsins ef Guð er ekki til

Hérna er stutt myndband þar sem William Lane Craig talar við Christopher Hitchens um tilgang lífsins ef Guð er ekki til.

Dýrin eru ótrúleg!

Þessi saga um köttinn Karim er alveg mögnuð! Minn köttur er ennþá týndur ( Jólakötturinn ) svona saga gefur manni smá von um að hann finnist aftur. Aftur á móti þá eignaðist "kærsta" hans kettlinga fyrir stuttu. Hérna til hægri er mynd af litlu krílunum....

Sex sex sex

Eitt af því sem vekur alltaf kátínu hjá mér er þegar erlendir fyrirlesarar koma til Íslands og fjalla um Opinberunarbókina og merki dýrsins. Þegar þeir síðan segja tölu dýrsins "six six six" og þýðandinn segir "sex sex sex". Svipurinn er vanalega...

James Randi og skynsemin

Því miður missti ég af fyrirlestri James Randi sem var í kvöld. Var víst alveg pakkað, í stofu fyrir 150 manns tróðu sér víst hátt í 300 og höfðu gaman af; samkvæmt þeim sem voru þarna fyrir utan. Frábært framtak og án efa gott innlegg í samfélags...

Kóði innan kóðans

Nýlega birtist grein í tímaritinu Nature sem fjallaði um uppgvötun sem gæti verið jafn merkileg og þegar Francis Crick og James Watson uppgvötuðu strúktúr DNA og hvernig upplýsingar voru geymdar með DNA. Titill greinarinnar í Nature er The code within...

The problem of evil - William Lane Craig

Þegar sumir lesa svona fréttir þá velta þeir fyrir sér ef Guð er góður, af hverju er þá illska í heiminum. Af hverju gerast atburðir sem þessir. Hérna er útskýrir William Lane Craig af hverju tilvist illskunnar er ekki góð rök á móti tilvist Guðs heldur...

Umburðarlindi og baráttan við holdið

Svakalega fara þessir lúðrar í taugarnar á mér. Það er á þeim stundum þegar maður kreppir hnefinn og óskar einhverju liði alls ills að Guð bankar á öxlina á manni og spyr hvað er í gangi. Allt í einu man maður eftir boði Guðs að sýna öðrum umburðarlindi...

Um mofa blogg

Á þessu bloggi fjalla ég um mína trú og hvernig ég sé heiminn sem við lifum í. Ég hef mikinn áhuga á vísindum en ég er ósammála hluta vísindasamfélagsins sem trúir að það verður að útskýra allt í þessum heimi án Guðs. Ég trúi að sagan sem Biblían segir...

Kalksetlögin

Viðamikil kalksteinslög í setlagastaflanum hefur lengi verið ráðgáta fyrir sköpunarsinna. Ástæðan er sú að núverandi kenningar halda því fram að kalksteinslög í fortíðinni mynduðust við hæg lífræn eða ólífræn ferli á sama hátt og við sjáum í dag, en...

Minna um krabbamein hjá aðventistum

Þegar ég sá þessa frétt langaði að benda á þessa rannsókn hérna sem fjallar um krabbamein meðal aðventista, sjá: Associations between diet and cancer, ischemic heart disease, and all-cause mortality in non-Hispanic white California Seventh-day Adventists...

Er Guð grimmari en þessi maður?

Af öllum þeim kenningum sem finnast innan kristinanna kirkna þá er kenningin um helvíti sú sorglegasta og hreinlega djöfullegasta. Þ.e.a.s. að þegar fólk deyr þá fari það á stað elds og brennisteins og er þar kvalið um alla eilífð. Ég er á því að Biblían...

Sprengingin sem heldur áfram að stækka

Fyrir ekki svo löngu síðan benti ég á myndina Darwin's Dilemma sem fjallar aðallega um kambríum sprenginguna og hvernig hún bendir til þess að þróunarkenningin er röng. Hið skemmtilega er að þessi sprenging heldur áfram að stækka, fleiri og fleiri...

Góður Guð, vondur heimur?

Ef það er eitthvað sem skekur trú margra þá er það þegar það sér saklaus börn þjást. Það er á þannig stundum sem trúaðir spyrja sig "afhverju stöðvar Guð þetta ekki" og þeir sem trúa ekki á Guð hugsa "ef það er til Guð þá er Hann ekki góður". Til að...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband