Hraði niðurbrots geislavirkra efna ekki fasti

atom.jpgNýleg rannsókn gerð af vísindamönnum í Stanford leiddi í ljós eitthvað mjög óvænt sem er að sólin virðist hafa áhrif á þann hraða sem geislavirk efni brotna niður í önnur efni.  Hérna er greinin: The strange case of solar flares and radioactive elements

Þegar kemur að því að mæla aldur þessara efna þá hafa menn alltaf glímt við nokkra óþekkta þætti, þætti sem eru bara ályktaðir og síðan vona menn að þeir eru réttir. Hve mikið efni var í upphafi, hvort eitthvað utan að komandi hafi bætt við efni eða tekið efni frá sýninu. Eini faktorinn sem virtist vera á hreinu var hraði þessara ferla, hve hratt þessi geislavirku efni brotna niður í önnur efni en nú benda gögnin til þess að þetta er ekki fasti.

Þetta ætti að láta hugsandi fólk efast um áreiðanleika þessara mælinga.

Þessar fréttir munu örugglega vekja mikla athygli og mikla umfjöllun næstu mánuði og það verður gaman að fylgjast með því.


Hvernig ætli það hafi verið að vera skyldur Hitler?

Hvernig ætli það sé að vera skyldmenni manns sem er flokkaður sem eitt versta illmenni sögunnar? Ef að einhverjir gyðingar vita að Hitler tilheyrði þeirra ætt þá er spurning hvort þeir hefðu áhuga á því að viðurkenna það. Það væri náttúrulega mikið áfall fyrir orðspor Hitlers að vera síðan gyðingur LoL   en ég sé ekki betur en það er mjög erfitt að vita það fyrir víst.

Í þessum pælingum rakst ég á mynd um fjölskyldu Hitlers ef einhver hefur áhuga ( ekki séð hana sjálfur )

http://www.guba.com/watch/3000094865/Hitler-s-Family-In-The-Shadow-Of-The-Dictator

 


mbl.is Hitler af gyðingaættum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vitræn hönnun er vísindi

Hvað hugtakið "vísindi" þýðir er eitthvað sem vísindamenn hafa í gegnum árhundruðin ekki verið alveg sammála um. Hin vísindalega aðferð er oftast tileinkað Francis Bacon þó að saga hinnar vísindalegu aðferðar er löng og flókin. Í dag þá fer það eftir...

Burt með alla þessa bæjarstjóra!

Ok, ekki alveg alla en hvað er í gangi á þessu landi okkar? Er virkilega þörf á hálaunuðum bæjarstjóra í bæ sem búa í 900 manns? Þessi stjórnsýsla okkar er alveg fáránlega mikil og líklegast ekki þörf á nema 5% af öllum þessum bæjarfulltrúum og...

Grímur og Guð

Ímyndaðu þér að þú ferðast til þorps í fjarlægu landi. Sirka hundrað manns búa þarna og þegar þú byrjar að kynnast fólkinu þá heyrir þú um mann sem kallast Grímur. Fólk talar um kynni sín af Grími og hvernig hann er. Eftir mánaðar dvöl í þorpinu áttar þú...

Lexían af Idu

Það er dáldið fyndið að þróunarsinnar tala um að þessi trú þeirra er jafn sönnuð og þyngdaraflið en samt þegar þeir finna einhver beinbrot sem þeir halda að sé eitthvað sem styður trú þeirra þá fagna þeir með miklum látum. Af hverju að fagna þegar þú...

Neyðaraðstoð ADRA í Pakistan

Þessi frétt sló mig. Vissi ekki af hve mörg börn eru þarna í hættu. Ég vil benda á hjálparstarf ADRA en samtökin eru að hjálpa þessu fólki. Hérna er slóð til að gefa til að hjálpa þessu fólki, sjá: Neyðarsjóður ADRA Hérna er umfjöllun ADRA um ástandið,...

Laug Gylfi vísvitandi?

Ég á erfitt að sjá fyrir mér að Gylfi hafi virkilega logið vísvitandi. Af hverju hefði hann á að gera það? Að vera gripinn að því að ljúga í stjórnmálum er alvarlegt mál og í rauninni á öllum sviðum lífs. Þú missir traust, fólk getur misst álit á þér,...

Á að kenna Vitræna hönnun sem vísindi?

Hérna rökræða Michael Behe og eðlisfræðingurinn Stephen Barr um hvort ætti að kenna Vitræna hönnun sem vísindi eða ekki. Forvitnileg umræða og sérstaklega í ljósi þess að þeir eru báðir kaþólikkar. Should Intelligent Design Be Taught as Science? Vitræn...

Trú fyrir rétti

Hátíð sem kallast FreedomFest 2010 var haldin í Las Vegas fyrir stuttu síðan. Þar rökræddu Dinesh D'Souza og Steven Landsburg hvort að trúarbrögð væru orsökin fyrir mikið af illskunni í heiminum. Þetta var sett fram eins og dómsmál þar sem Dinesh og...

Behe um Edge of Evolution

Fyrir þá sem hafa áhuga á því hvaða rök Michael Behe kemur með í bókinni Edge of Evolution þá útskýrir hann þau í þessum fyrirlestri hérna: http://www.c-spanvideo.org/program/199326-1

Aðvent boðskapurinn á Oprah

Langar að benda á þetta myndband hérna: http://www.facebook.com/video/video.php?v=655628014230&ref=mf Þarna er fjallað um konu sem er 103 ára gömul sem er alveg ótrúlega spræk. Sumir gera lítið úr því að margir aðventistar lifa lengur en þetta er ekki...

Óvinur kristninnar númer 1, þjóðkirkjan

Sumir gætu haldið að Vantrú væru aðal óvinur kristni á Íslandi en ég tel að þeir aðalega vekja áhuga á trúmálum og láta almenning fá slæma tilfinningu fyrir þeirra öfga hegðun og málflutningi. Sú stofnun sem aftur á móti gefur mjög ljóta mynd af kristni...

Þú skalt dæma

Biblían fjallar að mjög miklu leiti um hvað er rétt og hvað er rangt. Hún glímir t.d. við hver munurinn er á milli þess sem segist fylgja Guði en er ekki að ganga á Guðs vegum og þess sem raunverulega gengur á Guðs vegum.Varðandi "þú skalt ekki dæma" þá...

Skiptir það máli hverju aðrir trúa?

Kannski er þetta skrítin spurning hérna á blogginu þar sem allir hérna virðast keppast um að sannfæra aðra um að þeir hafa rétt fyrir sér og að það skipti máli en sú skoðun að það skiptir ekki máli hverju annað fólk trúir má samt finna víða. Langar að...

Vestmanneyjaferð

Jæja, þá er mín Vestmanneyjaferð á enda og var alveg meiriháttar. Það var vægast sagt brösótt að komast hingað. Fartölvan bilaði sem ég ætlaði að taka með mér, kvöldið fyrir brottför og sömuleiðis farsíminn. Þar sem að farsíminn minn er mín vekjaraklukka...

Geta guðleysingjar farið í heilagt stríð?

Þar sem aðal trúarbrögð Norður Kóreu eru búddismi og Konfúsíusismi þá virkar frekar skrítið að ætla að fara í heilagt stríð. Þessi trúarbrögð trúa ekki á tilvist Guðs svo þá kemur spurningin, geta guðleysingjar farið í heilagt stríð? Ég hef alltaf tengt...

True scotsman rökleysan

Stundum í umræðunni um kristna eða múslima eða önnur trúarbrögð þá kemur upp þessi fullyrðing að enginn sannur kristinn eða múslimi myndi gera hitt eða þetta. Þetta er kallað " no true scotsman " rökvillan. En ég er á því að þetta er ekki rökvilla....

Lexía - réttlæting fyrir trú

Eitt af því sem mér þykir mjög vænt um í Aðvent kirkjunni er lexían. Þetta er tími þar sem meðlimir tala saman um eitthvað ákveðið efni þó að það sé ekkert heilagt og umræðurnar fara oft um víðan völl. Það er nokkuð magnað að hugsa til þess að sirka 16...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Mofa blogg

Höfundur

Mofi
Mofi

Ég er sjöundadags aðventisti en tala samt ekki fyrir hönd safnaðarins. Hugbúnaðarfræðingur að mennt og aðhyllist Biblíulega sköpun. 

Íslendingur, hugbúnaðarfræðingur að mennt, búsettur í Englandi sem hefur áhuga á flest öllu. 

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • trinity witch craft
  • Bodunarkirkjan
  • Trinity_Symbol
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)
  • Christmas Adoration of the Shepherds (1622)

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband